Morgunblaðið - 14.06.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ1986 Undirbýr kærur vegna vanskila á skyldusparnaði ALÞÝÐU SAMBAND íslands ætl- ar að kæra til Rannsóknarlög- reglu rikisins fyrirtæki sem ekki hafa staðið skil á skyldusparnaði launþega. „Tilgangurinn er að vekja atvinnurekendur til vitund- ar um skyldu sína,“ sagði Lára V. Júliusdóttir, lögfræðingur ASÍ. „Húsnæðisstofnun á að inn- heimta þetta fé, en hefur brugð- ist. Við erum búin að fara alltof oft á fund ráðherra og fá hans ljúfu svör um að málið sé ákaf- lega brýnt. Nú er mælirinn fuU- ur.“ Misbrestur á innheimtu skyldu- spamaðar hefur lengi verið til umfjöllunar hjá verkalýðsfélögun- um. Árið 1984 voru samþykkt ný lög um Húsnæðisstofnun ríkisins þar sem kveðið er á um að vanskil á skylduspamað skuli hljóti sömu meðferð og vanskil á launaskatti. „Hinsvegar hefur þetta aldrei virk- að svona í framkvæmd. Þegar laun- þegi kemur til Húsnæðisstofnunar- innar og segir að skylduspamaður sinn hafi ekki verið borgaður inn er honum vísað til okkar. I flestum tilvikum fer viðkomandi til síns atvinnurekanda og fær skyldu- spamaðinn greiddan út. Þessir peningar skila sér því aldrei í rétta sjóði" sagði Lára. Taldi hún að húsnæðisstofnun hefði ekki bol- magn til að rækja hlutverk sitt. Yfirheyrslur hafnar í okurmálinu: Hermann segir viðskipta- vini sína hafa vitað að hverju þeir gengju YFIRHEYRSLUM yfir Hermanni Björgvinssyni í okurmálinu svokall- aða, var fram haldið í Sakadómi Kópavogs i gær. Beindust þær einkum að lánveitingum hans til einstaklinga í viðskiptalifi á undan- förnum tveimur árum, en á þeim tima er hann talinn hafa tekið sér tæplega 21 miHjón króna í okurvexti. Sagði Hermann við yfirheyrsl- umar i gær að yfirleitt hefðu viðskiptavinir hans fallist á þá vaxta- upphæð sem hann fór fram á að fá og fyllilega vitað að hverju þeir gengju. Yfírheyrslur í málinu munu halda áfram á mánudagsmorgun. Yfírheyrslumar í Sakadómi Kópavogs yfir Hermanni hófust á fimmtudag og kom þá meðal annars fram að hann hefði hafið okurlána- starfsemi sína á seinni hluta árs 1982. Sagði Hermann að allir hans viðskiptavinir hefðu gert sér grein fyrir hverslags starfsemi um var að ræða. Kvað hann upphafíð að því að hann leiddist út í þessa lána- starfsemi hafa verið það að hann komst í vanskil með skuldabréf sem hann hafði keypt, og til að geta staðið í skilum við lánardrottna sína hefði hann orðið að grípa til ein- hverra ráða. Vextimir sem Hermann tók í þessum viðskiptum sínum voru á bilinu 61%-272,7% en á sama tíma var einungis heimilt, samkvæmt ákvörðun Seðlabanka íslands, að taka 18%-34% ársvexti. Við yfírheyrslur í gær kom fram að Hermann hafði einkum lánað fólki úr viðskiptalífí, en einnig hefði hann lánað einstaklingum utan þess, en þá jafnan tekið lægri vexti ef um hefði verið að ræða fólk sem hann taldi geta átt í erfíðleikum með að standa í skilum. Hann kvaðst þó yfírleitt hafa reynt að hafa vexti það háa að hann tapaði ekki sjálfur á viðskiptunum, því hann þurfti að borga lánardrottnum sínum milli 10 og 16,4% vexti. Við yfírheyrslumar á fimmtudag kom fram að Hermann skuldar um 150 milljónir króna sem veð var fyrir í þeim lánum sem hann átti útistandandi, og kvað hann óvíst að þau fengjust að fullu greidd. Kópavogur: Stefnir í meirihluta- myndun í dag ALÞÝÐUFLOKKUR og Alþýðu- bandalag halda í dag áfram fundum um myndun meirihluta I Kópavogi. Að sögn Guðmundar Oddssonar, efsta manns á lista Alþýðuflokksins, er líklegt að til úrslita dragi í dag og sagði hann að ef af meirihlutamyndun þess- ara flokka yrði Iíklegt að Krist- ján Guðmundsson yrði ráðinn bæjarstjórí áfram. Framsóknarflokkurinn var í meirihluta með Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi. Ifv J§ i % 1 1 i ■■■ % í ú i myí * * • t1', - I Símamynd/Magnús Gottfreðsson Frá útför Jóns G. Sólnes. Kistuna báru Sigurður J. Sigurðsson, Björn Jósef Amviðarson, Stefán Stefánsson, Valgarður Baldvinsson, Sigurður Jóhannesson og Gunnar Ragnars. Aftan við þá má sjá dóttur og konu Jóns, sem báðar heita Inga. Jón G. Sólnes jarðsunginn ígær Akure^ri. ÚTFÓR Jóns. G. Sólnes, fyrr- verandi bankaútibússtjóra, al- þingismanns og bæjarfulltrúa, var gerð frá Akureyrarkirkju í gær að viðstöddu miklu fjöl- menni. Félagar Jóns úr bæjarstjóm, og tveir af æðstu embættismönn- um bæjaríns, báru kistuna úr kirkju: Gunnar Ragnars, Sigurður Jóhannesson, forseti bæjarstjóm- ar, Sigurður J. Sigurðsson, Bjöm Jósef Amviðarsson, Stefán Stef- ánsson, bæjarverkfræðingur og Valgarður Baldvinsson, bæjarrit- ari. í kirkjunni vom fánar Golf- klúbbs Akureyrar og Lionsklúbbs Akureyrar en Jón var heiðurs- félagi í GA og annar tveggja stofnenda Lionsklúbbsins. Frímúrarar stóðu heiðursvörð við kistuna meðan á athöfninni stóð. Séra Birgir Snæbjömsson jarð- söng. Breytir ekki af stöðunni um bann við geymslu efnavopna — segir utanríkisráðherra Matthías Á. Mathiesen um geinina í Wall Street Journal MENN hafa vitað í nokkum tíma, að i sovézkum hernaðaráætlun- um er gert ráð fyrir beitingu efnavopna á byijunarstigi átaka með hefðbundnum vopnum. Þeir hafa yfir miklum birgðum slíkra vopna að ráða og nokkur vissa er fyrir hendi á notkun á svoköll- uðu gulu regni í Afganistan meðal annars. Að þessu leyti kemur þvi ekkert nýtt fram i frétt WaU Street Journal. Arás á ísland yrði ekki svarað með efnavopnum á islenzkrí grund, þar sem innrásaraðUinn yrði væntanlega vel búinn tíl að mæta slíkri gagnárás. Þessi frétt breytir þvi í engu þeirri afstöðu islenzkra stjórnvalda með að leyfa ekki geymsiu efnavopna á íslenzku yfirráðasvæði," sagði Matthías A. Mathiesen utanrikis- ráðherra i samtali við Morgun- blaðið. Tilefni þessara orða utanríkisráð- herra er grein sem birtist í Wall Street Joumal, þar sem meðal annars var sagt að árás Rússa á ísland væri líklegust með efnavopn- um. Matthías A. Mathiesen sagði ennfremur: „Á hinn bóginn vekur fréttin spumingar um fælingar- styrk Atlantshafsbandalagsins á þessu sviði og með hvaða hætti árás með efnavopnum á eitt ríki bandalagsins yrði svarað. Það eru slíkar vangaveltur, sem Bandaríkja- menn segja að liggi að baki áætlana þeirra um að hefja framleiðslu sér- stakra efnavopna undir lok næsta árs fáist Sovétmenn ekki til raun- hæfra samninga um niðurskurð á efnavopnum fyrir þann tíma. Bandaríkjamenn hafa ekki framleitt efnavopn síðan 1969 og birgðir þeirra í Evrópu em þegar orðnar hættumeiri í geymslu. Hin nýju vopn yrðu ömggari í geymslu og aðeins geymd í Bandaríkjunum. Á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa haldið að sér höndum hvað snertir framleiðslu slíkra vopna, hafa Sov- étmenn haldið áfram að þróa og framleiða efnavopn og vfst þykir að þeim hafi verið beitt í Afganist- an. Ég tel að mestu varði að fá Sovétmenn til samninga um útrým- ingu þessara ógurlegu vopna, þar sem eftirlit yrði tryggt með fram- kvæmdinni og vona að í samninga- viðræðunum í Genf takist að snúa þeim inn á skynsamlegar brautir í þessum efnum, en það hefur áður strandað á eftirlitsþættinum," sagði Matthías. Svavar Gestsson og Þjóðviljinn: Starfsfólkið með and- stæðar yfirlýsingar STARFSFÓLK Þjóðviljans af öðrum deUdum en ritstjórn sendir frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem lýst er yfir fögnuði með það að Svavar Gestsson formað- ur Alþýðubandalagsins komi á nýjan leik til starfa á Þjóðviljan- um. Athygli vekur að yfirlýsing þessi er óundirrítuð. Þar stend- ur einungis starfsfólk skrif- stofu, auglýsingadeildar, prent- smiðju og afgreiðslu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru ástæður þess að yfír- lýsingin er óundirrituð þær að ekki náðist samstaða alls starfsfólksins sem vinnur á ofangreindum deild- um Þjóðviljans að undirrita þessa yfírlýsingu, og eftir því sem Morg- unblaðið kemst næst er um helm- ingur þessara starfsmanna óánægður með ofangreinda yfírlýsingu. Yfírlýsing starfsfólksins er svo- hljóðandi: „Vegna blaðaskrifa að undanfömu um óánægju ritstjóm- ar Þjóðviljans með hugsanlega ráðningu Svavars Gestssonar sem ritstjóra, vill annað starfsfólk blaðsins taka fram að það harmar þessi viðhorf og býður Svavar velkominn til starfa á ný.“ INGÓLFUR Hjörleifsson, for- maður starfsmannafélags Þjóð- viljans, og Hörður Jónsson, af- greiðslustjóri blaðsins, báðu Morgunblaðið í gærkvöldi að birta eftirfarandi yfirlýsingu frá þeim vegna yfirlýsingar, sem i gær var send út í nafni starfs- fólks deilda blaðsins. „í fyrsta lagi: Þessi yfirlýsing var ekki borin undir alla starfsmenn á þessum deildum. í öðrum lagi: Nokkrir þeirra, sem yfirlýsingin var borin undir, lýstu yfír hlutleysi í þessu máli, og töldu það mál rit- stjómar og útgáfustjómar." Þjóðhátíðin í Reykjavík: Þrjú leiksvið í miðbænum Skemmtídagskrá hátíð- arhaldanna 17. júní í Reykjavík hefst kl. 14:00 í miðbænum á þremur leik- sviðum; í Hljómskálagarð- inum, Hallargarðinum og á Lækjartorgi. Ólafur , Jónsson hjá íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Morgunblaðið að tilgangurinn með þessari til- högun væri að dreifa fólkinu betur um miðbæjarsvæðið og gera fólki þannig kleift að njóta atriðanna betur. Sömu atriðin munu verða sýnd á fleiri en einu svæði og ætti því enginn að þurfa að missa af neinu. Götuleikhús mun sömuleiðis setja svip sinn á miðbæinn, en um það sér leikhópurinn „Veit mamma hvað ég vil?“ Aðrar nýjungar verða hús- dýrasýning í Hljómskála- garði og bátar á tjöminni. Sjá á bls. 28 frétt um þjóðhátíðardag- skrána í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.