Morgunblaðið - 14.06.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.06.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ 1986 45 < - Spennandi leikir um helgina • Maradona hefur laikiA frábæriega í heimameietarakeppninni legt er að Desmet geti leikið á morgun. Eric Gerets, bakvörður- inn sterki, er hinsvegar ennþá slæmur í ökkla, og miðvallarleik- maðurinn Rene Vandereycken er sömuleiðis á sjúkralistanum. Sovétmenn eru í ólíkri stöðu. Þeim hefur gengið frábærlega vel hingaö til í keppninni, hafa unniö góöa sigra, og gátu leyft sér þann munað að hvíla flesta af aðalmönnum liðsins í síðasta leik sínum í riðlinum gegn Kan- ada og vinna samt öruggan sig- ur. Telja verður Sovétmenn mun sigurstranglegri í leiknum, sem sýndur verður í sjónvarpinu kl. 22.50 - eða 50 mínútum eftir að hann hefst í Leon. Brasilía-Pólland Á mánudaginn verða tveir leik- ir. Fyrst eigast við Brasilíumenn og Pólverjar í Leon. Brasilíumenn eru sigurvegarar síns riðiis og eru eina liðið sem ekki hefur fengið á sig mark í keppninni ennþá. Pólverjartöpuðu hinsveg- ar síðasta leik sínum stórt og komust í 16 liða úrslitin vegna óvænts sigurs Marokkó á Portú- gal. Allt bendir því til þess að Brasifía komist áfram, og ftestir knattspyrnuunnendur óska þess víst örugglega. Liðið sýndi ekki mikið framan af, en hefur farið vaxandi og sigurínn gegn Norð- ur-írum var sannfærandi. KEPPNIN í 16 liða úrslitunum á heimsmeistaramótinu í Mexíkó hefst á morgun, sunnudag, með tveimur leikjum. Aðrir tveir leikir verða síðan á mánudag, tveir á þriðjudag og tveir á miðvikudag, en þá lýkur umferðinni. Átta liða úrslhin verða síðan leikin um næstu helgi. með árangur sinn á HM til þessa. Og það eru þeir ekki heldur. í herbúðum þeirra hefur loft verið læviblandið, og yfirlýsingar Franky Van Der Elst þess efnis að einstakir leikmenn fengju að vaða uppi með allskyns stæla og frekjugang, m.a. að þykjast vera meiddir til að þurfa ekki að leika í öðrum stöðum en sínum vanalegu, vöktu mikla athygli. Að sögn fararstjóra Belganna hefur þessi ágreiningur nú verið leystur, og Van Der Elst hefur sent frá sér aðra yfirlýsingu um að fyrri yfirlýsing hafi verið orðum aukin. Allt um það eiga Belgar í miklum vandræöum vegna meiðsla, og til dæmis hafa báðir sóknarmenn liösins, Vanden- bergh og Desmet, verið frá. Lík- Fyrsti leikurinn hefst í Mexíkó kl. 18 að íslenskum tíma. Þá leika gestgjafarnir Mexíkó gegn Búlg- aríu. Fyrirfram reikna flestir með auðveldum sigri Mexíkana á Azteka-leikvanginum, þar sem 112 þúsund áhorfendur verða allir á bandi heimamanna. En Ivan Vutsov, þjálfari Búlgara, er ekki á sama máli. Blaðamenn hafa lítið fengiö að tala við leik- menn eða aðstandendur búlg- arska liðsins, en á óvæntum blaðamannafundi í fyrradag tal- aði Vutsov frjálslega um mögu- leika síns liðs gegn Mexíkó. „Við erum ekki stoltir af því hvernig við, komumst í 16 liða úrslitin," sagði Vutsov. „Við lék- um ekki einn einasta leik í riðlin- um af eðlilegri getu, og við vorum undir miklum þrýstingi að heim- an. En nú þegar við höfum náð því takmarki sem við settum okkur í upphafi þá mun leikur liösins verða allt annar og betri.“ „Ég veit að lið Mexíkó er mjög gott og hefur á að skipa þremur leikmönnum í heimsklassa - framlínumanninum Hugo Sanc- hez og miðvallarleikmennina Miguel Negrete og Thomas Boy. Þetta eru þeir leikmenn sem við verðum að stöðva í leiknum til að eiga möguleika. Við ætlum okkur að sigra í leiknum,“ sagði Vutsov. Þrátt fyrir geysilegan fögnuð almennings í Mexfkó yfir sigri sinna manna í B-riðlinum, þá hafa knattspyrnusérfræðingar og fjölmiðlar í Mexíkó ekki hrifist af leik liðsins. Allir leikir þess í riðlinum voru daufir og ósann- færandi, þrátt fyrir nauma sigra á Belgum og [rak. Það er því lík- • Van Der Elst hafur ekki talað fallega um fálaga sína f belgfska landsliðinu. lega of snemmt að bóka sigur Mexíkó í þessum leik. Hann verð- ur sýndur í sjónvarpinu á morg- un, sunnudag, klukkan 18. Sovétríkin-Belgía ( seinni leiknum á sunnudag- inn eigast við eitt af spútnikklið- um keppninnar, Sovétmenn, og eitt þeirra liða sem hvað verst hefur gengið, Belgar. Þrátt fyrir að komast áfram í 16 liða úrslitin geta Belgar ekki verið ánægðir • Ivan Vutsov segir að nú verðl allt annar bragur á leík búlgarska liðsins. Innbyrðis deilur hjá Belgum MIKIÐ ósamkomulag rfkir nú f herbúðum Belga. „Mórallinn er slæmur svo vægt sé til orða tekið,“ sagði Van der Elst, mið- vörður Belga, sem var settur út úr liðinu á móti Paraguay. Van der Elst var ósáttur við val liðsins, en í hans stað lék Michel Renquin, sem venjulega er vinstri bakvörður. Renquin var illa stað- settur þegar Cabanas skoraði mörk Paraguay, og var alfarið kennt um fyrra markið. Thys, þjálf- ari Belgíu, sagöist ekki lengur geta rætt liðskipan við leikmennina, en þeir sem gætu ekki sætt sig við Aðsókn að leikjunum á HM f Mexfkó er meiri en á Spáni fyrir 4 árum. Langflestir áhorfendur hafa sáð leiki Argentfnu, Brasllfu, Mexfkó, Paraguay, Uruguay og Spánar eða rúmlega 66 þúsund á leik þessara liða að meðaltali. Leikir í C-riðli hafa dregið að sér fæsta áhorfendur. 16.500 manns voru á leik Ungverjalands og Sov- étríkjanna og aðeins 13.800 á leik Kanada og Frakklands. Tiltölulega fáir áhorfendur hafa einnig verið á hlutina hefðu ekkert meira í Mex- íkó að gera. „Ég vil gjarnan vera áfram, en það verður að standa heiðarlega að málunum,“ sagði Van der Elst. Pfaff markvörður var öskuillur eftir leikinn og sætti sig engan veginn við varnarmistök samherja sinna sem kostuðu tvö mörk og annað stigiö. „Við verðum að fara að læra að leika eins og atvinnu- menn. Ég hef fengið mig fullsadd- an af þessu og get ekki þagað lengur," sagði Pfaff. Belgía leikur gegn Sovétríkjun- um í 16 liða úrslitum. leikjum í F-riðli og til þessa voru flestir á leik Englands og Portúgal eða um 23.000 manns. Mesta aðsóknin hingað til var á leik Mexíkó og Paraguay, en þann leik sáu 114.600 áhorfendur, en Aztek-leikvangurinn, þar sem leik- urinn fór fram, er sagður rúma 110.574. Heildaráhorfendafjöldi í 21 leik var 870.703 en var 754.329 á Spáni. Frjálsíþróttir: Fyrri hluti meistara- mótsins Meistaramót islands f frjáls- fþróttum, fyrri hlutl, fer fram á Laugardalsvelli 21.-22. júní nk. Keppt verður f tugþraut karla og sjöþraut kvenna, 10 kflómetra hlaupl karla og 5 km kvenna, og 4x800 metra boðhlaupi karla. Mótiö er að þessu sinni í umsjá frjálsíþróttadeildar ÍR og þurfa þátttökutilkynningar að berast Jó- hanni Björgvinssyni, Unufelli 33, eða skrifstofu FRÍ, á þar til gerðum keppnisspjöldum, í síðasta lagi 18. júní nk. Þátttökutilkynningu fylgi þátttökugjald, sem er krónur 200 á grein og 400 fyrir boðhlaup. Fleiri áhorfendur en á Spáni Rush lenti f óhappi Knattspyrnumaðurinn frægi, lan Rush, lenti f smá óhappi á ítalfu á dögunum þegar hann skrifaði undir hinn nýja samning við Juventus. Á leiðinni frá Torino til Rómar sprakk á bflnum sem Rush var f og voru þeir á um 160 kflómetra hraða þegar þetta gerðist. Ökumaður bifreiðarinn- ar, sem er sérlegur ökumaður framkvæmdastjóra Juventus, tókst með snarræði að koma f veg fyrir að bfllinn færi á hvolf. „Bílstjórinn var snöggur að átta sig og bjargaði þessu fyrir horn. Þetta var samt sem áður leiðinieg reynsla, nokkuð sem ég hef ekki áhuga á að lenda t daglega," sagði Rush eftir atburðinn. Knattspyrnuskóli KR Námskeið hefjast 2. júní og verða fjögur fyrstu þeirra sem hér segir: 1. námskeið 2.-13. júní 2. námskeið 16.-27. júní 3. námskeið 30. júní-11. júlí 4. námskeið 14. júlf—25. júlí 6-7 ára verða kl. 9.00-10.00 eða kl. 13.00-14.00, 8-9 ára kl. 10.45-12.15 og 10-12 ára kl. 14.45- 16.15. Kennarar verða Sigurður Helgason íþróttakennari og Gordon Lee þjálfari m.fl. Innritun fer fram á skrifstofu knattspyrnudeildar KRísíma 27181.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.