Morgunblaðið - 14.06.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐÍÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ Í986
T
Samstarf Sjálf-
stæðisflokks og
Alþýðuflokks
SAJtfKOMULAG hefur tekist
með sjáifstæðismönnum og al-
þýðuflokksmönnum um áfram-
haldandi samstarf i hrepps-
nefndinni á Skagaströnd. Adolf
J. Berndsen verður áfram oddviti
og Heimir I. Fjeldsteð varaodd-
viti.
í kosningunum 31. maí sl. jók
Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt á
Skagaströnd talsvert, en hann hef-
ur verið stærsti flokkurinn þar
Siglufjörður:
ísak
bæjarstjóri
GENGIÐ var formlega frá
myndun meirihluta í bæjarstjóm
Siglufjarðar á fundum sem
Alþýðuflokkur og Alþýðubanda-
lag héldu á fímmtudagskvöld.
Bæjarstjóri verður ráðinn ísak
Jóhann Ólafsson og verður fyrsti
fundur hinnar nýju bæjarstjóm-
ar haldinn nk. mánudag.
Matthías
undanfarin ár. Flokkurinn hlaut
stuðning 162 kjósenda, sem er
41,9% atkvæða. Hann hefur því 2
fulltrúa af 5 í hreppsnefndinni, eins
og á síðasta kjörtímabili. í kosning-
unum 1982 fengu sjálfstæðismenn
127 atkvæði eða 38,9% atkvæða.
„Við höfum stöðugt aukið fylgi
okkar undanfarin ár og emm mjög
ánægðir með úrslit kosninganna,"
sagði Adolf J. Bemdsen, oddviti, í
samtali við Morgunblaðið.
Adolf sagði, að enda þótt fram-
sóknarmenn og alþýðubandalags-
menn, sem hvorir um sig hafa einn
fulltrúa í hreppsnefnd, ættu ekki
aðild að meirihlutanum, væri gott
samstarf milli allra flokkanna um
hagsmunamál Skagstrendinga.
Hann kvað eitt aðalverkefni sveitar-
stjómarinnar um þessar mundir
snúa að hafnarmálum, en einnig
beindu menn mjög sjónum að úti-
vistarmálum og væri þar verið að
gera átak. Þá kvað Adolf atvinnu-
málin að venju vera í brennidepli,
en mikill uppgangur hefur verið í
atvinnulífinu á staðnum að undan-
fömu. Af þeim sökum væri farið
að bera á húsnæðisskorti, sem reynt
yrði að ráða bót á.
Bolungarvík:
Sjálf stæðisflokkur
og Alþýðuflokkur
mynda meirihluta
Bolungarvík.
SAMKOMULAG hefur tekist um
meirihlutasamstarf i bæjarstjóm
Bolungarvíkur milli Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks.
Verður meirihlutinn skipaður 3
fulltrúum af D-lista og einum
fulltrúa af A-lista, en svo sem
kunnugt er var bæjarstjómar-
fulltrúum fækkað úr níu í sjö við
síðustu kosningar.
Samkvæmt samkomulagi því,
sem báðir aðilar hafa samþykkt,
er ákveðið að forseti bæjarstjómar
verði Ólafur Kristjánsson af D-lista
og fyrsti varaforseti Einar Jónat-
ansson einnig af D-lista. Bæjarráð
verði skipað af einum manni af
hvomm lista allt kjörtímabilið og
formaður bæjarráðs verði Valdimar
L. Gíslason af A-lista.
Aðilar em sammála um að fram-
lengdur verði samningur við núver-
andi bæjarstjóra, Guðmund Krist-
jánsson. Gunnar
Morgunblaðið/Einar Falur
Fulltrúar American Express ásamt forsvarsmönnum Flugleiða og Ferðaskrifstofunnar Útsýnar á
Hótel Loftleiðum.
ísland mögnlegt fram-
tíðarfér ðamannaland
- segir Jay Rising
framkvæmdastj óri
Evrópuferða
American Express
Að UNDANFÖRNU hafa full-
trúar American Express verið
hér í boði Flugleiða og ferða-
skrífstofunnar Útsýnar. Til-
gangur heimsóknarinnar er
m.a. að kynnast aðstæðum hér
fyrir ferðamenn til að unnt sé
að ganga frá samningum um
ferðir hingað til lands.
American Express er eitt
stærsta og öflugasta fyrirtækið á
sviði ferðamála í heiminum, á
vegum þess eru um 1.000 ferða-
skrifstofur um heim allan, auk
þess sem fyrirtækið rekur banka-
starfsemi og greiðslukortafyrir-
tæki. Jay Rising, framkvæmda-
stjóri Evrópuferða, er meðal full-
trúa American Express og sagði
hann að honum litist vel á það
sem íslendingar hafa upp á að
bjóða. „Það þarf þó að breyta
ýmsu varðandi aimenna þjónustu
við ferðamenn ef ísland á að höfða
til meirihluta bandarískra ferða-
manna. ísland er nú vinsælt meðal
ákveðins minnihluta, þeirra sem
„Mestu máli skiptir að finna sig
velkomna í þvi landi sem þeir
heimsækja." Jay Rising fram-
kvæmdastjóri Evrópuferða
Amerícan Express.
hafa áhuga á náttúru landsins og
þeirra sem koma hingað í veiði-
ferðir og þessháttar. Islendingar
eru elskulegt fólk og það hefur
ekki minnst að segja þegar erlend-
ir ferðamenn eru annars vegar
að þeir fínni að þeir séu velkomn-
ir.“
Rising taldi að ísland hefði
möguleika sem framtíðarferða-
mannaland, en hann er að skipu-
leggja ferðir frá árinu 1987. Hann
sagði að Bandaríkjamenn ætluðu
flestir að ferðast um Ameríku í
sumar, þeir fara til Hawaii, Kan-
ada og fleiri staða í nágrenninu
og verja þeim peningum sem þeir
hefðu ella eytt í Evrópu til að
kaupa sér bfl, sumarhús eða eitt-
hvað annað þess háttar. „Við vit-
um ekki hvort þessi tilhneiging
til að fara ekki til Evrópu vegna
hættu á hryðjuverkum eigi ein-
göngu við þetta sumar, en ég tel
þó að þessi hætta við hiyðjuverk
hafí lítil sem engin áhrif á ferða-
mannastrauminn næsta ár. Mestu
máli skiptir þó að menn fínni sig
velkomna í því landi, sem þeir eru
að heimsækja. Bandaríkjamenn
vilja gjaman kynnast landi, og
þjóð meira en með því að aka í
rútum fram hjá sögufrægum stöð-
um og því tel ég fólkið hér með
mestu náttúrulegu auðlindum
lands ykkar, það er mikilvægara
en hverar og jöklar."
t „ _ *
Daihatsuumboðið s. 685870 — 681733