Morgunblaðið - 14.06.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ1986
Veiðiþáttur
Umsjón Guðmundur Guðjónsson
„Veiðidagnr Fjölskyldunnar“
verður endurtekinn 22. júní
Veiðidagur fjölskyldunnar
verður endurtekinn, enda gekk
frumraunin í fyrra með afbrigð-
nm vel. Hann verður nú 22. júní;
sem er auðvitað sunnudagur. I
fyrra var einmuna veðurblíða um
land allt og tóku þúsundir manna
þátt í hátíðinni viðs vegar um
land allt. Við Þingvallavatn eitt
skiptu þátttakendur þúsundum
að þvi er fróðir menn telja, en
boðið var upp á veiði án endur-
gjalds i mörgum vötnum á
landinu.
Er þeir Rafn Hafnfjörð, Gylfí
Pálsson og Sigurður Pálsson, for-
kólfar í Landssambandi Stangveiði-
félaga, voru að kynna veiðimanna-
ráðstefnuna afstöðnu fyrir blaða-
mönnum á dögunum, bar veiðidag
flölskyldunnar einnig á góma. Gylfi
sagði þá að markmiðið væri fyrst
og fremst að kynna stangveiði-
íþróttina og sérstaklega þá með það
fyrir augum að eyða þeirri þjóðsögu
að stangveiði stundi einungis auð-
og peningamenn og fleira sé fískur
en hinn dýri lax. Það séu líka til
skemmtileg fyrirbæri sem heiti
urriðar og bleikjur og af þeim sé
nóg í flestum vötnum hér á Iandi.
„Við erum að breyta ímyndinni og
Á veiðidegi fjölskyldunnar er áhersla lögð á silungsveiðina. Hér er
bleikja á leiðina ofan í háfinn frammi á Arnarvatnsheiði, sem er
kannski ekki aðgengileg siiungsveiðistöð, en gjöful mjög.
Stubbar
í nýútkomnu „Sportveiði-
blaði“ er viðtal við Stefán
Guðjohnsen og meðal annarra
hluta gerir hann þar að um-
talsefni „heimsmetið" sem
frægt var á sínum tima, er
hópur veiðimanna dró 510
iaxa úr Laxá í Döium á einum
og hálfum degi sem aftur
leiddi til þess að íslendingum
var meinað að veiða í Dala-
perlunni góðu næstu ár og
hún þess i stað leigð gos-
drykkjakóngum i Bandarikj-
unum. Stefán segir m.a. i
viðtalinu:
„Þama drógum við svo óðan
lax þennan stutta tíma, 510 laxa
á sex stangir. Þama hittum við
á skilyrði sem ég efast um að
eigi eftir að endurtakast við ís-
lenska laxveiðiá. Veiðiveður var
eins og best verður á kosið, áin
var dálítið skoluð eftir flóð og
að sjatna. Síðast en ekki síst var
að renna mikill lax upp ána eftir
langa þurrka. Ég hef aldrei séð
laxa haga sér svona, oft voru
tveir eða þrír á eftir agninu í
einu. Sjálfur veiddi ég 59 laxa,
Snæbjöm Kristjánsson og veiði-
félagi hans, Heigi Einarsson,
veiddu mest, 106 á stöng-
ina...“
Sú vartíðin ...
En úr því að rætt er um
Sportveiðiblaðið þá ber þess að
geta, að blaðið er í linnulausri
framför, bæði hvað varðar efrii
og uppsetningu. Á næstu vikum
kemur út helsti keppinauturinn,
„Á veiðum", sportveiðirit Frjálsa
Framtaksins. Er fróðlegt að
fylgjast með samkeppni þessara
blaða.
OOO
Landssamband Stangveiðifé-
iaga hyggst gangast fyrir happ-
drætti á næsta ári til eflingar
starfsins sem þar er unnið og
má það heita umtalsvert. Má
þar nefna „Veiðidag Fjölskyl-
dunnar" og fleira. Miðaupplág
verður einungis 6.-7.000 og
vinningsmöguleikar því tölu-
verðir. Vinningar eru ekki
ákveðnir í smáatriðum, en þar
verða þó örugglega gimileg
veiðileyfí, veiðibúnaður og
fleira.
OOO
Einu sinni setti Pétur í Ár-
hvammi f Laxárdal f stóran
urriða f Laxá og egndi hann
flugu sem vinur hans einn hafði
gefið honum. Glíman var háð
langt fyrir ofan virkjun og stóð
lengi, enda silungurinn rosastór.
Leikar fóru þannig að árhöfð-
inginn sleit færið hjá veiðimanni
og hafði fluguna á brott með sér.
Þessi atburður átti sér stað
snemma sumars, en er Pétur
hitti ýmsa sveitunga sína í rétt-
um um haustið, vatt einn þeirra
sér að honum og spurði hann
um fluguna góðu sem honum
var kunnugt um að Pétur hafði
eignast og metið mikils. Pétur
bar sig aumlega og sagðist hafa
misst hana í rokvænum urriða
þá um vorið., * .. ...
y „Eg veit allt um
það,“ sagði vinurinn þá, fór ofan
í vasa sinn, dró fluguna upp úr
og rétti Pétri. Hann hafði sett
í stóran urriða síðsumars og
landað honum, þótt hann heidur
linur og skrýtinn á færi. í kjafti
hans var fluga Péturs vinar
hans, auðþekkjanleg. Fiskurinn
var 12 pund. Hann veiddist 26
kílómetrum neðar í ánni en Pét-
ur missti hann um vorið og langt
fyrir neðan virkjun ...
STOCKHOLMIA ’86
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
í þætti 24 f.m. var lítillega
sagt frá frímerkjasýningu, sem
verður í Færeyjum 26.-29. þ.m.
og nokkrir íslenzkir safnarar taka
m.a. þátt í. En það er skammt í
enn stærri og viðameiri sýningar,
þar sem ísland verður einnig
með. Hin fyrri verður í Stokkhólmi
29. ágúst til 7. sept. og er al-
heimssýning. Hin síðari verður í
Ósló 15. til 19. okt., svoneftid
norræn sýning, OSLO 86. Af
þessu er ljóst, að ísland er aðeins
farið að hasla sér völl á þessu
sviði sem og mörgum öðrum. Vil
ég með nokkrum orðum vekja
athygli lesenda á sýningunni í
Stokkhólmi, sem nefnist STOCK-
HOLMLA 86. Áður hafa Svíar
haldið tvær alheimssýningar með
ssu nafni, þ.e. 1955 og 1974.
þetta skipti minnast sænskir
frímerkj asafnarar þess sérstak-
lega, að landssamband þeirra
verður hundrað ára á þessu ári.
Þá heldur sænska póststjómin
hátíðlegt 350 ára afmæli sitt. Hér
er þvi um mikinn viðburð að ræða
baeði í sögu sænsku póststjómar-
innar og sænskra frímerkjasafn-
ara, enda ætla Svíar að minnast
þessara viðburða með verðugum
hætti.
Sænska póststjómin gefur út
fímm mismunandi frímerkjaút-
gáfur með yfírverði til þess bæði
að vekja athygli á STOCK-
HOLMIU 86 og eins styrkja fjár-
hagsgrundvöll hennar. Þegar árið
1983 kom út smáörk og síðan
árlega. Hin fjórða kom út í janúair
síðastliðnum. Hin fímmta og síð-
asta kemur út, þegar sýningin
hefst. Myndefni þessara smáarka
er allt tengt póstsögu og frí-
merkjasöfnun og eins sýningar-
borginni, Stokkhólmi, svo sem sjá
má á mynd þeirri, sem fylgir
þessum línum. Sú örk kom út
1985 og nefnist Stokkhólmur í
listinni.
Með alheimssýningu er átt við
það, að frímerkjasafnarar úr víðri
veröld, sem til þess hafa öðlazt
rétt frá heimalandi sínu og eru
félagar innan einhvers landssam-
bands, geta tekið þátt í samkeppni
um verðlaun fyrir söfn sín. Þó
gerist þetta svo fremi sem hlutað-
eigandi landssamband er aðili að
Alþjóðasamtökum frímerkjasafh-
ara (FIP), sem hefur aðsetur sitt
í Sviss. Um leið verður slík sýning
að fara fram með samþykki og
undir vemd FIP. Hér gilda
ákveðnar og strangar reglur, enda
verður að gæta þess vandlega,
að allt sé með eðlilegum hætti.
Norrænu landssamböndin njóta
virðingar í þessum Alþjóðasam-
tökum frímerkjasafnara. Lands-
samband íslenzkra frímerkjasafn-
ara hefur verið í samtökunum um
allmörg ár og er smám saman að
verða virkur þátttakandi með
ýmsum hætti. Engu að síður hlýt-
ur hér sem annars staðar smæð
okkar að setja sín takmörk. Þá
hefur samvinna íslenzkra safnara
við önnur Norðurlönd aukizt vem-
lega á liðnum áratug og við haft
margvíslegt gagn af.
STOCKHOLMLA 86 verður
með mjög fjölbreytilegt sýningar-
efni, bæði í boðsdeild, heiðursdeild
og samkeppnisdeild. í hinni síð-
astnefndu verða um 5500 ramm-
ar, en alls mun hafa verið sótt
um 8300 ramma. Þetta eitt sýnir
vel, hversu víðfeðm sýningin hlýt-
ur að verða.
Af okkar hálfu taka þessir þátt
í samkeppnisdeild: Hjalti Jóhann-
esson sýnir stimplasafn sitt, Jón
Halldórsson 20 aura Safnahús,
Sigurður Þormar svissneska (brú-
ar-) stimpla og Sigurður H. Þor-
steinsson póstsögulegt flugsafn.
Allt er þetta efni, sem er vel þekkt
meðal íslenzkra safnara. í bók-
menntadeild verður verðlistinn
íslenzk frímerki, sem Sigurður
H. Þorsteinsson hefur samið. Enn
fremur verður þar tímaritið
Grúsk, sem LÍF gefur út, og svo
að lokum Póstsaga Þingeyjar-
sýslu, sem Frímerkjaklúbburinn
Askja hefur gefíð út. Þá verður
safti Hálfdanar Helgasonar af ís-
lenzkum bréfspjöldum í deild dóm-
ara. Svíar buðu honum ásamt
tveimur öðrum útlendingum að
taka sæti í tólf manna dómnefnd
þeirra. Alls verða dómarar um 60
auk heiðursdómara. Þá eru 56
umboðsmenn aðildarlandanna úr
öllum heimsálfum. Umboðsmaður
íslands er Sigurður R. Pétursson.
Efni það, sem héðan fer á
STOCKHOLMIU 86, er hið mesta,
sem íslenzkir frímerkjasafnarar
hafa hingað til sent á alheimssýn-
ingu. Auðvitað fer ekki mikið fyrir
því efni innan um þau ógrynni,
sem berast frá milljónaþjóðum.
Allt um það er þetta merkur
áfangi í stuttri sögu íslenzkra frí-
merkjasamtaka, og ber hér að
þakka þeim, sem að standa.
Enda þótt enn megi segja fjöl-
margt um þessa væntanlegu sýn-
ingu í Stokkhólmi, verður það
ekki gert í stuttum þætti. Hér sem
áður verður alltaf sjón sögu ríkari.
Vafalaust heimsækja allmargir
íslenzkir frímerkjasafnarar
STOCKHOLMIU 86, og ég veit
af eigin reynslu frá 1974, að þeir
verða ekki fyrir vonbrigðum. Því
miður mun ekkert verða úr sam-
eiginlegri hópferð, svo sem gert
var fyrir tólf árum og mun margt
valda. Ekki ræður þar sízt, hversu
dýrt er fyrir okkur að skreppa til
næstu nágranna, þó að ekki sé
nema um vikutíma. Margur mun
því fremur velja þann kostinn, ef
hann hyggur á utanferð, að fljóta
með pakkaferð til sólarlanda fyrir
langtum minna verð, og það er
tæplega láandi.
Næst verður stuttlega greint
frá sýningunni í Ósló, en annars
má búast við, að þessi þáttur
hverfi af síðum blaðsins eitthvað
fram á haustið a.m.k.
HELIX- LÍFSNAUÐSYNLEG OLÍA ©