Morgunblaðið - 14.06.1986, Side 20
20______
Líbanon
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ 1986
Shítar og skæruliðar
vinstrimanna benast
ip
Beirút, AP.
Vinstrisinnaðir skæruliðar,
sem Sýriendingar styðja, börðust
við heittrúarmenn af söfnuði
shíta, en þeir eru studdir af írön-
um, nú á föstudag. Bardagarnir
stóðu um hluta þorps í Bekaa-dal,
en kristnir íbúar þess hafa nær
allir flúið það. Talið er að tólf
manns hafi fallið.
Einnig var hart barist við flótta-
mannabúðir í Beirút, en hvorki gekk
né rak. Þar eigast við hermenn
shíta og Palestínuarabar. Nú hillir
loks í endalok þeirra bardaga, þar
sem nokkrir leiðtogar múslíma,
hafa fallist á að setja á stofn 1.500
manna lið, til þess að skilja hin
stríðandi öfl við flóttamannabúðim-
ar að.
Eftir því sem bardagar í Bekaa-
dal harðna, þykir mönnum verða
Ijósara, að ekki er eins kært með
Sýrlendingum og írönum og þeir
vilja vera láta. Sýrlendingar eru
með 25.000 manna lið í Líbanon,
en íranir styðja hina milljón shíta
í Líbanon dyggilega, en þeir eru
stærsti trúarhópur landsins.
Prentfrelsi stór-
skert í S-Afríku
Höfðaborg, AP.
Neyðarástandslögin, sem
sl. fimmtudag, fela m.a. í
og upplýsingamiðlun.
Talsmaður stjómarinnar, Louis
Nel, skýrði frá því á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var sl. fímmtu-
dagskvöld, að nú væru í fyrsta
skipti lagðar hömlur á prentfrelsi.
Þær hömlur felast í því að innlendir
eða erlendir fréttamenn mega ekk-
ert gefa út, sem „skaðað gæti
hagsmuni S-Afríku“. Þar með em
taldar yfírlýsingar, sem hvetja til
verkfalla, viðskiptabanns, ólöglegra
mótmælaaðgerða, óhlýðni borgar-
anna, eða gagnrýna herskyldu. Þá
getur lögreglan bannað að vild
fréttaflutning af óeirðasvæðum, eða
svæðum, þar sem hún telur að ófríð-
lega horfí.
í lögunum er ennfremur kveðið
á um að dómsmálaráðherra megi
loka þeim dagblöðum, sem hann
telur skaða hagsmuni landsins.
Föstudagsupplag Weekly Mail, en
það er dagblað í stjómarandstöðu,
var stöðvað i dreifíngu. Blaðið hafði
ríkisstjórn S-Afríku setti
sér hömlur á prentfrelsi
sagt frá bardögum milli andstæð-
inga aðskilnaðarstefnunnar og
hægri sinnaðra öfgamanna í fá-
tækrahverfínu Crossroads.
Nel sagði lítið um það hvemig
reglunum yrði framfylgt, en bað
blaðamenn í vafa, að hafa samband
við upplýsingamálaráðuneytið.
Starfsmenn þess myndu hvers
manns vanda leysa. Brot á reglun-
um varða sektum allt að 300.000
ísl. króna, fangelsi allt að tíu árum,
nema hvort tveggja sé.
Aðspurður sagði Nel að hömlum-
ar tækju aðeins til yfírlýsinga, sem
gefnar eru í S-Afríku. Þannig mega
t.d. hvorki innlendir né erlendir
fjölmiðlar birta áskoranir Des-
monds Tutu um refsiaðgerðir. Hins
vegar mega fjölmiðlar skýra frá
kröfum um refsiaðgerðir, svo fram-
arlega sem þær em gerðar erlendis.
„Tilgangur þessara reglna er að
koma í veg fyrir að fólk innan
S-Afríku mæli með refsiaðgerðum."
Nel tók einnig fram að aðgerðir
stjómarinnar beindust ekki gegn
andstæðingum aðskilnaðarstefíi-
unnar, heldur þeim öflum, sem
skipuleggja ofbeldi og ókyrrð í
landinu.
Samtök blaðamanna f S-Afríku
fordæmdu aðgerðir stjómvalda.
Forseti þeirra, Owen Gill, sagði
einnig að á þessum óróleikatímum,
væri upplýsingaþörf almennings
meiri en nokkm sinni fyrr, en nú
hefðu stjómvöld heft fjölmiðla svo,
að þeir gætu ekki sinnt hlutverki
sínu.
Hér sjáum við mynd af nýju, dönsku borgurunum. Stúlka nær,
drengur fjær.
Danskir glasatvíburar
FYRSTU dönsku glasa-tvíburarnir fæddust á Ríkisspít-
alanum í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn.
Alls hafa nú fæðst sex glasa- Til að auka líkumar á fijóvgun
böm í Danmörku síðan 1983, en
þá komu þau fyrstu í heiminn.
Eftir nokkra byrjunarörðugleika
heppnast nú þriðja hver egg-
ígræðsla þegar f fyrstu tilraun.
ígræða læknamir yfírleitt tvö til
þijú egg f hvert skipti. Þetta eykur
mjög líkumar á tvíburafæðingum,
enda búast læknar við þeirri
næstu á hverri stundu.
Veður
víða um heim
LasgX Haaet
Akureyri 12 rignlng
Amsterdam 6 27 heiðskfrt
Aþena 18 31 heiöskfrt
Barcalona 22 halöskfrt
Berlfn 11 18 skýjaó
BrOtael 10 22 helðakfrt
Chlcago 14 20 skýjað
Dublln 9 18 heiöskfrt
Faneyjar 21 skýjað
Frankfurt 12 18 skýjaö
Genf 10 14 skýjað
Halslnki 16 22 helðskfrt
Hong Kong 28 28 vantar
Jarúsalem vantar
Kaupmannah. 11 14 heiðskfrt
LasPalmaa 22 láttskýjað
Lissabon 16 30 helðskfrt
London 12 23 helðskfrt
LosAngeles 16 27 heiðskfrt
Lúxemborg 18 láttskýjað
Malaga 26 heiðskfrt
Mallorca 20 akýjað
Mlami 28 30 rignlng
Montreal 12 17 rfgning
Moskva 14 26 haiðskfrt
NewYork 13 21 alskýjað
Osló 8 18 helðskfrt
Parfs 11 20 helðskfrt
Peklng 19 31 helðakfrt
Raykjavfk 10 rignlng
Rfóde Janeiro 18 30 skýjað
Rómaborg 16 23 akýjað
Stokkhólmur vantar
Sydney 11 18 rigning
Tókýó 17 27 heiðskfrt
Vfnarborg vantar
Pórshöfn 12 skýjað
Neyðarlögin for- .
dæmd víða um heim
Samþykkja
ríkiEB
refsiaðgerðir?
Brussel, Moakvu, New York o.fl., AP.
FJÖLMÖRG rfld hafa gagnrýnt
þá ákvörðun stjóraar Suður-
Afríku að setja neyðarlög í
landinu. Rikisstjórair fiestra
landa Evrópubandalagsins hafa
lýst yfir harmi sinum vegna
þessa atburðar. Mjög er þrýst á
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, að gripa til efnahags-
legra refsiaðgerða. Sendiherra
Suður-Afríku í Bandarikjunum
hefur sagt að refsiaðgerðir muni
einungis bitna á svörtum ibúum
landsins.
í skýrslu, sem unnin var af sjö
manna nefnd Breska samveldisins
um málefni Suður-Afríku, er hvatt
til efnahagslegra refsiaðgerða gegn
stjóm hvíta minnihlutans. Neil
Kinnock, formaður breska Verka-
mannaflokksins, sagði í sjónvarps-
viðtali að hann vænti þess að Thatc-
her, forsætisráðherra, breytti af-
stöðu sinni gagnvart refsiaðgerð-
um. Bretar hafa þegar gripið til
takmarkaðra aðgerða og sagði tals-
maður utanríkisráðuneytisins að
stjómin íhugaði hvort rétt væri að
herða þær.
Á mánudag munu utanríkisráð-
herrar aðildarríkja Evrópubanda-
lagsins koma saman til fundar í
Margaret Thatcher, forstætisráðherra Bretlands, átti fund með meðlimum nefndar Breska samveldisins
en nefndin hefur hvatt til hertra aðgerða gegn stjórn Suður-Afríku. Á myndinni eru frá vinstri: Sir
Geoffrey Howe utanrikisráðherra Bretiands, Olusegun Obasanjo hershöfðingi frá Nígeríu, Thatcher
forsætisráðherra, Malcolm Fraser fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu og Barber iávarður, fyrrum
fjármálaráðherra Bretlands.
Lúxemborg. Þar munu þeir ræða
neyðarlögin og hugsanleg viðbrögð
við þeim. Sama dag verður sendi-
ráðum ríkjanna í Suður-Afríku
lokað í einn dag til að minnast þess
að þá verða tiu ár liðin frá uppreisn
svartra gegn stjóm hvíta minnihlut-
ans.
Nefnd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna sem fjallar um aðskilnaðar-
stefíiu stjómar Suður-Afríku hvatti
til efnahagslegra refsiaðgerða til
þess að takast mætti að koma í veg
fyrir allsheijar blóðbað. Formaður
nefndarinnar, Joseph Garbar frá
Nígeríu, gagnrýndi viðbrögð
Bandaríkjastjómar við neyðarlög-
unum.
Tass-fréttastofan gagnrýndi
einnig afstöðu Bandaríkjanna og
sagði neyðarlögin koma f veg fyrir
friðsamlega lausn á deilumálum
svartra og hvítra. Pravda, málgagn
sovéska Kommúnistaflokksins,
skýrði frá neyðarlögunum en tók
enga afstöðu til þeirra.
Genscher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands, kallaði sendi-
herra Suður-Afríku á sinn fund og
lýsti áhyggjum Þjóðverja vegna
þróunar mála. Stjómvöld í Vestur-
Þýskalandi em andvíg efnahagsleg-
um refsiaðgerðum en Vestur-
Þýskaland er eitt helsta viðskipta-
land Suður-Afríku.
Fjölmörg önnur ríki, þar á meðal
Norðurlöndin, hafa fordæmt þenn-
an atburð.