Morgunblaðið - 14.06.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ1986
P
17. júní í Reykjavík;
Þrjú leíksvíð
í miðborgmni
BORGARYFIRVOLD hafa falið Iþrótta- og tómstundaráði að sjá um
undirbúning hátíðahaldanna á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Dagskrá
hátíðahaldanna verður með hefðbundnu sniði fyrri hluta dagsms en
siðdegis verður skemmtidagskrá á þremur leiksviðum i miðbænum
í stað eins áður.
Hátíðardagskráin hefst með
samhljómi kirkjuklukkna í Reykja-
vík en að því búnu, kl. 10:00, leggur
forseti borgarstjómar blómsveig á
leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarð-
inum við Suðurgötu.
Kl. 10:30 verður hátíðin sett á
Austurvelli, Kolbeinn H. Pálsson
flytur ávarp og karlakórinn Fóst-
bræður syngur. Forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, leggur
blómsveig frá íslensku þjóðinni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra flytur ávarp og að síð-
ustu er ávarp Qallkonunnar.
Guðsþjónusta verður í Dómkirkj-
unni kl. 11:15, séraÓlafur Skúlason
dómprófastur predikar og Dómkór-
inn syngur.
Tvær skrúðgöngur verða á þjóð-
hátíðardaginn og hefjast báðar kl.
13:30. Önnur leggur af stað frá
Hagatorgi og er gengið í Hljóm-
skálagarðinn, en hin fer frá Hlemmi
og liggur leiðin niður Laugaveg að
Lækjartorgi. Skátar ganga undir
fánum og stjóma báðum göngunum
og félagar úr þjóðdansafélagi
Reykjavíkur taka þátt í göngunum
í þjóðbúningum.
í miðbænum verður skemmtidag-
skrá á þremur leiksviðum og hefst
hún kl. 14:00. Leiksviðin era stað-
sett á Lækjartorgi, í Hljómskála-
garðinum og í Hallargarðinum við
Fríkirkjuveg 11, en þar verða
skemmtiatriði einkum ætluð yngstu
kynslóðinni, svo sem brúðubfllinn,
Tóti trúður, Túnfiskamir og leik-
þáttur sem þeir Sigurður Sigutjóns-
son, Karl Ágúst Úlfsson og Öm
Ámason sjá um ásamt fleira. Á
Lækjartorgi og f Hljómskálagarði
verða skemmtiatriði fyrir alla §öl-
skylduna. Meðal þeirra sem fram
koma era ICY-flokkurinn, Halli og
Laddi, Túnfiskamir, Félag Harm-
ónikkuunnenda og fleiri.
Leikhópurinn „Veit mamma hvað
ég vil?“ verður með götuleikhús í
miðbænum og túlka þar baráttu
gamla og nýja tímans í allskyns
furðubúningum og er lokaatriði
skemmtidagskránna bardagi við
skrýmslið vonda sem sigrað skal
að lokum á Tjamarbrúnni kl. 16:00.
Kl. 16:15-17:30 verður svo kami-
valdansleikur fyrir krakka í Hljóm-
skálagarðinum sem allskyns furðu-
fólk og skringiverar stjóma.
Kvöldskemmtun verður í mið-
bænum kl. 20:30. Þar skemmta
Hljómsveit Magnúsar Kjartansson-
ar, Félag harmónikkuunnenda,
Halli og Laddi, Bítlavinafélagið og
Possibillies. Listapopp verður í
Laugardalshöll á vegum Listahátíð-
ar.
Ýmislegt fleira verður til
skemmtunar í miðbænum 17. júní
svo sem hópakstur og sýning Fom-
bflaklúbbs íslands í Kolaporti. Á
útitaflinu verður teflt með lifandi
taflmönnum og í Hljómskálagarðin-
um verður sýnd íslensk glíma og
æfingar á fjaðurbretti. Þar verða
skátar með trönuborg og áhugahóp-
ur um byggingu náttúragripasafns
verður með dýragarð þar; sýnd
verða íslensku húsdýrin og afkvæmi
þeirra. Siglingafélag Reykjavíkur
verður með bátsferðir yfir tjömina
og ýmislegt fleira verður um að
vera í miðbænum.
Fyrir eldri borgarana verður
blönduð dagskrá í Frostaskjóli kl.
16:30-19:00 og í Gerðubergi kl.
20:30-23:00.
Lobbi og fegurðardrottning
Reylq'avíkur munu heimsækja
bamadeildir Landspítala og Landa-
kotsspitala um morguninn.
Reykjavíkurmótið í sundi verður
samkvæmt venju haldið í Laugar-
dalslaug og hefst kl. 14:00
íþrótta- og tómstundaráð vill
benda á að bflastæði verða á Há-
skólavelli og Melavelli auk þess sem
Strætisvagnar Reykjavíkur verða
með aukaferðir frá Hafnarstræti.
Týnd böm verða í umsjón gæslu-
fólks á Fríkirkjuvegi 11.
Hluti hins nýja hlj ómburðarkerfis Morgunblaðið/Bjami.
Listahátíð:
Vímulaust
Listapopp ’86
UNDIRBÚNINGUR er nú í fullum gangi fyrir „Listapopp ’86“, popp-
tónleika Listahátíðar, sem fram fara dagana 16. og 17.júní.
Það er Listahátíð í Reykjavík
ásamt íþrótta- og tómstundaráði,
sem standa fyrir þessum tónleikum
og meðal þeirra er starfa að undir-
búningi era á annað hundrað ungl-
ingar. Að sögn Ólafs Jónssonar hjá
íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur er þetta gert til þess að leiða
æskufólk til meðábyrgðar á því, að
tónleikamir takist vel.
Ólafur Jónsson sagði í samtali við
Morgunblaðið, að markmið aðstand-
enda popphátíðarinnar væri að tón-
leikamir verði vímulausir. Vissulega
gerðu þessir aðiiar sér grein fyrir
því, að þetta væri markmið, sem
ógemingur er að ná, en engu að
síður væra þeir þeirrar skoðunar,
að þetta væri það markmið, sem
beri að stefna að. Þáttur í þessu
markmiði er að fá unglingana til
samstarfs. Auk hinna 49 starfs-
manna tómstundaráðs, sem verða á
tónleikunum, munu um 60 unglingar
vera þar við gæslu.
Fyrri tónleikarnir
Fvrri daginn, mánudaginn 16.
júní, heQast tónleikamir kl. 20.
HeQast þeir á upphitun íslenskra
tónlistarmanna og um hana sjá
hljómsveitin Grafík frá ísafirði og
Bjami Tryggva og félagar. Um
klukkustund síðar taka erlendu
hljómsveitimar við, fyrst skoska
hljómsveitin Lloyd Cole & the
Commotions og síðan hljómsveitin
Simply Red frá Manchester. Miðað
er við að hvor hljómsveit verði með
rúmlega einnar stundar dagskrá og
að tónleikunum ljúki rétt fyrir kl.l
eftir miðnætti.
Sðari tónleikarnir
Eins og þeir fyrri, heflast sðari
tónleikamir kl. 20. Hljómsveitimar
Greifamir frá Húsavík og Rikshaw
munu þann daginn sjá um að hita
upp og er ætlað að sú upphitun
taki um klukkustund. Að því búnu
munu hinar erlendu hljómsveitir
taka við. Fýrst koma fram þre-
menningamir í Fine Young Canni-
bals, og er miðað við að þeir verði
með að minnsta kost klukkutíma
dagskrá. Þegar þeir hafa lokið sér
af mæta hinir eldhressu Madness á
sviðið og verða þeir með eins og
hálfs tíma dagskrá í það minnsta.
Gert er ráð fyrir að tónleikunum
ljúki um kl. 1. Báða dagana verða
strætisvagnaferðir frá Laugardals-
höll að loknum tónleikunum í helstu
hverfi borgarinnar
Morgunblaðið/Bjarni.
Unnið af kappi við undirbúning.
Miðasala
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins höfðu síðdegis á föstudag
selst um 2.000 miðar á fyrri tónleik-
ana en um 4.000 á þá síðari, og
búast aðstandendur sýningarinnar
við því að uppselt verði á báða tón-
leikana.
Miðamir á tónleikana era með
heidur óvenjulegu sniði. Era þeir
einnota armband, sem gestimir
setja á sig til þess að komast inn
í salinn. Er þetta gert til þess að
girða fyrir að menn séu að laumast
inn í salinn án þess að hafa borgað.
Slflct fyrirkomulag mun alþekkt á
tónleikum erlendis og á ýmsum úti-
hátíðum.
Nýtt hljómburðarkerfi
Á tónleikunum verður notað nýtt
hljómburðarkerfi, sem Reykjavíkur-
borg keypti frá fyrirtækinu Auto-
graph Sound í London, og kostaði
um 10 milljónir króna. Þetta kerfi
er stærsta hljómburðarkerfi hér-
lendis.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í safnaðarheimili Ár-
baejarsóknar kl. 11 árdegis.
Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Breiðholtsskóla kl. 11
árdegis. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11.
Fermdur verður Jóhann Kárason,
Látraströnd 5, Seltjarnarnesi.
Organleikari Kjartan Sigurjóns-
son. Sumarferð aldraðra mið-
vikudag 18. júní. Lagt verður af
stað frá kirkjunni kl. 10 árdegis.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl.
14. Ástráður Sigursteindórsson
cand. theol. prédikar. Fólag fyrr-
verandi sóknarpresta.
FELLA- og HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Sr. Halldór Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Fyrirbænaguðsþjónusta fellur
niður 17. júní.
LANDSPITALINN. Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson prédikar. Organisti
Jón Stefánsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa
fellur niður vegna sumarferðar
safnaðarins til Vestmannaeyja.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 í umsjá sr. Guðmundar Arnar
Ragnarssonar. Orgelleikari Jónas
Þórir. Sr. Guðmundur Óskar Ól-
afsson.
Þriðjudag 17. júní: Hátíðar-
messa kl. 14 á vegum kristilega
stúdentafélagsins í tilefni 50 ára
afmælis þess. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson og sr. Ólafur Jóhanns-
son þjóna fyrir altari. Þórarinn
Björnsson talar.
Miðvikudag 18. júní: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla fellur niður vegna
sumarferðar starfsfólks. Guðs-
þjónusta verður á vegum Selja-
sóknar í Gaulverjabæjarkirkju kl.
14. Kirkjukór Seljasóknar syngur.
Organisti Violetta Smidova og
sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Ath.: Viðtalstímar sóknarprests
eru alla virka daga kl. 11—12,
sími611550.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Minn-
um á sumarferð barnamessu-
fólks sunnudaginn 15. júní. Lagt
af stað frá kirkjunni kl. 13. Höfum
með okkur nesti. Sr. Gunnar
Björnsson.
KIRKJA óháða safnaðarins:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Heiðmar Jónsson. Sr. Þórsteinn
Ragnarsson.
HVITASUNNUKIRKJAN Ffla-
delfía: Safnaðarguuðsþjónusta
kl. 14. Ræðumaður Daniel Glad.
Almenn guðsþjónusta kl. 20.
Ræðumaður Einar J. Gíslason.
Fórn til kirkjunnar.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg:
Samkoma kl. 20.30 á vegum SÍK.
Fagnað heimkomu Hrannar Sig-
urðardóttur og Ragnars Gunn-
arssonar frá Kenýa. Upphafsorð
og bæn Katrín Guðlaugsdóttir.
Hugleiðing: Stína Gísladóttir.
HJALPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma á Lækjartorgi kL 16. Lof-
gerðarsamkoma kl. 20.30. 20
manna æskulýðskór Akureyrar-
flokks syngur og vitnar. Lautin-
antarnir Erlingur Nielsson og frú
Ann-Merethe stjórna og tala.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
H AFN ARFJ ARÐ ARKIRKJ A:
Morgunsöngur kl. 11. Organisti
Helgi Bragason. Þetta er síöasta
guðsþjónusta fyrir sumarleyfi.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Messa kl. 11. Fermd verður
Rannveig Guðlaugsdóttir, Álfa-
skeiði 94. Orgel og kórstjórn
Þóra Guðmundsdóttir. Ath. síð-
asta messa fyrir sumarleyfi. Ein-
ar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefssprtala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl.8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Engin
guðsþjónusta verður sunnudag,
en á þjóðhátíðardaginn hátíðar-
messa kl. 13. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Organisti Siguróli Geirs-
son. Sóknarprestur.
HEILSUHÆLI NLFÍ Hveragerði:
Messa kl. 11. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
STRANDARKIRKJA: Messa kl.
14. Sr. Tómas Guömundsson.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Sr. Valgeir Ást-
ráðsson og kirkjukór Seljasóknar
koma íheimsókn. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl.
14. Þórhallur Heimisson guð-.
fræðinemi prédikar. Guðsþjón-
usta á Þjóðhátiðardaginn kl. 14.
Organisti Einar Sigurðsson.
AKRANESKIRKJA: Engin messa
á sunnudag. Hátíðarguðsþjón-
usta 17. júní kl. 13.15. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn
Jónsson.
SIGLUFJARÐARKIRKJA: Þjóð-
hátiðardaginn verður hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11. Nýstúdent-
ar flytja ritningarorð. Flutt verður
stólvers. Organisti Anthony Ral-
ey. Sr. Vigfús ÞórÁrnason.