Morgunblaðið - 14.06.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAU G ARDAGUR 14. JÚNÍ 1986
31
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
í dag ætla ég að fjalla um
samband Tvíbura (21. maí—
20. júní) og Bogmanns (22.
nóv,—21. des.). Eins og áður
er einungis fjallað um hið
dæmigerða fyrir þessi merki
og lesendur minntir á að
hver einstaklingur er undir
áhrifum frá öðrum merkjum.
Andstυ merki
Þessi merki eru beint á móti
hvort öðru í dýrahringnum
og eru andstæð í innsta eðli
sínu. Þau laðast því hvort
að öðru, hafa eiginleika sem
hitt dáist að og vill rækta
með sér. í flestum tilvikum
eiga þau ágætlega saman.
Bogamaður
Hinn dæmigerði Bogmaður
er hress og léttur, er heiðar-
legur, hreinskilinn og oft
fyndinn. Ríkt er í hveijum
Bogmanni að hafa yfírsýn
yfír lífíð. Hann hefur því
áhuga á ferðalögum og á
því að öðlast breiða þekk-
ingu. Oft býr hann yfír tölu-
verðri lífsvisku og hefur
áhuga á að búa til kenningar
um lífíð og tilveruna.
Tvíburi
Hinn dæmigerði Tvíburi er
hress, léttur, stríðinn og
málgefínn. Hann skipir um
persónuleika og skoðanir líkt
og aðrir skipta um fot (eða
næstum því, við verðum að
varast að vera vond við Tví-
burann). Um hann er annars
sagt að hann sé margfaldur
í orðum og athöfnum og
þúsundfaldur í innsta eðli.
Fjör
Eins og við sjáum á þessu
eru bæði merkin létt í lund
og því telst samband þeirra
til jákvæðra samskipta. Þar
sem bæði eru eirðarlaus og
forvitin má einnig búast við
að líf þeirra einkennist af
mikilli hrejrfingu og Qöri. Ef
þau eru bundin niður og geta
ekki hreyft sig er hætt við
að eirðarleysið snúist inn á
við og beinist að þeim sjálf-
um. I slíkum tilvikum er
hætt við að sambandið leys-
ist upp eða að hið fræga létta
skap merkjanna þyngist og
flugið daprist.
Stuttar skorpur
Veikleiki sambandsins liggur
í breytilegu eðli beggja
merkjanna. Hvorugt þeirra á
gott með að gera langvar-
andi áætlanir. Þau eru betri
í stuttum skorpum. Þegar
tvö slík koma saman er hætt
við að þau magni eirðarleysi
hvors annars. Þau geta því
þurft að læra að halda aftur
af sér.
Grikkland
Mismunurinn á þeim er
helstur sá að Bogmaðurinn
er meira tilfínningamerki,
hann horfír hærra og víðar.
Tvburinn er hugarmerki, er
því kaldari en Bogmaðurinn.
Tvíburinn dáist þvi að hug-
sjónum, hlýju, ákafa og ein-
lægni Bogmannsins og einn-
ig hæfíleika hans til að sjá
yfír heiminn; því hversu
auðvelt hann á með að ferð-
ast, bæði andlega og líkam-
lega. Bogmaðurinn dáist
aftur á móti að hæfíleika
Tvíburans til að tjá sig með
orðum, að félagslegri fími
hans og lagni í samskiptum.
Bæði merkin eru fijálslynd
og umburðarlynd, dá frelsi,
fjölbreytileika og ferðalög.
Við sendum þeim því bestu
kveðjur og póstkort til Grikk-
lands, Istanbúl eða Flórída.
X-9
Jennwer-BiancL joryjir járntjalduí iiiað fteisa.
próf- Arittrutenr úrj<*nyt/si TZtsíoius. M a'Jft'eSur
'PM y-ram/cr’ama a«//u/?...
//£/s/f/f&P ^J/fo/fS/e/y//*/: //*##
/oM oí/UM o/f*#/?
Mr&C/M fte J4rS7á/K\í/<££>/-- /F//&*//
--/textz* / )#/...
DYRAGLENS
:::::::::::: hhhhhhhhííHÍÍIsuhhhshííííIIí
LJÓSKA
mii:iiiiii)iiiiiiiiiiuuuMiiniiiiiiinmimiiiiiiiiiiiiiiiuiinuiuniiiiummiiiniiiuiiiuiiiiiiinniiiiiiiiiinMmrnii;niiiiiiii ■ ■■"■ ..... — —................ ■ .......—■ ....... -■■■■■
TOMMI OG JENNI
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: : •:
IhIII 1 * :S * :::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: FERDINAND
Jæja, félagi, svona höfum Ef við vinnum fæ ég allan
við þetta ... heiðurinn ...
Ef við töpum er það þér Hver fær súkkulaðikök-
að kenna! urnar?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar hart er barist í sögnum
er nokkuð vist að skiptingin er
mikil og lítið um að litir brotni
þægilega. Sagnhafí í spilinu hér
að neðan gerði sér fyllilega grein
fyrir þessari staðreynd, ng það
sem meira er um vert, spilaði í
samræmi við hana.
Austurgefur; allir á hættu.
Norður
♦ 8742
♦ 943
♦ K62
♦ K76
Austur
IIIIU ♦ ÁDG1072
♦ ÁDG
♦ G84
Suður
♦ ÁKG105
♦ -
♦ 73
♦ ÁD9532
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tyarta Dobl
2 hjörtu Pass 4 työrtu 4 spaðar
5 hjörtu Pass 5 spaðar Pass Pass
Vestur
♦ D93
♦ K865
♦ 109854
♦ 10
Vestur spilaði út litlu hjarta
og sagnhafí trompaði fyrsta m
slaginn. Það er fljótlegt að sjá
að spilið tapast með eðlilegri
spilamennsku, sem er auðvitað
að taka tvo efstu í spaða og
spila laufínu þegar drottningin
kemur ekki. Vestur mun trompa
við fyrsta tækifæri og spila tigli.
Þessa þróun mála sá suður
fyrir og ákvað því að bregða
fyrir sér pókerspilamennsku. í
öðrum slag spilaði hann út
spaðagosa! Vestur kvaldist lengi
yfír gosanum, en tók loks þá
ákvörðun að fara upp með *-•
drottninguna, þótt hann væri
lafhræddur um að hún félli undir
ás eða kóng makkers. Hann var
feginn að sjá sexuna koma frá
austri, en var þó engan veginn
laus úr öllum vanda, því hann
átti eftir að fínna tigulinn til
baka. Hann hafði ekkert við að
styðjast og hver getur láð hon-
umað spila frekar einspilinu i
laufí. Eins og hann gerði. Sagn-
hafí tók tvisvar tromp i viðbót
og henti svo tígiunum niður i
lauf og vann sitt spil.
Spaðagosinn var því tvöföld
gildra. Vestur slapp fram þjá
þeirri fyrri, en gekk eins og
blindur kettlingur í þá síðari.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Brussel í vor
kom þessi staða upp i skák enska
stórmeistarans Tony Miles, sem
hafði hvítt og átti leik, og Belgans
Jadoul.
Með tvö peð fyrir skiptamun
virðist svartur mega vel við una,
en það er hvitur sem er í sókn:
28. Hf5! - Rxf5, 29. exf5 -
Kh7, 30. f6! og svartur gafst
upp.