Morgunblaðið - 14.06.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR14. JÚNÍ 1986
43
Rússar eru ábyrgir fyr-
ir hörmungum í Afríku
Til Velvakanda.
Þá var þjóðin að setja eitt heims-
metið enn og var það þátttakan í
Afríkuhlaupinu núna á dögunum
og gengum við mörgum fetum
framar Skandinövum. Það hlupu
eins margir á Akureyri og í Kaup-
mannahöfn. Þessi þjóð hefur allar
götur frá Arnóri Kerlingamefi
ekkert aumt mátt sjá, öðruvísi en
að reyna að bæta úr því, þótt að
af litlu væri að taka á stundum.
Fimm milljónir söfnuðust og ég
læt reikningsmeisturunum eftir að
fínna út hvað t.d. Rússar, sem eru
um 270 milljónir, hefðu átt að skila
í söfnunina. Rússar ætluðu sér stór-
an hlut í Afríku þegar nýlendu-
stjómimar þar lögðu niður völd.
Þeir settu á stofn háskóla, kenndan
við Lúvumba og kölluðu Vináttuhá-
skólann. En þar höfðu þeir ekki
erindi sem erfíði. Afríkubúar sem
stunduðu nám í þessum háskóla
urðu eldheitir kapítalistar en þeir
sem til Parísar fóru urðu aftur á
móti frelsaðir marxistar og sýnir
þetta að menntamennimir í lýðræð-
isríkjunum em margir fjandmenn
ftjálsrar hugsunar og annarra
mannréttinda. Rússar snem þá við
blaðinu og sendu vopn og hemaðar-
ráðunauta og hafa unnið að því
ásamt morðsveitum Castros að
brytja niður alla mótspymu. Kirkj-
an hefur enn ekki tekið afstöðu til
þessara mála. Hún hefur haft nóg
að gera við að halda hungurvofunni
frá landslýðnum og er þetta líkast
því að bera sand í botnlausa tunnu.
Því hungur og eymd fylgir alltaf
marxismanum. Það grær aldrei
neitt í spomm hans, frekar en í
spomm hests Atla konungs sem
kallaður var svipa guðs á sínum
tíma.
Húsmóðir
Þessir hringdu .
Hver leyfir að íslensku
handritin séu handleikin?
Fjóla Guðmundsdóttir
hringdi:
„Mig langar til að gera fyrir-
spum vegna myndar sem birtist
á forsíðu Morgunblaðsins hinn 12.
júní þar sem stórhertoginn af
Lúxemborg sést halda á og hand-
leika fomt íslenskt handrit. Vil ég
spyrja Jónas Kristjánsson, for-
stöðumann Ámastofnunar, hver
hafí leyft að handritin væm hand-
ijötluð? Sem íslendingur þoli ég
ekki að horfa á þetta — þessi
handrit em svo verðmæt."
Skýringin á launamismun
sú að miðað er við fæðingarár
Arnfinnur Jónsson, skóla-
stjori Vinnuskóla ríkisins:
„Vegna fyrirspumar í Velvak-
anda á dögunum, varðandi það
að unglingar hefðu lægra kaup í
fískvinnu en í unglingavinnunni,
vil ég upplýsa eftirfarandi. I
vinnuskólanum em unglingar sem
fæddir em 1971 og 1972, og
höfum við tekið við öllum reyk-
vískum unglingum sem fæddir em
þessi ár. Þau sem fædd em 1971
fá kr. 80,80 á tímann en þau sem
fædd em 1972 fá kr. 79,90 á tím-
ann. Þannig gemm við ekki grein-
armun á því hvort unglingamir
em orðnir 15 ára eða em rétt að
verða það. Við miðum kaupið
einvörðungu við fæðingarár en ég
held að flestir atvinnurekendur
fari eftir aldri þannig að kaupið
getur breyst á afmælisdegi ungl-
inga ef svo ber undir. Þetta held
ég að sé skýringin á iauna-
mismuninum sem spurst var fyrir
um.“
Frábær þjónusta hjá
hreinsunardeild Reykja-
víkurborgar
Ása Hjartardóttir, Víðimel 51,
hringdi og vildi koma eftirfarandi
á framfæri:
Fyrir um það bil mánuði hafði
ég samband við hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar til að biðja um
nýja sorptunnu. Sú gamla var
orðin Ijót og ég var að gera ýmsar
ráðstafnir til að ptýða í kringum
húsið hjá mér. Var mér þá sagt
að svörtu tunnumar eins og ég
var að óska eftir væm því miður
ekki til en þær væm á hafnar-
bakkanum. I morgun hringdi ég
síðan til að spyijast fyrir en fékk
þá það svar að tunnumar væm
uppumar. Sagði ég að það þætti
mér leiðinlegt einkum og sér í
lagi af því að ég hefði verið búin
að reyna að fá eina slíka. Svarið
var á þá leið að það yrði athugað
hvað hægt væri að gera og eftir
hálftíma var komið með þessa líka
fínu sorptunnu. Þetta fínnst mér
vera frábær þjónusta og það er
greinilegt að starfsmenn hreins-
unardeildarinnar taka sér okkar
góða borgarstjóra, Davíð Odds-
son, til fyrirmyndar."
Kettir og hundar
drepar niður fuglalíf
Kona hringdi:
„Eg á heima á Amamesi og
búum við á lóð sem liggur að sjón-
um, þannig að við getum fylgst
vel með fuglalífínu við ströndina.
Því hefur hrakað mjög undanfarin
ár því hér er fjöldjnn allur af
köttum og hundum. Á mánudags-
morgun sáum við hér æðarkollu
með tvo unga en um kvöldið var
hún aðeins með einn. Á miðviku-
dagskvöldið eltum við einn köttinn
— hann var kominn á land með
æðarunga og var að sleppa honum
og krafsa hann upp aftur eins og
kettir leika sér að músum. Við
eltum hann hér út með ströndinni
en nú er kvikindið komið aftur.
Hvað er hægt að gera í þessu,
getur einhver upplýst mig um
það? Fólk er svo óvarkárt nú að
vorinu, það kemur hér með hund-
ana sína og sleppir þeim lausum
í ijöruna. Þegar við komum hér
fyrir nokkrum árum verptu hér
bæði lóa og maríuerla en þessir
fuglar hættu auðvitað að verpa
hér þegar kettirnir komu. Nú er
máfurinn hins vegar farinn að
setjast að hér í vogunum."
Hjartans þökk til barna minna, tengdabarnaog
barnabarna, systkina og frœndfólks, einnig
til allra minna góÖu vina sem á margvislegan
hátt geröu 80 ára afmœlisdaginn minn 1. júni
ógleymanlegan. Sannarlega hlýjuöu þiÖ mér
um hjarta. Ég biÖ drottin aÖ blessa ykkur og
launa af ríkdómi sinnar náÖar.
Sigurborg Eyjólfsdóttir,
Sörlaskjóli 44.
Metsölublad á hverjum degi!
Til viðskiptavina
leigubifreiða
Vegna útgáfu á hinum nýju fimmþúsund króna seðlum vill
Bifreiðastjórafélagið Frami beina þeim vinsamlegu tilmælum
til viðskiptavina leigubifreiða, að eftir lokunartíma banka reyni
þeir að komast hjá að nota fimmþúsund krónu seðlana til
greiðslu á ökugjaldi.
Leigubifreiðastjórar hvorki vilja né geta verið með stórar
upphæðir á sér sem skiptimynt.
Æskilegast væri að fólk sem af einhverjum ástæðum hefur
þó aðeins 5.000 kr. seðla geti þess þá um leið og pöntun á
leigubifreið fer fram.
Stjórn Bifreiðastjórafélagsins Frama.
Störf við ferðamannaþjónustu Hótel-
og feröaþjónustuskóli, stofnaöur áriö
1959 í Leysin, frönskumælandi Sviss.
Prófskirteini i iok námskeiðs.
Kennsla fer fram á ensku.
1. 2ja ára fullnaðamám í hótelstjórn (möguleiki á að innrita
sig annaðhvort á 1. árið á stjórnsýslunámskeið eða á
2. árið í framhaldsnám í hótelstjórn).
2. 9 mánaöa alþjóðlegt ferðamálanámskeiö, kjarnanám, viöur-
kennt af Alþjóða flugmálastofnuninni og UFTAA, sem lýkur
með prófi.
Fullkomin íþróttaaðstaða einkum til skíða- og tennisiðkunar.
Næsta námskeið hefst 24. ágúst 1986.
Skrifið til aö fá upplýsingar til:
HOSTA; CH-1854, Leysin
Tel: 9041/25-34-18-14 Telex: 456-152 crto ch.
SUMARBUÐIR
ÞJÓÐKIRKJUNNAR
LAUGARGERÐISSKÓLA
Enn eru laus pláss í sumarbúðirnar í
sumar.
23. júní — 4. júlí: 9 —12árabörn
7.júlí — 18.júlí: 9 — 12 ára börn
21. júlí — l.ágúst: 7 — lOáraböm
í sumarbúðum Þjóðkirkjunnar er lögð áhersla
á leiki, útiveru, sund, kristna fræðslu og ein-
staklingsumhyggju. Kvöldvökur eru á hveiju
kvöldi.
Allar upplýsingar um sumarbúðirnar fást hjá
Æskalýðeeterfi kjóðkirkjunnar Suðurgötu
22, kl. 11—14. Sími 12445.