Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
3
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Nestið borðað á grasbala að fjöruskoðun lokinni.
ÍFLÆÐARMÁLINU
Flæðarmálið hafði mikið aðdráttarafl fyrir krakkana. Leitað var kuðunga og skelja og svo auðvitað
fallegra steina. Þeir steinar sem lítið aðdráttarafl höfðu fengu svo flugferð út á Hvalfjörð, eða fleyttu
kerlingar eftir næstum spegilsléttum sjónum.
Seiðastöðin
• •
á Oxnalæk
opnuð aftur
STJÓRNENDUR fiskeldisfyrir-
tækisins ÍSNÓ hf. hafa í hyggju
að taka seiðaeldisstöðina á Oxna-
iæk í Ölfusi aftur í notkun. Stöðin
á Öxnalæk var byggð upp fyrir
15 árum og rak hlutafélagið
Tungulax hana þar til fyrir 6
árum að eigendurnir stofnuðu
ÍSNÓ hf. með norskum aðilum
og einbeittu sér að uppbygging-
unni í Lónum í Kelduhverfi.
Eyjólfur Konráð Jónsson stjóm-
arformaður ÍSNÓ hf. bjóst við að
rekstur seiðastöðvarinnar á Öxna-
læk hæfist í vor og yrði miðað við
að framleiða 500 þúsund göngu-
seiði á ári. Hann sagði að hægt
yrði að auka það í 1,5 milljónir seiða
ef meira kalt vatn fengist þar.
Seiðahúsið á Öxnalæk hefur undan-
farin ár verið notað til að þurrka
þorskhausa.
Eyjólfur sagði að áfram væri
unnið að uppbyggingu í Lónum í
Kelduhverfi, meðal annars seiðaeld-
inu. Sagði hann að á næsta ári
yrði framleiðslan komin upp í
200-250 tonn af laxi og hún síðan
smám saman aukin. Þá væri stefnt
að aukningu seiðaframleiðslunnar
þannig að hún komist í tvær milljón-
ir gönguseiða innan fárra ára.
Kolbeinsstaðahreppur:
Fjör í fjöruferð
ÞAÐ var kátt á hjalla hjá krökk-
unum á dagheimilinu Suðurborg
í góða veðrinu á dögunum. Þá
var öll hersingin drifin upp í
rútu, og ekið sem leið lá að Hálsi
í Kjós. Þegar þangað var komið
var klöngrast niður í fjöru, í
fylgd vökuUa fóstranna, og
fjöruferð var hafin.
Þá tók við steina-, kuðunga-,
skelja- og sílaskoðun og skein áhug-
inn úr litlu andlitunum. Auðvitað
þurftu nokkrir að spreyta sig á því
hversu langt þeir gætu nú kastað
steini út á fjörðinn, aðrir sulluðu í
flæðarmálinu, og ein ung dama,
gerðist meira að segja svo bíræfin
að hún óð út í í pollagallanum
sínum. Hópamir ganga undir nöfn-
um eins og; ungar, hvolpar, kanínur
og bangsar, allt eftir því hvaða
deild dagheimilisins þau tilheyra.
Það fylgir að sjálfsögðu svona
fjöruferð að tylla sér á grasbala og
fá sér einhveija hressingu — það
var líka gert í fjörunni í Kjós, og
að svo búnu príluðu lítil kríli upp á
veg aftur, og stefnan var tekin á
Suðurborg í Hólahverfi á nýjan leik.
Maður
slasast
Borg i MiklaholUlircppi.
í gær, miðvikudag, varð óhapp í
Kolbeinsstaðahreppi. Bíll fór þar
út af. í bílnum var einn maður,
meiddist hann nokkuð og var flutt-
ur í sjúkrahúsið í Stykkishólmi.
Bíllinn er héðan úr sýslunni.
- Páll