Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
%
Menntamálaráðherra um kynningu á íslenskri menningu erlendis:
„Vonast eftir aukinni fjár-
veitingfu til þessa liðar“
FJÁRVEITING til kynningar á
íslenskri menningu og list er-
lendis á þessu ári nam 1,5 milljón-
um króna, og Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra gerir sér vonir um að
fjárveiting til þessa liðar hækki
verulega á fjárlögum næsta árs.
„Þetta er liður sem hefur verið
gífurlega sótt á, og það verður að
segjast eins og er að við höfum
haft úr meiru að spila en þeirri fjár-
Húsavík:
50 þúsund
fjár slátr-
að í haust
Húsavík.
SLÁTRUN hófst hjá Kaupfélagi
Þingeyinga í gær, miðvikudag,
og er það fyrr en venjulega
vegna slátrunar á riðufé. Alls er
áætlað að slátra 49.800 kindum
og er þar um 5.000 sem slátrað
er vegna aðgerða gegn riðuveiki.
Einnig er aukning vegna þess
að nokkrir bændur í sýslunni, sem
áður slátruðu hjá Kaupfélagi Sval-
barðseyrar, hafa flutt viðskipti sín
til Húsavíkur. Útlit er fyrir að dilk-
ar verði vel í meðallagi. Af þessum
tæpum 50 þúsund kindum sem
slátrað verður eiga Húsvíkingar um
1.00 kindur. Þykir mörgum þetta
furðu mikil fjáreign hjá þéttbýlis-
búum.
Fréttaritari
Útsölu-
kjötíð að
seljast upp
MIKIÐ hefur selst af kindakjöti
í útsölunni sem hófst síðari hluta
júlímánaðar. Frá því um mánaða-
mót hefur salan verið mjög lífleg
og er það kjöt sem upphaflega
var ráðgert að selja á útsölunni,
um 1.800 tonn, að líkindum búið.
Má því búast við að útsölunni
ljúki allra næstu daga.
Guðmundur Sigþórsson skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu sagði að beðið væri eftir tölum
um söluna undanfarna daga, en
taldi að það mikið hefði selst að
útsölunni væri að ljúka. Steinþór
Þorsteinsson deildarstjóri í afurða-
sölu SÍS sagði að salan hefði verið
mjög góð frá mánaðamótum. Af-
urðasalan hefði selt um 500 tonn
það sem af er mánuðinum. Matthías
Gíslason fulltrúi forstjóra Sláturfé-
lags Suðurlands sagði að mikið
hefði selst af kindakjöti að undan-
förnu og væri SS að ljúka við sínar
gömlu birgðir þessa dagana.
veitingu sem ákveðin var á fjárlög-
um þessa árs, því ég hef fengið
aukafjárveitingar til ýmissa verk-
efna,“ sagði Sverrir Hermannsson,
er hann var spurður hvort hann
teldi að nægjanlegu fjármagni væri
varið til kynningar á íslenskri
menningu erlendis. Nefndi mennta-
málaráðherra sem dæmi aukafjár-
veitingu að upphæð um 300 þúsund
krónur til að kosta verk Errós á
Feneyjabíenalinn. Þá hefði fengist
aukafjárveiting til að senda lista-
verk á Sveaborgarsýningu, sem
færi svo um Norðurlöndin.
„Auðvitað vildi maður gjaman
fá aukna íjárveitingu til þessa þýð-
ingarmikla kynningarstarfs og ég
vonast eftir aukinni fjárveitingu til
þessa liðar á fjárlögum næsta árs,
en ég hef ekki þurft að kvarta, því
fjármálaráðherra hefur tekið mála-
leitan minni einstaklega vel þegar
ég hef þurft að sækja um aukafjár-
veitingar vegna ákveðinna verk-
efna,“ sagði menntamálaráðherra.
Franska herskipið Vauquelin.
Franskt herskip í
Reykjavíkurhöf n
HINGAÐ til lands kemur á morgun
franska herskipið Vauquelin. Er
það í tilefni þess að 50 ár eru liðin
frá því að skipið Pourquoi pas?
fórst hér við land og öll áhöfn
utan einn maður með því.
Næstkomandi sunnudagsmorgun
verður sungin messa í Kristskirkju,
Landakoti, til minningar um skip-
verja, sem drukknuðu þegar skipið
strandaði á skeri út af Mýrum. Eftir
messuna verður svo stutt minningar-
athöfn um þá í kirkjugarðinum við
Suðurgötu, en þar eru skipveijamir
grafnir.
Dagana 13. til 15. september verð-
ur skipið, sem er 3.00 tonn, almenn-
ingi til sýnis.
■BHBHH
I Dúkalandi
við Grensásveg
ri:i*
'V.'-J
,*•»:•» !
:•» !* :
GOLFKORKUR
10%—12% afsl.
Bæði náttúrulegur og
vinylhúðaður í 30x30 cm
flísum 3,2mm, 4mm, og
6mm þykkir.
l£*Oc o o <
GOLFFLISAR
MARMARI
5%—25% afsl.
Frábært úrval af portú-
gölskum gólfflísum —
margar stærðir og gerðir
í miklu litaúrvali.
Takmarkað magn af
bráðfallegum marmara á
ótrúlegu verði.
ÚRVALSPARKETT
3%—10% afst.
Eik, beyki, hlynur, birki,
askur, eucalyptus.
Gæðaparkett bæði
gegnheilt og krosslímt
frá Junkers, Káhrs,
Höhns og Hörning.
Þykkt: 8mm, 12mm,
15mm og 20 mm.
GÓLFDÚKAR
5%—50% afsl.
Gæðagólfdúkar sænskir
og þýskir fyrir heimili og
stofnanir — þykkir og
þunnir í fjölda mynstra
og lita. Gólfdúkabútar og
dúkaafgangar með allt
að 50% afslætti.
Góðir greiðsluskilmálar
Allt til dúkalagna — flísalagna og parketlagna.
Útvegum alla þjónustu við lögn.
EMMESS-ískynning. Hl-C — vörukynning
IEURC
KREDIT
'and Dúkaíand
Grensásvegur 13. S: 83577, 83430.