Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 15
JtiSkifflStlStlSM
Jón Guðmundsson og Guðný Helga Sigurðardóttir með hluta af
nýja námsefninu.
Morgunblaðið/Þorkell
„Skjalatöskur og axlartöskur vinsælastar,“ segja þær Kolbrún, Sigriður og Birna.
skólanum í Keflavík, önnur er
sérkennari, hin bekkjarkennari sem
kennir einnig við sérdeildina. Þær
eru að skoða það sérkennslunáms-
efni sem til er og eru einnig búnar
að versla í Skólavörubúðinni. Það
er gott hljóð í þeim, þær segja að
það sé alltaf gaman að byija í skól-
anum á haustin, og einnig gott að
fá frí á vorin.
Jón Guðmundsson og Guðný
Helga Sigurðardóttir starfsmenn
Kennslumiðstöðvarinnar taka fram
nýjasta námsefnið sem kennurum
er boðið upp á í vetur. Guðný er
einnig einn af höfundum námsefnis
sem notað verður í fyrsta sinn í
forskóladeildum í vetur, en með því
er reynt að brúa bil milli leikskóla
og dagheimila og skóla. Meðal
þessa nýja námsefnis er námsefni
um jafnrétti kynjanna, ljósmyndir
sem notaðar eru til málörvunar,
nýtt námsefni í tónmenntakennslu
yngstu nemendanna, nýtt námsefni
í sögu og fleira. Talsverðar breyt-
ingar hafa orðið á þeim mynd-
bandaefniskosti sem kennurum
stendur til boða, skólamir fá nú til
afnota fræðslueftii sjónvarpsins í
fyrsta sinn, og eiga kost á að koma
sér upp myndabandasafni sjálfir.
Við eitt borðið í salnum situr
Guðmundur Gíslason kennari í
Laugalandsskóla í Rangárvalla-
skóla. Hann segir að algjör bylting
hafí orðicj í kennsluefni á sl. árum,
en hann hefur 18 ára kennslu-
reynslu að baki. Meðal þeirra bóka
sem hann hefur tekið fram eru
hugmyndir um kennslu í hand-
mennt, enda segir hann kennara í
skólunum úti á landi þurfa að kenna
nánast allar námsgreinar. Svavar
Bjömsson sem er að kynna sér inni-
hald hugmyndabankans á staðnum
tekur í sama streng varðandi breyt-
ingar á kennslugögnum. Svavar
hefur kennt í 25 ár, nú í vetur kenn-
ir hann í Mýrarhúsaskóla. Hug-
myndabankinn hefur að geyma
ýmsar kennsluhugmyndir í hinum
ýmsu námsgreinum sem safnað
hefur verið saman í Kennslumið-
stöðinni.
Framhaldsskólanemendur em
einnig að tina saman bókakost vetr-
arins. Þær Þorbjörg Amadóttir og
Elena Lusenti kaupa námsbækum-
ar í einni bókaverslun í miðbænum.
Þorbjörg er á síðustu önn í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti á
matvælasviði og segist þurfa að
kaupa bækur og ritföng fyrir að
minnsta kosti 10 þúsund nú í haust.
„En þeir sem em á tungumálasviði
þurfa að kaupa dýrari bækur, ætli
þeir fari með minna en 20 þúsund
í bókakaup."
Elenu Lusenti, sem er nýkomin
til landsins, finnst bækumar dýrar
eins og flest annað héma. Hún er
skiptinemi, kemur frá Ítalíu. „En
þetta er allt svo dýrt, ég held ég
verði bara að hætta í skólanum og
fara að vinna,“ segir hún sposk á
svip með fangið fullt af námsbókum
á framandi tungu.
Guðmundur Gíslason kynnir sér námsefni í handmennt.
STUÐMENN,
SNIGLAR,
v SKRIÐJÖKLARNIR
LEONCIE
OVÆNTIR RASSKYNNAR KVOLDSINS
FOSTUD. 12. SEPT. KL. 21-01 KR. 500.
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HEFST KL
Á FÖSTUDAG
V í LAUGARDALSHÖLL
✓ /1
ÍÞRÓTTA- 0G T0MSTUNDARÁÐ