Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
19
„Finnst bjartara yfir mann-
lífinu hérna en áður var“
Morgunblaðið/Emilía
Hörður Torfason, trúbadúr og- leikstjóri með meiru, segist ekki
vera á því að flytja heim til Islands á næstunni frá Danmörku
þar sem hann hefur búið um árabil.
— segir Hörður
Torfason, sem
heldur tónleika
í Norræna hús-
inu á f östudags-
kvöldið
„ÉG HÉT því þegar ég varð
fertugur í fyrra, að halda tón-
leika á íslandi árlega og láta
þar við sitja. Á árum áður fór
ég um um landið þvert og endi-
langt með gitarinn, var sem-
sagt ekta trúbadúr, en nú er
svo margt annað sem kallar að,
að þetta verður að nægja.“
Þetta sagði Hörður Torfason,
tónlistarmaður, leikari og leik-
stjóri með meiru, í stuttu spjalli
við blaðamann Morgunblaðsins
á dögunum.
Hörður er nýkominn til landsins
frá Danmörku, þar sem hann hef-
ur verið búsettur um árabil og
ætlar nú að dvelja hér fram í
desember. Hann hélt tónleika í
Norræna húsinu nýverið og
hyggst, vegna fjölda áskorana,
endurtaka þá á sama stað nk.
föstudagskvöld, 12. september,
klukkan 20.30. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn.
Mörgum munu í fersku minni
afmælistónleikar Harðar Torfa-
sonar í Austurbæjarbíói í fyrra,
þar sem margir fremstu trúbadúr-
ar landsins leiddu saman hesta
sína. í þetta sinn segist hann
verða einn á sviðinu með gítarinn
og fjölbreytta verkefnaskrá, sem
spannar 20 ára feril hans, allt frá
gömlum vinsælum lögum til ný-
saminna við texta m.a. úr
Kvæðakveri Halldórs Laxness.
Meginuppistaðan verður þó nýtt
og frumsamið efni.
„Ég hef að undanfömu verið í
tónlistamámi í Danmörku og svo
er ég að vinna að því að komast
inn á markaðinn þar sem leik-
stjóri," segir Hörður aðspurður
um líf og störf í Danaveldi. „I
sumar spilaði ég reyndar á einu
fínasta hóteli Dana, Hotel Marine,
en ég á samt von á því að snúa
mér æ meira að leikstjóm þegar
fram í sækir. Ég er búinn að fást
við svo margt um dagana, tónlist,
leiklist og myndlist. En mér fínnst
sjálfum að ef mínir hæfíleikar
sameinast í einhverjum einum
punkti, þá sé það í leikstjóminni
og þar em mér að opnast ýmis
tækifæri núna.“
Hörður segist ekki vera á því
að flytja heim á næstunni. „Ég
ætla að setja upp leikrit eftir sjálf-
an mig héma meðan ég er heima.
Það heitir Taktu hatt þinn og staf
og var frumflutt í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn 1981. í verkinu
er aðeins eitt hlutverk og það fjall-
ar um nokkurs konar reiknings-
skil í lífi manns. Síðan set ég
hugsanlega upp eina sýningu með
áhugamannafélagi úti á landi,"
segir hann.
„Það er bæði skrýtið og
skemmtilegt að koma heim,“ bæt-
ir hann við að lokum. „Skrýtið
vegna þess að hraðinn i þjóðfélag-
inu hefur aukist svo gífurlega og
skemmtilegt vegna þess hvað hér
ríkir mikil framtakssemi. Það er
líka eins og fólk sé að verða opn-
ara í framkomu. Ég tók sérstak-
lega vel eftir þessu þegar ég var
að ferðast úti á landi í fyrra og
svona almennt finnst mér vera
bjartara yfir mannlífínu á íslandi
núna en áður var.“
Haustmarkað-
ur Kristniboðs-
sambandsins
Á FÖSTUDAGINN, 12. septem-
ber, verður tekið á móti
grænmeti, kökum, sultu og öðru
matarkyns í húsi KFUM og K við
Holtaveg á horni Sunnuvegar,
kl. 18—20. Verður haustmarkað-
urinn daginn eftir, 13. septem-
ber, og hefst hann kl. 14.
Er þessi haustmarkaður hafður
til fjáröflunar fyrir starfíð og mun
allur ágóði af markaðinum renna
til Kristniboðssambandsins.
Þeir, sem vildu styrkja þetta mál-
efni, eru hvattir til þess að koma í
KFUM-húsið við Holtaveg með ein-
hvem jarðargróða, sem eftir
óvenjulega gott sumar ætti að vera
smá þakklæti til Skaparans fyrir
velgerðir hans í okkar garð í sumar.
(Frcttatilkynning)
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
DEMAINITURINN
í feröatækjalínunni
frá sg SAMSUNG
2x10 watta magnari
m/ 5 banda tón-
jafnara.
Tengi f/plötuspllara.
Tvöfalt segulband
m/ samhæförl upp-
töku.
Hraðaupptaka.
Normal-, Crome- og
Metalstlllingar.
,,LPS" (Sjálfvlrk
afspilun frá segul-
bandi 1 til 2).
Lauslr 2 way hátal-
arar o.m.fl.
STQ-20
Kr. 4.620
Stgr
Aóeins kr
...og veröiö...
13.900
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) — Sími 62 20 25