Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 26

Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 26
ZO MGRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGURai. SEPTEMBER 1986 í Kaupmannahöfn Hér er gott að starfa Emil Guðmundsson ásamt hluta starfsliðs síns utan við söluskrif- stofu Flugleiða i Kaupmanna- höfn. — Emil Guðmundsson tekinn tali „HÉR ER gott að starfa — enda hvert rúm skipað úrvals starfs- mönnum. Hér á söluskrifstofunni starfa 13 manns, 12 íslendingar og 1 Dani, samstilltur hópur sem kann sitt fag,“ sagði Emil Guð- mundsson, umdæmisstjóri Flug- leiða í Danmörku er undirritaður tók hann tali á skrifstofu hans að Vestre Farimagsgade 1 i Kaupmannahöfn. „Vissulega voru það umskipti að hverfa frá hótelrekstri heima á Islandi og hefja störf hér í Kaup- mannahöfn. Góður hótelhaldari á nánast aldrei frí og er ekkert mann- legt óviðkomandi. Starfið hér er hvergi nærri eins erilsamt. Nú á ég meira að segja oftast nær frí um helgar. En í grundvallaratriðum eru þessi störf hin sömu: Að kynna og selja ákveðna vöru, ákveðna þjónustu." — Og hvernig gengur svo að selja Dönum íslandsreisur? „Vel. Það hefur orðið umtalsverð aukning á ferðum Dana til íslands á þessu ári — og það er trú mín að þar geti orðið um enn frekari aukningu að ræða. Það hefur verið fjallað talsvert um Island í fjölmiðl- um hér að undanfömu. Ahugi almennings á íslandi hefur því eflst — auk þess sem hér er ríkjandi mikill áhugi á Grænlandsferðum um þessar mundir. í vetur fljúga Flugleiðir tvisvar í viku héðan til Narssarssuaq á Grænlandi með við- komu í Keflavík í samvinnu við Grænlandsflug hf. En við seljum Dönum fleira en íslandsreisur og væntanlegar Grænlandsferðir. Hlutdeild okkar í Ameríkuferðum Dana hefur stóraukist og mun væntanlega enn aukast með beinu áætlunarflugi Flugleiða frá Keflavík til Orlando í Florida. Þá getur Daninn flogið beint héðan í sólina í Florida með stuttri viðkomu í Keflavík." — En var enginn beigur í hótel- stjóranum að bregða búi sínu heima á Fróni og hefja störf á markað- storgi danskra ferðamála? „Hreint ekki — enda þekki ég Dani og Danmörku frá fyrri tíð. Áður en ég tók við störfum á Hótel Loftleiðum á sínum tíma hafði ég starfað um 6 ára skeið héma í Kaupmannahöfn sem stöðvarstjóri Loftleiða á Kastrup-flugvelli. Ég hef alltaf kunnað vel við Dani. Við hjónin höfum nú fest kaup á litlu einbýlishúsi úti á Dragor og komið okkur þar ágætlega fyrir. Það er gott að búa og starfa héma í Dan- mörku.“ — Að lokum. Hvert kýs ferða- málafrömuðurinn Emil Guðmunds- son að ferðast í sumarleyfum sínum? „Til Grænlands. Þar getur maður verið gjörsamlega einn með sjálfum sér eða ferðafélögum sínum og gengið á vit náttúrunnar ótruflaður af öllum skarkala tæknisamfélags- ins. Meira að segja nær síminn ekki að trufla grænlenska kyrrð. Grænland er minn sumarleyfisstað- ur.“ V ''fi T m 2 ■á W'i' - \f fsœ' ' Áætlað að 12 þúsund Flugleiðafarþeg- ar fari um Kastrup-flugvöll á þessu ári — segir Guðmundur Jónsson stöðvarstjóri „Á SÍÐASTLIÐNU ári fóru um 10 milljónir farþega um Kastrup- flugvöll og þar af voru 10 þúsundir Flugleiðafarþegar — en við áætlum að þeir verði a.m.k. 12 þúsund á þessu ári,“ tjáði Guðmund- ur Jónsson stöðvarstjóri tíðindamanni í stuttu spjalli á Kastrup- flugvelli fyrir skemmstu. Guðmundur Jónsson hefur verið stöðvarstjóri á Kastrup-flugvelli um 15 ára skeið, fyrst hjá Loftleiðum og síðar hjá Flugleiðum. Við spurð- um hann í hverju starf stöðvarstjóra væri fólgið. „Stöðvarstjóri hefur yfirumsjón , með afgreiðslu vélanna hér á flug- vellinum, fylgist með hreinsun þeirra, annast hvers konar fyrir- greiðslu farþega og er málsvari farþega og flugfélags við komu og brottfor vélar. SAS annast alla venjubundna farþegaafgreiðslu fyr- ir okkur, s.s. innritun í flug og þess háttar — en við fylgjumst með því að farþegar fái þá þjónustu sem þeim ber og farþegar leita til okkar ef eitthvað bjátar á. Oftast vegna týndra farseðla eða farangurs — og við kappkostum þá að leysa vanda manna. Við erum þrír Islend- ingar sem störfum hér á Kastrup- flugvelli við afgreiðslu vélanna, tveir í senn.“ Og ferðamáti landans hefur væntanlega breyst frá fyrstu starfsárum þínum hér á Kas- trup-flugvelli? „Já, mikil ósköp. íslendingar eru einfaldlega miklu veraldarvanari nú en þá, utanfarir aimennari og tíðari. Það verður þó aldrei nógsamlega brýnt fyrir íslenskum ferðamönnum — þótt veraldarvanir séu — að Kaupmannahöfn er stórborg og í ákveðnum hverfum hennar leynast hættur fyrir ferðamenn eins og raunar í öðrum stórborgum. En haldi menn sig utan þessara hverfa hlýtur Kaupmannahöfn að vera ein Guðmundur Jónsson á skrifstofu sinni á Kastrup-flugvelli. óskaborga íslenska ferðalangsins- ins. Hér fá menn notið alþjóða lista, menningar og skemmtana og Kaup- mannahöfn er auðvitað söguleg gullnáma fyrir íslendinga. Og hér er gott að búa og starfa. það get ég staðfest. Nei, við sem störfum hérna á flugvellinum verðum ekki vör við harða samkeppni flugfélaganna. Hér eru starfsmenn hinna ýmsu flugfélaga miklu frekar eins og ein heild. Stöðvarstjórar félaganna hafa t.d. með sér náið samstarf um leiðir til bættrar þjónustu við far- þega héma í flugstöðinni. Formlegir fundir eru haldnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar og sameiginlegra úrlausna leitað." Og framtíð Kastrup-flugvall- ar? „Eftir áralangar vangaveltur hafa dönsk stjómvöld nú horfið frá uppbyggingu flugvallar á Salt- hólma en ákveðið þess í stað að hefja frekari uppbyggingu Kas- trup-flugvallar. Sú uppbygging er þegar hafín. Þess sjást merki hérna í flugstöðinni — þar sem unnið er að ýmsum endurbótum og nýjar fríhafnarverslanir rísa. Kastmp er stór og mikill alþjóðaflugvöllur og hann mun eflast sem slíkur í fram- tíðinni." VÖNDUÐ BRAUÐRIST MEÐ HITAGRIND Útsöiustaðir í helstu raftækjaverslunum og kaupfélögum. Sjón er sögu ríkari HEILDSÖLUDREIFING Útsölustaður Jli raftækjadeild Jón Loftsson hf. ' 1 I ffl I I I" I ÍfflÍrrrJ g. 10600 Hringbraut 121

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.