Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
*
Agætis sumar
sem nú kveður
Veðurfræðingar sammála um að
sumarið hafi verið g’ott fyrir bændur
VEÐURFRÆÐINGAR virðast
sammála um að sumarið hafi
verið hið ákjósanlegasta fyrir
bændur víðast hvar á landinu,
þar sem þurrkur hafi verið með
ágætum og veðurfar yfirleitt
þokkalegt.
„Þetta hefur verið afskaplega
ánægjulegt sumar fyrir mínar
kenningar um sambandið milli
grassprettu og hita,“ sagði Páll
Bergþórsson, veðurfræðingur,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gær. „Ég spáði því í vor
að þetta myndi verða gott gras-
sprettusumar og sú hefur raunin
orðið. Spáin var reyndar byggð á
vetrarhitanum, svo sumarið ræður
ekki úrslitum, en hefur þó verið
nógu gott til að spáin rættist. Það
hefur tvímælalaust komið sér vel
fyrir landbúnaðinn," sagði Páll.
„Þetta er gott sumar sem kveð-
ur og þá ekki bara hvað snertir
hitann, heldur einnig þurrkinn.
Það hlýtur að vera ljómandi taða
sem situr í hlöðum um allt land
núna.“ Páll sagði að eina undan-
tekningin væri í uppsveitum
Amessýslu, þar sem ekki hafi
viðrað vel til heyskapar á tímabili.
Hann vildi ekki spá því að fram-
undan væri snjólaus vetur, en
sagði þó að heldur litlar líkur
væru á að harður vetur væri í
vændum. Best væri þó að vera
við öllu búinn.
Trausti Jónsson, veðurfræðing-
ur, sagði að á Veðurstofunni væri
sumarið alls ekki á enda komið,
þótt skólar væru byijaðir og næt-
urfrost á sumum stöðum. Veður-
stofusumarið er í giidi frá 1. júní
til loka septembermánaðar og því
væru enn nokkrar vikur í að end-
anleg úttekt yrði gerð á veðrátt-
unni í sumar.
Hann sagði að almennt hefði
hiti í Reykjavík verið heldur undir
meðallagi, en á Akureyri hefði
verið ívið hlýrra en í meðalári.
Sagði Trausti að úrkoman í
Reykjavík hefði verið nálægt með-
allagi, en henni hafi verið fremur
Morgunblaðið/Þorkell
I sól og sumaryl í miðbænum — algeng sjón á því sumrí sem nú
er að líða.
misskipt, þar sem í júní var tiltölu-
lega votviðrasamt, en síðan hefði
úrkoman farið minnkandi og hún
verið undir meðallagi í júlí og
ágúst. Sólskinsstundir voru sömu-
leiðis nálægt meðallagi, þegar á
heildina væri litið, en þeim var
einnig misskipt á mánuði. Trausti
sagði að júnímánuður í Reykjavík
hefði verið einn sá dimmasti sem
vitað væri um, en bæði í júlí og
ágúst hefðu sólskinsstundir verið
yfír meðallagi.
A Akureyri var sól yfir meðal-
lagi í júní og ágúst, en í meðallagi
í júlí. Sagði Trausti að fremur
kalt hefði verið við strendur vest-
an til á Norðurlandi, en hafísinn
hefði kannski haft áhrif á hitastig
á þeim slóðum.
„Almennt má segja að allir
staðir hafi fengið einhveija góða
daga; sumir kannski marga,“
sagði Trausti.
Nýja húsnæðislánakerfið:
Fasteignaverð mun hækka
og- nýbygging-ar aukast
— segir Þórólfur Halldórsson formaður Félags fasteignasala
„ÁHRIF nýju húsnæðismála-
íaganna verða tvenns konar,
verð á fasteignum mun hækka
ii kjölfar meiri eftirspumar
og litið framboð á fasteignum
mun leiða til aukningar ný-
^)yg'ginga.“ sagði Þórólfur
itlaildórsson formaður Félags
fasteignasala í samtali við
Morgunblaðið nýverið.
Að sögn Þórólfs er hljóðið al-
mennt gott í fasteignasölum.
„Reyndar er ekki nóg framboð á
vissum stórum fasteignum. Fast-
eignir hafa aimennt hækkað í verði
á þessu ári og hefur hækkunin ver-
ið jafnt og þétt það sem af er árinu,
en engar stökkbreytingar orðið.
Hækkunin hefur mest orðið á 3-4
herbergja íbúðum og sérhæðum og
breytingin orðið mest á eftirsóttum
svæðum eins og í Fossvogi, Háa-
leiti og Vesturbæ.“
Síðan í mars hefur mikið verið
að gera á fasteignamarkaðnum og
í sumar brá svo við, að hin reglu-
bundna sumarlægð kom ekki,
þannig að ekki ber eins mikið á
aukningu í haust eins og svo oft
áður. Eftirsóttar fasteignir hafa
hækkað um 200-300 þúsund í verði
í sumar, en hækkunin á þeim kem-
ur einnig fram í sterkari greiðslum.
Ástæðurnar fyrir þessari auknu
eftirspum eru margs konar að
mati Þórólfs. „í ár fóru inn á mark-
aðinn kaupendur, sem hafa haldið
að sér höndum á árunum 1984-85
enda horft fram á betri tíð. Afleið-
ingin af þessu eru fleiri nýir
kaupendur en undir venjulegum
kringumstæðum. Nýju lögin hafa
einnig sín áhrif, þar sem greiðslu-
byrðin léttist. Hækkun lána
Húsnæðisstofnunar minnkar hins
vegar lán hjá öðrum, þ.e. nýtt fjár-
magn er ekki yfirgengilegt á
markaðnum. Því miður hefur hækk-
andi verð fylgt fyrirgreiðslu
Byggingarsjóðs. “
Um það er talað í nýju húsnæðis-
lögunum að fólk eigi að fá svar frá
Húsnæðisstofnun um lán sín innan
tveggja mánaða, en að mati Þórólfs
verður það fyrst eftir 6-7 mánuði,
að fólk fær lánin afgreidd, enda
hafi Húsnæðisstofnun ekki nægi-
legt fjármagn.
„Fasteignamarkaðurinn er ekki
tilbúinn undir þá holskeflu, sem ríða
mun yfír þegar fólk fær lánin sín.
Þeir sem eru að kaupa í fyrsta sinn
ganga fyrir öðrum kaupendum, þ.a.
þeir sem eiga fasteignir og vilja
kaupa nýja halda að sér höndunum
og bíða með að selja, þar til þeir
geta keypt sjálfír. Þetta mun auka
við nýbyggingar en það er augljós-
lega mun óhagkvæmara.
Kjalarnesprófastsdæmi:
Prestskosn-
ingar í Utskála-
prestakalli
PRESTSKOSNING fer fram í
Útskálaprestakalli í Kjalar-
nesprófastsdæmi sunnudaginn
21. september nk. Tveir umsækj-
endur eru um prestakallið, þeir
eand. theol. Hjörtur Magni Jó-
iiannsson og Sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
Kynningarguðsþjónusta verður í
Útskálakirkju sunnudaginn 14.
september kl. 14:00. Þar mun cand.
theol. Hjörtur Magni Jóhannsson
predika og Sr. Guðmundur Guð-
mundsson fráfarandi sóknarprest-
ur, sem þjónað hefur prestakallinu
frá 1952, þjóna fyrir altari. Hinn
umsækjandinn um prestakallið, Sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, mess-
ar í Hvalsneskirkju kl. 16:00 sama
dag. Báðum guðsþjónustunum
verður útvarpað á FM 103,0.
Um 18 þús.
fleiri ferða-
menn það
sem af er
árinu
í ágústmánuði sl. komu
rúmlega 35 þús. ferðamenn til
landsins og er það tæplega 18
þús. fleiri en í fyrra. Það sem
af er árinu hefur 157.621
ferðamaður komið til landsins
og er það tæplega 18 þús.
fleiri en á sama tímabili í
fyrra. Farþegar með
skemmtiferðaskipum, sem
komu 19 sinnum til landsins í
sumar, voru 7.740 en voru
10.823 í tíu ferðum á síðasta
ári.
Af þeim 35.543 ferðamönnum
sem komu til landsins í ágúst voru
16.883 íslendingar, 4.468 Banda-
ríkjamenn og 2.777 frá V.-Þýska-
landi. Þá komu 2.053 frá
Danmörku, 1.769 frá Bretlandi,
1.567 frá Svíþjóð, 1.306 frá Nor-
egi og 1.158 frá Frakklandi.
Með skemmtiferðaskipum komu
5.502 frá V.-Þýskalandi og voru
þeir fjölmennastir. Frá Svíþjóð
komu 407, frá Bretlandi 352, frá
Austurríki 331, frá Tékkóslóvakíu
258, frá Bandaríkjunum 219 og
frá Portúgal 212.
300 stykki úr
Leirvogsá
295 laxar voru komnir á land
úr Leirvogsá í fyrradag og miðað
við þann reyting sem verið hefur
að undanförnu er óhætt að segja
að nú séu um 300 laxar komnir
á land úr ánni. Er þetta hörkugóð
veiði miðað við aðstæður sem
hafa verið síst eða litlu betri en
í fyrra þegar Leirvogsá hætti
næstum að renna milli bletta sem
eitt sinn var óhætt að nefna hylji.
Fram eftir öllum ágúst og seinni
hluta júlí voru stöðugar göngur í
ána, engar risagöngur, en feyki-
nóg til að halda veiðimönnum við
efnið. Yfírleitt hafa Varmadals-
gijótin verið drýgst, þar næst
gljúfrið ofan Ketilhyls fyrir þá
sem nenna að ganga og príla og
hafa lag á að veiða þar, en þar
er víða vandveitt. Annars hefur
laxinn verið furðudreifður miðað
við hið litla vatnsmagn.
Þetta er yfirleitt smár lax, en
einstaka 8—12 punda fiskur hefur
náðst á þurrt, en stærstu laxamir
vom 16 pundari úr Ketilhyl og
tveir 14 punda fískar, annar úr
Tröllafossrennu og hinn úr Ein-
búa. Allir á maðk, eins og nær
allir laxamir sem veiðst hafa í
ánni í sumar.
Annar 20-pundari úr
Langá...
Einn 20 pundarinn enn veiddist
í Langá í landi Langárfoss og
Ámabrekku fyrir nokkru og þá
hafa þrír laxar af þeirri stærð-
argráðu veiðst í sumar, 20, 21
og 22 punda, en slíkir fískar fást
oft ekki í ánni svo árum skiptir,
hvað þá að þeir veiðist. Þá hefur
heildarveiðin í sumar verið afar
mikil, aflinn er kominn yfír 1.800
laxa, en veitt er til 13. septem-
ber. Mikill lax er í ánni og hún
hefur lengst af haldið sæmilegu
vatni þökk sé vatnsmiðluninni í
Langavatni. Síðustu vikumar hef-
ur vatnsborðið þó sigið talsvert.
Nýjar tölur úr
Ásunum...
Eitthvað hafa lokatölur úr Laxá
á Ásum skolast til hjá mönnum,
síðast er um þá á var rætt hér í
þættinum var greint frá loka-
tölunni 1.850 löxum, en Jón
ísberg á Blönduósi hafði samband
við Morgunblaðið í gær og sagði
að vantaldir hefðu verið 13 laxar
af einni síðunni í veiðibókinni og
það væri engum blöðum um það
að fletta, að lokatölurnar væm
1.863 laxar og er það mesta veiði
í ánni í a.m.k. 10 ár. Metveiði-
Glímt við lax á Gijótunum í Leir-
vogsá, en þar hefur veiðin verið
einna drýgst í sumar.
sumarið 1.978 veiddust 1.854
laxar í ánni, en þess bér að geta,
að þá var 20-laxa kvótinn enn í
fullu gildi. Er þá væntanlejga út-
rætt um aflann í Laxá á Asum í
sumar.
Sogið yf ir 20-punda
múrinn...
Sigurður Bjamason tannlæknir
gerði sér lítið fyrir og dró 21,5
punda hæng á flugu úr Soginu
fyrir skömmu, en Sigurður var
að veiðum í landi Alviðm. Þetta
er stærsti laxinn sem Morgun-
blaðið hefur haft spumir af úr
Soginu, en þess ber að geta, að
það er erfitt að afla frétta þaðan
vegna þess að veiðibækur em
margar og símasambandslaust við
veiðihúsin. Ef það er rétt að þetta
sé fyrsti laxinn yfír 20 pundum
úr ánni, þá hefur Sogið loks bæst
í fríðan hóp áa sem hafa gefíð
20 pund laxa eða stærri í sumar
og var kominn tími til. Alls hafa
rúmlega 300 laxar veiðst í Soginu
eftir því sem komist verður næst
og er það góð veiði á þeim slóð-
um. Sum svæðin hafa verið iéleg,
t.d. Syðri Brú og Bíldsfell, þó
hafa komið skot á síðarnefnda
staðnum, en Ásgarður og Alviðra
hafa borið af.