Morgunblaðið - 11.09.1986, Síða 32

Morgunblaðið - 11.09.1986, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 ,32 Eru leyndir klefar í pýramídanum mikla?: Leit stöðvuð og óvíst hvenær hald- ið verður áfram Giza, Egyptalandi, AP. FRÖNSKU arkitektarnir, sem telja sig- hafa fundið áður ókunna og ósnerta klefa í pýramídanum mikla, hafa hætt leit í bili aðeins fáum metrum þar frá sem þeir telja klefana vera. Segj- ast þeir munu bíða átekta eftir ákvörðun egypskra stjórnvalda um næstu skref í leitinni, en ekki er ljóst hvenær framkvæmdir geta hafist á ný. Arkitektamir Jean-Patrice Goi- din og Gilles Dormion fundu klefana á liðnum vetri, er þeir hugðust kynna sér innri gerð mannvirkisins með hljóðbylgjum. Hljóðbylgjumar sýndu ákveðið ósamræmi og drógu arkitektamir þá ályktun að holrúm væru þar sem ósamræmið kom fram. í framhaldi af því hófust þeir handa ásamt starfsmönnum þjóðminja- safns Egyptaiands á miðvikudeg- inum í síðustu viku um að bora holu inn í klefana og var hug- myndin sú að rannsaka þá með íjarsjá. Hætta varð framkvæmd- um á mánudaginn vegna þess að borinn lenti í sandlagi, sem hann réði ekki við. Þá var holan orðin 2,55 metrar á dýpt og telja Goid- in og Dormion að ekki þurfi að bora nema þrjá metra í viðbót til þess að komast í gegn. Áður hafði borinn farið í gegnum tvö sandlög og að sögn Goidin kom það á óvart að sandurinn er ekki sömu tegundar og sá sem er í grennd við pýramídann. Egyptalandsfræðingar hafa leitt að því getum að klefamir kunni að geyma matarbirgðir eða jafnvel íjársjóði vegna legu þeirra, en þeir liggja til hliðar við göngin til drottningarherbergisins svo- nefnda og fyrir framan göngin til konungsklefans. Þegar farið var inn í pýramídann á sínum tíma AP/Ljósmynd Myndin sýnir upphaf borunar- framkvæmda i pýramídanum mikla. fundust bæði þessi herbergi auð og hefur það vafíst fyrir vísinda- mönnum að skýra það svo full- nægjandi sé. Annars vegar er það hald margra að grafræningjar hafí orðið fyrstir til þess að heim- sækja pýramídann, en sú kenning hefur einnig komið fram, auk annarra, að aldrei hafí átt að nota pýramídann sem grafhýsi. Fattah Sabahy, starfsmaður þjóðminjasafns Egyptalands, sagði að ríkisskipuð nefnd myndi ákveða hvemig leitinni skyldi haldið áfram. Sagði hann að fara yrði mjög varlega til þess að valda ekki eyðileggingu á þessu 4.500 ára gamla mannvirki, sem er það eina af „Sjö undrum veraldar" sem ennþá stendur. September 1985 Þingkosningarnar Noregur: Janúar 1986 Apríl 1986 Skömmu fyrir stjórnarskiptin Kjósendur flýja frá V erkamannaflokknum Hægriflokkurinn er orðinn honum jafn stór HÆGRIFLOKKURINN og Verkamannaflokkurinn í Noregi hafa sama fylgi meðal kjósenda. Kemur það fram i skoðanakönnun, sem norska Gallupstofnunin gerði í ágúst fyrir dagblaðið Aften- posten. Rétt áður en stjórnarskiptin urðu fyrir fjórum mánuðum var fylgi Verkamannaflokksins 43,9% í sams konar könnun og Hægriflokksins 28,8% en þessi munur, 15,4%, svarar til hálfrar milljónar manna. Nú fengu báðir flokkamir 35,5%. Fylgi Hægriflokksins hefur valdataumunum á liðnu vori en ekki verið meira frá stríðslokum og það kom einnig fram í könnun- inni, að fyrrverandi stjómarflokk- ar, sem eru þrír, hafa nú meirihluta meðal kjósenda án at- beina Framfaraflokksins. Aðeins einu sinni áður hafa stóru flokk- amir tveir verið jafnir að fylgi. Var það í janúar árið 1981, á síðustu dögum Nordli-stjómarinn- ar, en þegar Gro Harlem Brundt- land settist í forsætisráðherrastól- inn jókst fylgi Verkamanna- flokksins vemlega. Gro Harlem tók öðm sinni við að þessu sinni hefur fylgið hmnið af flokknum. Hafa aldrei fyrr mælst jafn mikil umskipti á fylgi norsku stjómmálaflokkanna. Könnunin sýndi einnig að 98% þeirra sem kusu Hægriflokkinn í síðustu kosningum, ætla að gera það aftur og auk þess fær hann mikið fylgi frá fyrmm stuðnings- mönnum annarra flokka. Að tiltölu mest frá Framfaraflokkn- um en tölulega frá þeim, sem kosið hafa Verkamannaflokkinn. Hægriflokkurinn stendur best að vígi hjá unga fólkinu. Af kjósend- um undir þrítugu ætla 42% að velja hann næst þegar kosið verð- ur en aðeins 19% Verkamanna- flokkinn. Auk Hægriflokksins vinnur Sósíalski vinstriflokkurinn nokk- uð á. í kosningum hefur hann iengi fengið um eða innan við 6% en hefur nú 7,2% fylgi. Kemur fylgisaukningin næstum eingöngu frá Verkamannaflokknum og end- urspeglar óánægjuna innan verkalýðshreyfíngarinnar, eink- um ríkisstarfsmanna, með launa- stefnu stjómarinnar. Vinstriflokkurinn bætir aðeins við sig, hefur stuðning 3,3%, sem er meira en hann hefur lengi haft, en Framfaraflokkurinn dettur nið- ur í 2,5%. Kristilegi þjóðarflokkur- inn og Miðflokkurinn, borgara- flokkamir, sem stjómuðu með Hægriflokknum, hafa sama fylgi og í júníkönnun Gallupstofnunar- innar, 8,4% og 6,7%. ERLENT Enrile vísar orðrómi um valdatöku á busr Manila, AP. Maniia, AP. JUAN Ponce Enrile, varnarmála- ráðherra Filippseyja, lýsti stuðningi við Corazon Aquino, forseta, annan daginn í röð i saman í bróðerni meðan á Banda- gær. Jafnframt hét stjóm hennar ríkjaför hennar stæði. og öryggisráð landsins að vinna Aquino fer í opinbera heimsókn Fyrrum leiðtogi stúdenta kveðst orðinn rautisær: „Rauði Danni“ vill seljast í stól utanríkisráðherra •• # Ograrjafnt kommúnistum sem friðarsinnum HANN er nú orðinn 41 árs gamall. Strákslegt yfirbragðið er enn hið sama og rauði hárlubbinn er enn á sínum stað. Daniel Cohn- Bendit heitir hann en árið 1968 þegar stúdentauppreisnir fóra sem logi um akur í Evrópu var hann í daglegu tali nefndur „Rauði Danni“ og var einn helsti leiðtogi námsmanna. Nafngiftin var ekki síður til komin vegna skoðana hans en hársins. Nú er hann næstum þvi virðulegur ásýndum og hann hefur fyllst metn- aði. Nú dreymir hann um að verða utanríkisráðherra Vestur- Þýskalands. „Rauði Danni“ viðurkennir að þetta sé aðeins draumur en hann kveðst sannfærður um að á næsta áratug verði „68-kynslóðin“ svo- nefnda orðin áhrifamikil innan þýska Jafnaðarmannaflokksins og að það fólk verði reiðubúið til að mynda samsteypustjóm ásamt flokki „Græningja". Daniel Cohn-Bendit hefur nú gengið til liðs við „Græningjana" og er einn helsti leiðtogi einnar hreyfingar innan flokksins, sem kölluð er „Realo“ og kveðst vera hinn raunsæi armur flokksins. „Græningjar" taka nú í fyrsta skipti þátt í stjómarsamstarfí. Flokkurinn hefur myndað sam- steypustjórn með jafnaðarmönn- um í Hesse-fylki. Jopseph Fischer er forsætisráðherra héraðsins en hann er æskuvinur „Rauða Danna" og þiggur frá honum góð ráð. Sjálfur telur „Rauði Danni" þessa upphefð vinar síns eiga rætur að rekja til uppreisnanna árið 1968, sem Danni nefnir gjaman „uppreisnina okkar". Daniel Cohn-Bendit býr nú í Frankfurt og gefur þar út tíma- rit, sem nefnist PfJaster Strand. Nýlega fékk hann veglegan styrk frá ríkisstjóm Hesse-fylkis fyrir tiistuðlan vinar síns forsætisráð- herrans. Ríkisstjómin samþykkti nýlega fjárstuðning við „and- menningarleg" fyrirtæki og blað „Rauða Danna“ er talið heyra undir þá skilgreiningu. Hann lætur nú til sín taka jafnt í Frakklandi sem í Vestur-Þýska- landi. „í Frakklandi segist ég vera andsnúinn kommúnisma en er samt fylgismaður friðarhreyfíng- arinnar. I Þýskalandi er ég einnig hlynntur friðarhreyfíngunni en ég þreytist seint á að vara við þeim hættum sem fylgja kommúnism- anum. Þannig ögra ég báðum fylkingunum." „Rauði Danni“ hefur fullmótað stefíiuskrá, sem hann hyggst fylgja ef og þegar hann verður utanríkisráðherra Vestur-Þýska- lands. í fyrsta lagi telur hann að ríki Vestur-Evrópu eigi að draga sig út úr Atlantshafsbandalaginu og mynda þess í stað ^sjálfstæða og óháða Evrópu". Önnur hug- mynd hans er sú að skuldir þróunarríkja verði felldir niður og telur hann að þar með verði unnt að stuðla að þróun í lýðræðisátt. Úr The Interaational Herald Tribune. til Bandaríkjanna 15.-23. septem- ber næstkomandi. Sundurþykki hefur verið í stjóm hennar og þær sögur gengið að hugsanlega yrði henni steypt meðan hún yrði í heim- sókninni. Sjálf hefur Aquino vísað orðrómi af þessu tagi til foður- húsanna. Hins vegar boðaði hún stjómina til fundar um verkaskiptingu og skipulag mála meðan hún yrði í Bandaríkjunum. Kvatti hún ráð- herra sína til þess að vinna saman í sátt og samlyndi og tók af þeim loforð þar að lútandi, að sögn heim- ilda. Kallaði hún einnig öryggisráð landsins saman og fundaði með því fyrir ríkisstjómarfundinn. Er það fyrsti fundur ráðsins undir hennar stjóm. Blöð í Manila hafa skýrt frá ágreiningi milli Enrile annars vegar og annarra ráðherra hinsvegar og hafa þau dregið styrk og samstöðu stjómar Aquino í efa. Enrile lýsti hins vegar stuðningi við Aquino bæði í gær og fyrradag. Hann sagð- ist fylgja forsetanum í einu og öllu og að enginn ágreiningur væri með þeim Aquino. Hann sagði það til- hæfulausan áróður að hún kynni að verða svipt völdum meðan hún yrði í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.