Morgunblaðið - 11.09.1986, Qupperneq 63
MORGUNBiAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Dýradráp
ill nauðsyn
eða þarf-
leysa?
Það er aðeins sjálfsögð mannúð-
ar- og menningarstefna að hætta
hvalveiðum.
Þjóð, sem er tilneydd að afla sér
lífsviðurværis með kvalafullu drápi
dýra er illa á vegi stödd.
Þjóð, sem leggur stund á dýra-
dráp án illrar nauðsynjar, er enn
verr á vegi stödd, því slíkt ber vott
um slævða tilfínningu fyrir þjáning-
um fórnardýranna, og hlýtur því
að leiða til versnandi lífsambanda.
Sem best sambönd við æðri
lífstöðvar eru forsenda þess að
mönnum og þjóðum vegni vel, en
til þess verða menn að bera í bijósti
lotningu fyrir öllu lífí og gera sér
far um að eyða því ekki, án ýtrustu
nauðsynjar. Séu menn tilneyddir að
eyða lífí sér til framfæris, skyldi
það ávallt gert á sem hreinlegastan
hátt.
Það er brot gegn lögmálum
lífsins að valda dýri þjáningum að
þarflausu við aflífun þess. Slíkt
framferði hlýtur að leiða til ófamað-
ar í einhverri framtíð.
Þá er komið á hættulegasta leið
ef einhver kvelur og drepur sér til
ánægju. Sá hinn sami hlýtur að
gjalda þess síðar.
Sá sem brýtur lögmál lífsins í
tilfinningaleysi eða af nautn, hlýtur
að gjalda þess síðar með eigin þján-
ingu, því lögmál orsaka og afleið-
inga eru ávallt að verki.
Ingvar Agnarsson
Þessir hringdu . . .
Hvenær verður
dregið í Flug-
sýningarhapp-
drættinu?
Gestur á flugsýningu hringdi:
„Flugsýning var nýlega haldin
hér í Reykjavík, með miklum
glæsibrag. Aðgöngumiðar að sýn-
ingarsvæðinu giltu einnig sem
happdrættismiðar. Nú spyr ég:
Hvenær ætla flugsýningarmenn
að draga í happdrættinu og birta
vinningaskrána?"
Kynjunum mis-
munað í íþrótta-
þætti
Ung kona hringdi:
„Mig langar til að lýsa yfír
óánægju minni með framferði
Bjama Felixsonar í íþróttaþætti
sjónvarpsins sl. laugardag.
Hann sýndi þá mynd frá Lands-
bankahlaupinu, sem er gott, en
það sem angrar mig er hvemig
hann gerði upp á milli þeirra 11
ára stráka og stepna sem tóku
þátt í hlaupinu. Hann talaði um
að strákamir minntu helst á
hlauparann fræga, Sebastian Coe,
og taldi hann upp nöfn strákanna
í þremur efstu sætunum en minnt-
ist varla á stelpumar. Hann sagði
að vísu hver hefði verið fyrst f
mark en ekki orð um það meira.
í lok þáttarins taldi hann aftur
upp nöfn strákanna en minntist
ekki á að stelpur hefðu einnig
tekið þátt í þessu hlaupi.
Þetta er eitt besta dæmið um
það hvemig Bjami Felixson mis-
munar kynjunum í þáttum
sínum."
Ónærgætni við
gamalt fólk
Gamall maður í Kópavogi
hringdi:
„Mig langar til að kvarta yfír
ónærgætni þeirra sem sjá um
dagskrá sjónvarpsins.
Síðastliðinn laugardag, 6. sept-
ember, sýndi sjónvarpið eins og
hálfs klukkutíma langan tónlistar-
þátt með þeim Simon og Garfunk-
el. Ég hafði enga eirð í mér til
að horfa á svona langan tónlistar-
þátt og var síðan orðinn syfjaður
þegar bíómyndin byijaði og missti
því af henni. Nær hefði verið að
hafa myndina á undan tónlistar-
þættinum, þar sem líklegt er að
fleiri hefðu viljað horfa á hana
en tónleikana.
I leiðinni langar mig að spyrja
forráðamenn rásar 2 fyrir hvaða
hóp fólks þeir leika tónlist til kl.
3 á nóttunni um helgar. Ég veit
að þetta veldur mörgu gömlu fólki
óþægindum, sérstaklega í ijölbýl-
ishúsum þar sem hávaðinn berst
yfír í næstu íbúðir."
Gleraugn fundust
í Heiðmörk
Kona hringdi og sagðist hafa
fundið gleraugu í Heiðmörk sl.
sunnudag, Ef einhver kannast við
að hafa týnt þar gleraugum getur
viðkomandi hringt í síma 685285.
63
Flokkur U.N.I.
Aðeins 249 kr. kg.
Allt skorið og pakkað
Fulltrúaráðið í Reykjavík
Almennur
fulltrúaráðsfundur
Almennur fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verð-
ur haldinn fimmtudaginn 11. sept. kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Ákvörðun tekln um hvort halda skuli prófkjör vegna kom-
andi alþingiskosnlnga.
2. Ræða Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins.
3. Önnur mál.
Fulltrúaráðsmeðlimir eru hvattir til að fjölmenna og taka
með sér skírteini.
Stjórnin
V
RITVIIMNSII IKFRnn
ORÐ
SNILLD
IWUklJIWtUj1
Ritvinnslukerfið Orðsnilld er nýlega komið á mark-
að hér á landi. Kerfið er íslensk þýóing og aðlögun
á bandarlska ritvinnslukerfinu WordPerfect. Mark-
verðasta nýjung í Orðsnilld er aó með kerfinu fylgir
Islensk stafsetningarorðabók. Orðabókin inni-
heldur 106.000 Islensk orð og orðmyndir auk þess
sem notandi getur bætt við eftir þörfum. Hægt er
að láta kerfið athuga texta skjals og benda á þau
orö sem ekki finnast I orðabókinni.
Markmið: Tilgangur námskeiósins er að kynna rit-
vinnslukerfiö Orðsnilld og kenna notkun þess með
verklegum æfingum s. s. bréfaskriftum, skýrslu-
gerð og uppsetningu dreifibréfa.
■ Efni:
— Kynning á vélbúnaði.
— Æfingar I notkun Orósnilldar.
— Möguleikar orðasafns.
— Helstu stýrikerfisskipanir.
Leiðbeinandi: Kolbrún Þórhallsdóttir framkvæmda-
stjóri Skýrslutæknifélags íslands.
Tími: 16.—19. október, kl. 13.30—17.30.
Þátttakendur. Námskeiðið er ætlað öllum nýjum
notendum Orðsnilldar og eins þeim sem áhuga
hafa á að kynnast notkun ritvinnslu fyrir einka-
tölvur.
Stjórnunarfélag
íslands
Ananaustum 15 Sinu: 62 10 66