Morgunblaðið - 11.09.1986, Síða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Bjarni Sigurðsson
Var öruggur í öllu sem hann gerði í leikn-
um. Greip nokkrum sinnum vel inn í, en í
heild reyndi ekki mikið á hann. Tvisvar
þurfti hann að taka á honum stóra sínum,
einu sinni í hvorum hálfleik — og varði þá
vel.
Gunnar Gíslason
Einn besti maður liðsins. Hefur gífurlegan
líkamsstyrk og var allsendis ófeiminn við
hina frægu mótherja. Vann ótal návígi og
staðsetti sig vel.
Ágúst Már Jónsson
Lék yfirvegað og fumlaust og kom á óvart
hversu vel honum gekk að gæta sóknar-
manna Frakka. Les leikinn vel og náði
mörgum skallaboltum.
Sævar Jónsson
Einstaklega sterkur í skallaboltunum í vörn-
inni, og lét að vanda andstæðingana finna
fyrir sér. Sævar gaf sig allan í leikinn, eins
og venjulega, og gerði vart nokkur mistök.
Atli Eðvaldsson
Vann mjög vel i leiknum, hjálpaði vörninni
mikið, vann marga bolta og skapaði hættu
með nokkrum ágætum sendingum og með
skallatækni sinni — en hefði á köflum
mátt skila knettinum fyrr frá sér.
Sigurður Jónsson
Átti tvær sendingar sem sköpuðu mikla
hættu við mark Frakka, og hélt knettinum
ávallt mjög vel. En hann var oft nokkuð
seinn og missti eldfljóta Frakka framhjá
sér á miðjunni.
ÓmarTorfason
Átti litlausan leik, gerði hvorki slæm mistök
né áberandi góða hluti. Lét Frakkana finna
fyrir kröftum sínum, og barðist vel allan
tímann.
Ásgeir Sigurvinsson
Stjómaði sóknarleik liðsins vel í fyrri hálf-
leik, átti margar góðar sendingar og hélt
boltanum mjög vel. En í síðari hálfleik náðu
Frakkar að spila hann betur útúr leiknum
og þá fór minna fyrir honum. Nærvera
hans hefur góð áhrif á félaga hans í liðinu.
Ragnar Margeirsson
Kom mjög á óvart með Ijómandi leik. Er
greinilega í mjög góðri æfingu og fór á
köflum illa með Amoros hinn fræga bak-
vörð Frakka með snerpu sinni og leikni.
Arnór Guðjohnsen
Fékk flest þau færi sem íslenska liðið fékk
í leiknum, mest fyrir snerpu sína og hraða.
Hann tók vel á móti oft á tíðum erfiðum
sendingum og hélt varnarmönnum Frakka
stöðugt við efnið.
Pétur Pétursson
Hefur átt betri landsleiki en þennan, þó
hann hafi ekki leikið illa. Var duglegur við
að trufla varnarmenn Frakka í uppbyggingu
þeirra, en virtist skorta snerpu til að hrista
þá af sér.
Ragnar Margeirsson á hér í baráttu viA Jean Tigana, „heilau franska liðsins.
MorgunDlaðið/Börkur
Sigi Held:
Náðum jafntefli
með góðum leik
„ÉG ER mjög ánægður með þenn-
an leik, því þessi úrslft fengust
ekki vegna þess að franska liðið
léki illa heldur vegna þess að við
lékum vel.
Við hefðum getað unnið leikinn,
við fengum nokkur þokkaleg mark-
tækifæri — en við hefðum líka
getað tapað því á síðustu mínútu
fengu Frakkar besta færið í leikn-
um og Vercruysse var svolítill
klaufi að skora ekki," sagði Sigi
Held landsliðsþjálfari eftir leikinn í
gærkvöldi.
„Ég var mjög ánægður með
„Þetta voru
sanngjörn
úrslit“
— sagði Ásgeir
Sigurvinsson
„ÞETTA voru sanngjörn úrslit.
Frakkar eru með skemmtilegt lið
og voru meira með boltann en
náðu ekki að skapa sér afgerandi
marktækifæri," sagði Ásgeir Sig-
urvinsson.
„Leikurinn var í heild góður og
spennandi og gat farið hvernig
sem var. Það var mjög gaman að
spila þennan leik. Það er ekki á
hverjum degi sem við náum stigi
gegn svona sterkum knattspyrnu-
þjóðum. Þeir léku eins og ég bjóst
við.“
Er mikill munur á að leika með
Stuttgart og islenska landsliðinu?
„Já, það er allt annað. Samæf-
ingin er ekki sú sama og hjá
Stuttgart en það er ótrúlegt hvað
hægt er að gera á svona stuttum
tíma með landsliðið."
Ert þú tilbúinn í leikinn gegn
Sovétmönnum eftir háifan mán-
uð?
„Já, svo framarlega sem ég verð
ekki fýrir meiðslum. Það er alltaf
gaman að koma heim og spila."
baráttuna í liðinu, allir gerðu það
sem fyrir þá var lagt og unnu mjög
vel fyrir þessum úrslitum. En ég
er ekki síður ánægður með það
að liðið lék á köflum góða knatt-
spyrnu. Það gefur góð fyrirheit um
framtíðina. Ég vil ekki nefna neinn
„AÐ GERA jafntefli við Evrópu-
meistara Frakka, bronsliðið frá
HM í sumar, er stórkostlegur
árangur og enn ánægjulegri þeg-
ar haft er í huga að þetta voru
sanngjörn úrslit og Frakkar geta
jafnvel verið ánægðir með að
hafa ekki tapað leiknum," sagði
Jim Barron, þjálfari bikarmeistara
ÍA f samtali við Morgunblaðið
eftir landsleikinn í gærkvöldi.
„Þetta er enn einn sigur fyrir
íslenska knattspyrnu, því ekki að-
eins iéku íslensku atvinnumennirn-
ir vel, heldur stóðu strákarnir þrír,
sem leika með íslenskum liðum,
sig frábærlega, og þeir sönnuðu
svo sannarlega tilverurétt sinn í
landsliðinu."
Hvað fannst þér um leikaðferð
íslenska liðsins?
„Þegar leikið er gegn liði eins
og Frökkum, er eina leiðin að leika
með einn sem aftasta mann og
það gekk mjög vel í leiknum. Vörn-
in var sterk og Frakkarnir fengu
varla marktækifæri. Hins vegar
myndaðist oft mikið bil á milli
miðjumannanna og framlínunnar
og því áttu Pétur og Arnór erfitt
með aö skapa mikla hættu, en
þeir sýndu að ekki má líta af þeim.
En liðið sem heild vann vel saman,
leikmennirnir bökkuðu hver annan
upp og samvinnan var góð.“
Hvað um franska liðið?
„Frakkarnir fengu greinilega
meiri mótspyrnu en þeir áttu von
I sérstakan leikmann öðrum fremur
— það stóðu allir sig vel frá mínum
bæjardyrum séð," sagði Sigi Held
og var greinilega himinlifandi yfir
úrslitunum í þessum fyrsta „al-
vörulandsleik" sínum með íslenska
I liðinu.
Jim Barron
á. Mér fannst þeir ná ágætu og
hröðu spili á miðjunni, en þegar
þeir nálguðust vítateig íslenska
liðsins, mættu þeir ofjörlum sínum
og sóknirnar urðu að engu. Þeir
léku með fjóra í öftustu vörn, en
engu að síður lentu þeir í vandræð-
um þegar íslendingarnir beittu
skyndisóknum. Þeir kenna sjálf-
sagt litlum velli um, en þeir
verðskulduðu ekki meira en jafn-
tefli."
Þetta er enn einn sigur
fyrir íslenska knattspyrnu
— segir Jim Barron