Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 207. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Umsátursástand á Osterbro: Óeirðirnar gætu kostað mannslíf segir lögreglusljóri Kaupmannahafnar Kaupmannahöfn, Ritzaus Bureau. KYRRÐ hafði færst yfir nánasta umhverfi Ryesgade á Gsterbro í Kaupmannahöfn i gærkvöldi eft- ir átök milli lögreglu og óeirða- seggja. Svonefndir hústökumenn reistu á sunnudag götuvígi í göt- um í grennd við hús, sem þeir lögðu undir sig fyrir þremur árum. I gærkvöldi einkenndist andrúmsloftið við vigin af tauga- spennu. Lögreglan sendi í gær öflugar sveitir á svæðið og var gerð tilraun til að fjarlægja götvígin. Hústöku- mennimir, sem eru um 200, tóku á móti lögregluþjónunum með bensínsprengjum, táragasi og gijótkasti auk þess sem þeir notuðu slöngvivaði. Gera þurfti að smávægilegum sárum átta lögregluþjóna á slysa- varðstofu eftir átökin. Lögreglusveitimar vom kvaddar til baka og þeim skipað að halda sig í hæfilegri ijarlægð af ótta við að eldur kviknaði í nærliggjandi byggingum af bensínsprengjunum og skelfíng gripi um sig meðal íbúa. Poul Eefsen, lögreglústjóri í Kaupmannahöfn, sagði að þetta væri mikið hættuástand og gæti kostað mannslíf ef fram héldi sem horfði. „Ég vona að leikur þeirra að eldinum endi ekki með ósköp- um,“ sagði lögreglustjórinn og bætti við: „Að minni hyggju eru öfgamenn, sem em andvígir núver- andi stjómskipulagi, töglin og hagldimar í hópi húsnæðisleys- ingja.“ Húsnæðissamtök ungs fólks eiga húsið, sem hústökumennimir lögðu undir sig fyrir þremur ámm. Sam- tökin fóm þess á leit við lögreglu í gær að húsið yrði rýmt. Eefsen lítur svo á að hér sé meiri vandi en svo á ferðum að borgaryfírvöld ráði við hann. Lögreglustjórinn leit- aði því til Eriks Ninn-Hansen dómsmálaráðherra í gær og ætlar hann að taka málið upp á ráðherra- fundi í dag. Eldsprengju var varpað inn í skrifstofu Rauða krossins í Ryes- gade í átökunum í gær. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en áttatíu starfsmenn fengu frí það sem eftir var dagsins. ■■ i Hústökumaður grýtir lögreglu- þjóna. Lögregluþjónar í skjóli fyrir gijóthríð hústökumanna. Sprengjutilræði í París: 52 slasast á löffreeflustöð París. AP. ' A—7 ÖFLUG sprengja sprakk á lög- reglustöð í París í gær og særðust 52, þar af fjórir alvar- iega. Sprengjan sprakk tæpum sólarhring eftir að Jacques Chirac samþykkti víðtækar ör- yggisráðstafanir til þess að stemma stigu við hryðjuverkum. Þær ráðstafanir fela m.a. í sér að þegnar annarra ríkja en Sviss og ríkja Evrópubandalagsins þurfa nú vegabréfsáritanir til Frakklands. A þetta einnig við um íslenska ríkisborgara. Þessar Stj ór narkr eppa í Austurríki Horf ur á kosningum í nóvember ZUrich, frá Onnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgoinbladsins. MEIRI hluti Frjálslynda flokksins í Austurríki (FPÖ) sneri baki við Norbert Steger, formanni flokksins og varakanslara lands- ins, á landsfundi FPÖ í Innsbruck um helgina. Hægrimaðurinn Jörg Haider var kjörinn formaður flokksins með 57,7% atkvæða. Steger hlaut 39,2% fylgi í kosningunni. Hann sagði af sér embætti varakanslara og lét að því liggja að hann myndi stofna eigin flokk fyrir næstu þingkosningar. Þær ættu að vera í apríl 1987 en viðburðimir um helgina kunna að flýta þeim. Franz Vranitzky, kanslari, kvaðst í gær ætla að leggja til við Jafnað- armannaflokkinn (SPÖ) að stjórn- arsamstarfinu yrði slitið og kosningar haldnar 23. nóvember næstkomandi. Haider þykir öfgasinnaður hægrimaður og tengist hreyfíngu nýnasista. Hann nýtur lítilla vin- sælda meðal forystumanna FPÖ en þeim mun meiri meðal al- mennra flokksmanna. Steger reyndi að koma í veg fyrir fram- boð hans á landsfundinum og bauðst til að draga framboð sitt til baka ef Haider gerði hitt hið sama. Helmut Kranes, vamar- málaráðherra, var nefndur sem formannsefni til málamiðlunar en Haider gekk ekki að því. Fred Sinowatz, formaður SPÖ og fyrrverandi kanslari, og Vran- itzky sögðu báðir að samstarf við Haider kæmi ekki til greina áður en hann var kjörinn formaður. SPÖ og FPÖ hafa starfað saman í stjórn síðan 1983. FPÖ fékk þá tæp 5% atkvæða í þingkosningum og SPÖ tók flokkinn inn í ríkis- stjómina. Fijálslyndi flokkurinn var upp- háflega lítill hægriflokkur gam- alla nasista en jókst fylgi á samstjórnarárum SPÖ og Þjóð- flokksins (ÖVP). Hann varð ftjálslyndari með ámnum en hefur nú færst aftur yfir á hægri væng stjórnmálanna með kosningu Ha- iders. Hann hafði 3,5% fylgi í skoðanakönnun sem var gerð fyr- ir landsfundinn í Innsbruck. ráðstafanir Chiracs sigla í kjöl- farið á sprengjutilræðinu í París á sunnudag, en þá lést lögreglu- þjónn og einn borgari særðist alvarlega. Mikil hryðjuverkaalda hefur riðið yfir París að undanfömu og hafa tveir látist og um hundrað særst í fjórum sprengjutilræðum undan- farna viku. Sprengjan í gær sprakk á biðstofu lögreglustöðvar í hjarta Parísarborgar, skammt frá Notre Dame. Vitnum ber saman um að hún hafí verið mjög öflug og þeytti sprengingin fólki, gleri og lausum munum langar leiðir. Sérfræðingar lögreglunnar segja hana svipaðrar gerðar og þær þrjár, sem sprungið hafa á síðustu dögum. Nokkrir aðil- ar hafa sagst bera ábyrgð á tilræð- unum, en augu lögreglunnar beinast helst að líbönskum samtök- um, sem krefjast lausnar hryðju- verkamanna úr frönskum fangelsum. Gripið hefur verið til hertra reglna varðandi ferðir útlendinga inn í landið og þurfa menn nú að sækja um vegabréfsáritun til lands- ins. Næstu fímmtán daga verður hægt að sækja um áritun á landa- mærastöðvum og flugstöðvum, en eftir það sinna sendiráð og ræðis- mannsskrifstofur slíku. Sjá grein á síðu 31. Grikkland: Horfur á fleiri jarðskjálftum Aþenu, AP. ÖFLUGUR jarðskjálfti skók suðurhluta Grikklands um há- degisbilið í gær. Upptök skjálft- ans voru hin sömu of skjálftans á Iaugardagskvöld en þá létust 19 manns í hafnarborginni Kalamata. Sérfræðingar spá frekari skjálftavirkni á þessu svæði næstu vikuna. I skjálftanum á laugardag, sem mældist 6,2 stig á Richter-kvarða skemmdust nærri 4.000 hús og 7.000 manns misstu heimili sín. 19 manns létust og um 300 slös- uðust. Jarðskjálftinn í gær mældist 5,6 stig á Richter og hrundu átta mannlaus hús til grunna. Neyðar- ástandi hefur verið lýst yfír og er unnið að því að bægja frá hættu á drepsóttum. Kasparov eyk- ur forskotið Leningrad, AP. GARRI KASPAROV, heims- meistari í skák, tók í gær þriggja vinninga forystu á andstæðing sinn Anatoly Karpov í heims- meistaraeinvíginu í skák. Kas- parov hafði hvítt í sextándu skákinni, sem Karpov gaf eftir að hann missti drottninguna. Kasparov lék 41. leik sinn, vann þar peð og gekk hann síðan af svið- inu. Karpov hugsaði sig stuttlega um áður en hann lagði upp laupana og yfirgaf sviðið. Kasparov sneri þá aftur og kvittaði fyrir sigurinn. Aðeins átta skákir eru eftir í heimsmeistaraeinvíginu og verður Karpov að vinna fjórar þeirra ætli hann sér að endurheimta titilinn. Sjá skákskýringu á síðu 67.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.