Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 55
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 55 AMSTRAD PCWtölva með íslensku RIIVINIMSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum, SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI - fyrir aðeins 39.900,- kr. Stóri bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,- kr. Hann er auk þess hægt að fá fneð fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðsklptamanna-, sölu- og lagerkerfl fyrir 59.900,- kr., og með hvoru tveggja fyrir aðeins 64.900,- kr. - allt í einum pakka - geri aðrir beturl AMSTRAD PCW 8256 ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggöur RAM diskur), 1 drif; skjár: 90 stafir x 32línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafir á sek. AMSTRAD PCW 8512 ritvinnslu-ogbókhaldstölvan:512KRAM |innb. RAM diskur), 2 drif (B-drif er I megabyte), skjár: 90 st. x 32 línur. Prentari: punktaprentari, 90 stafir á sek. Báðum gerðum fylgir íslenskt ritvinnslukerfi (LOGO- SCRIPTI, Dr. Logo og CP/M+, ísl. lyklaborð, ísl. leiðbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (ísl.), prentari meö mörgum fallegum leturgerðum og -stærðum. Með AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og meðalstórum lyrirtækjum. Námskeið: Tölvufræðslan sf. Ármúla 36, s. 687590 & 686790: Fjárhagsbókhald 6 tlmar aðelns 2.500 kr. Viöskiptamanna-, sðlu- og lagerketfi étlmar aöelns 2.500 kr. Ritvinnslunámskeið 6 tlmar aðeins 2.500 kr. FORRIT FYRIR AMSTRAD: Samsklptaforrlt: BSTAM, BSTMS, Chit-ChaL Crosstalk. Honeyterm 8256, Move-it Aætlana- og relknlforrlt: Pertmaster, Milestone. Brainstorm, Statllow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc, SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase. Cardbox, dBase II, dGraph, dUtil, Delta, Flexifile. Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw. DR Graph, PolyploL Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard, Basic, Microsoft Basic, Nevada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM Cobol. HiSoft C, Nevada Fortran, Pro FortranDR PL/I, DR Pascal MT+, Nevada Pascal, Pro Pascal, Turbo Pascal. Annað: SkákforriL Bridgeforrit. Ulemk forrlt: Ritvinnsla (fylgir). Fjámagsbókhald, Viöskiptamannafor- riL Sðlukerfi. Lagerbókhald. Nótuútprentun. Límmiðaútprentun. Auk púsunda annatra CP/M forrita. woria velkomin Í^^Braga Laugavegi 118 v/Hlemm, símar 29311 & 621122. Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabúöin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, DJúpavoglrVerslunin Djúpiö, Grlndavík: Bókabúö Grindavíkur, Hafnarfjöröur: Kaupfélag Hafnfiröinga, Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stef., Isafjöröur: H|jómborg, Keflavfk: Bókabúö Keflavíkur. Vestmannaeyjar: Vídeóleiga GS. Seltjarnarnes: Verslunin Hugfang. öll verö miöuö viö gengi I. sept. 1986 og staögreiöslu. TÖLVULAND HF., SIMI 17850 íslendingar í keppni og má þar nefna þá Sigurbjöm Bárðarson sem mætti með heilan flota skeiðhesta, Jón Sveinbjömsson, Þórð Jónsson, Birgi Gunnarsson og svo voru þeir skráðir til leiks bæði Kóki og Aðal- steinn Aðalsteinsson en sá síðar- nefndi tók þó ekki þátt í mótinu þar sem hann var önnum kafinn við mótsstörfin. Þjóðverjar hafa verið með sterka fjórgangshesta í gegnum tíðina og svo var einnig nú. Hans Georg Gundlaeh mætti þarna með Skolla og sagði hann þetta síðasta mótið sem hann keppti á honum. Sigmðu þeir í bæði (jórgangi og tölti og var sigur þeirra aldrei í hættu. Er vel við hæfi að Skolii kveðji með tvö- földum sigri því hann er með eftirminnilegri fjórgangshestum sem maður hefur séð. Annar í fjór- gangi varð Bemd Vith á Örvari frá Kálfhóli, þriðja Vera Reber á Tildru og Walter Feldmann í fjórða sæti með Lám frá Hrepphólum. Hann var einnig með hross í keppni og komi keppandi fleiri en einu hrossi í úrslit fer aðeins eitt þeirra í úrslit en hitt eða hin hrossin raðast í neðstu verðlaunasætin. Það er reyndar margt frábmgðið íþrótta- keppninni eins og hún er hér heima, auk þess sem hér er áður nefnt má geta þess að Þjóðveijar hafa breytt einkunnaskalanum þannig inum. Er raunar furðulegt að engum skuli detta í hug að ráða hér bót á. Veðrið spiilti fyrir aðsókn Heldur var veðrið leiðinlegt með- an á mótinu stóð og rigndi af og til allan tímann og töluðu Þjóðveij- arnir um að þetta væri íslenskt veður sem er nú kannski ekki alveg rétt ef mið er tekið af veðrinu eins og það hefur verið í sumar. En tölu- verð bleyta var á mótssvæðinu því jarðvegurinn tekur ekki vel við vatni og mun þar valda mikill leir sem er í jarðveginum þarna. FYRIR EINSTAKUNGA OG FYRIRTÆKI Kynbótadómnefnd að störfum, frá hægri Karly Zingsheim sá um viljaprófun, Claus Becker, Þorkell Bjarnason, Heidi Schwörer for- maður dómnefndarinnar og ritarinn. eins og virðist algilt fyrir skeið- brautir í Evrópu. A þeim mótum sem greinarhöfundur hefur fylgst með erlendis hafa áhorfendur alltaf þurft að raða sér meðfram braut- inni þannig að enginn hefur yfirsýn yfir nema örstuttan hluta af sprett- Lofsvert framtak hjáKóka í samræðum við ýmsa Þjóðveija sem fylgst hafa með mótahaldi í Þýskalandi undanfarin ár kom fram að ekki hefur verið lagt eins mikið í önnur mót þar ytra, ef frá er tal- ið Evrópumótið í Roderath, og meistaramótið í Falkenhorst. Er greinilegt að þarna ríkir stórhugur og telja kunnugir að Kóki hafi tek- ið mikla ljárhagslega áhættu með þessu mótshaldi. Ætlaði hann sér að bjóða upp á íslandskynningu í tengslum við mótið en minna varð úr en ætlað hafði verið og er þar um að kenna dræmum undirtektum að heiman. Þó fékk hann íslensk matvæli ss. fjallalamb ásamt fjórum íslenskum matreiðslumönnum til að framreiða það. Einnig var þarna á boðstólum ýsa frá íslandi, reyktur lax og grafinn og var ekki annað að sjá en vel líkaði við þessar veit- ingar og þá sérstaklega fékk fiskurinn góðar undirtektir móts- gesta. Sumir voru eitthvað tregir við fjallalambið og má rekja ástæð- una til þess að töluvert margir Þjóðveijar borða ekki það lambakjöt sem þeim stendur til boða, þ.e.a.s. þýskt lambakjöt, og hafa þeir talið að engan mun væri að finna á íslenska fjallalambinu og því þýska. Þessar veitingar voru seldar á skap- legu verði og er m.a. talið að um 5—600 kíló hafi selst af lambakjöt- inu þannig að aðeins hefur grynnk- að á kjötíjallinu fræga. Af þessu leiddi að aðsókn varð minni en búist hafði verið við en talið er að um 2.500 manns hafi sótt mótið. Voru menn uggandi að stórt tap yrði á mótinu en þegar Kóki var spurður að mótinu loknu taldi hann að þetta myndi sleppa ágætlega. Framkvæmdin á mótinu gekk ágætlega fyrir sig og voru margir sjálfboðaliðar, bæði þýskir og íslenskir, sem unnu þarna mikið og gott starf bæði við undirbúning mótsins og framkvæmd. Var það samhent lið sem segja má að ekki hafi stoppað allan tímann meðan á mótinu stóð. Daginn eftir mótið var haldinn fundur í stjórn IPZV sem segja má að sé Landssamband þeirra í Þýska- landi og var á þeim fundi ákveðið að Kóki tæki við framkvæmdastjórn samtakanna á Equitana-sýningunni sem haldin verður á næsta ári. Mun hann hafa yfirumsjón með Islands- hestadeildinni og sjá um skipulagn- ingu á sýningum íslensku hestanna sem þar verða sýndir. Segir þetta allt sem segja þarf um það hvemig Kóka og samverkafólki hans tókst upp á þessu þýska meistaramót. Lára frá Hrepphólum bar af þeim hryssum sem fengu kynbótadóm á mótinu og fékk hún m.a. 8,50 fyrir byggingu, knapi er Walter Feldmann. að hámarkseinkunn hjá þeim er nú 10 í stað 15 og er gefið frá 1 og upp í 10. Sem dæmi má nefna að stigahæsti keppandi í fjórgangi var með 7,13 stig eða punkta eins og þeir kalla það. Þá er keppendum fijálst í hvaða röð þeir sýna gang- tegundir í fjór- og fímmgangi þannig að greinilegt er að þeir eru sífellt að nálgast íslensku gæðinga- keppnina. Til þess að sýna það sem krafíst er fá keppendur fimm hringi og var ekki óalgengt að sjá þijá og jafnvel íjóra skeiðspretti í fimm- ganginum í stað tveggja áður. Fannst manni það óþarfa jag á hestunum því nú sem fyrr er notast vð 200 metra hringvöll. í úrslitum fímmgangs var reyndar opnuð braut út frá langhliðum þannig að þá gat góða skeiðspretti sem eru annars fátíðir á langhliðum 200 metra vallar. En í fímmgangi sigr- aði Vera Reber á Frosta frá Fáskrúðarbakka en þessi hestur hefur verið að bæta sig í gegnum árin og er nú loks kominn á topp- inn. Annar í fimmgangi varð Walter Feldmann jr. á Ösp frá Keldulandi en hann varð stigahæstur keppenda á mótinu á Ösp. í þriðja sæti varð Birgitte Haehl á Litlu, Karly Zings- heim fjórði á Prins en ekki var getið í skrá hvaðan hann er. Hann mun þó fæddur á Islandi og er undan Hrafni 802 og Perlu frá Ríp. í flórða sæti varð Giinter Sturm á Fálka frá Höskuldsstöðum. í töltinu sigruðu eins og áður sagði Grundlach og Skolli en annar varð Bemd Vith á Örvari, þriðji Evrópumeistarinn Wolfgang Berg á Funa frá Aegidienberg, fjórði Walt- er Schmitz á Lómi frá Bjamastöð- um og fímmti Walter Feldmann jr. á Garra frá Miðhúsum. Keppt var í bæði B-hlýðnikeppni og fijálsri hlýðnikeppni og sigraði Walter Feldmann á báðum vígstöðvum. Var hann á Mósa frá Porsheimarhof í B-keppninni en Garra í þeirri síðamefndu, var hann þar með framúrskarandi góða út- færslu eins og hans var von og vísa. Framfarir í skeiðinu Góð þátttaka var í skeiðinu að þessu sinni og töldu þeir sem til þekktu að aldrei hafí verið saman komnir í Þýskalandi jafn sterkir vekringar. Sigurbjörn Bárðarson var með mikinn fjölda hesta þar í keppni og má þar nefna Hilding frá Hofsstaðaseli, Litla-Jarp frá Stóm Ásgeirsá, Torfa frá Hjarðarhaga, Gorm frá Húsafelli, Júpíter frá Syðri-Fossum og Baldur frá Sand- hólum. Allt eru þetta kunnir vekr- ingar sem verið hafa í fremstu röð hérlendis á undanfömum ámm. Taldi maður Sigurbjörn sigur- stranglegan fýrir keppnina og leit lengi vel út fyrir að hann yrði með fjóra eða jafnvel fimm bestu tímana í 250 m skeiði. í síðasta riðli fyrri umferðar má segja að Walter Feld- mann hafí stolið sigrinum frá Sigurbirni á gömlu kempunni Adam frá Hólum en tími hans var 22,6 sek. sem er aðeins brot úr sekúndu frá þýska metinu en það setti Walt- er Feldmann á stóðhestinum Prata fyrir um ári. Sigurbjöm varð annar á Litla-Jarp með 23,0 sek. Hinsveg- ar sigraði Sigurbjöm í gæðinga- skeiðinu á Baldri frá Sandhólum með 16,84 stig og varð hann einnig annar með Torfa frá Hjarðarhaga með 16,5 stig. Kóki varð svo þriðji á Eljari með 16 stig. Þess má og geta að Walter Feldmann á Adam var einnig með bestan tíma í gæð- ingaskeiðinu 8,3 sek. sem nægði honum þó aðeins i fímmta sætið. Greinilegt er að skeiðið nýtur vaxandi vinsælda í Þýskalandi og fékk maður að sjá margan góðan skeiðsprettinn þótt brautin væri blaut og með pollum hér og þar. Aðstaða fýrir áhorfendur var léleg ÞETTA ER TOLVANI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.