Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Súrt og
sætt
Á rás 1 í gær á morgunvakt
Páls Benediktssonar, Þorgríms
Gestssonar og Hönnu G. Sigurðar-
dóttur flutti Flosi Ólafsson leikari
hreint óborganlegan pistil. í pistlin-
um lýsti Flosi því yfir að hann
væri orðinn fijálshyggjumaður og
sæti nú lon og don við lestur Hag-
tíðinda, þó yndi hann hag sínum
best með Lögbirtingablaðið í hönd-
unum en í því blaði birtust listarnir
yfir þá sem ... hefðu ekki meikað-
að ... eins og Flosi komst að orði.
Nú, en þegar hér var komið sögu
vék hagfræðingurinn Flosi Ólafsson
máli sínu að byggðastefnunni. Gerði
Flosi fyrst grein fyrir forsendum
byggðastefnunnar: Byggðastefnan
stafar af því að menn úti á landi
langar til að búa í Reykjavík.
Til að skýra enn frekar út
byggðastefnuna tók Flosi dæmi af
sjálfum sér. Kvaðst hann hafa í
hyggju að reisa mjólkurduftsverk-
smiðju í strjálbýlinu. Mjólkurduftið
yrði síðan notað til að fóðra kýmar
er aftur gæfu af sér enn meiri mjólk
og enn meira mjólkurduft og svo
framvegis. Þegar hér var komið
sögu minntist Flosi á athyglisverða
frétt af steinullarverksmiðjunni á
Sauðárkróki er nú tapar milljón á
viku. Sagðist Flosi ekki fara útí
rekstur mjólkurduftsverksmiðjunn-
ar nema tryggt væri að ríkið ætti
þann helminginn er bæri tapið og
einnig yrði tryggt að ekki yrði reist
önnur slík verksmiðja og þá væri
þess gætt að verðið á mjólkurduft-
inu væri ætíð helmingi hærra en
heimsmarkaðsverð. Ég rek ekki
frekar þennan efnahagspistil Flosa
Ólafssonar en tel hann skásta fyrir- t
lestur um hagfræði er ég hef heyrt.
Væri ekki nær að fá fijálshyggju-
manninn Flosa til að messa yfír
þreyttum stjómendum í stað þess
að ausa fé í erlenda sóldýrkendur
er leggja það eitt til málanna að
stjómendur verði að taka ofan háls-
tauið?
Óheppilegur tími
En víkjum nú að alvarlegri mál-
efnum, sum sé málefnum Listahá-
tíðar þessa undurviðkvæma
óskabams þjóðarinnar. Ég ætla
ekki að skammast hér útí Listahá-
tíðina blessaða en er ekki komið
nóg af þeirri hátíð í ríkissjónvarpinu
okkar? Er hægt að ætlast til þess
að hinn almenni sjónvarpsáhorfandi
setjist í menningarlegar stellingar
rétt eftir fréttir á sunnudögum og
ritji upp dagskrá Listahátíðar ’86?
Persónulega hef ég meiri áhuga á
að horfa á létta skemmtiþætti á
þessum besta útsendingartíma eða
þá fréttaskýringaþætti. Mér finnst
einhvem veginn ekki við hæfi á öld
hinna beinu sjónvarpsútsendinga
að klína á.besta dagskrártíma al-
varlegum klassískum tónleikum frá
liðnu sumri. Það er máski við hæfí
að ljúka sjónvarpsdagskránni á
slíkum tónleikum þótt ég efí ekki
að menn njóti tónlistarinnar ekkert
síður í útvarpinu.
FlóamarJcaður
Ég vil vekja athygli hlustenda á
flóamarkaði Bylgjunnar. Síðastlið-
inn sunnudag var efnt til slíks
markaðar fyrir krakkana og gekk
satt að segja á ýmsu hjá stjómand-
anum að ákveða hveijir vom
gjaldgengir á markaðinum. Væri
ekki við hæfi að leyfa öllum að
komast að, einkum á sunnudögum
þegar menn eiga frí og em kannski
að taka til í mslakompunni? Þá
held ég að ekki ættu að vera stíf
tímamörk á flóamarkaðnum, þessu
ágæta nýmæli Bylgjunnar.
ÚTVARP/SJÓNYARP
Slysið
við
Mýrar
■■■■ í kvöld ve-ður
O A 35 sýndur 25. þátt-
Ai U urinn af Stiklum
Ómars Ragnarssonar og
nefnist hann Slysið við
Mýrar.
Fyrir réttum 50 ámm
fórst franska hafrannsókn-
arskipið Pourqoui pas? í
Straumfírði á Mýmm og
með því 38 menn, þeirra á
meðal hinn heimskunni
vísindamaður dr. Jean
Charcot.
Þegar sjónvarpsmenn
stikluðu um Mýrar rifjaði
Ingibjörg Friðgeirsdóttir
up minningar sínar um
þessa atburði, sem snertu
íslensku þjóðina djúpt.
Myndatökumaður var
Örn Sveinson en Agnar
Einarsson sá um hljóðið.
f 3
í kvöld kl. 22.15 verður sýndur lokaþátturinn í breska
sakamálamyndaflokknum Arfi Afródítu. Þýðandi er
Jóhanna Þráinsdóttir.
Rás 2:
Fram — Katowice
■■■■ í dag kl. 18 lýsa
-| Q 00 þeir Samúel Öm
ö ““ Erlingsson og
Ingólfur Hannesson í
beinni útsendingu á rás 2
leik Frqjn og pólska liðsins
Katowice í Evrópukeppni
bikarhafa í knattspymu
sem fram fer á Laugardals-
velli.
Risi á brauðfótum
kvöld verður
9 -| 15 sýndur 7. þátt-
" J- urinn í ástralska
heimildamyndaflokknum
Svitnar sól og tárast tungl.
í þessum þætti verður
fjallað um Argentínu, bæði
stjómmálaástandið og bág-
borinn efnahag þjóðarinn-
ar. Að auki lærir Jack
Pizzey, umsjónarmaður
þáttanna, að dansa tangó.
Þýðandi og þulur er
Óskar Ingimarsson.
UTVARP
ÞRiÐJUDAGUR
16. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Hús 60 feöra" eftir
Meindert Dejong. Guðrún
Jónsdóttir les þýöingu sina
(14).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar. þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleíkar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd. Umsjón: Jón Gunnar
Grétarsson.
14.00 Miödegissagan: „Ma-
hatma Gandhi og lærisvein-
ar hans" eftir Ved Mehta.
Haukur Sigurðsson les þýð-
ingu sína (14).
14.30 Tónlistarmaöur vikunn-
ar — Miles Davis trompet-
leikari. Síðari hluti.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn — á
Vestfjarðahringnum i umsjá
Finnboga Hermannssonar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Divertimenti
a. Divertimento nr. 15 i B-
dúr K. 287 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Fílharm-
oníusveitin i Berlín leikur;
Herbert von Karajan stjórn-
ar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö
Umsjón: Vernharöur Linnet
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.45 Torgið
Þáttur um samfélagsbreyt-
ingar, atvinnuumhverfi og
neytendamál. — Bjarni Sig-
tryggsson og Adolf H.E.
Petersen.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb
Guðrún Birgisdóttir talar.
20.00 Ekkert mál
Ása Helga Ragnarsdóttir og
Bryndis Jónsdóttir sjá um
þátt fyrir ungt fólk.
20.40 Einn komst af
Frásöguþáttur Árna Óla um
Pourquoi pas? . . .
21.00 Perlur
Benjamin Luxon og Aretha
Franklin.
21.30 Útvarpssagan: „Frásög-
ur af Þögla" eftir Cecil
Bödker. Nina Björk Árna-
dóttir les þýðingu sina (5).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Ástarljóðavalsar
Fjórir söngvar fyrir kven-
raddir, horn og hörpu op.
17 eftir Johannes Brahms.
Kvennaraddir Gáchinger-
kórsins syngja.
Heinz Lohan og Karl Ludwig
leika á horn og Charlotte
Cassedanne á hörpu.
Helmut Rilling stjórnar.
22.40 Einn komst af
Frásöguþáttur Árna Óla um
Pourqui pas?-slysiö fyrir
réttum fimmtiu árum. Þór
Magnússon les.
SJÓNVARP
19.00 Finnskar barnamyndir.
Héraeyjan (Harens ö).
Teiknimynd gerð eftir þjóð-
sögu frá Afriku. Þýöandi:
Óskar Ingimarsson. Spegil-
myndin (Peilikuva). Mynd
um drenghnokka sem flytur
í ókunnan bæ og leióist þar
mjög. En svo eignast hann
félaga sem er eins og speg-
ilmynd hans. Þýðandi:
Kristín Mántylá. (Nordvision
— Finnska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Stiklur
25. Slysiö mikla við Mýrar.
Fyrir réttum 50 árum fórst
ÞRIÐJUDAGUR
16. september
franska hafrannsóknaskipið
Pourquoi pas? i Straumfirði
á Mýrum og með þvi 38
menn, þeirra á meðal hinn
heimskunni vísindamaður
dr. Jean Charcot.
Þegar sjónvarpsmenn stikl-
uðu um Mýrar rifjaöi Ingi-
björg Friðgeirsdóttir á
Hofsstööum upp minningar
sínar um þessa atburöi sem
snertu íslensku þjóðina
djúpt. Myndataka: Örn
Sveinsson. Hljóð: Agnar
Einarsson. Umsjón: Ómar
Ragnarsson.
21.15 Svitnar sól og tárast
tungl. (Sweat of the Sun,
Tears of the Moon).
7. Risi á brauðfótum. Ástr-
alskur heimildamyndaflokk-
ur i átta þáttum um
Suöur-Ameríku og þjoöirnar
sem álfuna byggja. I þess-
um þætti veröur fjallað um
Argentínu, bæði stjórn-
málaástandið og bágborinn
efnahag þjóðarinnar. Að
auki lærir Jack Pizzey leið-
sögumaður að dansa
tangó. Þýðandi ,og þulur:
Óskar Ingimarsson.
22.15 Arfur Afróditu. (The
Aphrodite Inheritance).
Lokaþáttur. Breskur saka-
málamyndaflokkur i átta
þáttum. Þýðandi: Jóhanna
Þráinsdóttir.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
23.10 Berlínarútvarpið kynnir
unga tónlistarmenn. Hátið-
artónleikar af tilefni þess að
40 ár eru liöin frá upphafi
ÞRIÐJUDAGUR
16. september
9.00 Morgunþáttur
i umsjá Ásgeirs Tómassonar,
Gunnlaugs Helgasonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Elisabet Brekkan sér um
barnaefni kl. 10.05.
12.00 Hlé
14.00 Skammtaö úr hnefa
Stjórnandi: Jónatan Garöars-
son.
16.00 Hringiðan
Þáttur í umsjá Ólafs Más
Bjömssonar.
BYL GJAN
ÞRIÐJUDAGUR
16. september
6.00—7.00 Tónlist í morg-
unsárið
Fréttir kl. 7.00.
7.00—9.00 Á fætur með Sig-
urði G. Tómassyni. Létt
tónlist meö morgunkaffinu.
Siguröur lítur yfir blöðin, og
spjallar við hlustendur og
gesti.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
ræðir við hlustendur til há-
degis.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur. Jóhanna leikur létta
tónlist, spjallar um neyt-
endamál og stýrir flóamark-
þessara tónleika. Síðari
hluti. Umsjón: Guðmundur
Jónsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
17.00 í gegnum tíðina
Ragnheiður Davíðsdóttir
stjórnar þætti um íslenska
dægurtónlist.
18.00 Tekið á rás.
Ingólfur Hannesson og Samú
el Örn Erlingsson lýsa leik
Fram og pólska liðsins
Katowice i Evrópukeppni bik
arhafa.
20.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚT V ARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA
VIKUNNAR FRÁ MÁNU
DEGI TIL FÖSTUDAGS.
17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr
ir Reykjavik og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.
aði kl. 13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil
ar og spjallar við hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson i Reykjavík
síðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Óskarsson kynnir 10 vin
sælustu lögin.
21.00—22.00 Vilborg Hall
dórsdóttir spilar og spjallar.
Vilborg sníður dagskrána
við hæfi unglinga á öllum
aldri. Tónlistin er f góðu lagi
og gestirnir líka.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta
menn Bylgjunnar Ijúka
dagskránni með frétta
tengdu efni og Ijúfri tónlist