Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
59
Dudley Moore og vinkona
hans, Brogan Lane, prúðbúin
mjög’ á leið í samkvæmi. Hæð-
armunur þeirra hjónaleysa er
25 sentimetrar.
Hann
lítur
upp til
kven-
fólksins
Já, hann Dudley Moore er sko
naflaskoðari í bókstaflegustu
merkingu þess orðs, varð einum
kollega leikarans að orði, er litli
skondni maðurinn birtist með eina
háa og tígulega dömu upp á arminn
í veislu eina, sem haldin var vestan
hafs í góðgerðaskyni, ekki alls fyrir
löngu. Og vissulega er það
eftirtektarvert, að leikarinn, sem
sjálfur er aðeins 1,62 metrar á
hæð, virðist helst heillast af þeim
konum, sem nálgast tveggja metra
lengdina. í fleiri ár var hann
orðaður við leikkonuna Susan
Anton, sem verður víst að teljast
með leggjalengri kvenmönnum —
mælist 1,92 metrar. Eftir að þeirra
sambandi lauk, bjuggust flestir við
að herrann hlyti að vera kominn
með hálsríg af að líta svona upp
til ástmeyjar sinnar og myndi því
lækka sig töluvert, vildi fá að horfa
í augu næstu sambýliskonu sinnar
tiltölulega áreynslulaust. — En
raunin varð önnur. Dudley segist
kunna vel að meta stórar og
stæðilegar konur og því til sönnunar
má geta þess að hin nýja
fylgdarmær hans, Brogan Lane, er
ekki nemafáum sentimetrum
styttri en Susan, 1,87 metrar.
COSPER
— Konan mín er í símanum. Geturðu ekki sagt já, elskan"
nokrum sinnum á meðan ég skrepp í kaffi?
Blaðburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
Viðjugerði
Laugavegur 34-80 o.fl.
KÓPAVOGUR
Bræðratunga
.■■■■■hmbbhhhhhbb
» Góðan daginn!
V KJÖTMIÐSTÖÐIH Sfmi 686511
ODYRU
UNGLINGAHÚSGÖGNIN
KOMIN
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Veggsamstæðakr. 12.840,- stgr.
Skrifborð með yfirhillu kr. 4.460,- stgr.
Kommóour:
4ra skúffu 2.455, - stgr.
5 skúffu 2.730, - stgr.
6 skúffu 3.220, - stgr.
8 skúffu 3.665, - stgr.
Svefnbekkir og bókahilla frá kr. 11.590,-
KYNNTU ÞÉR OKKAR VERÐ,
ÞAU KOMA Á ÓVART
<