Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐE), ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
5
i
HEILDVERSLUN-SÍMI: 27444-PÓSTHÓLF: 167-BRAUTARHOLT 28-REYKJAVÍK
Þessar vélar frá Wascator - Electrolux eru
meö stórþvott á heilanum. Þetta eru
tölvustýrðar iðnaðarþvottavélar ásamt
fylgibúnaði í þvottahús frá stærsta
framleiðanda þvottahústækja í heiminum í dag
Á síðasta ári framleiddi Wascator yfir sjötíu þúsund
þvottavélar og þá eru ótalin tæki í þvottahús eins og
þurrkarar, strauvélar, þeytivindur og brotvélar.
Öll eiga þessi tæki frá Wascator það sammerkt að
vera ætluð fyrir stanslausa notkun, misjafna
meðferð, lítið viðhald og áralanga endingu.
Viðskiptavinir okkar munu staðfesta þetta.
Wascator framleiðir þvottavélar sem taka
frá 7 kg og allt upp í 80 kg af þurrum þvotti.
Þarna á milli er hægt að velja úr fjölmörgum
stærðum. Með því að bjóða slíkt úrval gerir Wascator
stjórnendum fyrirtækja og stofnana kleift að fjárfesta
í sem hagkvæmustum einingum og taka þvottinn að
sér sjálf með stórfelldum sparnaði. Við veitum
faglega ráðgjöf um tækjakaup og uppsetningu
þvottahúsa sé þess óskað.
Viðhalds- og varahlutaþjónustu annast sérhæfðir starfsmenn þá sjaldan á þarf að halda.
iftr
Þetta er flaggskipið frá Wascator. Wascator
FLE 804 sem tekur 80 kg af þurrum þvotti.
Hótel Loftleiöir fjárfesti í tveimurslíkumvél-
um fyrr á árinu. Vélamar tvær anna léttilega
öllum þvotti tveggja stærstu hótela landsins,
Hótel Loftleiöa og Hótel Esju. En þrátt fyrir
þessi ótrúlegu afköst telur starfsfólkið það
helstu kosti vélanna hversu vel þær fara með
þvottinn og hversu hljóðlátar þær eru.
A. KARLSSOh HF.
Atvinnumennimir vita hvað
Með Wascator FLE 120 sem traustan bak-
hjarl tryggir Þvottahúsið Grýta viðskiptavin-
um sinum fljóta og góða þjónustu.
Við matvælaframleiðslu skiptir hreinlætið
höfuðmáli. Hjá Nóa-Siriusi er stöðug þörf fyr-
ir hreinan vinnu- og hlífðarfatnað. Þvottavélin
frá Wascator, FLE 220 sér til þess að alltaf er
til hreinn vinnufatnaður á
hverjum morgni.
Wascator FLE120.
Þessi 12 kg vél á Dvalarheimili aldraðra við
Dalbraut kom í stað fjögurra venjulegra
heimilisvéla. Starfsfólkið segir vélina
afkastameiri og ólíkt þægilegri í notkun en
vélamar fjórar sem fyrir voru.