Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
13
Grunnskóli Stykkishólms:
Ekki þurfti að auglýsa eftir kennurum
Stykkishólmi.
GRUNNSKÓLI Stykkishólms var
settur við hátíðlega athöfn. Nem-
endur fylltu húsrýmið og for-
eldrar komu sumir með börnum
sínum og fylgdu þeim fyrsta
áfanga vetrarins.
Skólastjóri, Lúðvík Halldórsson,
bauð viðstadda velkomna og sér-
staklega nemendur til starfa. Hann
lýsti því yflr að þetta myndi vera í
fyrsta skipti í sögu skólans að sömu
kennarar og voru árið áður mættu
nú allir til starfa og hefði ekki þurft
að auglýsa eftir neinum. Fagnaði
hann þessu sérstaklega og kvað það
mikinn kost í skólastarfi að hafa
ötulu og samviskusömu liði á að
skipa, bæði sem kennara og eins
þá sem vinna að umsjón og annarri
starfrækslu á degi hvetjum. Hann
gat einnig um þá nýlundu að nú
hefði verið prentuð starfsskrá fyrir
skólann, en það hefði ekki áður
þekkst hér. Væri þetta til að auð-
velda nemendum og kennurum
samstarfið. í þessari starfsskrá
fengju nemendur allar þær upplýs-
ingar sem kæmu þeim að gagni í
vetrarnáminu og annað sem þeir
þyrftu að vita jafnvel þótt það
beinlínis ekki snerti sjálfan skólann.
Fór hann yfir starfsskrána og
skýrði hana út en hugmyndin er
að hver nemandi fái eintak af
skránni.
í vetur verða í skólanum 280
nemendur og auk þess mun fram-
haldsdeild vera með í dæminu. I
fyrra var kennsla fyrir verðandi sjó-
menn og stýrimenn og eins voru
námsflokkar í tengslum við skólann
og þóttust gefast vel og notfærðu
ýmsir utan skóla sér þá þjónustu.
Þá má geta þess að bamastúkan
Björk hefir verið í tengslum við
skólann frá upphafi en hún hóf
starfsemi 1928 og var fyrsti gæslu-
maður hennar Stefán Jónsson
skólastjóri. Hafa kennarar og skóla-
stjóri jafnan sýnt stúkunni mikinn
velvilja og hjálp. Sama má segja
um eldri stúkuna sem hefir starfað
hér í 35 ár. Tónlistarskólinn er einn-
ig í tengslum við skólann og hefir
nú fengið til afnota kennslustofur
sem voru rýmdar um leið og nýi
grunnskólinn hóf störf í fyrra.
Það var létt bæði yfir kennurum
og nemendum þegar fréttaritara
Mbl. bar að garði og hann fylgdist
með skólasetningu af athygli. Hann
tekur undir með skólastjóra að
vænta megi góðs árangurs í vetur
og ekki síst fyrir að nú skuli sama
kennaralið halda áfram með börn-
unum og samtals starfa við skólann
nú 19 kennarar.
Og með tilkomu nýs skóla og
kennslugagna og góðs bókasafns
má mikils vænta.
Árni
Nýi hjúkrunarskólinn:
Framhalds-
nám hefst ekki
fyrr en 1987
NÝI hjúkrunarskólinn er fluttur
í suðurenda annarrar hæðar Ei-
ríksgötu 34, þar sem Hjúkr-
unarskóli Islands var áður með
heimavist. Vegua mikilla breyt-
inga og viðgerða á húsnæðinu
getur framhaldsnám fyrir hjúkr-
unarfræðinga ekki hafist fyrr
en í janúar 1987.
Fyrirhugað er sémám í eftirtöld-
um greinum: Hand- og lyflækninga-
hjúkrun, gjörgæsluhjúkrun,
geðhjúkrun og/eða heilsugæsiu-
hjúkrun (fer eftir fjölda umsækj-
enda). Upplýsingar í síma 621195
og 622150. Umsóknarfrestur er til
15. október nk.
í október hefst 7 vikna námskeið
í hjúkrun krabbameinssjúklinga.
Tekin verða fyrir almenn og sérstök
atriði varðandi hjúkrun krabba-
meinssjúklinga svo og fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Námskeið þetta er
ætlað hjúkrunarfræðingum bæði úr
HFÍ og FHH. Fjöldi þátttakenda
verður takmarkaður.
Önnur styttri námskeið á haust-
misseri verða auglýst sérstaklega.
Ný námskeið
hefjast um mánaðamótin
▼ BYRJENDANÁMSKEIÐ
V FRAMHALDSNÁMSKEIÐ
Upplýsingar og innritun í símum 27316
á skrifstofutíma og 27397 á kvöldin.
Athugið hjóna- og
fjölskylduafsláttur.
Frá setningu Grunnskólans á Stykkishólmi. Morgunblaðið/Ámi Heigason
VÖRU
SYNINGAR
GLERIÐNAÐUR
GLAS
DUSSELDORF 24.-27. september
Hópferð 23. spetember
VÉLMENNI í IÐNAÐI
16th INTERNATIONAL SYMPOSIUM
ON INDUSTRIAL ROBOTS
BRUSSEL 29. sept.-02. október
Hópferð 27. spetember
Fararstjórn frá Iðntæknistofnun íslands
BÓKASÝNING
FRANKFURTER BUCHMESSE
FRANKFURT 01.-06. október
Hópferð 30. spetember
MATVÆLI
SIAL
PARÍS 20.-24. október
Hópferð 18. október
HÓTEL OG VEITINGAR
EQUIP’HOTEL
PARÍS 20.-27 október
Hópferð 18. október
PÖKKUN
EMBALLAGE
PARÍS 13.-20. nóvember
Hópferð 12. nóvember
KJÖTIÐNAÐUR OG
MATVÆLAFRAMLEIÐSLA
GIA/MATIC
PARÍS 13.-19. nóvember
Hópferð 12. nóvember
PLAST- OG GÚMMÍIÐNAÐUR
K-86
DÚSSELDORF 06.-13. nóvember
Hópferð 05. nóvember
Ef auglýstir brottfarardagar henta ekki, höfum við
tryggða hótelgistingu fyrir þá sem ferðast vilja
aðra daga.
Fáið upplýsingar og bæklinga hjá okkur;
pantið tímanlega;
|lS|jJ FERÐA.. C&nUcil
MmIÐSTOOIN Tcouee
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK ■ S. 281 33
LEIPZIG TRADE FAIR
German Democratic
Republic
fc
<ö
9S
O)
r y
V yS° •y'V