Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 43 Morgunblað,ð/He|Ki Bjamason Biskup tsiands og prestarnir sem viðstaddir voru athöfnina, f.v.: Hreinn S. Hákon- Biskup, sóknarbörn og gestir utan við Rauðamelskirkju að lokinni hátíðarguðs- arson sóknarprestur; Ingiberg J. Hannesson prófastur; biskup Islands herra Pétur þjónustu. Sigurgeirsson; Þorbjörn Hlynur Árnason og Árni Pálsson. Hnappadalur: lOOáraafmæli Rauðamelskirkju — Rifjuð upp frásögn séra Arna Þórarinssonar af vígslu kirkjunnar og innsetningu hans í embætti Rauðamelskirkja í Hnappa- dal er 100 ára um þessar mundir, hún var vígð 10. októ- ber 1886. Afmælisins var minnst við guðsþjónustu síðast- liðinn sunnudag. Biskup ís- lands, herra Pétur Sigurgeirs- son, prédikaði og séra Ingiberg J. Hannesson prófastur á Hvoli og sóknarpresturinn, séra Hreinn S. Hákonarson, þjónuðu fyrir altari. Fallegt veður var á sunnudag og kom fjöldi fólks til guðsþjónustunnar, svo að margir þurftu að vera utan kirkju. Athöfnin var hin hátíð- legasta. Hátíðarguðsþjónusta í tilefni afmælisins Rauðamelskirlq a er staðsett á Ytri-Rauðamel í Eyjahreppi. Bæj- arstæðið er fallegt. Þama hefur verið kirkja frá árinu 1570, en nokkmm árum áður var lögð nið- ur fyrri kirkja sóknarinnar sem var í Haffjarðarey. Kirlqan á Rauðamel var vígð 10. október 1886 af Eiríki Kúld prófasti Snæ- fellinga og var séra Ami Þórarins- son þá jafnframt settur inn í embætti í Miklaholtsprestakalli. Séra Ámi vígðist þetta ár til prestakallsins, 26 ára gamall, og þjónaði þar í 48 ár, eða nærri helming þess tíma sem liðinn er frá vígslu Rauðamelskirkju. Hann bjó síðasta hluta starfstíma síns á Stóra-Hrauni. í prédikun sinni riflaði biskup Séra Árni Þórarinsson á Stóra- Hrauni. upp frásögn séra Áma af vígslu- degi kirkjunnar. Frásögnin er í þriðrja bindi æviminninga séra Áma, Hjá vondu fólki, sem Þór- bergur Þórðarson skráði. Af- mælisguðsþjónustan síðastliðinn sunnudag minnti um margt á vígsludag kirkjunnar, hér á eftir fer frásögn séra Áma: Vígsla kirkjunnar og innsetning séra Arna í embætti „Á sunnudaginn riðum við upp að Rauðamel ytra í Eyjahreppi. Þar ætlaði prófastur að setja mig inn í embættið og vígja um leið nýgerða kirkju. Þennan dag var fagurt veður. Þá dreif að svo mik- inn fjölda fólks til messu á Rauðamel að sumir urðu að híma utan kirkju. Þar var kominn séra Eiríkur Gíslason, þá prestur á Breiðabólsstað á Skógarströnd, séra Snorri Norðfjörð prestur í Hítamesi, Þórður Þórðarson dannebrogsmaður og hreppstjóri á Rauðkollsstöðum og sóknar- nefndarmenn Rauðamelssóknar. Þar vom og tveir kirkjueigendum- ir, þeir Kristján Þórðarson á Rauðamel og Sigurður Jónsson að Þverá, en þriðji eigandinn var fjarstaddur. Það var Þórður Þórð- arson á Höfða. Svo hófst hátíðin. Fyrst vígði prófastur þetta nýja guðshús. Að því loknu hélt hann innsetningar- ræðu og setti mig inn í embættið. Þá tók við messan og ég flutti fyrstu guðsþjónustu mína, sem vígður prestur. Þá var 10. dagur októbermánaðar að áliðnum dep.“ 5 prestar á 100 árum Þegar séra Ámi hætti, árið 1934, vfgðist til prestakallsins séra Þorsteinn Lúther Jónsson. Hann var sóknarprestur Rauða- melskirkju í 27 ár, eða til ársins 1961 er hann fékk Vestmannaeyj- ar. Hann sat lengst af í Söðulsholti eins og þeir prestar sem sfðan Þrír ættliðir, afkomendur séra Árna Þórarinssonar, þau tengjast öll Rauðamelskirkju, hafa ýmist verið skírð þar eða fermd, f.v.: Þorbjörn Hlynur Arnason, Anna Árnadóttir og Árni Pálsson. hafa þjónað Rauðamelssókn. Árið 1961 vígðist séra Ámi Pálsson til prestakallsins og þjónaði þar í rúm 10 ár. Séra Ámi er nú prestur Kársnessóknar í Kópavogi. Hann er dóttursonur séra Áma Þórar- inssonar. Séra Einar Jónsson, nú prestur í Ámesi á Ströndum, vígðist til Söðulsholts árið 1972 og þjónaði þar í 10 ár og frá 1982 hefur núverandi sóknar- prestur, séra Hreinn S. Hákonar- son, setið Söðulsholt. Þegar séra Ámi kom í sókn sína fyrir hundrað ámm hvíldi bamslík á böram á bæ einum í sókninni. Hann vildi síður að fyrsta aukaverk sitt í sókninni yrði jarðarför og óskaði því eftir að fá að skíra bam sem þá var nýfætt á Rauðkollsstöðum. Þetta var stúlkubam, dóttir Ásgeirs sonar Þórðar hreppstjóra á Rauð- kollsstöðum. Var það auðsótt mál. Bamið var skírt Halldóra. Hún giftist Þorleifí hreppstjóra Sigurðssyni, bróður Elísabetar konu séra Áma og bjuggu þau að Þverá. Árið 1961, þegar séra Ámi Pálsson dóttursonur Áma Þórarinssonar kom í Söðulsholt, stóð hann í sömu sporam og af- inn. Hann fékk að byija á því að skíra bam, en fyrsta jarðarförin var útför Halldóra Ásgeirsdóttur á Þverá sem afi_ hans hafði skírt 75 áram áður. Ámi Pálsson rifj- aði þetta upp í hófi sem sóknar- bömin buðu til í Laugagerðisskóla að afmælismessunni lokinni. Með Áma var móðir hans, Anna, dótt- ir séra Áma, 85 ára gömul og sonur hans, séra Þorbjöm Hlynur á Borg á Mýrum. Umbætur á kirkjunni Vegna afmælis Rauðamels- kirkju hefur söfnuðurinn gert veralegar umbætur á kirkjunni. Hún hefur verið máluð að innan og utan og teppalögð. Kirlq'an hefur verið girt af og gert við girðinguna kringum kirkjugarð- inn. Það kom fram við messuna að elsti gripur kirlqunnar er kirkjuklukka frá 1703. - HBj Stykkishólmskirkja: Allri steypuvinnu lokið Stykkishólmi. ENN koma myndir af Stykkis- hólmskirkju í smíðum og það ekki af tilefnislausu því nú var flaggað hæst við hún á hæsta toppi til merkis um að miklum áfanga væri náð, eða allri steypuvinnu lokið. En þó nú sé svona komið málum er ekki lítið eftir og hvenær hún verð- ur komin á það stig að hægt verði að taka hana í notkun er ekki vit- að. Það er svo annað mál og kannski aðalmál. Skyldi maður þurfa að hugsa til orða Páls gamla Olafsson- ar þegar hann kvað sitt snilldar- kvaeði um timann þar sem hann er að velta áranum fyrir sér eins og margir gera nú um kirkjubygging- una: Hvenær henni verði lokið. Það get ég ekki giskað á en gamall held ég verði þá. En það þarf ekki að vera því samvinna og áhugi þarf að vera í fyrirrúmi og þá gengur þetta allt. En hvað sem má um kirkjuna segja bæði hvað stærð og munað áhrær- ir, geta menn verið sammála um að þetta verður mikið mannvirki á áberandi stað og eftir henni verður tekið. < Flaggað á turni Stykkishólms- kirkju í tilefni mikilla tímamóta. MorgunblaðiðZÁrni Helgason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.