Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 31 Nú verða Islend- ingar að hafa vegabréfsáritun — segir íslenzka sendiráðið í París ÞAÐ MÁ búast við því, að þessar ráðstafanir hafi talsverðar truflan- ir í för með sér fyrir ferðalög íslendinga til Frakklands. Ég veit ekki, hver viðbrögð okkar verða, því við höfum ekki enn fengið til- kynningu frönsku stjórnarinnar. En þarna er verið að rifta samningi við okkur og mörg önnur ríki um afnám vegabréfsáritunar, sem haft getur margs konar áhrif. Þetta kom m.a. fram í símtali við Harald Kröyer, sendiherra Is- lands í París, í gær. Þar kom ennfremur fram, að enginn Islend- ingur hafði þá lent í vandræðum og haft samband við sendiráðið af þessum sökum og varla þyrfti að óttast óþægindi vegna þessa fyrir þá Islendinga, námsmenn og aðra, sem fyrir væru í Frakklandi. Þó mætti reikna með því, að þeir þyrftu að endumýja dvalarleyfi sín. Það væri hins vegar Ijóst, að þeir íslendingar, sem hygðust fara til Frakklands héðan í frá, yrðu að hafa vegabréfsáritun þangað, því annars væri með öllu óvíst hvort þeir fengju að fara inn í landið. Krafan um vegabréfsáritun næði hins vegar ekki til aðildarlanda Evrópubandalagsins né Sviss. Það væri hugsanlegt að íslendingar hlytu svipaða meðferð og Svisslend- ingar og slyppu við vegabréfsárit- unina, en það myndi ekki skýrast fyrr en á næstum dögum. Eins og hlutirnir stæðu nú, þýddi ekki annað en að hafa vegabréfs- áritun, væri förinni heitið til Frakklands. Þegar leitað var upplýsinga hjá franska sendiráðinu í Reykjavík, fengust þau svör að enn væri ekki vitað hvaða áhrif þetta mjmdi hafa gagnvart íslendingum, sem hygðust fara til Frakklands, en það myndi vafalaust skýrast strax næstu daga. Þá var jafnframt tekið fram, að engar vegabréfsáritanir hefðu verið gefnar út handa íslendingum þar í gær. Dauðarefsing fyrir eiturlyfjasölu Washington, AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkja- þings samþykkti á fimmtudags- kvöld frumvarp til laga, sem er ætlað að stemma stigu við eitur- lyfjavandamálinu. í því er gengið töluvert lengra en áður og má nú dæma sérlega harðsvíraða eiturlyfjasala til dauðarefsingar. Þá er notkun hersins í barátt- unni við þennan vágest leyfileg og í fyrsta skipti er nú leyft að nota sönnunargögn fyrir rétti, sem ekki eru fengin með strang- heiðarlegasta hætti. Frumvarpið var samþykkt með 392 atkvæðum gegn 16 og bíður nú umræðu í öldungadeildinni. Lokasamþykktin var næsta breytt frá upphaflega frumvarpinu, en það var í upphafí lagt fram af fulltrúum beggja flokka. „Þetta frumvarp er árás á stjómarskrá Banda- ríkjanna," sagði Peter W. Roding yngri, en hann er formaður Réttar- farsnefndar Fulltrúadeildarinnar. Enn er ekkj ljóst hver örlög frum- varpsins í Öldungadeildinni verða. Enn ein sprengingin varð í París í gær, sú fjórða á skömmum tíma. Enginn beið bana í þessari sprengingu, en 52 manns særðust. Mynd þessi sýnir sjúkraliða og lögreglumenn bera einn hinna særðu burt af vettvangi. Afleiðingar hryðjuverkanna í Frakklandi: Stjórnin takmarkar ferð- ir útlendinga til landsins París, AP. FRANSKA STJÓRNIN greip til umfangsmikilla ráðstafana gegn hryðjuverkum í landinu um helgina. Gerðist það í kjölfar mikilla sprengingar, sem varð á Champs-Elysée í París á sunnudag, þar sem einn lögreglumaður týndi lifi og tveir menn aðrir stórslösuð- ust. Þessum nýju ráðstöfunum er ætlað að stemma stigu við komu hiyðjuverkamanna til Frakklands, en ljóst er að þær hljóta að bitna á almennum ferðamönnum. Þær fela m.a. í sér reglur um að útlend- ingar verði að hafa vegabréfsárit- un til þess að komast til landsins. Jafnframt verður hermönnum Qölgað við flugvelli og landa- mærastöðvar. Jacques Chirac, forsætisráð- herra Frakklands, sagði að næstu 6 mánuði yrðu allir útlendingar, sem kæmu til Frakklands, að hafa vegabréfsáritun. Undanskildir væru þó þegnar allra 11 aðild- arríkja Evrópubandalagsins svo og Sviss. Haft var eftir frönskum emb- ættismönnum í gær, að krafízt yrði vegabréfsáritana frá og með deginum í dag. Næstu 15 daga yrði unnt að fá vegabréfsáritun á flugvöllum eða á landamæra- stöðvum, en eftir það yrðu allir útlendingar að fá áritunina hjá frönskum sendiráðum áður en þeir legðu af stað heiman að frá sér. Utanríkisráðherrar Svíþjóðar og Austurríkis mótmæltu þessum ráðstöfunum í gær, en ferðamenn frá þessum löndum eiga vafalítið eftir að verða fyrir óþægindum af þessum sökum. „Ferðafrelsi milli landa, sem við höfum unnið svo ákaft að, á eftir að líða fyrir þetta," sagði Sten Andersson, ut- anríkisráðherra Svíþjóðar. Peter Jankowitsch, utanríkis- ráðherra Austurríkis, lýsti að- gerðum frönsku stjómarinnar sem „hörmulegri tímaskekkju“ og á það væri litið „alvarlegum aug- um“, að austurrískir borgarar væru ekki undanþegnir þessum aðgerðum. Æskilegast væri, að undanþáguheimildir hinna nýju reglna næðu til ríkisborgara allra vestrænna lýðræðisríkja. PHILCO ORYGGIÐ l FYRRUMI ' ' 215lítra 315lítra 450 lítra 550 lítra 140 lítra 300 lítra I Frystikistur 27.920.- 29.950.- 35.850.- 47.800.- Frystiskápar: 27.860.- 39.680.- 26.520.- 28.450.- 39.990.- 45.410.- 26.470.- 37.700.- Philips frystikistur eru klæddar hömruðu stáli. Philips frystikistur gefa til kynna með sérstöku aðvörunar- Ijósi ef frostið fer niður fyrir 15°. Philips frystikistur hafa lykillæsingu. Philips frystikistum fylgja 2—3 lausar grindur. Philips frystikistur hafa Ijós í loki. Philips frystikistur fást í stærðunum 140—550 lítra. Philips viðgerðaþjónustu getur þú treyst. Þú kaupir Philips fyrir framtíðina. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI3 - 2Ö455- SÆTÚNI $- S: 2750Q
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.