Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986 Hjólastólarall: Hjólastólanotendur í tveimur efstu sætunum HJÓLASTÓLARALL var haldið á sunnudaginn á vegum Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, og að sögn forráðamanna sambandsins, tókst rallið með ágætum. Fyrstu tveir keppendurnir í mark voru báðir hjólastólanotendur. „Þetta gekk alveg ljómandi vel,“ sagði Ólöf Ríkharðsdóttir, for- stöðumaður félagsmála Sjálfs- bjargar. Alls tóku 24 keppendur þátt í rallinu og komust sex í úr- slit. Fjórðungur keppenda voru hjólastólanotendur, sex arkitektar, sex sveitarstjómarmenn og sex skemmtikraftar. Rallið fór fram í Laugardalshöll og var brautin lögð ýmsum þrautum. Reynir Kristófersson kom fyrst- ur í mark, en hann keppti fyrir hönd Kristjáns Ó. Skagfjörð og var tími hans 1,16:49 mínútur. I öðru sæti varð Guðný Guðnadóttir, sem keppti fýrir Teiknistofuna _hf., og var tími hennar 1,45:30. í þriðja sæti varð Halldór Gíslason, arki- tekt, sem keppti fyrir Ford-umboð: ið og var tími hans 2,12:39. I úrslitariðilinn komust einnig Felix Bergsson, skemmtikraftur, Eiríkur Hauksson, skemmtikraftur, og sjötti varð Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Olöf sagði að ástæðan fyrir þátt- töku sveitarstjómarmanna og arkitekta hefði verið ákveðin, til að kynna málstað fatlaðra, þannig að þeir gerðu sér grein fyrir að- búnaði og aðstæðum fatlaðra. „Okkur fínnst brenna við að arkitektar átti sig ekki á því hvem- ig er að vera fatlaður. Það á ekki bara við arkitekta, heldur einnig aðra skipuleggjendur. Sveitar- stjómarmenn og bæjarstjórar sjá svo um framkvæmdir og vinna úr teikningum, og því fannst okkur tilvalið að þeir tækju þátt í þessu • líka,“ sagði Ólöf. Skemmtikraft- amir voru svo fengnir til að draga að áhorfendur, svo allir fengju eitt- hvað við sitt hæfi. Að sögn Ólafar var erfítt að áætla fjölda áhorfenda í Laugar- dalshöll á sunnudaginn, en talið hafí verið að um 1.500 manns hafí fylgst með rallinu. Keppnin var fjármögnuð af auglýsingum og styrkjum frá fyrirtækjum, en rallið var svokölluð fírmakeppni. Á milli umferða vom flutt skemmtiatriði og komu þar fram m.a. Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem söng við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, Ómar Ragnars- son var leynigestur rallsins og kom hann akandi á þríhjóli, við mikinn fögnuð viðstaddra. Karatefélag Garðabæjar sýndi kúnstir og þá skemmti Magnús Ólafsson í gervi Morgunblaðið/Þorkell Brautin í hjólastólarallinu var lögð hinum ýmsu þrautum og hindrun- um, sem hjólastólanotendur þekkja úr daglegu lífi. Hér eru nokkrir keppenda að spreyta sig á trébitum, sem lagðir voru þvert yfir braut- ina. Bjössa bollu, og fór hann brautina í hjólastól með viðeigandi skrípa- látum, að sögn Ólafar. „Við höldum að þessi aðferð sé mjög góð til að ná árangri; mikið betri en einhverjar þurrar tölur á pappírum eða upptalning á málefn- um,“ sagði Ólöf að lokum. PcMiing’a rharkaO'urinn GENGIS- SKRANING Nr. 173 - 15. september 1986 Kr. Kr. Toll- Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 40,610 40,730 40,630 St.pund 60,326 60,504 60,275 Kan.dollari 29,301 29,388 29,122 Dönskkr. 5,2417 5,2572 5,2536 Norskkr. 5,5490 5,5653 5,5540 Sænskkr. 5,8791 5,8965 5,8858 Fi.mark 8,2675 8,2919 8,2885 Fr.franki 6,0644 6,0823 6,0619 Belg. franki 0,9582 0,9611 0,9591 Sv.franki 24,5081 24,5806 24,6766 Holl. gyllini 17,5801 17,6320 17,5945 V-þ.mark 19,8388 19,8974 19,8631 ít. lira 0,02875 0,02884 0,02879 Austurr. sch. 2,8226 2,8309 2,8220 Port. escudo 0,2772 0,2780 0,2783 Sp. peseti 0,3025 0,3034 0,3037 Jap.ven 0,26222 0,26300 0,26272 Irsktpund 54,606 54,768 54,641 SDR(Sérst. 49,1744 49,3186 49,1764 ECU, Evrópum.41,6882 41,8114 41,7169 INNLÁN S VEXTIR: . Sparísjóósbækur Landsbankinn................. 9,00% Útvegsbankinn................ 8,00% Búnaðarbankinn............... 8,50% Iðnaðarbankinn............... 8,00% Verzlunarbankinn............. 8,50% Samvinnubankinn.............. 8,00% Alþýöubankinn................ 8,50% Sparisjóðir.................. 8,00% Sparísjóðsreikningar með 3ja mánaða uppsögn Alþýöubankinn............... 10,00% Búnaðarbankinn................9,00% Iðnaðarbankinn............... 8,50% Landsbankinn................ 10,00% Samvinnubankinn.............. 8,50% Sparisjóðir.................. 9,00% Útvegsbankinn................ 9,00% Verzlunarbankinn............ 10,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 12,50% Búnaðarbankinn............... 9,50% Iðnaðarbankinn.............. 11,00% Samvinnubankinn............. 10,00% Sparisjóðir................. 10,00% Útvegsbankinn............... 10,00% Verzlunarbankinn............ 13,50% með 12 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 14,00% Landsbankinn................ 11,00% Útvegsbankinn............... 13,60% með 18 mánaða uppsögn Búnaðarbanki................ 15,50% Iðnaðarbankinn ............. 14,50% Verðtryggðir reikningar miðað við lánskjaravísitölu með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 1,00% Búnaöarbankinn............... 1,00% Iðnaðarbankinn............... 1,00% Landsbankinn................. 1,00% Samvinnubankinn.............. 1,00% Sparisjóðir................ 1,00% Útvegsbankinn................ 1,00% Verzlunarbankinn............. 1,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 3,00% Búnaðarbankinn............... 2,50% Iðnaðarbankinn............... 2,50% Landsbankinn................. 3,50% Samvinnubankinn...... ....... 2,50% Sparisjóðir.................. 3,00% Útvegsbankinn................ 3,00% Verzlunarbankinn............. 3,00% með 18 mánaða uppsögn: Samvinnubankinn...... ....... 7,50% með 24 mánaða uppsögn: Samvinnubankinn.............. 8,00% Að loknum binditíma 18 mánaða og 24 mánaða verðtryggðra reikninga Samvinnubankans er innstæða laus tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn- ingum. Ávisana- og hlaupareikningar: Alþýðubankinn - ávísanareikningar........... 7,00% - hlaupareikningar............ 3,00% Búnaðarbankinn............... 3,00% Iðnaðarbankinn............... 3,00% Landsbankinn................. 4,00% Samvinnubankinn............... 4,00% Sparisjóðir................... 3,00% Útvegsbankinn................ 3,00% Verzlunarbankinn1)............ 3,00% Eigendur ávisanareikninga i Verzlun- arbankanum geta samið um ákveðna lágmarksinnstæðu á reikningi sínum og af henni eru reiknaðir almennir spari- sjóðsvextir auk uppbótar. Stjörnureikningar: Alþýöubankinn1)............ 8-9,00% Alþýðubankinn býður þrjár tegundir Stjörnureikninga og eru allir verð- tryggðir. í fyrsta lagi eru reikningar fyrir ungmenni yngri en 16 ára, með 8% vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða — lífeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp- sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og verð- bætur eru lausar til útborgunar í eitt ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar með 9% vöxtum. Hver innborgun er bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur eru lausar til útborgunar í eitt ár. Afmælisreikningur Landsbankinn................ 7,25% Afmælisreikningur Landsbankans er bundinn í 15 mánuði og ber 7,25% vexti og er verðtryggður. Innstæða er laus i tvo mánuði eftir að binditima lýk- ur. Heimilt erað leggja inn á reikninginn til 31. desember 1986. Safnlán - heimilislán - IB-lán - plúslán með 3ja til 5 mánaða bindingu Alþýðubankinn................ 10-13% Iðnaðarbankinn................ 8,50% Landsbankinn................. 10,00% Sparisjóðir................... 9,00% Samvinnubankinn............... 8,00% Útvegsbankinn................. 9,00% Verzlunarbankinn............. 10,00% 6 mánaða bindingu eða lengur Alþýðubankinn................ 13,00% lönaðarbankinn................ 9,00% Landsbankinn................. 11,00% Sparisjóðir.................. 10,00% Útvegsbankinn................ 10,00% Innlendir gjaldeyrisreikningar: Bandaríkjadollar Alþýðubankinn................. 7,50% Búnaðarbankinn................ 6,00% Iðnaðarbankinn................ 6,00% Landsbankinn.................. 6,00% Samvinnubankinn............... 6,50% Sparisjóðir................... 6,00% Útvegsbankinn................ 6,00% Verzlunarbankinn.............. 6,50% Steríingspund Alþýðubankinn................ 11,50% Búnaðarbankinn................ 9,00% Iðnaðarbankinn................ 9,00% Landsbankinn................. 9,00% Samvinnubankinn............. 10,00% Sparisjóðir.................. 9,00% Útvegsbankinn................ 9,00% Verzlunarbankinn............ 10,50% Vestur-þýsk mörk Alþýðubankinn................ 4,00% Búnaðarbankinn............... 3,50% Iðnaðarbankinn.............. 3,50% Landsbankinn ................ 3,50% Samvinnubankinn.............. 3,50% Sparisjóðir................. 3,50% Útvegsbankinn................ 3,50% Verzlunarbankinn............. 3,50% Danskar krónur Alþýðubankinn................ 8,00% Búnaðarbankinn............... 7,50% Iðnaðarbankinn............... 7,00% Landsbankinn................. 7,50% Samvinnubankinn.............. 7,50% Sparisjóðir................. 7,00% Útvegsbankinn................ 7,00% Verzlunarbankinn............. 7,50% ÚTLÁN S VEXTIR: Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25% Skuldabréf, almenn................ 15,50% Afurða- og rekstrarlán í íslenskum krónum.......... 15,00% í bandaríkjadollurum......... 7,75% isterlingspundum............ 11,25% i vestur-þýskum mörkum..... 6,00% íSDR......................... 7,75% Verðtryggð lán miðað við lánskjaravísitölu í allt að 2’/z ár............... 4% lenguren2'Aár................... 5% Vanskilavextir................. 27% Överðtryggð skuldabréf útgefin fyrir 11.08. '84. 15,50% Skýringar við sérboð innlánsstofnana Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru 14,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn- stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikning- um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri. Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól. Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út- borgaðri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó ekki af vöxtum liðins árs. Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning- ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum reikningum og þriggja mánaða verötryggöum reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn- stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð- ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán- aða reikninga er valin. Búnaðarbankinn: Gullbók ber 14,0% vexti á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman- burður við ávöxtun þriggja mánaða verð- tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð- stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað 0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn- um vöxtum. Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning- ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn- vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxt- un 6 mánaða verðtryggðra reikninga og Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari en ávöxtun 6 mánaða reikninga. Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg- inreglan er að innistæða sem er óhreyfð í heilan ársfjórðung nýtur kjara 6 mánaða bund- ins óverðtryggðs reiknings eða 6 mánaða verðtryggð reiknings, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjóröungs, hafi reikningur notið þessara ,kaskókjara“. Reikningur ber kaskókjör þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa veriö á undangengnu og liðandi ári. Út- tektir umfram það breyta kjörum sem hér segir: Við eina úttekt í fjórðungi reiknast al- mennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttekt- ir fær öll innistæða reikningssins sparisjóðs- bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan dag ársfjórðungs fær innistæðan hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn- leggsmánuði, en ber siðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur sem stofnaður er siðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs- vexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skilyrðum. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir, eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5% , o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfð í 6 mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með 12 mánuðum eru vextir 12,5% og frá og með 18 mánuöum 13%. Aunnar vaxtahækkanir reiknast alltaf frá því að lagt var inn. Vaxta- færsla á höfuðstól er einu sinni á ári. Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16% vexti en vextir hækka eftir þvi sem innstæða er lengur. Hver innstæða er meðhöndluð sér- staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum sinnum á ári. Þá er einnig gerður saman- burður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða verðtryggðra reikninga og sú hagstæðari val- in. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og ber auk þess grunvexti 6 mánaða verðtryggs reiknings. Vextir eru færðir á höf- uðstól tvisvar á ári. Hreyfingar innan mánaðar bera sérstaka Trompvexti 12,5% ef innistæða hefur verið án útborgunar í þrjá mánuði eða lengur, en annars almenna sparisjóðsbókar- vexti. Ársfjórðungslega er ávöxtun lægstu jnnistæðu á liðnum þremur mánuðum borin saman við sérstaka Tropmvexti og ef þeir gefa hærri ávöxtun er mismun bætt við vaxta- stöðu Tropmreiknings. Sparisjóður Vélstjóra ert með Sparibók, sem er bundin i 12 mánuði og eru vextir 15,5%, eru þeir færðir á höfuðstól einu sinni á ári. Þegar útborgun hefur staðið í stað í 12 mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30 daga, eftir það binst hún á ný næstu 11 mán- uði. Eiganda sparibókar er tryggt að bókin gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða bundinn verðtryggöur reikningur. Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis, Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnar- fjarðar, Sparisjóðurinn i Keflavík, Sparisjóður Mýrarsýslu og Sparisjóður Akureyrar eru með Topp-bók, sem er bundin í 18 mánuði og eru vextir 14,5%, eru þeir færðir á höfuðstól tvi- svar á ári. Þegar innborgun hefur staðið í 18 mánuöi er hún laus til útborgunar næstu 30 daga, eftir það binst hún á ný og er laus til útborgunar í 30 daga á sex mánaða fresti. Eiganda Topp-bókar er tryggt að bókin gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða bundinn verðtryggður reikningur. Iðnaðarbankinn Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur og ber 11% vexti. Óverð tryggð Bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verðtryggð og óverð- tryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau kjör sem eru hærri á hverjum tima. Vextir eru færðir á höfuðstól tvisvar á ári. Samanburðartí- mabil eru þau sömu og vaxtatimabil. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma- bili. Sparisjóðsreikningur með 18 rnánaöa upp- sögn. Hægt er að velja um bókarlausan reikning eða reikning tengdan sparisjóðsbók. Reikningurinn er bundinn til 18 mánaða og er laus einn mánuð í senn eftir 18 mánuði eða síðar, eftir vali reikningseigenda. Innstæða er laus til útborgunar eftir það einn mánuð í senn á 12 mánaða fresti. Vextir eru reiknaðir eftir á og eru lagðir við innstæðu 31. desemb- er ár hvert og eru lausir til útborgunar næstu 12 mánuði eftir það. Líf eyrissjóðslán: Lrfeyríssjóður starfsmanna rfkisins: Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er lánið vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár, en getur verið skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstímann. Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til sjóðsins í tvö ár og tvo mánuði, miðað við fulft starf. Biðtimi eftir láni er fjórir mánuöir frá því umsókn berst sjóðnum. Lffeyríssjóður verzlunarmanna: Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild að lifeyrissjóðnum og fimm árum eftir síðustu lántöku, 150.000 krónur. Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns- kjaravisitölu, en lánsupphæðin ber nú 5% ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak- anda. Lánskjaravísitala fyrir september 1986 er 1486 stig en var 1476 stig fyrir ágúst 1986. Hækkun milli mánaðanna er 0,95%. Miðað er við vísitöluna 100 í júní 1979. Byggingavíshala fyrir júli til september 1986 er 270 stig og er þá miðaö við 100 i janúar 1983. Handhafaskuldabréf í fasteignaviöskipt- um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%. Sérbod Nafnvextir m.v. óverðtr. verðtr. Verðtrygg. Höfuðstóls faersl. Óbundið fé kjör kjör tímabil vaxta á ári Landsbanki, Kiörbók: 1) Útvegsbanki, Abót: ?-14,0 3.5 3mán. 2 8-14,1 1,0 1 mán. 1 Búnaðarb., Gullbók 1) ?—14,0 1,0 3mán. 2 Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-13,5 3,0 3mán. 4 Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1 Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4 Iðnaðarbanki, Bónus: 11,0 2,5 6mán. 2 Sparisjóðir.Trompreikn: Bundið fé: 12,5 3,0 1 mán. 2 Búnaðarb., Metbók: 15,50 3,5 6mán. 2 Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1 Iðnaðarb. 18 mán: 14,5 1 1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 0,75% í Búnaöaörbanka og 0,7% í Landsbanka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.