Morgunblaðið - 16.09.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Hjólastólarall:
Hjólastólanotendur í
tveimur efstu sætunum
HJÓLASTÓLARALL var haldið á sunnudaginn á vegum Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra, og að sögn forráðamanna
sambandsins, tókst rallið með ágætum. Fyrstu tveir keppendurnir
í mark voru báðir hjólastólanotendur.
„Þetta gekk alveg ljómandi vel,“
sagði Ólöf Ríkharðsdóttir, for-
stöðumaður félagsmála Sjálfs-
bjargar. Alls tóku 24 keppendur
þátt í rallinu og komust sex í úr-
slit. Fjórðungur keppenda voru
hjólastólanotendur, sex arkitektar,
sex sveitarstjómarmenn og sex
skemmtikraftar. Rallið fór fram í
Laugardalshöll og var brautin lögð
ýmsum þrautum.
Reynir Kristófersson kom fyrst-
ur í mark, en hann keppti fyrir
hönd Kristjáns Ó. Skagfjörð og var
tími hans 1,16:49 mínútur. I öðru
sæti varð Guðný Guðnadóttir, sem
keppti fýrir Teiknistofuna _hf., og
var tími hennar 1,45:30. í þriðja
sæti varð Halldór Gíslason, arki-
tekt, sem keppti fyrir Ford-umboð:
ið og var tími hans 2,12:39. I
úrslitariðilinn komust einnig Felix
Bergsson, skemmtikraftur, Eiríkur
Hauksson, skemmtikraftur, og
sjötti varð Jón Gauti Jónsson,
bæjarstjóri Garðabæjar.
Olöf sagði að ástæðan fyrir þátt-
töku sveitarstjómarmanna og
arkitekta hefði verið ákveðin, til
að kynna málstað fatlaðra, þannig
að þeir gerðu sér grein fyrir að-
búnaði og aðstæðum fatlaðra.
„Okkur fínnst brenna við að
arkitektar átti sig ekki á því hvem-
ig er að vera fatlaður. Það á ekki
bara við arkitekta, heldur einnig
aðra skipuleggjendur. Sveitar-
stjómarmenn og bæjarstjórar sjá
svo um framkvæmdir og vinna úr
teikningum, og því fannst okkur
tilvalið að þeir tækju þátt í þessu
• líka,“ sagði Ólöf. Skemmtikraft-
amir voru svo fengnir til að draga
að áhorfendur, svo allir fengju eitt-
hvað við sitt hæfi.
Að sögn Ólafar var erfítt að
áætla fjölda áhorfenda í Laugar-
dalshöll á sunnudaginn, en talið
hafí verið að um 1.500 manns
hafí fylgst með rallinu. Keppnin
var fjármögnuð af auglýsingum
og styrkjum frá fyrirtækjum, en
rallið var svokölluð fírmakeppni.
Á milli umferða vom flutt
skemmtiatriði og komu þar fram
m.a. Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem
söng við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur, Ómar Ragnars-
son var leynigestur rallsins og kom
hann akandi á þríhjóli, við mikinn
fögnuð viðstaddra. Karatefélag
Garðabæjar sýndi kúnstir og þá
skemmti Magnús Ólafsson í gervi
Morgunblaðið/Þorkell
Brautin í hjólastólarallinu var lögð hinum ýmsu þrautum og hindrun-
um, sem hjólastólanotendur þekkja úr daglegu lífi. Hér eru nokkrir
keppenda að spreyta sig á trébitum, sem lagðir voru þvert yfir braut-
ina.
Bjössa bollu, og fór hann brautina
í hjólastól með viðeigandi skrípa-
látum, að sögn Ólafar.
„Við höldum að þessi aðferð sé
mjög góð til að ná árangri; mikið
betri en einhverjar þurrar tölur á
pappírum eða upptalning á málefn-
um,“ sagði Ólöf að lokum.
PcMiing’a rharkaO'urinn
GENGIS-
SKRANING
Nr. 173 - 15. september 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,610 40,730 40,630
St.pund 60,326 60,504 60,275
Kan.dollari 29,301 29,388 29,122
Dönskkr. 5,2417 5,2572 5,2536
Norskkr. 5,5490 5,5653 5,5540
Sænskkr. 5,8791 5,8965 5,8858
Fi.mark 8,2675 8,2919 8,2885
Fr.franki 6,0644 6,0823 6,0619
Belg. franki 0,9582 0,9611 0,9591
Sv.franki 24,5081 24,5806 24,6766
Holl. gyllini 17,5801 17,6320 17,5945
V-þ.mark 19,8388 19,8974 19,8631
ít. lira 0,02875 0,02884 0,02879
Austurr. sch. 2,8226 2,8309 2,8220
Port. escudo 0,2772 0,2780 0,2783
Sp. peseti 0,3025 0,3034 0,3037
Jap.ven 0,26222 0,26300 0,26272
Irsktpund 54,606 54,768 54,641
SDR(Sérst. 49,1744 49,3186 49,1764
ECU, Evrópum.41,6882 41,8114 41,7169
INNLÁN S VEXTIR:
. Sparísjóósbækur
Landsbankinn................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn............... 8,50%
Iðnaðarbankinn............... 8,00%
Verzlunarbankinn............. 8,50%
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Alþýöubankinn................ 8,50%
Sparisjóðir.................. 8,00%
Sparísjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýöubankinn............... 10,00%
Búnaðarbankinn................9,00%
Iðnaðarbankinn............... 8,50%
Landsbankinn................ 10,00%
Samvinnubankinn.............. 8,50%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 12,50%
Búnaðarbankinn............... 9,50%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Verzlunarbankinn............ 13,50%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 14,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Útvegsbankinn............... 13,60%
með 18 mánaða uppsögn
Búnaðarbanki................ 15,50%
Iðnaðarbankinn ............. 14,50%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravísitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,00%
Búnaöarbankinn............... 1,00%
Iðnaðarbankinn............... 1,00%
Landsbankinn................. 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóðir................ 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn............. 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 3,00%
Búnaðarbankinn............... 2,50%
Iðnaðarbankinn............... 2,50%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn...... ....... 2,50%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn............. 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ....... 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 8,00%
Að loknum binditíma 18 mánaða og
24 mánaða verðtryggðra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávisana- og hlaupareikningar:
Alþýðubankinn
- ávísanareikningar........... 7,00%
- hlaupareikningar............ 3,00%
Búnaðarbankinn............... 3,00%
Iðnaðarbankinn............... 3,00%
Landsbankinn................. 4,00%
Samvinnubankinn............... 4,00%
Sparisjóðir................... 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn1)............ 3,00%
Eigendur ávisanareikninga i Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveðna
lágmarksinnstæðu á reikningi sínum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjörnureikningar:
Alþýöubankinn1)............ 8-9,00%
Alþýðubankinn býður þrjár tegundir
Stjörnureikninga og eru allir verð-
tryggðir. í fyrsta lagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða —
lífeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og verð-
bætur eru lausar til útborgunar í eitt
ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar í eitt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn................ 7,25%
Afmælisreikningur Landsbankans er
bundinn í 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus i tvo mánuði eftir að binditima lýk-
ur. Heimilt erað leggja inn á reikninginn
til 31. desember 1986.
Safnlán - heimilislán - IB-lán - plúslán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Alþýðubankinn................ 10-13%
Iðnaðarbankinn................ 8,50%
Landsbankinn................. 10,00%
Sparisjóðir................... 9,00%
Samvinnubankinn............... 8,00%
Útvegsbankinn................. 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn................ 13,00%
lönaðarbankinn................ 9,00%
Landsbankinn................. 11,00%
Sparisjóðir.................. 10,00%
Útvegsbankinn................ 10,00%
Innlendir gjaldeyrisreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................. 7,50%
Búnaðarbankinn................ 6,00%
Iðnaðarbankinn................ 6,00%
Landsbankinn.................. 6,00%
Samvinnubankinn............... 6,50%
Sparisjóðir................... 6,00%
Útvegsbankinn................ 6,00%
Verzlunarbankinn.............. 6,50%
Steríingspund
Alþýðubankinn................ 11,50%
Búnaðarbankinn................ 9,00%
Iðnaðarbankinn................ 9,00%
Landsbankinn................. 9,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn................ 4,00%
Búnaðarbankinn............... 3,50%
Iðnaðarbankinn.............. 3,50%
Landsbankinn ................ 3,50%
Samvinnubankinn.............. 3,50%
Sparisjóðir................. 3,50%
Útvegsbankinn................ 3,50%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn............... 7,50%
Iðnaðarbankinn............... 7,00%
Landsbankinn................. 7,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir................. 7,00%
Útvegsbankinn................ 7,00%
Verzlunarbankinn............. 7,50%
ÚTLÁN S VEXTIR:
Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25%
Skuldabréf, almenn................ 15,50%
Afurða- og rekstrarlán
í íslenskum krónum.......... 15,00%
í bandaríkjadollurum......... 7,75%
isterlingspundum............ 11,25%
i vestur-þýskum mörkum..... 6,00%
íSDR......................... 7,75%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
í allt að 2’/z ár............... 4%
lenguren2'Aár................... 5%
Vanskilavextir................. 27%
Överðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84. 15,50%
Skýringar við sérboð
innlánsstofnana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
14,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn-
stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaðri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liðins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum
reikningum og þriggja mánaða verötryggöum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aða reikninga er valin.
Búnaðarbankinn: Gullbók ber 14,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem
innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
um vöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxt-
un 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari
en ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða sem er óhreyfð í
heilan ársfjórðung nýtur kjara 6 mánaða bund-
ins óverðtryggðs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggð reiknings, eftir því hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir
og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers
ársfjóröungs, hafi reikningur notið þessara
,kaskókjara“. Reikningur ber kaskókjör þótt
teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar
hafa veriö á undangengnu og liðandi ári. Út-
tektir umfram það breyta kjörum sem hér
segir: Við eina úttekt í fjórðungi reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð,
en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttekt-
ir fær öll innistæða reikningssins sparisjóðs-
bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða
annan virkan dag ársfjórðungs fær innistæðan
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn-
leggsmánuði, en ber siðan kaskókjör út
fjórðunginn. Reikningur sem stofnaður er
siðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs-
vexti en getur áunnið sér kaskókjör frá
stofndegi að uppfylltum skilyrðum.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir,
eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5%
, o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfð í 6
mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með
12 mánuðum eru vextir 12,5% og frá og með
18 mánuöum 13%. Aunnar vaxtahækkanir
reiknast alltaf frá því að lagt var inn. Vaxta-
færsla á höfuðstól er einu sinni á ári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir þvi sem innstæða
er lengur. Hver innstæða er meðhöndluð sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá er einnig gerður saman-
burður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða
verðtryggðra reikninga og sú hagstæðari val-
in.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og ber auk þess grunvexti 6 mánaða
verðtryggs reiknings. Vextir eru færðir á höf-
uðstól tvisvar á ári. Hreyfingar innan mánaðar
bera sérstaka Trompvexti 12,5% ef innistæða
hefur verið án útborgunar í þrjá mánuði eða
lengur, en annars almenna sparisjóðsbókar-
vexti. Ársfjórðungslega er ávöxtun lægstu
jnnistæðu á liðnum þremur mánuðum borin
saman við sérstaka Tropmvexti og ef þeir
gefa hærri ávöxtun er mismun bætt við vaxta-
stöðu Tropmreiknings.
Sparisjóður Vélstjóra ert með Sparibók,
sem er bundin i 12 mánuði og eru vextir
15,5%, eru þeir færðir á höfuðstól einu sinni
á ári. Þegar útborgun hefur staðið í stað í 12
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný næstu 11 mán-
uði. Eiganda sparibókar er tryggt að bókin
gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggöur reikningur.
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóðurinn i Keflavík, Sparisjóður
Mýrarsýslu og Sparisjóður Akureyrar eru með
Topp-bók, sem er bundin í 18 mánuði og eru
vextir 14,5%, eru þeir færðir á höfuðstól tvi-
svar á ári. Þegar innborgun hefur staðið í 18
mánuöi er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný og er laus til
útborgunar í 30 daga á sex mánaða fresti.
Eiganda Topp-bókar er tryggt að bókin gefi
aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggður reikningur.
Iðnaðarbankinn Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 11% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða
fresti eru borin saman verðtryggð og óverð-
tryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau
kjör sem eru hærri á hverjum tima. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári.
Samanburðartí-
mabil eru þau sömu og vaxtatimabil. Heimilt
er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma-
bili.
Sparisjóðsreikningur með 18 rnánaöa upp-
sögn. Hægt er að velja um bókarlausan
reikning eða reikning tengdan sparisjóðsbók.
Reikningurinn er bundinn til 18 mánaða og
er laus einn mánuð í senn eftir 18 mánuði eða
síðar, eftir vali reikningseigenda. Innstæða
er laus til útborgunar eftir það einn mánuð í
senn á 12 mánaða fresti. Vextir eru reiknaðir
eftir á og eru lagðir við innstæðu 31. desemb-
er ár hvert og eru lausir til útborgunar næstu
12 mánuði eftir það.
Líf eyrissjóðslán:
Lrfeyríssjóður starfsmanna rfkisins:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lánið vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg,
þá getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins í tvö ár og tvo mánuði, miðað við
fulft starf. Biðtimi eftir láni er fjórir mánuöir
frá því umsókn berst sjóðnum.
Lffeyríssjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild
að lifeyrissjóðnum og fimm árum eftir síðustu
lántöku, 150.000 krónur.
Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns-
kjaravisitölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak-
anda.
Lánskjaravísitala fyrir september 1986 er
1486 stig en var 1476 stig fyrir ágúst 1986.
Hækkun milli mánaðanna er 0,95%. Miðað
er við vísitöluna 100 í júní 1979.
Byggingavíshala fyrir júli til september
1986 er 270 stig og er þá miðaö við 100 i
janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteignaviöskipt-
um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.
Sérbod Nafnvextir m.v. óverðtr. verðtr. Verðtrygg. Höfuðstóls faersl.
Óbundið fé kjör kjör tímabil vaxta á ári
Landsbanki, Kiörbók: 1) Útvegsbanki, Abót: ?-14,0 3.5 3mán. 2
8-14,1 1,0 1 mán. 1
Búnaðarb., Gullbók 1) ?—14,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-13,5 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4
Iðnaðarbanki, Bónus: 11,0 2,5 6mán. 2
Sparisjóðir.Trompreikn: Bundið fé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 15,50 3,5 6mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
Iðnaðarb. 18 mán: 14,5 1
1) Vaxtaleiðrétting (úttektargjald) er 0,75% í Búnaöaörbanka og 0,7% í Landsbanka.