Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 68
Uppboð auglýst á 700 húseignum í Lögbirtingablaðinu sem kem- I ekki fjölgað en hinsvegar hefur ur út nk. föstudag eru auglýst uppboðum Qölgað þar sem sala fer uppboð á 700 húseignum vegna | raunverulega fram. vangoldinna fasteignagjalda. Samtökin Lögvernd hafa sent Steingrími Hermannssyni bréf þar sem m.a. er vakin athygli á þessum auglýsingum. Að sögn Jónasar Gústafssonar borgarfógeta er þetta svipaður fjöldi sem auglýstur er og verið hefur undanfarin ár eftir að beiðni hefur borist frá Gjaldheimtunni um mánaðamót júlí og ágúst vegna ógreiddra fasteignagjalda. „Ég held að þetta séu gegnumgangandi smá- ar upphæðir," sagði Jónas. „Þetta er svona á bilinu 1500-1600 krónur upp í nokkurhundruð þúsund en algengustu upphæðimar eru innan við 10 þúsund, held ég.“ Hann taldi að auglýsingum um uppboð hafi Morgunblaðið/Sigurgeir Vitinn nýstárlegi. V estmannaeyjar: Eyjólfur Konráðí prófkjörið í Reykjavík EYJÓLFUR Konráð Jónsson, alþingismaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu al- þingiskosningar. Eyjólfur Konráð, sem verið hefur þingmaður Norðurlands- kjördæmis vestra frá 1974, tilkynnti stjóm kjördæmisráðs- ins þar þessa ákvörðun á sunnudaginn. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hann vildi styrkja pólitíska stöðu sína til framdráttar þeirri ftjálslynd- isstefnu, sem hann hefði sett á oddinn og barist fyrir. „Þess vegna hef ég ákveðið að bjóða mig fram í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík, þar sem fylgi Sjálfstæðisflokksins er mest ogtraustast," sagði hann. Sjá: „Sókn úr vígi fijáls- lyndis" á bls. 4. Morgunblaðið/Helgi Bjamason Kerin sett í Arnarflugsþotu á Keflavíkurflugvelli og á innfelidu myndinni hugar Ólafur Skúlason framkvæmdastjóri Laxalóns að liðan „farþeganna" í 30 þús. feta hæð yfir Atlantshafi. Laxaseiði með flugi til Irlands Fjórði vitinn á nýja hrauninu Vestmannaeyjum. INNAN skamms munu ljós nýs vita á Heimaey taka til við að lýsa sæfarendum sem koma austan að. Um þessar mundir eru starfsmenn Vita- og hafn- armálaskrifstofunnar að ganga frá Ijóshúsi nýs vita austast á nýja hrauninu, skammt norðan við Prestavík. Þetta er fjórði vitinn sem reistur er á nýja hrauninu á árunum eftir gos. Allir þrír fyrri vitamir sem þama höfðu verið reistir, einn þeirra raunar nokkurskonar hálf- viti, höfðu orðið að láta undan síga fyrir ágangi sjávar sem braut landið undan þeim. Fyrsti vitinn hvarf reyndar með öllu í hafið í stórviðri fyrir nokkmm ámm. Hinn nýi viti er nokkm fjær sjó en hinir fyrri. Ljóshúsið er boltað ofaná skemmtilega hannaða und- irstöðu, breiðar skáhallar tröppur með palli. Líkist vitinn eiginlega ölympíueldi þar sem hann stendur á rauðmalarkambi á hrauninu og varpar geislum sínum út yfir haf- ið. Þessi nýi viti verður raflýstur og hafa starfsmenn Rafveitu Vestmannaeyja unnið við að leggja rafstreng út á hraunið, sem einnig nýtist sorpbrennslustöð bæjarins frá. sem þama er skammt - hkj Dingle, írlandi, frá Helga Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins. FISKELDISSTÖÐIN Laxalón í Reykjavík hefur selt 400 þús. sumaral- in laxaseiði að verðmæti rúmlega 11 milljónir til fiskeldisstöðvar á Irlandi. Seiðin voru flutt út í sérhönnuðum flutningskeijum í þotu frá Arnarflugi á laugardag. Haft var á orði að liklega hefði Amar- flug ekki áður flutt jafn marga „farþega" í einni ferð eða 400.004, þ.e. seiðin og fjóra menn að auki. Laxalónsmenn líta á þennan út- flutning sem tvíþætta tilraun. Flutningsmátinn er nýr þ.e. flugið og flutningskerin, en viðtakandinn kaupir þau með og notar síðan sem eldisker í stöðinni. Þá er það einnig óvenjulegt að flutt séu út smáseiði. Eftir að seiðaútflutningur Islend- inga hófst að nýju fyrir þremur árum hafa eingöngu sjógönguseiði verði flutt út og alltaf með tankskip- um. „Þetta er mikilvæg tilraun," Flugatvikið yfir Austurlandi: Vélarnar svo nálægt að lá við stórslysi — segir flugstjóri bresku þotunnar FLUGSTJÓRI brezku júmbóþotunnar, sem nærri var lent í árekstri við SAS-þotu yfir Austurlandi, segir í skýrslu um atvik- ið að flugvélamar hafi verið mjög nálægt hvor annarri er þær mættust og að legið hafi við stórslysi er leiðir þeirra skárust. Nær 600 manns voru í flugvélunum tveimur. Ian J. Basnett, flugstjóri Bo- eing-747-þotu British Airways, segir DC-8 þotu SAS hafa verið 15 metrum neðar og 60-90 metra hægra megin við sína fiugvél er þotumar mættust. Hann tekur fram að enginn tími hafí gefíst til aðgerða til að forða slysi, svo skyndilega hafí atvikið borið að. Flugvélamar voru báðar á um 900 km/klst hraða er þær mættust og nálguðust hvor aðra því sem nemur 500 metrum á sekúndu eða 30 kílómetra á mínútu. I skýrslu Eric Qvist, flugstjóra SAS-þotunnar, segir að stutt hafí verið á milli flugvélanna er þær mættust í sömu flughæð. Þær voru báðar ofar skýjum, en mistur var í lofti og segir brezki flugstjór- inn að mjög erfítt hafí verið að gera sér grein fyrir skyggni þar sem hann hafi flogið mót sólu. Báðir taka flugstjórarnir fram að um árekstrarhættu hafí verið að ræða og strika yfír orðið „flugum- ferðaratvik" í sérstökum reit á skýrslublaðinu, þar sem þeir eru beðnir að lýsa tegund atviks. Sjá útdrátt úr skýrslum flug- slysanefndar á bls. 64 og 65: „Misræmi milli fréttatilkynn- ingar samgönguráðuneytis og skýrslu flugslysanefndar“ og fleiri fréttir úr skýrslunum. sagði Ólafur Skúlason fram- kvæmdastjóri Laxalóns í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, „því ef þetta reynist vel höfum við möguleika á að flytja gönguseiðin út á þennan hátt í framtíðinni þó ef til vill verði bannað að flytja seiði út með skipum." Seiðin voru 14 tíma á leiðinni. Þau voru sett í kerin í útibúi Laxa- lóns að Fiskalóni í Ölfusi aðfaranótt laugardags. Þaðan voru þau flutt með vörubílum til Keflavíkur þar sem Boeing 737 þota Arnarflugs tók við þeim og flutti til Shannon- flugvallar á írlandi. Frá Shannon fóru seiðin á flutningabíl sem fór með þau til stöðvarinnar sem er skammt frá Dingle í Kerry-héraði á suðvestur Irlandi. Flutningurinn gekk þokkalega og var Ólafur ánægður með ástand seiðanna á áfangastað. 'Einhver af- föll urðu eftir flutninginn og fyrstu dagana, en að sögn Ólafs er þó ekki hægt að gera dæmið endanlega upp fyrr en að nokkrum tíma íiðn- um. Óðinn sendi Týtil hafnar VARÐSKIPIÐ Óðinn sendi í gær vélbátinn Tý, 37 tonna bát frá Sauðárkróki, til hafnar þar sem aðeins vélstjórinn var með réttindi og hinir þrír skipverjamir óskráðir. Reyndar virtist ekki ljóst hver var skipstjóri um borð sam- kvæmt upplýsingum Landhelgis- gæslunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.