Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐÍÓ, ÞRIÐJUÖAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Sókn úr höfuðvígi
frjálslyndis á Islandi
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson, sem
gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosn-
ingarnar
„MIG langar til að styrkja
pólitíska stöðu mína til fram-
dráttar þeirri frjálslyndisstefnu,
sem ég hef sett á oddinn og lengi
barist fyrir. Þess vegna hef ég
ákveðið að bjóða mig fram hér
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, höfuðvígi frjálslynd-
isins, þar sem fylgi Sjálfstæðis-
flokksins er mest og traustast,"
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. Eyj-
ólfur Konráð, sem verið hefur
þingmaður fyrir Norðurland
vestra, tilkynnti stjórn kjördæm-
isráðs Sjálfstæðisflokksins þar á
sunnudaginn að hann hefði
ákveðið að leita ekki eftir fram-
boði í kjördæminu við komandi
alþingiskosningar.
„Undanfarin ár hef ég verið að
reyna að móta þá leið, sem fara
bæri tii að komast út úr vítahring
verðbólgu og heimatilbúinnar
kreppu," sagði Eyjólfur Konráð.
„Ég hef haidið því fram, að þessar
ógöngur stafi annars vegar af því,
að ríkið hafí gengið of langt í að
heimta fé af borgurunum með
sköttum og hins vegar af þeirri
pólitísku skömmtun á peningum,
sem hér hefur viðgengist. Okkur
hefur nú orðið verulega ágengt í
viðureigninni við verðbólguna, en
það verður að ganga lengra ef
árangur á að nást í efnahagsmálum.
Mikilvægast er, að endurreisa pen-
ingakerfið, sem er hrunið, með því
að afnema alla skömmtunarstjóm
á peningum, en hún hefur leitt til
óarðbærra fjárfestinga og óviðun-
andi mismununar einstaklinga og
fyrirtækja. Ég vil t.d. efla einka-
banka og losa bankana sem mest
undan ríkinu og þeirri pólitísku
stjóm, sem hér hefur tíðkast, eink-
um eftir að vinstri öflunum, stjóm-
lyndisöflunum, óx fiskur um hrygg
í upphafi sfðasta áratugar."
An efa verðurðu spurður, hvort
þú sért að flýja úr þínu kjördæmi?
„Ég hef verið sakaður um ýmis-
legt í pólitík, en mér hefur al,drei
verið borið hugleysi á brýn. Ur kjör-
dæminu þarf ég ekki að flýja.
Sjálfstæðisflokkurinn á þar 1. og
4. þingmanninn, en hefur venjulega
verið með 2. og 5. Ekkert bendir
til annars en að við höldum okkar
styrkleika og vel það, þannig að ég
gæti gengið að ömggu sæti vísu.
Ég er alls ekki að flýja, heldur að
hefja sókn í þágu fijálslyndisafla
I/EÐURHORFUR I
Heimild: Veðurstofa islands
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
n Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
f r r f Rigning
r r f
* r *
r * r * Slydda
f * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
5 , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[y Þrumuveður
VEÐURYFIRLIT:
Á hádegi í gær var grunnt lægðardrag yfir landinu sem þokaðist
í suðaustur, en 1032 millibara hæð um 900 km suður í hafi sem
þokaðist einnig í suðaustur. Við suðvesturströnd Grænlands var
vaxandi lægðadrag á hreyfingu í norðaustur.
I/EÐURHORFUR Á MIÐVIKUDAG:
Suðvestan átt verður ríkjandi og fremur hlýtt um land allt. Dálítil
rigning eða súld verður um vestanvert landið, en þurrt um landið
austanvert.
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
Bergen 9,2 hélfskýað
Helsinki 10,0 rlgning
Kaupmannah. 14,0 skýjað
Narssarssuaq 8,7 rigning
Nuuk 9,2 skýjað
Osló 9,7 skýjað
Stokkhólmur 10,1 skýjað
Þórshöfn 7,7 hálfskýjað
Algarve 23,2 Þokumóða
Amsterdam 10,1 rigning
Aþena 33,8 heiðskírt
Barceiona 26,4 hálfskýjað
Berlín 13,2 alskýjað
Chicago 15,6 skýjað
Glasgow 11,9 hálfskýjað
Feneyjar 24,5 þokumóða
Frankfurt 18,6 rígning
Hamborg 13,6 skýjað
Jan Mayen 1,4 snjókoma
Las Palmas 28,2 léttskýjað
London 9,8 rígning
LosAngeles 12,5 heiðskýrt
Lúxemborg 18,1 rígning
Madríd 25,3 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 30,0 heiðskírt
Miami 27,6 léttskýjað
Montreal 8,4 skýjað
Nice 24,1 léttskýjað
NewYork 14,4 alskýjað
París 21,2 alskýjað
Róm 26,0 heiðskírt
Vín 24,6 skýjað
Washington 17,8 mistur
Winnipeg -2.3 iéttskýjað
Þessar veðurlýsingar höfðu borist
Veðurstofu íslands á hádegi í gaer.
Morgunblaðið/RAX
Eyjólfur Konráð Jónsson
alþingismaður
og þá sókn tel ég mig best geta
háð úr höfuðvígi fijálslyndis á Is-
landi, Sjálfstæðisflokknum í
Reykjavík. I hreinskilni sagt, langar
mig til að láta á það reyna hér í
minni heimaborg, þar sem ég hef
búið og starfað frá unglingsárum,
hvort þær hugmyndir, sem ég hef
sett fram í ræðu og riti, njóta nægi-
lega mikils trausts í Sjálfstæðis-
flokknum. Ég hef líka áhuga á því,
að koma til starfa í sjálfstæðis-
félögunum í Reykjavík, þar sem
starfsvettvangur minn var í gamla
daga."
I bréfi, sem Eyjólfur Konráð rit-
aði stjórn kjördæmisráðsin s í
Norðurlandi vestra, bendir hann
m.a. á, að hann telji tímann til þess-
arar ákvörðunar sinnar heppilegan,
þegar litið sé til þess að margt sem
hann hafi barist fyrir í atvinnumál-
um norðlenskra byggða sérstak-
lega, og efnahags- og fjármálalífí
almennt sé að sjá dagsins ljós.
„Ég held, að það sé líka styrkur
fyrir þingmann Reykvíkinga að
þekkja vel til sjónarmiða lands-
byggðarinnar. Það er hagsmunamál
Reykvíkinga, að byggð haldist í
landinu og ég hef ekki orðið var
við annað en að skilningur sé á því
hér í höfuðborginni,“ sagði Eyjólf-
ur.
Hvernig heldurðu að þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
lítist á að fá þessa samkeppni?
„Ég stefni ekki að því að fella
einn eða neinn núverandi þing-
mann. Aðeins íjórir af núverandi
þingmönnum flokksins í Reykjavík
hafa lýst því yfir, að þeir hyggist
í framboð. Við getum átt von á
því, að fá ekki færri en átta menn
kjöma í höfuðborginni eftir að nýju
kosningalögin taka gildi. Auðvitað
verður um keppni að ræða, til þess
er leikurinn gerður. Og auðvitað
væri það hræsni og hugleysi, ef ég
viðurkenndi ekki að í prófkjöri
keppa menn um að ná eins góðum
árangri og mögulegt er.“
Eyjólfur Konráð Jónsson er 58
ára að aldri. Hann er lögfræðingur
að mennt og hæstaréttarlögmaður.
Hann var fyrsti framkvæmdastjóri
Almenna bókafélagsins 1955 til
1960, en þá tók hann við starfi rit-
stjóra Morgunblaðsins, sem hann
gegndi til ársloka 1975. Hann hefur
verið alþingismaður fyrir Norður-
landskjördæmi vestra frá 1974.
Morgu nblaðið/Þorkel 1
Ólafur Ragnarsson formaður og Sigurður Pálsson varaformaður
Bókasambands íslands.
Bókasamband Islands stofnað:
„Viljum auka
veg bókarinnar“
- segja fulltrúar átta félaga sem hafa tekið
höndum saman
BÓKASAMBAND ÍSLANDS hefur verið stofnað, en að því standa
átta félög og samtök sem tengd eru bókum og bókaútgáfu hér á
landi. Markmið með stofnun sambandsins er að sögn sjórnarinnar
að stuðla að auknum bókalestri
íslenskri menningu og þjóðlífi.
Þau átta félög og samtök er
standa að stofnun Bókasambands-
ins eru; Bókavarðafélag íslands,
Félag bókagerðarmanna, Félag
íslenskra bókaútgefenda, Félag
íslenskra bókaverslana, Félag
íslenska prentiðnaðarins, Hagþenk-
ir, félag höfunda fræðirita og
kennslugagna, Rithöfundasamband
íslands og Samtök gagntýnenda.
Fyrstu hugmyndir um stofnun
slíkra landssamtaka komu fram
fyrir u.þ.b. tveim árum. Á bóka-
þingi í Borgamesi í fyrrahaust var
formlega samþykkt að kanna
möguleika á stofnun samtaka sem
tengjast bókaútgáfu í landinu og
var kjörin undirbúningsnefnd sem
starfað hefur síðan, samið lög og
undirbúið fyrstu ráðstefnu samtak-
anna um bækur og stöðu þeirra hér
á Iandi. Ráðsteftian nefnist Bóka-
þing 1986, yfírskrift hennar er
„Bókaþjóð á krossgötum", þingið
verður haldið 23. september nk. að
Hótel Loftleiðum og er opið öllum.
Á fundi með fréttamönnum komu
fram ýmsar hugmyndir meðal
stjómarmeðlima hvemig unnt væri
landinu og styrkja stöðu bóka í
að auka hlut bókarinnar í íslensku
þjóðlífí. í undirbúningi er margs
konar kynningarstarfsemi, reynt
verður að fínna leiðir til að dreifa
bókaútgáfu og bóksölu yfír lengra
tímabil ársins en verið hefur, en
talið er að um 75-80% íslenskra
bóka seljist á haustmánuðum fram
til jóla. Þá er í ráði að sambandið
reyni að hafa áhrif á niðurfellingu
söluskatts á bókum. Þá vom rædd-
ir möguleikar á aukinni vor og
sumarsölu bóka, m.a. með því að
gefa fleiri bækur út í kiljuformi.
í fyrstu stjórn sambandsins sitja;
Ólafur Ragnarsson formaður frá
Félagi íslenskra bókaútgefenda,
Sigurður Pálsson varaformaður frá
Rithöfundasambandi íslands, Hild-
ur G. Eyþórsdóttir ritari frá
Bókavarðafélagi íslands og Kristján
Aðalsteinsson gjaldkeri frá Félagi
íslenska prentiðnaðarins. Með-
stjómendur em dr. Ingimar Jóns-
son, Hagþenki, Jón Kristjánsson,
Félagi íslenskra bókaverslana,
Svanur Jóhannesson, Félagi bóka-
gerðarmanna og dr. Om Ölafsson,
Samtökum gagnrýnenda.