Morgunblaðið - 16.09.1986, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Fróðlegt að sjá það starf
sem unnið er í sambandi við
landuppgræðslu á Islandi
— seg’ir Louis Rey, formaður
Alþj óða-norðurheimskautsráðsins
„ALÞJÓÐA NORÐURHEIMSKAUTSRÁÐIÐ, Comité Artique Inter-
national, er alþjóðlegur hópur sérfræðinga í málefnum norðuheim-
skautsins og hefur aðsetur í Mónacó“, sagði Louis Rey, formaður
ráðsins, i samtali við Morgunblaðið. Alþjóða norðurskautsráðið hefur
undanfarna daga haldið ráðstefnu á Hótel Loftleiðum um landupp-
græðslu á norðurslóðum.
síðustu aldamót einn af frumkvöðl-
unum í því að kanna norðurheim-
skautssvæðið."
Alþjóða-norðurheimskautsráðið
hefur allt frá stofnun þess árið
1979, haldið marga fundi og ráð-
stefnur víðsvegar um heiminn.
Meðal annars hafa verið haldnar
ráðstefnur um haffræði Norður-
íshafsins og hvað verður um
efnaúrgang á því svæði, um sam-
vinnu við vinnu neðansjávar á
svæðum þöktum ís og orkumálefni
norðurheimskautssvæðisins.
Einnig hafa verið starfandi
vinnuhópar á vegum ráðsins, sem
hafa unnið að ýmsum málefnum,
s.s. áhrifum hljóðmengunar á spen-
dýr sjávarins og hvemig best er
staðið að menntun meðal þjóðflokka
„I ráðinu eru ekki emungis
vísindamenn, heldur einnig sér-
fræðingar á ýmsum sviðum er
snerta norðurheimskautssvæðið
beint eða óbeint.
Þrjár meginástæður eru fýiir því
að ráðið var sett á stofn í Mónakó.
Sá staður varð fyrst og fremst fyr-
ir valinu vegna þess að aðsetur
ráðsins átti að vera í ríki, sem hafði
engra pólítískra hagsmuna að gæta
á norðurheimskautinu, en allar
rannsóknir sem framkvæmdar eru
á vegum ráðsins eiga að vera óháð-
ar vilja einstakra ríkisstjóma. Það
átti líka sinn þátt í þessari ákvörðun
að Rainer, fursti af Mónako, er
mikill áh'ugamaður um náttúru-
vemdun og langafi hans, Albert
fynum fursti af Mónakó, var um
HRAÐLESTUR —
NÁMSTÆKNI
Vilt þú auðvelda þér námið og vinnuna?
Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn?
Vilt þú eiga meiri frítíma frá náminu og vinnunni?
Vilt þú læra árangursríkar aðferðir í námstækni?
Svarir þú þessum spurningum játandi, skaltu ekki
hika lengur, heldur drífa þig á næsta hraðlestr-
arnámskeið, sem hefst þriðjudaginn 23. septemb-
er nk. Síðast komust færri að en vildu, svo þú
skalt skrá þig snemma.
Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma
611096.
HRAÐLESTRARSKÓLIIMN.
Heildsölubirgðir:
KARL K. KARLSSON & CO.
Skúlatúni 4, 105 R., S. 20350 — 20351.
á norðursvæðum.
Ráðinu er þó ekki ætlað að hafa
neitt framkvæmdavald. Það er ein-
vörðungu ráðgefandi sérfróður
aðili.
Erindi og niðurstöður þessara
ráðstefna hafa verið gefnar út í
bókaformi og eru mikilvæg upp-
sláttarheimild á bókasöfnum og
fyrir sérfræðinga er vinna að mál-
efnum norðurheimskautsins.
Ráðstefnan um uppgræðslu lands
á norðurslóðum er sú sjötta sem
Alþjóða-norðurheimskautsráðið
gengst fyrir.
„Það var mjög fróðlegt fyrir okk-
ur að sjá það starf sem unnið er í
sambandi við landuppgræðslu á Is-
landi. Ekki einungis á þeim svæðum
sem hafa orðið eldgosum að bráð
heldur einnig á þeim svæðum, sem
komið hafa undan jöklum þegar
þeir hörfa.
Það hafa sum landsvæði tekið
geysilegum stakkaskiptum síðan ég
kom hingað fyrst árið 1968, s.s.
svæðin við Gullfoss og Heklu. Þau
hafa breyst frá því að vera að mestu
Louis Rey
Morgu nblaðið/RAX
svartar auðnir í fagurgræna gróð-
urreiti.
Hér á íslandi höfum við líka séð
hversu gagnlegt það er að þjóðir,
sem búa við nokkuð svipaðar að-
stæður, skiptist á ýmiss konar
reynslu. Tré frá Alaska virðast, svo
dæmi sé tekið, dafna sérlega vel á
íslandi.
Á ráðstefnunni var talað um að
við verðum að læra, að náttúru-
Fatasöfnun Rauða
krossins er hafin
um land allt
FATASÖFNUN Rauða krossins er hafin um allt land. Þegar
hefur mikið magn af fatnaði borist til aðalstöðva félagsins í
Reykjavík og eins til margra deilda úti á landsbyggðinni.
í fyrra efndi Rauði krossinn líka
til fatasöfnunar, og þá bárust tæp-
lega áttatíu lestir af mjög góðum
fatnaði, bæði á fullorðna og böm.
Fötin sem söfnuðust í fyrra voru
send til Afríkuríkja og til Nicaragua
eftir að búið var að ganga þannig
frá þeim að samræmist reglum sem
Alþjóða Rauði krossinn setur, en
það var gert í Danmörku. Samvinna
var milli RKÍ og danska Rauða
krossins um flokkun og pökkun
fatnaðarins og eins flutninginn.
Þetta kostar allt mikla vinnu og
talsvert fé. Þannig eru þau föt sem
send hafa verið á vegum RKÍ met-
in á um þijár milljónir króna og
bendir allt til að í ár verði kostnað-
urinn ekki minni.
Af hálfu félagsins hefur þess
ekki verið krafist að fólk legði fram
fé með fötum sem það gefur en
hitt má vera ljóst að með því að
gera það létta gefendur mjög mikið
undir og veita mikilsverðan stuðn-
ing um leið og tryggt er að unnt
verður að senda héðan meira magn
en annars væri hægt. Áætlaður
kostnaður við fatasendingar á veg-
um félagsins í ár er um 50 krónur
á hvert kílógramm.
Iþróttakennarar
- íþróttakennarar
Nú mætum við öll 3. og 4. okt.
Dagskrá:
Föstudagur 3. okt. í íþróttamiðstöð í Laugardal.
Kl. 14.00. Pallborðsumræður um framtíð íþrótta-
kermaramenntunar á íslandi.
Frummælendur:
íþróttafulltrúi ríkisins,
fulltrúi ÍKÍ,
fulltrúi ÍKFÍ,
fulltrúi KHÍ.
Fyrirspurnum beint til frummælenda og
almennar umræður.
Lok umræðna kl. 17.00.
Kl. 20-23: Aðalfundur ÍKFÍ. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Laugardagur 4. okt. í íþróttamiðstöð, Laugardal.
Kl. 10.00. Fyrirlestur: Sigríður Soffía Sandholt.
Hreyfiþroski. Æfingar fyrir yngstu nemendurna.
Markmið æfinganna.
Kl. 13.00-17.00 í íþróttahúsi KHÍ. Leikfimi: Þórir
K. og Jónas T. Ýmsir leikir með músík: Hafdís
Árnadóttir.
ÍKFÍ.
vemd og endurgræðsla lands eru
hlutir sem þarf að skipuleggja vel
áður en hafnar eru ýmiss konar
framkvæmdir er valda röskun á
gróðri. Við sáum gott dæmi í Hvera-
gerði þar sem staðið hefur verið vel
að þessum málum. Þar var byggt
stórt hótel með tilheyrandi jarð-
raski, en okkur var sagt að lóðin
umhverfis hótelið hafi verið kláruð
á undan sjálfri hótelbyggingunni.
Annað atriði sem snertir Island
og var mikið til umræðu á ráðstefn-
unni var þáttur nautgripa og
sauðfjár í landeyðingu. Það er mik-
ilvægt að menn átti sig á því að
ekki er hægt að sleppa dýrum á
beit á hvaða svæðum sem er. Ann-
að getur haft afdrifaríkar afleiðing-
ar í för með sér og sáum við nokkur
miður fögur dæmi um slíkt í grennd
við Búrfell.
Meginávinningurinn með þessari
ráðstefnu held ég að hafi verið að
hún hefur hjálpað okkur að skilja
betur hvernig náttúran er að þróast
á norðurslóðum og hversu nátengd
sú þróun er efnahagslegri þróun á
sömu slóðum. Það má segja að sið-
menningin hafí sinn fórnarkostnað.
Ef við viljum framkvæma eitthvað
verðum við að þola þann kostnað,
það tjón, sem af því kann að hljót-
ast.
Þó má einnig segja að tæknilega
séð höfum við nú leiðir til að fyrir-
byggja landeyðingu í ríkari mæli
en áður og jafnvel möguleika á að
snúa þróuninni við og breyta um-
hverfismálum til batnaðar."
Ungnr Afríkumaður í íslenskum
fatnaði.
Gunnar G.
Schram kjör-
inn formaður
norrænna
háskólamanna
ÁRSFUNDUR bandalaga há-
skólamanna á Norðurlöndum var
haldinn í Uppsölum í Svíþjóð 2.
september sl. Á fundinum var
Gunnar G. Schram, formaður
Bandalags háskólamanna (BHM),
kjörinn formaður samtaka há-
skólamanna á Norðurlöndum, en
félagsmenn þeirra eru um
800.000 talsins.
í tilkynningu frá BHM segir að
á ráðsfundinum hafi verið rætt um
sameiginleg hagsmunamál háskóla-
manna á Norðurlöndum og hafi
sérstök áhersla verið lögð á eftirfar-
andi þijú atriði:
í fyrsta lagi að menntun yrði að
vera arðbær bæði fyrir einstakling-
inn og þjóðfélagið og því yrði ,/að
bæta kjör háskólamenntaðra
manna og auka kaupmátt launa
þeirra.
í öðru lagi þyrfti að að breyta
námslánakerfínu á Norðurlöndum
þannig að skuldabyrðin léttist og
fleiri veldu því háskólanám.
í þriðja lagi væri mikil nauðsyn
á því að veija auknu fé til háskóla-
rannsókna og bæta starfsaðstöðu
þeirra, sem þær stunda.