Morgunblaðið - 16.09.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
15
Ávísun á hækkað vöruverð
— eftirJón Magnússon
Avísun á hækkað
vöruverð
Á baksíðu Morgunblaðsins í dag
er frétt, sem lætur lítið yfir sér, en
er stórmál fyrir neytendur. Skýrt
er frá því, að útlit sé fyrir kvóta á
egg og lqúklinga eins og segir í
fyrirsögn blaðsins og ástæðan fyrir
þessu er skv. fréttinni, að bændur
í þessum greinum séu orðnir þreytt-
ir á linnulitlu verðstríði. Bent er á
í því sambandi að verð á eggjum
sé nú talsvert lægra en fyrir einu
ári.
Sú hugsun sem þama kemur
fram er ekki ný af nálinni. Hugleið-
ingar um framleiðslustjómun á
öllum þáttum búvöruframleiðslu
hafa jafnan átt nokkum hljóm-
gmnn, sérstaklega hjá þeim fram-
leiðendum sem standast ekki
samkeppnina og við það bætist að
landbúnaðarforustan vinnur leynt
og ljóst að því að ná öllum þáttum
framleiðslunnar undir sinn hatt til
þess að geta ráðskast að vild með
hve mikið megi framleiða af hvaða
vömtegund og hvemig verði á vor-
unum verði haldið uppi með viðmið-
un við eitthvað meðalbú, sem í raun
er ekki til.
Beiðni um verð-
hækkanir
Nái hænsnabændur samkomu-
lagi um kvótafyrirkomulag og
framleiðslustjómun þýðir það
hækkað verð til neytenda, en eins
og rakið er hér að framan em hug-
myndimar settar fram beinlínis til
þess að verð á þessum neysluvömm
hækki. Itrekað hefur verið bent á
það með verðsamanburði milli ára,
að verðlag á framleiðsluvömm á
ftjálsu greinunum svokölluðu, þ.e.
kjúklinga-, eggja- og svínaafurðum,
hækkar minna en þær vömr sem
heyra undir opinbera verðlags-
stjómun. í samræmi við það hefur
markaðshlutdeild þessara afurða
aukist á kostnað hinna. Kostir
fijálsrar verðmyndunar hafa því
verið neytendum til hagsbóta og
lækkuð útgjöld heimilanna, en nú
skal sett undir þann leka. Það er
vissulega athyglisvert, að á sama
tíma og stjómvöld lýsa yfir sem
helstu markmiði í efnahagsmálum.
að verðbólgan aukist ekki á ný,
skuli landbúnaðarráðherra leitast
við að koma á breytingum sem
óhjákvæmilega hækka framfærslu-
kostnað. Matvömr hér á landi em
mjög dýrar, þær dýmstu í okkar
heimshluta. Allt of stór hluti tekna
heimilanna rennur því til kaupa á
biýnustu nauðþurftum. Leita verð-
ur leiða til að lækka þennan kostnað
með það að markmiði að íslending-
ar þurfi ekki að greiða meira fyrir
mat sinn en aðrar þjóðir. Það er
mikilvægasta atriðið til að bæta
lífskjörin. Skipulag og uppbygging
þeirra atvinnugreina, sem framleiða
neysluvömr verður því að byggjast
á hagkvæmni og meginforsendan
fyrir því er sú að kostir fijálsrar
verðmyndunar njóti sín. Stjómvöld
ættu því að huga að öðmm leiðum
en kvótafyrirkomulagi og víðtækri
framleiðslustjómun því annars
verður ekki séð að hægt verði að
varðveita þann góða árangur sem
náðst hefur í viðureigninni við verð-
bólguna.
Yfirlýsingar landbún-
aðarráðherra að engn
hafandi
Á síðasta þingi knúði Jón Helgá-
son landbúnaðarráðherra fram
löggjöf sem veitti honum heimild
til að leggja allt að 200% verðjöfn-
unargjald á innfluttar kartöflur og
vömr unnar úr þeim. Við umræður
á Alþingi lýsti hann því yfir að
þetta gjald mundi ekki valda verð-
hækkunum til neytenda. Sú stað-
hæfing var röng. Afleiðing af þeirri
geðþóttaákvörðun Jóns Helgasonar
að leggja á umrætt verðjöfnunar-
gjald leiddi tit þeirrar hækkunar á
framfærsluvísitölu sem varð til þess
að hækkun vísitölunnar varð meiri
en viðmiðunarmark kjarasamninga
gerði ráð fyrir. Afleiðingin af þess-
um gerðum ráðherra leiðir til þess
að um 200 milljónir skipta um hend-
ur miðað við heilt ár. Launakostnað-
ur atvinnurekenda hækkar sem því
nemur, en það kemur launþegum
hins vegar ekki til góða því þeir
gfreiða það til baka í hækkuðu vöm-
verði. Þetta litla dæmi sýnir glöggt
hve mikill kostnaðurinn er sem fólg-
inn er í rangri stefnu og gefur
jafnframt vísbendingu um hvað það
skiptir miklu máli til að auka hag-
sæld í landinu að matarverð lækki.
Jón Magnússon
„Allt of stór hluti tekna
heimilanna rennur því
til kaupa á brýnustu
nauðþurftum, Leita
verður leiða til að
lækka þennan kostnað
með það að markmiði
að Islendingar þurf i
ekki að greiða meira
fyrir mat sinn en aðrar
þjóðir.“
í dag fékk ég þær upplýsingar
að verð á kartöflum væri 50% hærra
en á sama tíma í fyrra. Verðjöfnun-
argjald landbúnaðarráðherra veldur
þar miklu en einnig það, að því er
virðist að samkeppni á markaðnum
er ekki virk, vegna þess að söluaðil-
ar sem í raun starfa fyrir framleið-
endur hafa nánast samræmt verð
sín á milli. Slíkt er eftir þvf sem
ég best fæ séð brot á lögum um
verðlag, samkeppnishömlur og
hringamyndanir, sem sett eru til
að vemda neytendur. Þegar verðlag
á matvörum var gefíð fijálst, var
það undirstrikað af Neytendasam-
tökunum að þau teldu það til bóta
enda væri þá við það miðað að sam-
keppni um verðlagningu skilaði sér
til neytenda. Jafnframt var á það
bent, að verðlagsyfirvöld þyrftu
stöðugt að vera á varðbergi gegn
samkeppnishömlum sem miðuðu að
því að halda uppi verðlagi á einstök-
um vörum. Séu þær staðhæfingar
réttar sem settar eru fram hér að
framan um samráð stærstu söluað-
ila á kartöflum um verðlagningu
þeirra verður að setja þær undir
verðlagsákvæði á ný. Slíkt er í raun
þrautalending og íjarri því að vera
góð, en er samt sá öryggisventill
sem verður að nota þegar markaðs-
starfsemin er trufluð hvort sem um
er að ræða kartöflur eða aðrar vöru-
tegundir. Frá því að Grænmetis-
verslun landbúnaðarins geispaði
golunni, blessuð sé minning henn-
ar, hefur meðferð, framboð, gæði
og verðlagning kartaflna verið með
mun betra hætti. Það er því illt til
þess að vita, að stjómvaldsákvarð-
anir eins og þær sem landbúnaðar-
ráðherra beitti sér fyrir í sumar
skuli valda þeirri röskun á mark-
aðnum að grípa þurfi til neyðarúr-
ræða.
Fyrir neytendur eða
framleiðendur?
Það er ekki hægt að samþykkja
það, að stjómvöld beiti sér stöðugt
fyrir aðgerðum sem hækka vöru-
verð til neytenda. Það er ekki heldur
hægt að samþykkja það að ákveðn-
um framleiðsluþáttum sé haldið
uppi á kostnað neytenda. Vömverð
á brýnustu nauðsynjavörum þarf
að lækka og það gerist ef stjóm-
völd láta af því að taka fram fyrir
hendumar á framtakssömum,
dugmiklum framleiðendum. Neyt-
endur krefjast þess að stjómvöld
fylgi ákvæðum laga um neytenda-
vemd og komi í veg fyrir samkeppn-
ishömlur og óeðlilega verðlagningu
í stað þess að þau leitist við að
hækka vöruverð með aukinni mið-
stýringu og kvótakerfi. Slíkt er
tímaskekkja sem rýrir hag heimil-
anna.
Reykjavík, 10. september 1986
Höfundur er fyrrverandi formað-
ur Neytendasamtakanna og var
varaþingmaður Sjádfstæðisfiokks-
ins.
Flugleiðir:
Vetraráætlun í innanlandsflugi
Vetraráætlun Flugleiða í inn-
anlandsflugi tók gildi á mánu-
dag, 15. september. Hún verður
með svipuðu sniði og sl. vetur
og verða áfangastaðir samtals
tíu. í tengslum við áætlunarferð-
ir frá Reykjavík, verður síðan
framhaldsflug til hinna ýmsu
áfangastaða, sem Flugfélag
Norðurlands, Flugfélag Austur-
lands og Flugfélagið Ernir
annast.
Þegar vetraráætlun verður í há-
marki, verður 31 ferð í viku milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Fjórtán
verða til Egilsstaða, fjórar til
Hornafjarðar, sex til Húsavíkur, en
þangað verður flogið alla daga vik-
unnar nema laugardaga. Til ísa-
Ijarðar verða 13 ferðir í viku, þijár
til Norðfjarðar, ijórar til Patreks-
Qarðar, sex til Sauðárkróks, 17 til
Vestmannaeyja og tvær ferðir til
Þingeyrar. Um jól, áramót og páska
verður ferðum fjölgað eins og
endranær.
í vetur verður einnig boðið upp
á sérstakar helgarferðir til
Reykjavíkur og einnig frá
Reykjavík til Akureyrar, Egils-
staða, Hornafjarðar, Húsavíkur,
ísafjarðar og Vestmannaeyja. Til
dæmis kostar helgarferð frá Akur-
eyri til Reykjavíkur 5.359 krónur
og er þá miðað við að gist sé í tvær
nætur í tveggja manna herbergi. í
Reykjavík er hægt að velja um
Hótel Esju, Hótel Loftleiðir, Hótel
Sögu, Hótel Borg og Hótel Óð-
insvé. Frá Reykjavík til Akureyrar
kostar helgarferð frá 4.869 krón-
um. Þar er hægt að velja um
gistingu á Hótel KEA, Varðborg,
Hótel Akureyri, Hótel Stefantu og
Gistiheimilinu Asi. Á Egilsstöðum
er dvalið í Valaskjálf eða Gistihús-
inu Egilsstöðum. Á Hornafírði er
það Hótel Ilöfn og á öðrum stöðum
Hótel Húsavík, Hótel ísaQörður og
í Vestmannaeyjum er gist á Gest-
gjafanum.
BARNA-
SKÓR
Stærð: 20—27
Litir: blátt,
hvítt,
rautt,
grátt.
Verd1.
998,-
5% staðgreiðölu-
afsláttur
21212
SÖLUMAÐUR -
HEILDVERSLUN
Heildverslun sem er að selja sumarfatnað, vill
komast í samband við sölumann, karl eða konu,
sem gæti keypt vörulager. Mtkill afsláttur. GóA
vara. Fjögurra mánaða greiðslufrestur, vaxta-
laust.
Upplýsingar sendist augld. Mbl. fyrir fimmtudag-
inn 20. þ.m. merkt: „Gott tækifæri".
Reimar og
reimskífur
Tannhjól
og keðjur
Belgtengi
Ástengi
Vald Poulsen
Suðurlandsbraut 10,
sími 686499.
SOEHNLE
TÉKKVOGIR
ÍOO kg. x 200 gr.
| Úr ryðfríu stáli
Eigin þyngd,
aóeins 44 kg.
OlAIUK GlSIASOVI
A CO. HF.
SUNDABORQ 22 104 REYKJAVlK SlMI S4BOO