Morgunblaðið - 16.09.1986, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Byggðaröskun, byggða-
þróun, byggðajafnvægi
Smiöjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.
VERKSMIIMU
Fullt hús af góðum og
fallegum fatnaði á algjöru
lágmarksverði.
Dæmi:
Góðar buxur á 350 kr.
Skór frá 250 kr.
Jogging-gallar á 1.590 kr.
Pólóbolir á 400 kr.
Úlpur frá 1.290 kr.
Útsalan verður í fullum
gangi út september. Og
ekki þarf að ottast voru-
þurrð þótt mikið seljist
því alltaf bætast við nýjar
vörur. L-í'- i: I
H - húsið
4
AUÐ B R E K KU - KOPAVOGI í
Opið: 10-19 virka daga/10-17á laugardögum
— eftirBjörn
Dagbjartsson
Tvær skýrslur um byggðamál
sem nýlega eru komnar út hafa
vakið nokkra athygli og umræðu.
Báðar eru þær unnar að frumkvæði
Alþingis þó ólíkar séu að upp-
byggingu, málsmeðferð og niður-
stöðum. Skýrsla svokallaðrar
„Landnýtingamefndar" hefur verið
gagnrýnd harkalega m.a. af þing-
mönnum Framsóknarflokks (og
Alþýðubandalags að ég held) fýrir
að því er virðist raunsæja málsmeð-
ferð og ályktanir um líklega þróun
og skynsamlega. Hin, skýrsla
„Byggðanefndar þingflokkanna",
hefur einkum vakið athygli fyrir
uppriQun á staðreyndum um þróun
í búsetu manna á íslandi og tillögu
meirihluta nefndarinnar um „þriðja
stjómsýslustig" sem á að breyta
því hvar menn setjast að á landinu.
Framsóknar-
áratugnrinn
Hvað sem þessum skýrslum
viðvíkur þá er mikið rætt um það
úti á landi um þessar mundir að
fólk flytjist frá landsbyggðinni til
Reykjavíkur og nágrennis. Það er
svo sem ekki í fyrsta sinn sem
byggð á íslandi raskast með þessu
móti. Ef við lítum bara til allra
síðustu ára, t.d. frá 1971 þegar
„Framsóknaráratugurinn" hófst,
hefur þróunin verið stöðug í þessa
átt með einstökum uppstyttum á
milli. Á þessu árabili hefur Fram-
sóknarflokkurinn löngum farið með
landsbyggðarráðuneyti, landbúnað-
ar og sjávarútvegs. Hveiju á nú að
fara að breyta sem framsóknarráð-
herrar hafa ekki getað gert í 15
á? Halda þeir að fólk mæni nú von-
araugum til Framsóknarflokksins
um breytingar á byggðaþróun? Hitt
er þó alveg vist að þessi sifelldi
söngur um að landsbyggðin sé
að fara i auðn og að sífellt sé
níðst á þeim sem úti á landi búa,
það ýtir undir og flýtir fyrir
byggðaröskuninni. Forsöngvarar
í þessum bölmóðskór eru framsókn-
armenn, dyggilega studdir af
Alþýðubandalagsfólki.
Þriðja stjórnsýslustigið
Það hefur vafist fyrir ýmsum að
skilja hvað feist í hugmyndum um
þriðja stjómsýslustigið. Enn ver
gengur sumum að trúa því að breyt-
ing í þá veru muni hafa veruleg
áhrif á þróun byggðar.
Það er þó ljóst að þriðja stjóm-
sýslustigið, hvort sem það yrði til
í formi fylkja, sem samtök um jafn-
Björn Dagbjartsson
„Hitt er þó alveg víst
að þessi sífelldi söngur
um að landsbyggðin sé
að fara í auðn og að
sífellt sé níðst á þeim
sem úti á landi búa, það
ýtir undir og flýtir fyr-
ir byggðaröskuninni.
Forsöngvarar í þessum
bölmóðskór eru fram-
sóknarmenn, dyggilega
studdir af alþýðu-
bandalagsf ólki.“
rétti milli landshluta boða, í formi
„súpersýslunef nda“ sem aðrir
virðast hugsa sér, eða með enn
öðmm hætti, mun stækka stjóm-
sýslubáknið og auka skrifræði í
landinu. Það er einkennilegt að tals-
vert þessara breytinga virðast
hafna hugmyndum um sammna og
stækkun sveitarfélaga. Þar ætti þó
ÞINGFLOKKUR Bandalags jafn-
aðarmanna fagnar því að loksins
skuli menn þora að gefa fiskverð
frjálst, segir í frétt frá BJ.
„Þó hér sé aðeins um eina fisk-
tegund að ræða og þó verðfrelsi
gildi aðeins í mánuð er þetta stórt
framfaraspor. í Qögfur ár hefur
frjálst fiskverð verið eitt aðalbar-
áttumál Bandalags jafnarmanna af
þeirri einföldu ástæðu að það er
forsenda þess að rekstur sjávarút-
vegs standi á traustum gmnni.
Það vekur undmn hve hikandi
að gilda sem áður að „sameinaðir
söndum vér en sundraðir föllum
vér“.
Er til leið til
byggðajafnvægis
Töluverðu fé hefur verið varið á
undanfömum ámm til atvinnusköp-
unar og uppbyggingar í dreifbýli.
Það hefur víða tekist að hindra
fólksfækkun meðan framkvæmdir
hafa staðið sem hæst, en sótt hefúr
í sama farið þegar alvara lífsins og
hinn eiginlegi rekstur „byggða-
stefnufyrirtækjanna" hefur átt að
sjá um framhaldið. Þessi aðferð
eymamerkts íjármagns til dreif-
býlisframkvæmda virðist ekki hafa
dugað þó að hugsanlega væri
ástandið enn verra án byggðasjóða
fortfðar og nútímans.
Hvað dregur fólk til höfuðborgar-
svæðisins? Ymsir telja að þar vegi
líklega þyngst nægilegt framboð á
tiltölulega vel launuðum, þægileg-
um þjónustustörfum, ekki síst hjá
opinberum stofnunum, samkvæmt
dularfullum lögmálum em þær allar
staðsettar í Reykjavík.
Sé þetta rétt þá gæti verið ein
leið fær til að draga úr eða hindra
byggðaröskun af þessum orsökum.
I stað þess að beijast sífellt fyrir
fjölgun eða flutningi ríkisstofn-
ana og rikisstarfsmanna út á
landsbyggðina mætti fækka þeim
í Reykjavík. Með því að leggja
niður eins og 1.000 eða 2.000
opinber störf í Reykjavík mundi
fólksflóttinn úr sveitum þangað
örugglega snarstöðvast. Fækkun
rfkisstofnana er efni í aðra grein.
Höfundur er þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
og hræddir menn em að taka þetta
skref í átt til þeirra viðskiptahátta
sem tíðkast á Vesturlöndum, þrátt
fyrir að ljóst er að íslendingar hafna
áætlunarbúskap austantjaldslanda
sem viðheldur illa reknum fyrir-
tælg'um og heldur niðri launum.
Nú þarf fískvinnslan að taka
300.000.000 kr. lán erlendis til
rekstrar í mesta góðæri íslandssög-
unnar. Því hvetur Bandalag jafnað-
armanna til að verðákvörðun allra
fisktegunda verði gefín frjáls þar
sem það er eina varanlega lausnin
á sífelldum vanda sjávarútvegsins."
Bandalag jafnaðarmanna:
Frjálsu fiskverði fagnað
Kennsla hefst 2. október.
Byijendur (yngst 5 ára) og framhaldsnemendur.
'inritun í síma 72154 kl 11-19.
Einnig býður skólinn upp á kennslu í spænskum
dönsum: FUWIENCO, JOTA SEVILLANAS o.fl.
Félag íslenskra listdansara.
Kennslukerfi:
ROYAL ACADEMY OF DANCING
RUSSIAN METHOD
BALLETSKÓLISIGRÍOAR ÁRmAAA
SKÚLAGÖTU 32-34 <►<►<►
GYLMIR/SlA