Morgunblaðið - 16.09.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
19
vatnsins
Myndir
Békmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Undirtitill Liber occultus vox
er: „Ljóðið skilgreint sem spá-
dómseiginleiki, sálgTeiningar-
form og táknhrynjandi fyrir
uppbyggingu forms/farvegs inn
í Alheiminn."
Einar Eldon fer greinilega dul-
spekislóðir, en lætur ekki hjá líða
að greina frá tilgangi sínum, skýra
viðleitni sína. Hann leggur mikið
upp úr þeim boðskap sem felst í
eftirfarandi orðum: „Frumorkan
eins og við fyrst skynjum hana er
tvíkynja. Og ef litið er á æðstu
guði sögunnar eru þeir flestir
tvíkynja". Sett í ljóðlínur er þetta
niðurstaðan: „Lífið er eins ljótt og
nauðsynlegt og kvenmannslíkami./
Dauðinn er eins fallegur og nauð-
synlegur og karlmannslíkami". Líf
og dauði eru „tvær hliðar sama
ástands“.“
Langir prósatextar með ljóðrænu
ívafi túlka dulspekilærdóma Einars
Eldons og ljóðin í bókinni eru á
sömu nótum:
í gegnum minnið
flýtur Liljan
fómfærð í brunni lífsins
ferðast klædd
skrautlegu munstri
um sögur er pólar tveir virlq'ast
í særingum alheimsins
Snertir hörund hins fagra umbreytis
er sendir út vitundarboga
slegið bergmál
eld hins innra
dyr þessar opna fræ akursins
í hugum veraldlegra ofskynjana.
Þetta sýnishom er kannski ekki
besta dæmið um ljóðagerð Einars
Eldons. í ljóðunum eru fallegar
línur sem gjalda þess að standa
með öðrum lakari. „Á flóðinu tala
ég ávallt til þín/ með myndum
vatnsins“ er góð lína, en „ofinn
samhljómur hijúfra handa/ hér til
að upplifa líf‘ er lína sem þyrfti
að orða betur, er í raun óort þótt
hún sé skrifuð. Sama gildir um
margt í þessum ljóðum. Þau eru
flest of losaraleg. En það er vilji
til að gera vel og margt bendir til
þess að með meiri ögun geti árang-
urinn orðið betri en í Liber ocultus
vox. Dulúð er hluti alls skáldskapar
og góð í hófí, en getur vægast sagt
tröllriðið skáldum séu þau ekki á
varðbergi.
Alþjóðleg hryðjuverk
Békmenntir
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Jillian Becker: The Soviet
Connection: State Sponsorship
of Terrorism, Institute for
European Defence & Strategic
Studies, 1985.
Það fer ekki fram hjá neinum,
sem á annað borð fylgist með al-
þjóðamálum eða ferðast í öðrum
löndum, að hryðjuverk eru orðin
alvarleg plága í Vestur-Evrópu. Nú
í sumar hefur hryðjuverkastarfsem-
in haft þau áhrif, að verulega hefur
dregið úr ferðamannastraumi á
þessu svæði. Flestum er sennilega
í fersku minni, hve aðgerðir Banda-
ríkjamanna komu Evrópumönnum
úr jafnvægi sl. vetur. Fæstir velta
hins vegar fyrir sér orsökum þess,
að gripið er til hryðjuverka. Um það
efni eru enda skoðanir manna mjög
skiptar. Hvaða aðgerðir eru réttlæt-
anlegar til þess að vinna bug á
hryðjuverkum? Það er alla vega
ekki réttlætanlegt að grípa til þeirra
ráða, sem svipta þegna þeirra ríkja,
sem fyrir hryðjuverkunum verða,
hefðbundnum réttindum sínum.
Þau eru ekki allt of mörg ríkin í
veröldinni, sem leyfa þegnum sínum
að stjóma lífi sínu sjálfir að vem-
legu leyti. Flest þeirra em í
Vestur-Evrópu, sem einnig virðist
vera helzta skotmark hryðjuverka-
manna.
í meginatriðum skiptast menn í
tvo hópa, þegar rætt er um orsakir
hryðjuverka. Annars vegar halda
menn því fram, að ýmsar stað-
bundnar orsakir valdi því, að menn
telji sig knúna til að fremja hryðju-
verk. I þessum hópi em ýmist þeir,
sem vilja afsaka hryðjuverk og telja
þau réttlætanlega baráttuaðferð
fyrir málstað, ekki hvaða málstað,
sem er, heldur þeim málstað, sem
á sér gildar ástæður. Þetta má segja
um ýmsa, sem em hlynntir málstað
palestínumanna. Svo em þeir, sem
telja hryðjuverk aldrei réttlætanleg
neinum málstað til framdráttar.
Sumir þeirra, sem hvað harðast
fordæma hryðjuverk ýmissa borg-
arskæmliða í Vestur-Evrópu virð-
ast vera þessarar skoðunar. Hins
vegar em þeir, sem telja að stað-
bundnar ástæður hafi ekki úrslita-
áhrif, heldur séu hryðjuverkin hluti
af átökum austurs og vesturs og
Sovétríkin standi að. baki, að
minnsta kosti óbeint, ýmsum þeim
hryðjuverkum, sem framin hafa
verið á síðustu ámm og áratug.
Jillian Becker er í seinni hópnum.
Og í því riti, sem hér er til umfjöll-
unar, reynir hún að leiða rök að
því, að Sovétríkin leiki stórt hlut-
verk í hryðjuverkum Vestur-
Evrópu, ekki með því að styðja
hryðjuverkamennina beint, því að
það væri of hættulegt, heldur með
því að veita þeim stuðning í gegnum
ýmis fylgiríki sín í Austur-Evrópu
eða til dæmis Kúbu. Skoðun hennar
er ekki sú, að þessum hópum sé
algerlega stjómað frá Moskvu, enda
væri það fráleit skoðun. Hins vegar
reyni Sovétmenn, eins og þeir
mögulega geti, að físka í gmggugu
vatni.
Rökin, sem Becker færir fram
fyrir skoðun sinni, em ívitnanir í
heimsbyltingaráform sovézkra
marxista, aðallega Leníns, sú stað-
reynd að hryðjuverk eiga sér ekki
stað, svo vitað sé, í Austur-Evrópu
eða Sovétríkjunum, en eiga sér hins
vegar stað hvað eftir annað í Vest-
ur-Evrópu. Auk þess liggja fyrir
ýmsar upplýsingar, sem benda til
þess, að Sovétmenn styðji skæm-
liðahreyfingar í Vestur-Evrópu.
Hún leggur nokkuð upp úr morð-
tilræðinu við páfann í Róm, en ég
held, að skoðun bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins á því máli sé
sennilegri: Ekki sé um að ræða
skipulegt samsæri, sem Sovétmenn
standi að baki.
Af þeim rökum og upplýsingum,
sem borin em á borð í þessu riti,
er ekki hægt að draga neinar stór-
ar ályktanir, eins og Jillian Becker
vill. Það þarf engum í sjálfu sér að
koma á óvart, að Sovétmenn físki
í gmggugu vatni. En allt, sem hér
er sagt, bendir ekki til neinnar
skipulegrar áætlunar af hálfu Sov-
étmanna. Auðvitað em upplýsingar
af skomum skammti um þessi efni,
en þær þurfa að vera ítarlegri áður
en hægt verður £ið fallast á skoðun
Becker.
Hún leggur ýmislegt til í úr-
bótaskyni. Ein tillaga hennar er sú,
að þess sé ævinlega getið í fréttum,
hvort skæmliða- eða þjóðfrelsis-
hreyfingar séu studdar af Sovét-
mönnum eða ekki. Hún nefnir sem
dæmi Afríska þjóðarráðið, sem sé
bersýnilega stutt af Sovétmönnum,
enda hafi það komið fram í skýrslu,
sem lögð var fyrir dómsmálanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings í
nóvember árið 1982, svokallaðri
Denton-skýrslu, sem fjallaði um
öryggi og hryðjuverk. Ég veit ekki,
hvort svoría nýbreytni hefði áhrif,
en það er rétt, að sönn lýsing á
því, sem um er rætt, er ævinlega
til bóta.
Ballettskóli
Eddu^
Scheving
Kennsla hefst í byrjun október. Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi
fyrir alla aldurshópa frá 5 ára.
Innritun og upplýsingar í síma 38360 kl. 12— 15 og 20—21.
Afhending skírteina fimmtudaginn 2. október kl. 15—19.
Félag íslenskra listdansara
Danskennarasamband íslands
POKSra^.-
f/W46WM 1986^1
STÓRKOSTLEG HELGI
FRAMUNDAN! LAUCARDAGSKVÖLD
☆ ☆ ☆
☆ ☆
Um næstu helgí mHBLe *«?
verður að vanda ; -
míkíft nm aft . áÉ&k
. 1
míkiðumað
vera í ÞÓRSCAFÉ. gi
\ ^ orm '."i ,
Dans- og ———*
dægurlagasveítín
SANTOS og SONJA
leíka fyrir dansí. \ \
Jón Möller leíkur V \ »V \ a \
ljufadínnertónlíst k'x 1 ” '
fyrir matargestí. I-
ÓMAR RAGNARSSON skemmtír matargestum
ásamt undírleíkara sínum Hauki Heiðar. Þeír
félagar flytja glænýja og bráðfyndna skemmtí-
dagskrá sem kitlar hláturstaugamar svo um
munar.
Á matseðlínum er fjórréttuð glæsímáltíð:
Forréttur: Muníð að panta borð
!2íSrPPAS0PA 1 t,ma hja veitin9astJÓra í
innbökuð laxasneið síma 23335.
Athugíð: Um síðustu helgi
var uppselt.
*
\ A ■
IMi.
i
Aðalréttur:
LÉTTSTEIKT LAMBAFILLÉ
Eftirréttur:
HNETUTRIFFLE
Ómar Ragnarsson
Húsíð opnað
kl: 20.00
Jón og Ólí sjá um að spíla öll nýjustu lögín í dískótekínu.
Dískótekíð opnar kl: 20.00 opíð tíl kl. 03.00
Snyrtílegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára.
ÞÓRSCAFÉ; STÖDUGT FiÖR í 40 '
ÉHiiwæ
☆ it