Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1986
Vegna Valtýs
Péturssonar
- eftir Hallgrím
Helgason
Undanfarin þrjú ár hef ég haldið
einar sjö einkasýningar hér í borg
og stendur nú sú áttunda yfir í
sýningarsalnum Hallgerði á horni
Laufásvegar og Bókhlöðustígs. Inn
á tvær af þessum sýningum hefur
rekist inn maður að nafni Valtýr
Pétursson og er einatt kynntur sem
„þjóðkunnur listmálari" á síðum
Morgunblaðsins, en skrifar jafn-
framt myndlistargagnrýni í það
sama blað. Það vill svo til að í öll
þessi þijú skipti hef ég sjálfur verið
viðstaddur skemmtilegar innkomur
Valtýs og lengi eftir á getað dáðst
að þeirri árvekni og snerpu sem
hann virðist búa yfir og vera eld-
fljótur að átta sig á þeim fjölda
mynda sem ég hef á borð fyrir
hann borið og aldrei hafa verið
færri en á fímmta tuginn og stund-
um hátt á annað hundrað. Því að
í kjölfar hins andstutta innlits hafa
síðan ætíð fylgt nokkrir dálkar af
mis-föðurlegri umfjöllun um þenn-
an „unga og óráðna listamann" í
skjóli fasteignaauglýsinga á innsíð-
um Morgunblaðsins. Og enn á ný
hef ég orðið fyrir því óhappi að
Valtý hefur tekist að hafa upp á
verkum mínum sem ég reyndi þó
að hóa saman á lítinn og óþekktan
stað. í Morgunblaðinu í dag, 10.
september, birtist sem sagt, af
ýmsum ástæðum ekki langur, „list-
dórnur" um sýningu Hallgríms í
Hallgerði.
Og enn vill svo heppilega til, í
þriðja skiptið, að ég er sjálfur við-
staddur þegar gagnrýnandinn
gengur í salinn. En lærður af fyrri
reynslu hef ég vaðið fyrir neðan
mig í þetta sinn og tek af ná-
kvæmni tímann sem líður frá því
að dyr opnast og þar til þær lokast
á ný. Eg get því glatt lesendur
Morgunblaðsins með því að Valtýr
bætti tíma sinn verulega frá fyrri
sýningum og hefur hér að öllum
líkindum sett persónulegt met: 57
sekúndur. Frúin þurfti því sannar-
lega ekki að hafa fyrir því að finna
stæði né drepa á bflnum en gat
beðið róleg eftir þvf að bóndi henn-
ar tæki út stöðuna hjá yngstu
kynslóð myndlistarmanna. En af
þessum 57 sekúndum fóru sex nið-
ur tröppumar, tíu í gestabókina,
átta í spuminguna „Hallar veggur-
inn? Er þetta útveggur?" og svar
við henni auk sex sekúndna í tröpp-
ur á upp- og útleið. Þetta gera 30
sekúndur og þá eru eftir 27 sem
ætti að vera nokkuð rúmur tími til
þess að skoða þær 37 olíumyndir
og 16 teikningar (auk annarra
143ggja í bók) sem sýningin telur.
Ekki minnist hann á nokkrar teikn-
ingar í dómi sínum svo sjálfsagt
hafa þær farið fyrir ofan gleraugu
og neðan, og ef við gerum ráð fyr-
ir því að hann hafi sleppt eins og
tíu málverkum, sem ekki ættu að
vera óalgeng hlutföll fyrir mann í
hans stöðu, þá er eftir ein sekúnda
á mynd. Nú er sjálfsagt nokkuð
glöggt það auga Valtýs Péturssonar
sem gægist yfir gleraugu hans og
e.t.v. jafn glöggt þvf hinu sem hann
gýtur á eigin striga, en þó held ég
að enginn erfi það við mig þó ég
tæpi hér aðeins á þeim vinnubrögð-
um sem liggja að baki myndlistar-
greinum hans og ættu samt sem
áður að liggja í augum uppi við
lestur þeirra.
Nú hef ég ekki áður haft eirð í
mér til þess að æsa mig yfir þessum
skrifum Valtýs en nú nenni ég ekki
lengur að brosa við þessu meinleys-
islega hjali sem með tímanum
Á meðan þú lest þessa auglýsingu
verða til 60 Ijósrit í U-BIX
Ijósritunarvélum á íslandi. Að
meðaltali eru það 5 Ijósrit á
sekúndu, allan daginn, allan ársins
hring. Það er vegna þess að U-BIX
Ijósritunarvélarnar eru öflugar og
hraðvirkar, hljóðlátar og einfaldar í
notkun og hafa lága bilanatíðni.
U-BIX Ijósritunarvólar fást í 12
mismunandi útfærslum, eru með
sjálfvirka lýsingu og yfirleitt allt það
er prýðir góðar Ijósritunarvélar. Þess
vegna er U-BIX sjálfsagður kostur
þegar Ijósritun er annars vegar.
U-BIX LJÓSRITUNARVÉLAR
VERÐ FRÁ.......KR. 72.000 stgr.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560
Helstu söluaðilar: Bókaversl. JónasarTómassonar ísafirði • Bókaversl. Þórarins
Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th. Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f.
Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga hJf. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum
Hallgrímur Helgason
verður ekki annað en eintóm van-
virðing og andlegur dónaskapur.
Því það sorglegasta er að á þessum
síðum eina stórblaðsins sem út kem-
ur hér á landi skuli birtast þessar
greinar sem ekki hafa hin minnstu
áhrif nema helst á meðal bama og
gamalmenna. Og reyndar eru þessi
áhrif svo lítil að þau snúast jafnan
við og verka öfugt á fólk. Það sem
Valtýr leggur blessun sína yfir á
sér varla viðreisnar von eftir það
og því sem hann hallmælir geta
menn nokkuð vel treyst til þess að
vera gott. Það er fyrmefndu áhuga-
leysi hans að kenna, almennri
vanþekkingu á nýjungum auk óná-
kvæmni sem alltaf slæðist inn í
greinar hans. Hann fer rangt með
nöfn, segist ekki átta sig á því hvert
maður sé að fara (enda þá löngu
farinn út sjálfur), notar klisjur eins
og „einhverskonar súrrealismi“ sem
sveitamenn grípa jafnan til þegar
eitthvað framandi fyllir augu þeirra,
setningar eins og „persónulega
finnst mér“ sem aldrei ættu að
finnast í texta gagnrýnenda. En í
þessu mínu tilviki sendi ég út ítar-
lega fréttatilkynningu þar sem ég
gaf vissar vísbendingar gáfuðum
listáhugamönnum, en hún tekur að
vísu á aðra mínútu í flutningi.
Að lokum beini ég máli mínu til
Morgunblaðsins í eigin persónu,
sem er að sönnu blað allra lands-
manna og hefur talsverðan metnað
til að bera í menningar- og þjóðem-
isátt. Það er því grátlegt þegar það
dæmir sig algjörlega úr leik í þeirri
umræðu og umfjöllun sem nauðsyn-
leg er okkar ftjóa listalífi og
óneitanlega er til staðar hjá hinum
blöðunum. Það er bara ekki tekið
mark á Mogganum sem væri
kannski ókei ef hann væri ekki les-
inn af sjálfri þjóðinni þar sem margt
síast inn að lokum. Þá hef ég heyrt
hjá kunningjum mínum úr öðmm
stéttum lista að þar sé ástandið í
gagnrýnismálum blaðsins ekki
skárra og í sumum jafnvel verra.
Hvemig væri nú að ráða víðsýna,
unga, sérmenntaða og duglega
menn í stað þeirra gömlu sem feta
aftur og aftur sína vikuvissu dálk-
sentimetra af gömlum vana. Þeir
gætu þá jafnvel haldið úti sérstök-
um „listasíðum“ í líkingu við
íþróttasíðumar eins og þeir gera
svo glæsilega á öðmm bæjum aust-
ar á nesinu.
Höfundur býr i Reykja vík og
starfar sem listmálari.
Agnar Friðriksson, Hörður Einarsson og Slimane Bendjedid, for-
stjóri og stjómarformaður Air Algerie, ræða málin í Algeirsborg
um síðustu helgi.
Verklok hjá Arnarflugi í Alsír:
Fluttu 52 þús-
und pílagríma
LOKIÐ er pUagrimaflugi Arnar-
flugs i Alsír á þessu ári og voru
fluttir alls 52 þúsund pilagrimar
frá sjö borgum í landinu til Jedda
i Sádi-Arabíu. Til þessa verks
voru notaðar fimm DC-8-61-
flugvélar, sem flytja 250 farþega
í hverri ferð.
Að auki tók Amarflug að sér
talsvert áætlunarflug fyrir Air Alg-
erie frá því í júlí og fram í þennan
mánuð. Flogið var milli borga í
Alsír og Frakklandi. Alls unnu 170
manns af fimmtán þjóðemum við
þetta verkefni. Höfuðstöðvar þess
vom í Jedda en auk þess var tölu-
verður fyöldi starfsmanna í þeim
borgum í Alsír, sem flogið var frá.
í fréttatilkynningu frá Amarflugi
segir að við lok verkefnisins um
síðustu helgi hafi þeir Hörður Ein-
arsson stjórnarformaður, Agnar
Friðriksson framkvæmdastjóri og
Goði Sveinsson átt fund með Slim-
ane Bendjedid, forstjóra Air Al-
gerie, og öðmm yfirmönnum
félagsins í Algeirsborg. Hafi heima-
menn þar lýst yfir mikilli ánægju
með frammistöðu Amarflugs í
pflagrímaflutningunum.
Niðurskurði fjárveitinga mótmælt
Á FUNDI framkvæmdastjórnar
Landssambands framsóknar-
kvenna 1. sept. sl. var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
„Framkvæmdastjóm Landssam-
bands framsóknarkvenna mótmælir
harðlega aðför menntamálaráð-
herra Sverris Hermannssonar að
jöfnum rétti bama til náms með
hugmyndum sínum um niðurskurð
fjárveitinga til skólaaksturs."