Morgunblaðið - 16.09.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER ,1986
Sigríður
dóttir —
Fædd 12. apríl 1906
Dáin 9. september 1986
Frú Sigríður Jóakimsdóttir frá
Hnífsdal lést 9. september sl., 81
árs að aldri. Hún fæddist 12. apríl
1906. Foreldrar hennar voru
Margrét Kristjana Þorsteinsdóttir
og fyrri maður hennar Jóakim Páls-
son í Hnífsdal, sem lést 35 ára að
aldri, er Sigríður var 8 ára.
Sigríður flutti til Reykjavíkur
sem ung stúlka og réðst til hús-
starfa hjá Kristni Péturssyni blikk-
smið og Guðrúnu Ottadóttur, sem
lengi bjuggu við Vesturgötu. Það
var á heimili þeirra, sem Sigríður
kynntist eiginmanni sínum, Snæ-
bimi Ólafssyni skipstjóra frá
Gesthúsum í Bessastaðahreppi, sem
var móðurbróðir minn.
Þau giftust 1927 og hófu búskap
í nýju húsi á Túngötu 32 í
Reykjavík, sem var heimili þeirra
um 25 ára skeið. Þau eignuðust 8
börn og komust 7 þeirra til fullorð-
insára. Þau hjón nutu sambúðar í
Jóakims-
Minning
54 ár. Snæbjörn lést fyrir tveimur
árum, 9. ágúst 1984.
Margir af vöskustu sjómönnum
landsins komu af VestQörðum hing-
að til Faxaflóahafna á 2. og 3. tug
aldarinnar. Þeir leituðu margir
starfa á togumm, sem fór sífjölg-
andi á þessum tíma. Margir þeirra
lærðu til skipstjómar í Stýrimanna-
skólanum, sem var undir stjóm
Páls Halldórssonar 1911—1935.
Hann var Vestfirðingur frá
Hnífsdal og frændi Sigríðar Jóak-
imsdóttur.
Tvær systur Sigríðar vom giftar
þekktum togaraskipstjómm. Helga
Jóakimsdóttir var gift Halldóri Ingi-
marssyni skipstjóra á Karlsefni og
hálfsystir Sigríðar, Margrét Elísa-
bet Hjartardóttir, var kona Bjarna
skipstjóra Ingimarssonar, bróður
Halldórs, og vom þeir frá Hnífsdal.
Aðalbjörg Jóakimsdóttir, systir
Sigríðar, var gift Geir Ölafssyni
loftskeytamanni sem var um langt
árabil í áhöfn Snæbjörns. Þau hjón
+
Eiginmaður minn, sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN FRIÐGEIRSSON,
Vfkurbakka 40,
Reykjavik,
lést laugardaginn 13. september sl.
Ásdís Magnúsdóttir,
Friðgeir Þorsteinsson,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn,
GUÐBJÖRN SUMARLIÐASON,
simvirkjameistari,
Birkimel 8,
lést í Landspítalanum að morgni laugardagsins 13. september.
Fyrir hönd ættingja og annarra vandamanna.
Valgerður Jónsdóttir.
+
Bróðir minn,
BALDVIN MAGNÚSSON,
málarameistari,
lést þann 7. september á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins iátna.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Ó. Magnússon.
+
Eiginkona mín, móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR,
Egilsgötu 26,
andaðist á Droplaugarstöðum föstudaginn 12. september.
Þórarinn J. Einarsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
FRIÐGEIR GUÐJÓNSSON,
vörubifreiðastjóri,
Álfhólsvegi 111, Kópavogi,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans þann 14. september.
Ólöf Sigurbjörnsdóttir,
börn, tengdasynir og barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir, sonur og afi,
SVEINN ÞORGRÍMSSON,
bifreiðastjóri,
Hlíðargötu 28, Sandgerði,
lést 13. september. Fyrir hönd aðstandenda,
Svanbjörg Eiriksdóttir.
voru meðal bestu vina foreldra
minna.
Heimili Sigríðar og Snæbjöms á
Túngötunni var frá upphafi mikil-
væg miðstöð fyrir ættingja, vensla-
menn og aðra sem völdust í áhöfn
Snæbjamar á 34 ára skipstjómar-
ferli hans. í minningarsafni
æskuára minna hefur heimili þeirra
sérstöðu.
Það var ekki fyrr en löngu síðar
á ævinni að það rann upp fyrir
manni, að hlutskipti eiginkonu tog-
araskipstjórans hlaut að hafa verið
erfitt oft á tíðum. Auk heimilis-
starfa á bammörgu heimili varð
Sigríður eins og aðrar sjómanns-
konur að sinna mörgum skyldum,
sem vanalega vom viðfangsefni
landvinnandi eiginmanna.
Persónutöfrar Sigríðar vom
miklir og í hugum okkar systkin-
anna skipaði hún ætíð sérstakan
tignarsess. Hún var glæsileg kona
og hið sérstæðá milda og tígulega
yfiibragð hennar heillaði. Það var
því mikið tilhlökkunarefni að koma
í heimsókn á Túngötuna til Snæa
frænda og Sigríðar.
Sigríður sýndi foreldmm mínum
og okkur systkinum alla tíð mikla
ræktarsemi og stuðning. I vina-
hópnum sem jafnan kom heim á
tyllidögum var Sigríður alltaf mætt.
Með henni kom líka Aðalbjörg syst-
ir hennar og eiginmenn þeirra þegar
þeir vom í landi.
Nú þegar Sigríður Jóakimsdóttir
er kvödd hinstu kveðrju, lýkur ævi-
ferli konu, sem hefur verið heilladís
og góður örlagavaldur í lífi Qöl-
skyldu okkar. Fyrir það allt þökkum
við af alhug. Við systkinin sendum
allri fjölskyldu hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Ólafur Jensson
í dag fer fram frá Dómkirkjunni
útför Sigríðar Jóakimsdóttur.
Sigríður andaðist í Hrafnistu í
Hafnarfirði 9. september sl.
Sigríður fæddist í Hnífsdal 12.
apríl 1906. Foreldrar hennar vom
Margrét Kristjana Þorsteinsdóttir
og Jóakim Pálsson útvegsbóndi á
Brekku í Hnífsdal.
Föður sinn missti Sigríður er hún
var átta ára gömul, vom þær þá
fimm systumar á lífi en þrjú systk-
ini Sigríðar létust í æsku. Erfitt er
fyrir okkur nútíma fólk að ímynda
okkur þá erfiðleika sem ung móðir
með fimm böm, það elsta tíu ára,
hefur þurft að glíma við eftir missi
eiginmannsins.
Móðir Sigríðar giftist aftur tveim
ámm eftir lát Jóakims Hirti Guð-
mundssyni.
Var Hjörtur þeim stjúpdætrum
sínum sem besti faðir. Hálfsystkini
Sigríðar vom fjögur, var systkina-
hópurinn því stór og oft glatt á
hjalla í Brekkubænum.
Mjög mikil samheldni og innilegt
samband hefur ávallt ríkt á milli
þeirra systkina gegnum árin og þau
stutt hvert annað í erfíðleikum.
Snemma fóm systkinin að vinna
fyrir sér og réðist Sigríður ung að
ámm í vist til þeirra hjóna Kristins
Péturssonar blikksmiðs og konu
hans í Reykjavík. Þar hitti hún
mannsefni sitt, Snæbjörn Ólafsson
skipstjóra, sem dvaldi þar á náms-
ámm sínum.
Gengu þau Sigríður í hjónaband
árið 1927. Eignuðust þau átta böm
en misstu einn son, komabam.
Böm þeirra em Guðfínna, Jóakim,
Margrét, Helga, Anna, Guðrún og
Ólafur Tryggvi.
Mann sinn missti Sigríður 10.
ágúst 1984 eftir fimmtíu og sjö ára
gæfuríka sambúð.
Sigríður starfaði meðan heilsan
leyfði í Kvenfélaginu Öldunni og
kvennadeild Slysavamafélags Is-
lands. Tók hún virkan þátt í starfí
þessara félaga.
Líf sjómannskonunnar er oft ein-
manalegt á dimmum vetrarkvöldum
þegar illviðri geisa. Ekki hvað síst
hefur þetta verið erfítt hjá Sigríði
með stóran bamahóp, er stríðstímar
geisuðu en eiginmaðurinn einhvers-
staðar á hafí úti, ef til vill í hildar-
leiknum.
Uppeldi barnanna hvíldi þvi fyrst
og fremst á móðurinni vegna fjar-
vem eiginmannsins sem stundaði
sitt starf af elju og dugnaði.
Við fundum það fljótt tengda-
bömin er við komum inn á heimili
þeirra hjóna, hversu vel Sigríði
hafði tekist að búa eiginmanni og
börnum þeirra hlýlegt og rausnar-
legt heimili.
Hlýtt viðmót og einlægni ein-
kenndi Sigríði tengdamóður okkar
og var gott að leita til hennar ef
erfiðleikar steðjuðu að, því ævinlega
var hún reiðubúin að hjálpa og að-
stoða.
Sigríður var trúuð kona og hefur
trúin vafalaust verið henni stoð og
styrkur í gegnum lífíð.
Við tengdabörn Sigríðar viljum
með þessum fátæklegu línum þakka
henni samfylgdina og góð kynni og
góðvild hennar og gæsku við böm
okkar.
Við vottum ættingjum hennar
dýpstu samúð á þessari kveðju-
stund.
Tengdaböm
Blömastofa
Friöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- éínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Maðurinn minn,
MAGNÚS AMLÍN,
Þingeyri,
andaðist 13. september.
Ingunn Angantýsdóttir.
+
Móðir okkar,
LIUA MAGNÚSDÓTTIR,
Langholtsvegi 200,
lést á Grensásdeild Borgarspitalans föstudaginn 12. september.
Börnin.
+
Útför eiginmanns míns, föður og tengdafööur,
STEINDÓRS ÁRNASONAR,
skipstjóra,
verður gerð frá Fossvogskirkju miövikudaginn 17. september kl.
10.30. Blóm og kransar afbeöin, en þeim sem vildu minnast hans
er vinsamiega bent á líknarstofnanir.
Guðmunda Jónsdóttir,
Jón Steindórsson, Guðný Ragnarsdóttir.
+
Útför elsku litlu dóttur okkar og systur,
SIGURBORGAR EVU SIGURÐARDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. september kl.
15.00.
Sigurður H. Sigurðsson, Þuríður Jónsdóttir
og systkini hinnar látnu.
+
Eiginmaður minn og fósturfaöir okkar,
JÓN KOLBEINSSON,
Hátúni 4,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. septem-
ber kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd eða aðrar
líknarstofnanir.
Valgerður Guðmundsdóttir,
Ella Kolbrún Kristinsdóttir, Pálina M. Kristinsdóttir.