Morgunblaðið - 01.10.1986, Page 7

Morgunblaðið - 01.10.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986 7 Margur bankabrandarinn var látinn fjúka á kynningarfundinum á Selfossi. Hér eru Stuðmenn að flytja lagið um Svarta Pétur, sem ruddist inn í banka og þeysti burt með digran sjóð. Iðnaðarbankinn: Alreikningur kynntur með nýstárlegum hætti FORRÁÐAMENN Iðnaðar- bankans boðuðu starfsmenn sína á óvenjulegan fund sl. sunnudag. í stað þess að sitja reykmettað fundarherbergi i húsakynnum bankans, var öllu starfsfólkinu, ásamt mökum, alls um 400 manns, boðið til kvöldverðar á Hótel Selfossi, en mikil leynd hvíldi yfir tilefni fundarins. Áður en snúið var heim á leið um kvöldið, voru starfs- mennirnir margs vísari um nýja þjónustu, sem bankinn mun bjóða viðskiptavinum sínum í byrjun næstu viku, auk þess sem þeir höfðu gætt sér á sjávarréttum að hætti Selfyssinga og hlýtt á hljómsveitina Stuðmenn. Bankinn mun hefja kynningu þessari nýju þjónustu í lok vikunn- ar, en um er að ræða nýjan reikning, svokallaðan „Alreikn- ing“ og verður hann kynntur með 0 INNLENT kjörorðinu „Einn fyrir alla.“ Fjöldi manns hefur unnið að undirbúningi „Alreikningsins" í langan tíma og mæltist það vel fyrir hjá starfsmönnum að þjón- ustan skyldi kynnt innan bankans á þennan nýstárlega máta. Þá hafa sérstakir fulltrúar í hvetju útibúi verið í nokkurra vikna þjálf- un og munu þeir halda áfram kynningunni á „Alreikningnum" á sínum vinnustöðum. „Það er mikilvægt að kynna starfsemina fyrir starfsfólkinu sjálfu," sagði Þorbjörg Kristín Jonsdóttir, aðstoðarmarkaðsstjóri bankans. „Það er endalaust hægt að eyða peningum í aukna og bætta þjónustu, en slíkt ber ekki árangur nema afgreiðslufólkinu sé einnig kunnugt um hvað um er að vera.“ Eftirvæntingin var mikil í salar- kynnum hótelsins áður en í ljós kom hvaða nýjung í þjónustu átti að kynna, en Stuðmenn styttu starfsfólkinu biðina með söng og leik og fluttu m.a. bankalagið vin- sæla um Svarta Pétur. Eftir matinn var svo dreift umslögum, sem ekki var leyfilegt að opna, fyrr en bankastjórinn, Valur Vals- son, kynnti innihald þeirra. Þegar leyndarmálið um „Alreikninginn" var upplýst, voru sýndar fimm sjónvarpsauglýsingar, sem koma væntaniega fyrir sjónir lands- manna um helgina. Stuðmenn héldu síðan áfram Artúnsbrekka: Tólf bifreiðar í f imm árekstrum TÓLF bifreiðar skemmdust í fimm árekstrum í Artúnsbrekku í gær og i fyrradag. Á mánudag skullu flórar bifreið- ar saman neðst í Ártúnsbrekku. Varð áreksturinn með þeim hætti að vörubifreið var hemlað snögg- lega, en við það snerist hún á veginum og skall utan í þremur bifreiðum. Talið er að Lada-bifreið hafi verið ekið í veg fyrir vörubif- reiðina frá afleggjara neðst í Bíldshöfða. Slysarannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík óskar eft- ir að ökumaður Lödunnar gefi sig fram, eða þeir sem vitni hafa orðið að atburðinum. í gærmorgun skemmdust átta bifreiðar í Ártúnsbrekkunni. Urðu árekstrar þeirra allir um áttaleytið um morguninn, en þó skullu ekki saman fleiri en tvær bifreiðar í einu. Þá skullu saman fjórar bifreiðar á Miklubraut við Skeifuna í gær. Engin meiðsli urðu á fólki í þessum óhöppum. að skemmta starfsfólkinu yfir kaffinu og var loks haldið heim á leið um miðnætti. Maður finnst látinn í íbúð sinni á Flat- eyri ísafirði: TÆPLEGA sextugnr maður fannst látinn í íbúð sinni á Flateyri sl. mánudag. Þar sem hann var einstæðingxir og ekki var fyllilega vitað hvernig dauða hans bar að höndum, fór lögreglurann- sókn fram eins og venja er. í ljós kom að maðurinn hafði lent í ryskingum aðfaranótt sunnudags og var sá sem þar átti hlut að máli yfirheyrður ásamt einhverjum öðrum. Að sögn sýslumannsins í Vestur- ísafjarðarsýslu, Péturs Haf- stein, er ekki ástæða til að tengja átökin dauða mannsins. Niðurstöður krufningar liggja ekki fyrir en sýslumaður telur ekki frekari aðgerða þörf í málinu að svo komnu. Úlfar Anna Aslaug Ragnarsdóttir Norrænir tónlistardagar Tónleikar í Langholtskirkju. ANNA Aslaug Ragnarsdóttir píanóleikari heldur einleikstónleika í kvöld í Langholtskirkju og hefiast þeir kl. 20.30. Tónleikamir eru hluti Norrænna tónlistardaga sem standa yfir þessa viku. Anna Aslaug mun flytja fjögur verk eftir norræn tónskáld. Verkin eru: „Akilles og skjaldbakan" (Achiles og skildpadden) eftir Per Nörgard, Turbulens-Laminar op. 93 eftir Ib Nörholm, Píanósónatan „Glerkaktus" eftir Tapio Nevanlinna og Fimm prelúdíur eftir Hjálmar R. Ragnarsson. V 9% hækkun á húsaleigu LEIGA fyrir íbúðarhúsnæði og at- vinnuhúsnæði hækkar um 9% frá og með októberbyijun 1986, sam- kvæmt tilkynningu frá Hagstofu íslands. *. ^ aó ^e' 5 ^ V’

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.