Morgunblaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986
Finnskir græningj-
ar stofna ekki flokk
Hclsinki, frá Lars Lundsten, fréttarítara Morgunbladsins.
FINNSKIR græningjar héldu um helgina þing og var þar ákveðið
að stofna ekki formlegan græningjaflokk. Tvær græningjar sitja nú
á 200 þingsæta þjóðþingi Finna. Hreyfingin hefur ekki formlegt
skipulag og mörgum græningjaforingjum hefur þótt brýn nauðsyn
að koma á einhvers konar skipulagi til að missa ekki fylgi i þing-
kosningunum í vor.
Græningjahreyfingin hefur frá
upphafi verið nokkurs konar mót-
mælahreyfing og andvíg stjómar-
háttum. Þeir, sem ekki vilja stofna
flokk græningja, segja að styrkur
hreyfingarinnar felist í því að gefa
öllum tækifæri til að taka þátt í
starfí hennar. Samkvæmt þeim er
formlegur flokkur ávallt háður leið-
togum sínum.
Engu að síður var u.þ.b. þriðj-
ungur þátttakenda á landsmótinu
þessa helgi hlynntur því að stofna
flokk. Þetta getur haft í för með
sér að hreyfíngin klofni. Þá er mjög
líklegt að græningjar tapi þingsæti
hvort sem fylgi þeirra eykst eða
minnkar.
París:
Enn fjölgar fórnar-
lömbum hryðjuverka
Parfg, AP.
UNG kona lést í gær af völdum
sára er hún hlaut þegar sprengja
sprakk fyrir framan fataverslun
í París þann 17. september. Fórn-
arlömb sprengjutilræðanna í
París í septembermánuði eru þvi
orðin tíu talsins.
Sprengjutilræðið fyrir utan versl-
unina kostaði sex manns lífíð en
35 særðust þar af 24 alvarlega.
Vitni kváðust hafa séð mann kasta
sprengju út um glugga á BMW-
bifreið sem ók framhjá versluninni.
Maðurinn reyndist vera Emile Abd-
allah en samtökin sem báru ábyrgð
Tækniafrek
Símamynd/AP
Hátt yfir Norðursjó gnæfir þetta mannvirki, sem Hollendingar hafa reist til að veija land ágangi
sjávar. Þegar hvessir falla gríðarstórar lokur að stöfum en vamargarðurinn er um sex kUómetrar
að lengd. Margir telja þetta eitt hið glæsilegasta mannvirki á sviði tækni og verkfræði sem reist
hefur verið.
á sprengingunni höfðu krafíst þess
að bróðir hans yrði látin laus úr
fangelsi.
Frönsk yfírvöld leita nú Emile
Abdallah og þriggja bræðra hans.
Þeir segjast hins vegar hafa verið
í Líbanon þegar atburðurinn gerð-
istv
í gær sendi Jóhannes Páll páfí
II sendi frönsku þjóðinni samúðar-
kveðjur og kvaðst biðja þess að lát
yrði á hermdarverkum þessum.
Páfí mun koma í heimsókn til
Frakklands í næstu viku.
Finnland:
Beðið eftir uppstokkun
í stjórnarsamstarfinu
Indversk flugvél
hætt komin í flugtaki
Nýju Delhi, Indlandi, AP.
NÍU SLÖSUÐUST þegar farþega-
vél frá Air India með 195 manns
innanborðs hætti við flugtak á
síðustu stundu og lenti utan flug-
vallar. Vélin var komin á mikla ferð,
þegar flugstjórinn veitti því athygli
að eldur var laus í vinstri vélar-
hreyfli. Vélin skemmdist mjög
mikið, en AP-fréttastofan telur að
með snarræði hafí flugstjórinn
komið í veg fyrir hörmulegt slys.
Þetta gerðist á flugvellinum í Madr-
as, en þaðan var vélin að fara til
Bombay.
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
Finnskir jafnaðarmenn og hægri-
menn í Kokoomus-flokknum hafa
komið mörgum á óvart með yfirlýs-
ingum um að flokkamir tveir gætu
mjmdað ríkisstjóm saman eftir
næstu þingkosningar sem haldnar
verða í mars 1987. Undanfarin tutt-
ugu ár hefur það fyrirkomulag ríkt
að jafnaðarmenn hafa myndað
ríkissjóm með Miðflokknum og
nokkrum smáflokkum. Stundum
hefur Kommúnistaflokkurinn einn-
igtekið þátt í stjómarsamstarfinu.
Nú virðast kratar vera orðnir
leiðir á því að formaður miðflokks-
ins, Paavo Váyrynen utanríkisráð-
herra, gerir allt til þess að búa sig
undir forsetakosningamar 1988.
Váyrynen er sá eini, sem hingað
Morgunblaðsins.
til hefur boðið sig fram. En hann
hefur einnig talað um að starfa
með hægri mönnum f ríkisstjóm
eftir þingkosningamar.
Hingað til hafa jafnaðarmenn oft *
getað látið Kommúnistaflokkinn SvíblÓðl
vega upp á móti Miðflokknum. En ---------ö-------*
nú er Kommúnistaflokkurinn end-
anlega klofnaður og getur varla
komið til greina í ríkisstjóm.
Hægrimenn hafa ekki setið í
ríkisstjóm undanfarin tuttugu ár,
þrátt fyrir að Kokoomus sé næst-
stærsti flokkurinn á þingi. Ef
samstarfi milli Miðflokks ogjafnað-
armanna er að ljúka getur verið að
kominn sé tími til að stofna nýja
samsteypustjóm. En einnig er
líklegt að kratar og miðflokksmenn
geti notað hægrimenn einungis sem
vopn í valdabaráttunni þeirra á
milli.
Ný tilskipun sovéska kommúnistaflokksins.
Dregið úr viðskiptahöftum
Hoakvu, AP._
STJÓRNVÖLD í Moskvu eru um þessar mundir að draga úr höft-
nm á viðskiptasviðinu. Sovésk fyrirtæki fá nú frjálsari hendur
en áður til að versla milliliðalaust við erlend fyrirtæki. Sam-
kvæmt nýju fyrirkomulagi, sem kynnt var I síðustu viku, þurfa
90 sovésk fyrirtæki og stofnanir ekki lengur að bera samninga
undir ráðamenn í því ráðuneyti sem fer með utanríkisviðskipti.
Að auki er ráðgert að samvinna í iðnaði og tækni milli fyrirtækja
í Austur-Evrópu verði aukin.
Að sögn vestrænna stjómar-
erindreka í Moskvu virðist sem
hið nýja fyrirkomulag muni ekki
ná til fyrirtækja í olíuiðnaði en
þaðan koma mestu gjaldeyristekj-
ur Sovétmanna. Þær tekjur eru
síðan nýttar til kaupa á vélum og
tækjum til iðnframleiðslu.
Nú er málum svo háttað að öll
viðskipti Sovétmanna við ríki á
Vesturlöndum og önnur ríki Aust-
ur-Evópu fara fram í gegnum
hinar ýmsu deildir innan ráðu-
neytisins sem fer með utanríkis-
viðskipti. Deildir þessar eru
ótalmargar og annast hver þeirra
viðskipti með ákveðna vöruflokka
allt frá kavíar og vodka til stór-
virkra véla. Þannig geta erlend
fyritæki, sem hafa hug á að selja
sovéskum samykjubúum drátta-
vélar, ekki snúið sé beint til
samyrkjubúanna. Samningamir
verða að fara fram í gegnum við-
skiptaáðuneytið og þá deild þess
sem sér um innflutning á dráttar-
vélum. Á sama hátt þarf viðeig-
andi deild að samþykkja allan
innflutning sovéskra fyrirtækja.
Samkvæmt tilskipun sovéska
kommúnistaflokksins munu 90
fyrirtæki fá leyfí til að versla
milliliðalaust við erlend fyrirtæki.
Reglur þessar munu taka gildi um
næstu áramót. Vestrænir sendi-
menn segja að fyrirtækin fái ekki
algjörlega frjálsar hendur því í
tilskipuninni sé gert ráð fyrir að
sett verði á stofn ný stjómar-
nefnd, sem annist öll utanríkisvið-
skipti. Aðstoðarutaníkisráðherra
verður formaður hennar og emb-
ættismenn sem nú starfa við
utanríkisverslun munu einnig
koma til með að sitja í henni.
Opinberir
starfsmenn
í verkfall
Frá Erik Liden, fréttaritara Morgnn-
bladsins í Svíþjóð.
VERKFALL 18.000 opinberra
starfsmanna í Sviþjóð hófst um
hádegisbil i gær. Meðal þess sem
lamast er starfsemi sjúkrahúsa,
bamaheimila, toll- og póstþjónustu
og samgöngur.
Talið er líklegt að fleiri opinberir
starfsmenn hefíi verkfall á morgun.
Talsmenn þeirra halda því fram, að
reynt verði að láta almenning líða sem
minnst fyrir aðgerðimar, en sagt hef-
ur verið í gamni og alvöru, að verkfall
stöðumælavarða í Stokkhólmi sé hið
eina jákvæða í þessu verkfalli.
Samningaviðræður milli ríkisvalds-
ins og opinberra starfsmanna, sem eru
um 1,3 milljónir í Svíþjóð, hafa staðið
yfír í marga mánuði og hafa þær
strandað á kröfu opinberra stíirfs-
manna um sambærilegar launahækk-
anir við það, sem gerist í einkageiran-
um. Ríkisstjóm jafnaðarmanna segir
slíkt óaðgengilegt og leiðtogar ýmissa
verkalýðsfélaga segja óréttlátt að op-
inberir starfsmenn fái jafnhá laun og
þeir sem starfa í einkageiranum, þar
sem afkoma öll er ótryggari. Verk-
fallið er talið kosta ríkissjóð um 1
milljarð sænskra króna (tæpl. 6 millj-
arða Isl kr.) á viku.
# ÁiFABORG ? rr~
Byqqinqadeild með NÝTT NAFN w ivicirmari • Baðinnréttingar
áður Nýborg — nú Alfaborg... • Þakrennur
Á sama stað: SKÚTUVOGI4 Með sama símanúmer: 68 67 55