Morgunblaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 27
Hildur Jónsdóttir og Sigríöur Sveinsdóttir,
startsmenn innanlandsdeildar
Samvinnuferða-Landsýnar,
fá knöttinn áritaðan.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986
Þing breska Verkamannaflokksins:
Róttæklingar reknir úr
V erkamannaf lokknum
London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁKVEÐIÐ var á landsþingi
breska Verkamannaflokksins,
sem nú er haldið í Blackpool,
með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða að reka úr flokknum átta
róttæka vinstrisinna, sem staðið
hafa í forsvari fyrir flokksdeild-
ina í Liverpool.
Brottrekstur þessi hefur lengi
verið á döfínni og kom fáum á
óvart. Róttæklingamir átta höfðu
verið sakaðir um margvísleg brot á
flokksreglum og fór ekki hvað síst
fyrir bijóstið á mönnum stuðningur
þeirra félaga við „Militant Tend-
ency“, byltingarsinnaða hreyfíngu
sem víða um land hefur haft sterk
ítök í flokksdeildum Verkamanna-
flokksins. Forysta flokksins, með
Niel Kinnock í fararbroddi, hefur
skorið upp herör gegn þessari
hreyfíngu og hyggst gera hana með
öllu áhrifalausa innan flokksins.
Brottrekstur róttæklinganna átta
er liður í þeirri viðleitni ríkjandi
afla innan Verkamannaflokksins að
auka sigurlíkur flokksins í næstu
þingkosningum, sem ef til vill verða
haldnar þegar á næsta ári. Hefur
Niel Kinnock til dæmis oft líkt
„Militant Tendency" við illkynja
æxli, sem Verkamannaflokkurinn
Miami:
Komið upp
um kókaín-
smyglara
Miami, AP.
KOMIST hefur upp um gífurlegt
kókainsmygl i Bandarikjunum
og hafa 22 starfsmenn Eastern
Airlines-flugfélagsins og einn
starfsmaður Mexicana-flugfé-
lagsins verið handteknir í
sambandi við það.
Talið er, að mennimir 23 hafí
smyglað kókaíni fyrir einn milljarð
dollara til Bandaríkjanna um flug-
völlinn í Miami en bandaríski
saksóknarínn Leon Kellner kvaðst
ekki búast við, að eiturlyfjafram-
boðið minnkaði mikið þótt þessi
lindin þomaði. Enn er leitað nokk-
urra manna, sem tengjast þessu
máli.
Smyglið fór þannig fram, að ferð-
atöskum með kókaíni var komið um
borð í flugvélar í Kólombíu og á
flugvellinum á Miami sáu starfs-
menn Eastren Airlines um að koma
þeim undan. Talið er, að á þeim
tíma, sem smyglhringurinn starf-
aði, hafi hann smyglað til Banda-
ríkjanna um íjórðungi alls þess
kókaíns, sem þangað kemur.
verði að skera burt vilji flokksmenn
eygja möguleika á sigri í komandi
kosningum.
Landsþing breska Verkamanna-
flokksins lét það verða eitt af sínum
fyrstu verkum að víkja úr flokknum
róttæklingunum frá Liverpool og
má segja að þetta sé að ýmsu leyti
táknrænt fyrir það sem ríkjandi öfl
í flokknum leggja nú áherslu á.
Leynt og ljóst virðist stefnt að þvf
að stinga undir stól því sem talist
getur vinstri róttækní til að styggja
ekki þá fjölmörgu kjósendur sem
staddir eru nærri miðju hins póli-
tíska liti-ófs. Verkamannaflokkur-
inn þarf á stuðningi þessa hóps að
halda í næstu kosningum og bera
ýmsar áherslur flokksins og athafn-
ir þess glögglega vitni á hvaða mið
er nú reynt að róa.
Róstur við minningarathöfn
Hundruð námuverkamanna trufluðu í síðustu viku minningarat-
höfn um þá 177 menn sem fórust i námuslysi í Evander í
Suður-Afríku. Mennimir sungu baráttusöngva af þvílíkum
krafti að oftlega heyrðist ekki hvað þeir sem fluttu minningar-
ræðurnar sögðu.
Skipt um
sovézkan
sendiherra
í Sýrlandi
Moskvu, AP.
SOVÉTSTJÓRNIN hefur tilnefnt
nýjan sendiherra sinn í Sýrlandi.
Sá heitir Alexander Dzaskoov og
er starfsmaður stofnunar, sem fer
með málefni Afríku og Asíulanda
með það að markmiði að efla traust
og samskipti Sovétríkjanna og
landa þriðja heimsins. Ekki er tekið
fram hvert fráfarandi fulltrúi Sov-
étríkjanna í Damaskus verður
fluttur.
vm-Mum
Hérer
JUVIHTUS FÓTBOITI
sem þú getur eignast!
Samvinnuferðir-Landsýn annast móttöku og umsjón með íslandsdvöl
Juventus-liðsins og hátt í 300 áhangenda þess.
Og nú bregðum við á leik með hjálp Juventus-leikmanna og bjóðum öllum
krökkum á aldrinum 2ja-15 ára, sem ekki komast á völlinn,
að senda okkur línu og freista þess að hreppa í staðinn fótbolta
sem allir leikmenn Juventus hafa áritað.
Við drögum eitt nafn úr pottinum - og Valur-Juventus verður ekki síður
spennandi fyrir þá sem heima sitja. Sendið okkur linu eða úrklippuna
hér að neðan, og setjið í póst fyrir næstu helgi.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91-27077 & 91-28899
Nafrv.
Heimili:
I Staður:.
Sími:
Ég er á aldrinum 2ja-15 ára - og komst ekki á leikinn Valur-Juventus. Vinsamlegast sendið mér Juventus-boltann,
| mérað kostnaðarlausu, ef mitt nafn verður dregið út.
m.'mt sm ^ m m m m m m m m M