Morgunblaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1986
Dóms- og kirkjumálaráðherra:
Ekkí ástæða til að
vefengja áritun
endurskoðandans
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi bréf Jóns Helgason-
ar dóms- og kirkjumálaráðherra,
til Hjálparstofnunar kirkjunnar:
„Kirkjumálaráðherra hefur borist.
bréf yðar dags. 27. september sl.,
þar sem þess er farið á leit við
kirkjumálaráðherra að hann hlutist
til um að Ríkisendurskoðun rann-
saki bókhald og reikningsskil
Hjálparstofnunar kirkjunnar fyrir
árin 1984 og 1985, „ef ástæður
þykja til vefengingar áritunar lög-
gilds endurskoðanda stofnunarinn-
ar“. Með bréfi dags. 29. september
sl. óskaði ráðuneytið umsagnar
ríkisendurskoðanda um þetta er-
indi. Umsögn rfkisendurskoðanda
barst ráðuneytinu nú ( dag, 30.
september. í umsögn sinni segir
ríkisendurskoðandi eftirfarandi:
„Áritun hins löggilta endurskoð-
anda stofnunarinnar er án nokkurs
fyrirvara. Auk þess hefur endur-
skoðandinn gefið yfirlýsingu dags.
25. þ.m., sem fylgdi bréfi yðar, þar
sem fram er tekið að þeim athuga-
semdum og ábendingum, sem hann
hafi komið á fi-amfæri, hafi verið
sinnt á fullnægjandi hátt.“ í fram-
haldi af þessu segir rfkisendurskoð-
andi að hann telji því ekki ástæðu
til að vefengja áritunina.
Kirkjumálaráðherra fellst að
sjálfsögðu á álit rfkisendurskoðanda
varðandi þetta atriði, og eru því
ekki efni til frekari aðgerða vegna
erindis í bréfi stofnunarinnar 27.
september sl.
Kirlq'umálaráðherra lýsir sig hins
vegar reiðubúinn til að aðstoða
Hjálparstofnun kirkjunnar, eins og
kostur er, við að upplýsa staðreynd-
ir um starfsemi stofnunarinnar,
þannig að það trúnaðartraust sem
almenningur í landinu hefur borið
til hjálparstarfs kirkjunnar bíði ekki
varanlegan hnekki af.“
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Biður ráðherra um
rannsóknarnefnd
— opnar gíróreikning sinn fyr-
ir söfnunina „Flóttamenn ’86
STJÓRN Hjálparstofnunar kirkj-
unnar ákvað í gær að taka þátt
í sameiginlegri söfnun Norður-
landanna, Flóttamenn ’86, með
þvi að opna gíróreikning stofn-
unarinnar. Þá hefur stjómin
óskað eftir þvi að dóms- og
kirkjumálaráðherra skipi nefnd
til að yfirfara gjafir til verkefna
stofnunarinnar og ráðstöfun
stofnunarinnar á þeim.
Hér fer á eftir bréf stjómar
Hjálparstofnunar kirkjunnar til
Jóns Helgasonar, dóms- og kirkju-
málaráðherra, en bréfið er undirrit-
* að af Erling Aspelund, stjómar-
formanni og Guðmundi Einarssyni,
framkvæmdastjóra.
„Um leið og stjóm Hjálparstofn-
unar kirkjunnar þakkar viðbrögð
ráðherra við bréfi okkar hinn 27.
þ.m., þar sem þess er óskað að
Ríkisendurskoðun rannsaki bókhald
og reikningsskil stofnunarinnar fyr-1
ir árin 1984 og 1985, fagnar;
stjómin framkomnu áliti Ríkisend-1
urskoðanda, að ekki sé ástæða til
að vefengja áritun löggilts endur-
skoðanda Hjálparstofnunar kirkj-
unnar.
Stjómin fagnar ennfremur að
kirkjumálaráðherra er sammála
niðurstöðu Rfkisendurskoðanda og
sjái því ekki efni til frekari aðgerða
vegna umrædds bréfs okkar.
Stjómin þakkar kirkjumálaráð-
herra framkomið boð hans um að
aðstoða Hjálparstofnun kirkjunnar
eins og kostur er við að upplýsa
staðreyndir um starfsemi stoftiun-
arinnar, þannig að það trúnaðar-
traust, sem almenningur f landinu
hefur borið til hjálparstarfs kirkj-
unnar bíði ekki varanlegan hnekki
af framkomnum blaðaskrifum, þess
efnis stofnunin misfari með gjafafé
almennings.
Til þess að engum vafa sé undir-
orpið, hvemig Hjálparstofnun
kirkjunnar ráðstafar Qármunum
almennings til stofnunarinnar, för-
um við þess hér með einlæglega á
leit við yður, herra ráðherra, að þér
skipið nú þegar neftid, sem yfirfari
gjafir til verkefna stofnunarinnar
og ráðstöfun stofnunarinnar á þeim.
Þá hefur stjóm Hjálparstofnunar
kirkjunnar tekið þá ákvörðun á
fundi sfnum f dag að taka þátt f
fyrirhugaðri sameiginlegri söfnun
Norðurlandanna, Flóttamenn ’86,
með því að opna gíróreikning stofn-
unarinnar nr. 20005-0 fyrir fram-
lögurn."
Rauði krossinn
tekur við framlög-
um til flóttafólks
MORGUNBLAÐINU hefur boríst
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Rauða krossi íslands:
„Sameiginlegri fjársöfnun Rauða
kross íslands og Hjálparstofnunar
kirkjunnar sem vera átti nk. sunnu-
dag, hefur verið frestað að ósk
Hjálparstofnunarinnar. Þriggja
klukkustunda dagskrá sem vera
átti í sjónvarpinu á sunnudagskvöld
fellur því niður.
Rauði kross íslands mun hins
vegar taka við framlögum þeirra
sem leggja vilja fram fé til styrktar
bágstöddu flóttafólki og því verða
öll framlög sem berast f Hjálparsjóð
félagsins næstu tvær vikur látin
renna óskert til Flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna.
Gfróseðlar Hjálparsjóðs Rauða
krossins liggja frammi f flestum
bönkum og sparisjóðum landsins.
Gírónúmerið er 90000-1, nítíu
þúsund, strik, einn.“
Sögulegar sættir. Forystumenn Alþýðuflokksins og hins nýstofnaða Félags fijálslyndra jafnaðarmanna
á fundi með fréttamönnum i gær.
Flokksstjómarfundur Alþýðuflokksins:
Samþykkti inntökubeiðn-
ina einróma með lófataki
„Sögulegar sættir“, segir Jón Baldvm Hanmbalsson
Á flokksstjómarfundi Alþýðu-
flokksins, sem haldinn var
síðdegis í gær, lagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, fram formlega beiðni
hins nýstofnaða Félags fijáls-
lyndra jafnaðarmanna um inn-
töku í Alþýðuflokkinn. Var
inntökubeiðnin samþykkt ein-
róma með lófataki.
„Það var ljóst á fundinum að
menn toldu þetta vera stóra stund
í sögu Alþýðuflokksins. Þetta voru
sögulegar sættir", sagði Jón Bald-
vin f samtali við Morgunblaðið að
loknum flokksstjómarfundinum.
„Með þessu hefur þróuninni verið
snúið við. Alþýðuflokkurinn hefur
klofnað oftar en aðrir flokkar, en
nú er stigið fyrsta skrefið í átt til
sátta og sameiningar. Ég lít á þetta
sem áfanga að því markmiði að
Alþýðuflokkurinn verði forystu-
flokkur vinstra megin við' miðju
íslenskra stjómmála og flöldahreyf-
ing jafnaðarmanna með atfylgi
þjóðarinnar í líkingu við það sem
tíðkast annars staðar á Norðurlönd-
um“, sagði formaður Alþýðuflokks-
ins.
Foiystumenn Alþýðuflokksins og
hins nýstofnaða Félags fijálslyndra
jafnaðrmanna efndu til fundar með
fréttamönnum í gær þar sem gerð
var grein fyrir sameiningunni og
aðdraganda hennar. Stefán Bened-
iktsson, alþingismaður, greindi m.a.
frá atburðum á fundi Bandalags
jafnaðarmanna f fyrrakvöld þar sem
ákveðið var að ganga til liðs við
Alþýðuflokksinn. Sagði Stefán að
ástæða þess að ákveðið hefði verið
að stíga þetta skref núna væri sú,
að Alþýðuflokkurinn hefði verið að
breytast að undanfömu og gmn-
dvöllur hefði nú skapast fyrir
samræmingu pólitískra stefnumiða
Bandalags jafnaðramanna og Al-
þýðuflokksins.
Það starfsfólk sjónvarpsins sem hefur unnið þar frá umihafl var heiðrað með gjöfum f afmælis-
boðinu. Talið frá vinstrí: Sigurður Einarsson, Auðbjörg Ogmundsdóttir, Tage Ammendrup, Sverrir
Kr. Bjarnason, Ingvi Hjörleifsson, Pétur Guðfinnsson og Auður Óskarsdótdr. Fjarstaddir voru
þeir Orn Sveinsson, Friðgeir Alfreðsson og Þórður Kristjánsson.
Sjónvarpið 20 ára
SJÓNVARPH) héh f gær upp
á tvitugsafmæli sitt f húsakynn-
um sínum að Laugavegi 174.
Var þar gömlu og nýju starfs-
fólki boðið upp á afmælistertu
og aðrar veitingar.
Markús Öm Antonsson, útvarps-
stjóri, Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra, Pétur Guð-
finnsson, framkvæmdasfjóri
sjónvarpsins og Ragnheiður
Valdimarsdóttir, formaður starfs-
mannafélags sjónvarpsins fluttu
ávörp í tileftii dagsins.
í ræðu sinni minntist útvarps-
stjóri m.a. upphafs og aðdraganda
sjónvarpsreksturs á íslandi og
þeirrar tortryggni sem gætti í
garð sjónvarpsins á fyrstu ámm
þess. Taldi hann sjónvarpið hafa
sýnt að þessar úrtöluraddir hefðu
haft rangt fyrir sér og sjónvarpið
nú betur í stakk búið en nokkum
tfmann áður til að gegna hlut-
verki sínu.
Opinber gestur sjónvarpsins á
afmæli þess var Sverrir Her-
Morgunblaðið/Þorkell
Sverrír Hermannsson, menntamálaráðherra, fær sér fyrsta bitann
af afmælistertu sjónvarpsins. Markús örn Antonsson, útvarps-
stjórí, og Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjórí sjónvarpsins,
bfða átekta.
mannsson, menntamálaráðherra, Um kvöldið hélt síðan mennta-
og vom honum sýnd húsakynni málaráðherra hóf fyrir starfs-
sjónvarpsins og tækniútbúnaður. menn sjónvarpsins.