Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
Áhrifa vaxtalækkunar ekki
að vænta fyrr en síðar
- segir Geir Hallgrímsson seðlabankastj óri
„ÉG tel að vaxtalækkunin skipti
ekki mjög miklu máli fyrir þróun
vaxta í landinu," sagði Geir
Hallgrímsson seðlabankastjóri.
Hann var spurður um hvort ný-
gert samkomulag milli ríkis-
valdsins og samtaka lífeyrissjóð-
anna um lækkun vaxta á
MAÐUR um þrítugt var í Saka-
dómi Reylgavíkur í gær úrskurð-
aður í tveggja vikna gæsluvarð-
hald, grunaður um árás á konu
í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
í hádeginu á mánudag var ráðist
á konu um fimmtugt í kirkjugarðin-
skuldabréfum Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins muni hafa áhrif á
aðra vexti í landinu.
Geir sagði að vextimir yrðu svip-
aðir, lækkuðu úr 6,5% í 6,25% fyrst
í stað og síðar í 5,9%. „Þannig að
ég held að áhrifin komi ekki í ljós
um og gerð tilraun til að nauðga
henni. Rannsóknarlögreglan hand-
tók mann á þriðjudag og hefur
hann nú verið úrskurður í gæslu-
varðhald til 22. október vegna máls
þessa.
fyrr en komið er vel fram á næsta
ár og jafnvel ekki fyrr en árið
1988", sagði hann. „En þá koma
aðrir þættir inn, eins og fjáröflun
á innlendum markaði, Qáröflun
ríkisins og Qárfestingalánasjóða á
innlendum vettvangi, ekki síst íjár-
þörf atvinnuveganna. Ahrifin fara
mjög eftir því hvað álagið verður
mikið á innlendri fjáröflun þegar
búið er að taka svo mikið fjármagn
frá til íbúðahúsabygginga og hver
sparifjármyndunin verður í öðrum
formum heldur en í lífeyrissjóðun-
um. Til þess að tryggja fullnægjandi
sparifjármyndun og þar með lánsfé
er hætt við að vextir haldist tiltölu-
lega háir," sagði Geir. „Þessi
samningur um kaup lífeyrissjóð-
anna á skuldabréfum ríkissjóðs er
því ekki út af fyrir sig líklegur til
að lækka vextina nema annað komi
til.“
Árásarmálið;
Maður í gæsluvarðhald
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi f gœr: Um 900 km suðvestur af Reykjanesi er
víðáttumikil 970 millibara lægð sem hréyfist norðnorðaustur.
SPÁ: Sunnan- og suðaustanátt ríkjandi um land allt. Þurrt og sum
staðar léttskýjað á norðausturlandi en víða skúrir í öðrum lands-
hlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Suðvestanátt verður ríkjandi
og fremur svalt. Skúrir eða slydduél um vestanvert landið, en þurrt
og sum staöar léttskýjað um landið austanvert.
TÁKN:
Heiðskirt
•á Léttskýjað
•0 Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
P f
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður
Akureyri 6 rignlng
Rsykjavfk 11 skýjað
Bergen 7 alskýjað
Helsinki 6 léttskýjað
Jan Mayen 0 skýjað
Kaupmannah. 14 léttskýjað
Narsaarssuaq 6 skýjað
Nuuk 2 þokumóða
Oató 9 skýjað
Stokkhólmur 8 Iðttskýjað
Þórshöfn 10 rignlng
Algarve 26 lóttskýjað
Amsterdam 16 skýjað
Aþena 26 Mttskýjað
Barcelona 24 rykmlstur
Boriln 14 rigning
Chicago 13 tkýjað
Glaagow 13 súld
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 18 skýjað
Hamborg 12 skýjað
Las Palmas 25 Mttskýjað
London 20 mistur
LosAngeles 18 mistur
Lúxemborg 16 skýjað
Madrid 22 léttskýjað
Malaga 26 hélfskýjað
Mallorca 26 mistur
Mlami 26 Mttskýjað
Montreal 12 Mttskýjað
Nlce 23 þokumóða
NewYork 12 heiðsklrt
Paria 20 Mttskýjað
Róm 23 þokumóða
Vln 14 rigning
Washington 10 mlstur
Whtnipeg 2 skýjað
Morgunblaðið/Óli K. Magnússon
Holræsaskurðinum við Sætún var lokað i gær.
Mokað ískurð við
Sætún þótt framkvæmdum
sé ekki lokið
- kostnaður nemur 2 milljónum króna
LOKIÐ var við i gær að moka
ofan í holræsaskurð, sem er um
200 metra langur og liggur
eftir Sætúni í Reykjavík, án
þess þó að framkvæmdum hafi
verið lokið. Ákvörðun um þetta
var tekin af borgaryfirvöldum
vegna leiðtogafundarins i
Höfða um helgina, en eftir að
honum Iýkur þarf að grafa aft-
ur upp úr skurðinum og ljúka
framkvæmdum. Verkið kostar
2 milljónir krónur.
Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að borgaryfirvöld
myndu greiða fyrir þetta a.m.k.
fyrst í stað, en ef hægt yrði að
heimfæra þennan aukakostnað til
leiðtogafundarins, myndi ríkis-
sjóður greiða þessar 2 milljónir.
Vinnu við lagningu holræsakerfis
í Sætún seinkar því um tíu daga
og gerði Ingi ráð fyrir að hægt
yrði að opna Sætúnið eftir u.þ.b.
mánuð og yrði þá öllum fram-
kvæmdum við holræsið lokið.
Að sögn Inga þótti ekki hægt
að láta svæðið umhverfis Höfða
líta út eins og þama ætti sér stað
einhvers konar skotgrafahemaður
svo borgaryfirvöld tóku þá
ákvörðun að loka skurðinum rétt
á meðan á fundum leiðtoganna
stendur þótt verktakinn hafi ekki
verið búinn að ganga frá pípunni,
sem í hann á að koma.
Þá hefur Hitaveita Reykjavíkur
flýtt vinnu sinni við gangstétta-
framkvæmdir, aðallega í Þing-
holtunum og í námunda við
rússneska sendiráðið á Túngötu,
en Hitaveitan hefur að undanf-
ömu unnið við lagningu hitaveitu-
lagna undir gangstéttimir.
Söngvakeppni á írlandi:
Björg’vin í
BJÖRGVIN HaUdórsson söngv-
ari varð í þriðja sæti í alþjóðlegri
söngvakeppni sem haldin var í
Castlebar á írlandi sl. laugardag.
Lagið sem hann söng er eftir
Jóhann G. Jóhannsson og heitir
„I write a lonely song“.
Fimmtán hundruð lög bárust í
keppnina og voru tíu valin frá níu
þjóðum í úrslitakeppnina sem sjón-
varpað var beint um írland og
Skotland og náði til um 4 milljón
áhorfenda. I efsta sæti varð lag frá
þriðja sæti
Svíþjóð, þá kom lag frá Banda-
ríkjunum og síðan Björgvin með lag
frá íslandi. Lag Jóhanns sem Björg-
vin söng er til á íslensku og heitir
„Reykjavík".
Björgvin sagðist vera nokkuð
ánægður með þennan árangur en
þetta er í þriðja sinn sem hann
hefur tekið þátt í þessari keppni.
Fyrst árið 1981 og varð þá í 4.
sæti með lag eftir sjálfan sig, síðan
árið 1983 og lenti þá í öðm sæti
með lag eftir Jóhann Helgason.
Irma auglýsir
fjallalambið
ÓFROSIÐ íslenskt lambakjöt er
flutt með flugi til Danmerkur og
fleiri landa í sláturtíðinni I haust,
eins og fram hefur komið í blað-
inu. Kaupandi kjötsins í Dan-
mörku er Irma-verslanakeðjan
og undanfarna daga hafa verið
birtar heilsíðuauglýsingar I
dönsku dagblöðunum þar sem
kjötið er kynnt.
Auglýsingin ber yfírskriftina
„Non-stop Island-Irma“. Sagt er frá
því að íslenska kjötið sé með alb-
esta lambakjöti sem fáanlegt sé í
heiminum. Það sé flutt með flugvél-
um yfir hafið án millilendingar í
frystigeymslum og haldist því hið
góða bragð sem einkennir kjötið.
Þá segir að lömbunum sé beitt í
snarbröttum fjallshlíðum og sé kjöt-
ið því laust við alla offitu.
Islenska lambakjötið er niðursag-
að og meðhöndlað á ýmsa vegu.
Eitt verð er sérstaklega auglýst,
það er úrbeinað lambalæri á 99,50
danskar krónur kílóið, eða 530
krónur íslenskar.
Búvörudeild SÍS hefur flutt kælt
lambakjöt til Danmerkur og fleiri
landa mörg undanfarin haust. Ekki
er um mikið magn að ræða, en
nokkurt umstang við útflutninginn.
Jóhann Steinsson deildarstjóri í
búvörudeildinni hefur sagt að kjötið
veki athygli og að fyrst og fremst
sé litið á þennan útflutning sem
góða auglýsingu fyrir íslenska
lambakjötið.
Non-stop
^ Island- IiTiia.
Auglýsing frá Irma í Ekstra blad-
et 7. október.