Morgunblaðið - 09.10.1986, Síða 19

Morgunblaðið - 09.10.1986, Síða 19
19 hún fjallar um tilfinningalegt sam- spil tveggja kvenna. Í Anne Trister er aðalpersónan listmálarinn Anne, leikin af Albane Guilhe. Anne er svissneskur gyðing- ur á þrítugsaldri. Dauði föður hennar hefur djúp áhrif. Eftir jarð- arforina flýr hún frá Evrópu til Quebec, þar sem hún reynir að komast til ráðs við sjálfa sig og ná aftur tökum á málaralistinni. í Montreal hittir hún eldri mann, Simon að nafni, og hjá honum telur hún sig finna aftur föðurímyndina. Hún kynnist einnig sálfræðingnum Alix, sem leikin er af Louise Mar- leau. Anne berst hatrammri baráttu við að endurheimta tök sín á list- inni og gjörvöllu lífi sínu, en engu að síður vex togstreitan hið innra með henni. Við brottför frá Evrópu hijóp hún frá móður sinni og mann- inum sem hún ætlaði að giftast. Smám saman breytast tilfinningar hennar gagnvart Alix úr vináttu í líkamlega ást. Þegar tiivonandi eig- inmaður kemur til fundar við hana í Montreal, verður hún loksins að horfast í augu við þessar breyting- ar. Þriðji kvenleikstjórinn sem hér verður ijallað um, Anne Wheeler frá Alberta, hefur fram til þessa einbeitt sér að gerð styttri mynda, en fyrsta myndin hennar í fullri lengd, Loyalties, kom á markað í sumar. Loyalties er gerð í bresk- kanadískri samvinnu og tekin í Alberta. Breskur læknir (Kenneth Welsh) flytur með eiginkonu sinni Lily (Susan Wooldridge) og fjórum böm- um í heldur fátækt hérað í norður- hluta Alberta. íbúar staðarins átta sig ekki á hvers vegna þessi breska yfirstéttarfjölskylda hefur byggt sér lúxusvillu og sest að á meðal þeirra. Lily gefur engin svör og viðurkennir ekki þann einmanaleik sem hijáir hana í nýjum heimkynn- um. Indíánakonan Rosanne (Tatoo Cardinal) er ráðin til fjölskyldunnar til bamagæslu og heimilisstarfa. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 Leikstjórinn Léa Pool frá Quebec er ein margra kvenna sem nú fást við kvikmyndagerð í Kanada. Rosanne á sjálf þijú böm og hefur sagt skilið við drykkfelldan eigin- mann og sest að í fátæklegu húsnæði hjá móður sinni. Þrátt fyr- ir fátækt ríkir þar þó sú eining innan fjölskyldunnar sem er svo átakanlega fjarri bresku ijölskyid- unni. Fyrsta kastið ríkir tortryggni milli Lily og Rosanne enda þjóð- félagslegur og menningarlegur bakgmnnur þeirra gjörólíkur. Þeim tekst þó að brúa það bil og með þeim tekst djúp vinátta. Meðan vin- áttubönd þeirra styrlq'ast taka hjónabandsmál hvorrar um sig óvænta stefhu. Eiginmaður Rosanne, Eddy, hættir að drekka, fær atvinnu og hún flytur að lokum til hans aftur. Á heimili læknisins gægjast aftur á móti fram skugga- leg atvik úr fortíð hans sem leiða til upplausnar þeirrar fjölskyldu. Myndin fjallar því um mannlegt og siðfræðilegt gildi tryggðarinnar. Auk þess eru tiyggðinni við land og uppmnalega menningu gerð skil á óbeinan en engu að síður mjög rækilegan hátt. Loyalties hefur hlotið frábæra dóma hér í Kanada, en sú kvikmynd sem mest umtal hefur vakið í sum- ar er vafalaust The Decline of the American Empire, frumsýnd í Cannes í Frakklandi og við opnun kvikmyndahátíðarinnar í Toronto. Leikstjóri hennar er Denys Archard frá Quebec. Kvikmyndagagnrýn- endur hafa unnvörpum hrósað Archard og segja Decline meðal bestu kvikmynda sem gerðar hafa verið í Kanada. Þó nafnið bendi svo til, þá er myndin ekki pólitísk þjóð- arádeila, heldur beinist hún að einstaklingnum og ábyrgð hans gagnvart heildinni. Persónur Arch- ards í Decline eiga það sammerkt að hafa haft skipti á hugsjónum sínum og þeim lífsgæðum sem greiða út í hönd. Þennan boðskap býr Archard í búning kómedíunnar og lengi fram- an af snúast samtöl persónanna miklu fremur um gleði og háska kynlífsins en hnignandi þjóðfélags- ástand. Persónumar eru átta, fjórar konur og fjórir karlar velmegunar- þjóðfélagsins, sem hittast í glæsi- leg^um sumarbústað við strönd til kvöldverðar. En þó kvikmyndin fjalli á yfirborðinu einkum um ásta- lífið, þá eru það fremur samræður áttmenninganna en ástaleikir þeirra sem leikstjórinn beinir athygli sinni að. Eins og Archard hefur sagt, liggur frumleikinn í að gera kvik- mynd sem höfðar til eyrans fremur en til augans. „Augað hefur séð allt,“ segir hann, „en eyrað er óspjallað." Samband sveitar- félaga á Suður- nesjum: Aðalfund- ur haldinn í Stapa Vogum. AÐALFUNDUR Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum verður haldinn í félagsheimil- inu Stapa í Njarðvík á föstudag og laugardag, 10. og 11. októ- ber. Fundurinn hefst kl. 14.00 á föstudag með fundarsetningu. Síðan flytur formaður Sambands- ins, Áki Graanz, skýrslu stjómar. Þá verða flutt erindi um framtíð- arsýn í ferðamálum og endurskoð- un á starfsháttum og samþykkt- um SSS og um samstarfsmál sveitarfélaganna á Suðumesjum. Á laugardag hefst fundur kl. 10.00 með ávarpi Matthíasar Á. Mathiesen, utanríkisráðherra. Þá verður rætt um hver eigi að taka við hlutverki sýslunefndar Gull- bringusýslu og gerð verður grein fyrir iðnþróunarverkefni fyrir Suðumes. Aðalmál fundarins er vatns- búskapur Suðumesja, mál sem hefur verið mikið til umræðu á undanfömum ámm. Einnigverður rætt um skipulagsmál. í lok fund- arins verður stjómarkjör. Fundar- slit eru ráðgerð kl. 18.00 á laugardag. EG ATHVARFID UFI Styrktartónleikar fyrir Kvennaathvarfið. Ágóði rennur óskiptur til athvarfsins FIMMTUDAG 9. OKTÓBER SJALLINN OG DYNHEIMAR Bubbi Morthens, Bjarni Tryggva, Dansstúdíó Aiís, Stuð- kompaníið, Skriðjöklar og fleiri Miðaverð í Sjallann 600,- í Dynheima 400,- Sjallinn opnaður kl. 21.30, Dynheimar kl. 21.00 SELFOSS 10. OKTÓBER Bubbi, Megas, Guðjón Guð- mundsson, Kríst- ján Hrafnsson, Rauðir fietir, Dansleikur, hljóm- sveitin Kikk KEFLAVIK 12. OKTÓBER Bubbi, Bjarni Tryggva, Kristján Hrafnsson, Guð- jón Guðmunds- son, Rauðir fletir og fíeiri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.