Morgunblaðið - 09.10.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
27
verður að ríkja gagnkvæm virðing.
Engin stjóm má halda, að hún viti
allt betur en andstæðingamir, og
andstæðingamir mega ekki telja,
að stjóm hafi alltaf rangt fyrir sér.
Auðvitað fylgja deilur stjómmálum,
það leiðir af eðli þeirra. Og í deilum
verður að beita ánSðri. En áróðurinn
verður að byggja á staðreyndum,
ekki blekkingum. Virðing fyrir því,
sem er satt og rétt, verður að móta
alla baráttu í stjómmálum. Og
stjórnmálamenn verða ekki aðeins
að kappkosta að segja jafnan satt.
Þeir verða einnig að gera rétt, þeir
mega aldrei taka eigin hagsmuni
eða sérhagsmuni umbjóðenda fram
yfir hagsmuni heildarinnar, og þeir
eiga að vera fyrirmynd varðandi
ráðdeild og reglusemi.
Stjómmálaflokkar em innviðir
lýðraeðisþjóðfélags. Ef stjómmála-
flokkar em ekki óspillt og þjóðholl
samtök, fær lýðræði ekki staðizt til
frambúðar. Þess vegna hvílir mikil
ábyrgð á stjómmálaflokkunum og
forystumönnum þeirra. Samskipti
þeirra mega ekki mótast af óvild
eða vantrausti. Þrátt fyrir ágreining
á einn stjómmálaflokkur jafnan að
geta haft samskipti við einhvem
annan eða einhveija aðra. Enginn
stjómmálaflokkur á að útiloka sig
frá hugsanlegri aðild að ríkisstjóm,
og engan flokk á að útiioka frá
slíkri aðild. En til þess að slíkt ger-
ist, verða allir flokkar og allir
stjómmálamenn að gæta hófs, í
skoðunum sínum og málflutningi.
Ef hófsemi og heiðarleiki ásamt
virðingu fyrir sannleika og réttlæti
eru homsteinar stjómmálalífs,
verður árangurinn gott þjóðfélag.
Það er ósk mín á þessari stundu,
að þannig verði íslenzt stjómmála-
líf á komandi tímum.
691140
691141
Með einu simtali er hægt að breyta
innheimtuaðferðinni. Eftir það verða
askriftargjoldin skuldfærð a viðkom-
andi greiðslukortareikning mánaðar-
lega.
VERIÐ VELKOMIN
í GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.
Rannsóknir á mál-
þroska barna:
Reykja-
víkurbörn
standa sig
best
Ný útgáfustarf-
semi Kennarahá-
skólans
Á VEGUM Kennaraháskólans er
komin út skýrsla sem ber nafnið
Framburður og myndun fleirtölu
hjá 200 íslenskum börnum við
.fjögra og sex ára aldur. Höfund-
ar eru Indriði Gíslason dósent,
Sigurður Konráðsson cand mag
og Benedikt Jóhannesson stærð-
fræðingur.
Með þessu riti hefur Kennarahá-
skólinn hafið útgáfu á gögnum sem
til verða í rannsóknum við stofnun-
ina. Tilgangur með rannsókninni
er tvíþættur, annars vegar að fá
markverðar upplýsingar um
íslenskt málkerfi og hins vegar að
afla upplýsingar fyrir þá sem fást
við máluppeldi, svo sem fóstrur og
kennara.
I þessu riti eru birtar niðurstöður
rannsóknar sem staðið hefur nokk-
ur síðustu ár. Efninu var safnað á
árunum 1980-1983. Ekki hafa áður
farið fram skipulegar athuganir á
málfari íslenskra bama, Vísinda-
sjóður veitti styrki til verksins,
aðstoð fékkst hjá Rannsóknarstofn-
un uppeldismála og fleiri aðilar
hafa lagt rannsókninni lið.
Umflöllun um niðurstöður er
skipt í þrennt. Fyrst er greinargerð
um framburð bamanna þar sem
m.a. er dregið fram hvaða hljóð og
hljóðasambönd reynast þeim erfið-
ust. Þá er fjallað um hvemig bömin
mynduðu fleirtölu af ákveðnum orð-
um og kemur þar fram að nokkuð
vantar á að þau hafi við sex ára
aldur tileinkað sér þær reglur sem
gilda um þetta atriði í máli fullorð-
inna. Loks er athugað hvemig
niðurstöður tengjast nokkmm fé-
lagslegum þáttum s.s. kyni, búsetu,
menntun foreldra og dvöl á dagvist-
arstofnunum. Enginn teljandi
munur virðist eftir kynjum, en í ljós
kom að nokkur munur er eftir bú-
setu. Reykjavíkurböm standa sig
almennt best, en norðlensk sveita-
böm standa þó ekki að baki jafnöld-
mm sínum í borginni við sex ára
aldur. Svo virðist sem menntun for-
eldra, einkum mæðra hafi töluvert
að segja varðandi málþroska barn-
anna.
Skýrslan verður til sölu í Bóksölu
Kennaraháskólans og Bóksölu stúd-
enta.
dBaselll +
Mest notaða gagnasáfnskerfið á markaði í dag er dBASE 111+
sem fæst á flestar einkatölvur.
Nú er dBASE 111+ komið á markað, enn fullkomnara en fyrri
kerfi og mun auðveldara í notkun.
Markmið: Á þessu námskeiði fá þátttakendur þjálfun í notkun
dBASE III í því skyni að setja upp gagnasöfn, skipuleggja
gagnameðhöndlun og gagnaúrvinnslu og útbúa hvers konar
prentlista.
Efni: Um gagnasafnskerfi • Skipulag gagna til tölvuvinnslu •
Uppsetning gagnasafns • Fyrirspurnir • Samfléttun gagna-
safna • Útreikningar og úrvinnsla • Útprentun.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja
tileinka sér hagkvæmni sem fylgir notkun gagnasafnskerfa
við alls kyns gagnavinnslu.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Tími og staður
20.-22. október
kl. 13.30-17.30
Ánanaustum 15
Leiðbeinandi:
Valgeir Hallvarðsson,
véltæknifræðingur
ððeins
$•320
a,/* settið
Öll sömun
Við erum
kat
Af því það er gaman
að geta boðið þér á aðeins kr.
15.320,- allt settið, hjónarúm með
svampdýnum
Pantaðu rúm strax því við fengum aðeins 30 sett
Utborgun 4.820 og 2.100 á mánuði
húsgagna höllí n
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410
.tíjgMmámléíSS'
FARSMNN
PHILIPS
yerðls2
HHunl
Heimilistæki hf
SÆTÚNI B. SÍMI 27500 - HAFNARSTRÆTI 3 SÍMI 20455