Morgunblaðið - 09.10.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
37
Las Vegas, Nevada , AP.
MAÐUR nokkur, sem tekið hafði
einkaflugvél á leigu opnaði dyr
hennar í 3.000 metra hæð og
stökk út. Ekki er talið að hann
hafi verið með fallhlíf. Með i för
voru kona og tveir menn, sem
tóku atburðinn upp á myndband.
Lögregla hóf þegar í stað leit að
manninum en án árangurs. Maður-
inn kvaðst vera þýskur læknir þegar
hann tók vélina á leigu.
„Ég gat ekki trúað eigin augum“
sagði einn myndatökumannanna.
„Hann var örugglega ekki með
fallhlíf" bætti hann við. Flugmaður-
inn hóf þegar að svipast um eftir
manninum en hann var hvergi sýni-
legur.
Konan, sem heitir Charlotte Ric-
hards, sagði hegðun mannsins hafa
verið mjög einkennilega. „Ég sat
við hlið hans og tók eftir að hann
leit stöðugt út eins og hann væri
að svipðast um eftir einhveiju"
sagði hún. „Skyndilega sneri hann
sér að mér og bað mig að giftast
sér. Ég fór að hlæja og sagði honum
að láta ekki svona. Þá opnaði hann
dymar og kastaði sér út.“
Lögreglan tók myndbandið í sína
vörslu og er nú unnið að rannsókn
málsins.
hefur reynst sjálfstæðis-
mönnum farsæll
forystumaður
hefur staðið vörð um
hagsmuni Reykvíkinga,
bæði í borgarstjórn
og á Alþingi
Bandaríkjamaður í haldi í Nicaragua:
Eiginkonan
segir hann
CIA-mann
Managua, Washington, AP.
YFIRVÖLD I Nicaragua boðuðu
Tiiræðið við
Rajiv Gandhi:
Fimm menn
handteknir
Nýja Delhi, AP.
FIMM menn frá Punjab-héraði á
Indlandi hafa verið handteknir
grunaðir um að hafa staðið að
baki morðtilræðis við Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra lands-
ins. Reynt var að ráða hann af
dögum á fimmtudag og var þá
einn maður handtekinn.
Að sögn yfirmanna í lögreglu
landsins er mjög líklegt að fleiri
verði handteknir í tengslum við til-
ræðið. Ríkisstjóm Indlands skipaði
í gær sérstaka nefnd til að annast
rannsókn málsins. Nefndin mun
m.a. rannsaka hvort öryggisverðir
forsetans hafi átt nokkum hlut að
máli.
Maðurinn sem handtekinn var á
fímmtudag heitir Karamjit Singh
og er 26 ára gamall. Hann er af
trúflokki sikka en þeir hafa síðustu
fjögur ár barist fyrir stofnun sjálf-
stæðs ríkis á Indlandi.
Indverskt dagblað skýrði frá því
í gær að tilræðismanni Gandhis
hefði mistekist sökum þess að
skammbyssa hans hefði staðið á
sér. _______.
Bandaríkin:
til fréttamannafundar í gær og
kom þar fram Bandarikjamaður,
sem sagður er sá eini sem komst
lífs af þegar stjómarherinn
skaut niður flutningavél á sunnu-
dag en þrir menn létu lffið.
Rikisstjórn Nicaragua segir
manninn vera bandarískan hera-
aðarráðgjafa. Bandaríkjastjóra
hefur vísað þessum ásökunum á
bug. Eiginkona mannsins hringdi
i gær í bandariska utanríkisráðu-
neytið og sagði mann sinn hafa
unnið fyrir bandarisku leyniþjón-
ustuna CIA.
Stjóm Nicaragua segir flugvélina
hafa verið í birgðaflutningum til
Contra-skæmliða, sem njóta stuðn-
ings Bandaríkjastjómar, þegar hún
var skotin niður. Að sögn yfirmanna
innan hersins fundust skjöl í flaki
vélarinnar sem sýna að mennimir
voru hemaðarráðgjafar á vegum
Bandaríkjastjómar í nágrannarík-
inu EL Salvador.
Á fréttamannafundinum sagðist
maðurinn heita Gene Hasenfus og
vera frá Marinette í Wisconsin-fylki
í Bandaríkjunum. Annað fékk hann
ekki að segja og fréttamönnum
gafst ekki tækifæri tií að spyija
hann spuminga.
Eugeue Hasenfus, Bandaríkjamaðurinn sem sandinistar skutu niður
í Nicaragua, á blaðamannafundi i Managua á þriðjudag.
Talsmaður CLA neitaði því harð-
lega að Hasenfus væri starfsmaður
leyniþjónustunnar. Vinur hans um
langt árabil sagði í gær að Hasenf-
us starfaði fyrir fyrirtækið „Air
America" og gegndi þar stöðu
hleðslustjóra. „Air America" annast
birgðaflutninga fyrir CLA.
Á ámnum 1981 til 1984 annað-
ist bandaríska leyniþjónustan þjálf-
un Contra-skæmliða í Nicaragua.
Bandaríkjaþing lagði f sumar bless-
un sína yfír beiðni Ronalds Reagan
um 100 milljón dala hemaðaraðstoð
við skæmliða en það mál bíður enn
lokaafgreiðsiu.
Bandaríkin:
Ófætt
barn
skorið
upp
San Francisco, AP.
HÓPUR bandarískra skurð-
lækna gerði á síðasta ári
skurðaðgerð á fóstri í móður-
kviði.Akveðið var að skýra
ekki frá þessum atburði fyrr
en ljóst væri hvernig aðgerðin
hefði tekist. Bamið er nú
tæplega árs gamalt og heils-
ast þvi vel.
Við skoðun kom í ljós að gall-
blaðra fóstursins starfaði ekki
eðliiega og að þvagrásin hafði
stíflast. Móðirin var skorin upp
og fóstrið tekið út til hálfs og
ágalli þessi lagfærður með
skurðaðgerð. Að aðgerðinni lok-
inni var fóstrinu komið fyrir að
nýju í móðurkviði.
Dr. Michael Harrisson, sem
starfar við háskólasjúkrahúsið í
Kalifomíu, annaðist aðgerðina.
Að sögn hans gekk fæðingin
eðlilega fyrir sig og virðist að-
gerðin hafa heppnast með
ágætum. Þetta er í þriðja skip-
tið sem skurðaðgerð er fram-
kvæmd á ófæddu bami en hinar
tvær fyrri mistókust. Michael
Harrisson framkvæmdi fyrstur
manna aðgerð á fóstri árið 1981
en það lést strax að henni lokinni
Stökk út
fall-
hlífar-
lausí
3.000 m
hæð
Birgir ísleifur
Gunnarsson
er ötull og einarður
talsmaður sjálfstæðis-
stefnunnar
Tryggjum
Birgi glæsilega
kosningu í komandi
prófkjöri
Stuðningsmenn