Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
47
Fulltrúar íslandsdeildar Amnesty Internatíonal, frá vinstri Halla,
Jóhanna og Eyjólfur.
Amnesty International:
Herferð gegn manns-
hvörfum í Sri Lanka
ALÞJÓÐLEG herferð gegn
mannshvörfum í Sri Lanka sem
íslandssdeild Amnesty Intern-
atíonal tekur þátt í hófst hinn
10. september s.l. Einn megintil-
gangur hennar er að þrýsta á
stjómvöld að reyna að stemma
stígu við þeirri þróun sem átt
hefur sér stað undanfarin ár.
Á fundi með blaðamönnum röktu
fulltrúar íslandsdeildar A.I. sögu
mannshvarfanna. Mörg hundruð
manns hafa undanfarið horfíð spor-
laust á Sri Lanka, eða frá því sfðla
árs 1984. Flestir eru af kynþætti
Tamíla, yfírleitt fólk á aldrinum
18-30 ára, flestir bændur eða físki-
menn. Mannshvörfin koma í kjölfar
þess að vopnaðar sveitir Tamíla risu
upp og börðust fyrir sjálfstæðu ríki
þeirra á eyjunni, en í Sri Lanka búa
tvö þjóðarbrot, Tamflar og Singal-
ar. Arið 1956 tóku í gildi lög er
gerðu singalisku að eina opinbera
málinu f Sri Lanka, og þurfa allir
opinberir starfsmenn að tala það.
Lögin mismunuðu Tamflum og
stuttu síðar kom til fyrstu alvarlegu
átakanna milli Singala og Tamfla.
Talið er að mannshvörfin séu svar
við vopnuðum árásum Tamfla, en
stjómvöld hafa neitað að rannsaka
þau.
Fulltrúar íslandsdeildarinnar
sögðust vona að almenningur legði
þessum málum lið með því að skrifa
sfjómvöldum og skora á þau að
skipa hlutlausa rannsóknamefnd til
að kanna mannshvörfín, því þó ta-
lið sé að flestir hinna horfnu hafí
verið myrtir, er von til að aðrir séu
á lífí í leynilegum fangelsum. Menn
em beðnir að snúa sér til skrifstof-
unnar Hafnarstræti 15, eða skrifa
stjómvöldum, utanáskrift forsetans
er
His Excellency,
President J R Jayewardene
Presidential Secretariat
Republic Square
Colombo 1
Sri Lanka
_______NÝTT NÁMSKEIÐ______
MARKAÐSSTJÓRAR - SÖLUSTJÓRAR
GRUNNN ÁMSKEIÐ í MARKAÐSSÓKN
Á tímum aukinnar samkeppni hafa stjómendur og starfsmenn fyrirtækja lagt meiri
áherslu en nokkni sinni fyrr á skipulagða markaðs- og sölustarfsemi og eruþannig
betur undir það búnir, að bregðast við breyttum ytri aðstæðum á hverjum tíma.
Tilgangur þessa námskeiðs er að gefa þátttakendum greinargott yfirlit yfir helstu undir-
stöðuþætti markaðssetningar og gera þá um leið betur hæfa til að starfa við slík störf.
Efni:
• Kynning á markaðshugtakinu
• Söluráðar (4 P)
• Markaðsrannsóknir
• Markaðshlutdeild
• Vömval
• Val á dreifileiðum
• Verðlagning
• Auglýsingar og kynningar
• Söfnun markaðsupplýsinga
• Uppbygging markaðsstarfsemi
Þátttakendur: Námskeiðið er einkum ætlað markaðsstjórum, sölustjómm, almenn-
ingstengslafulltrúum og öðmm starfsmönnum sem starfa beint eða óbeint að markaðs-
og sölumálum.
Leiðbeinendur: Jens P. Hjaltested, rekstrarhagfræðingur. Skólastjóri Útflutnings- og
markaðsskóla íslands og Jóhann Magnússon, viðskiptafræðingur, rekstrarráðgjafi hjá
Stuðli hf.
Tími: 20.-21. okt. 1986, kl. 09-17
Staður: Ánanaust 15,3. hæð.
Stjórnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
............................................. '
Örbylgjuoíninn
eldsnöggiog ódýri
Fæst í næstu raftækjaverslun.