Morgunblaðið - 09.10.1986, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
Margeir Pétursson öruggur sig-
urvegari í Skákþingi I slands
Skák
Bragi Kristjánsson
Skákþingi íslands í landsliðs-
flokki lauk laugardaginn 27.
september með öruggum sigri Mar-
geirs Péturssonar, stórmeistara.
Hann hlaut 8 vinninga í 11 skákum
og hafði forystu frá fyrstu umferð
til þeirrar síðustu. Margeir vinnur
nú í fyrsta skipti á íslandsmóti og
finnst mörgum kominn tími til að
hann ben titilinn skákmeistari Is-
lands. íslandsþingið er þriðja
skákmótið í ár, þar sem Margeir
sigrar af miklu öryggi og verður
gaman að fylgjast með honum á
Olympíuskákmótinu í nóvember nk.
Jafliir í öðru og þriðja sæti urðu
stórmeistaramir Guðmundur Sigur-
jónsson og Jóhann Hjartarson, með
7 vinninga hvor. Guðmundur veitti
Margeiri nokkra keppni, en slæm
byrjun Jóhanns gerði vonir hans
um sigur á mótinu að engu. í fjórða
til sjötta sæti komu Karl Þorsteins,
alþjóðlegur meistari, Þröstur Þór-
hallsson og Jón L Ámason stór-
meistari. Karl tefldi af geysilegri
hörku, en öryggið skildi hann eftir
heima í Reykjavík. Hann vann 5
skákir, en tapaði 3. Þröstur getur
verið ánægður með sinn hlut. Hann
vantaði aðeins Vz vinning til að ná
fyrsta áfanga að alþjóðlegum titli
og sannaði enn einu sinni, að hann
er einn efnilegasti skákmaður yngri
kynslóðarinnar hér á Iandi. Jón L.
er varla kátur yfir sinni frammi-
stöðu, en tapið fyrir Hannesi í 2.
umferð setti hann alveg út af lag-
inu.
í sjöunda sæti kemur svo Hannes
Hlífar Stefánsson með 6 vinninga.
Hannes er aðeins 14 ára og sýndi
enn einu sinni í þessu móti, að mik-
ils má af honum vænta í framtíð-
inni. Hann vann sfna fyrstu skák
gegn stórmeistara og að auk vann
hann fallegustu skák mótsins gegn
Björgvini Jónssyni í 1. umferð.
Um aðra keppendur er það helst
að segja, að alþjóðlegi meistarinn,
Sævar Bjamason, tefldi langt undir
styrkleika og taflmennska Davíðs,
Dans og Björgvins var of götótt til
að gefa fleiri vinninga. Þröstur
Ámason, jafnaldri Hannesar, fékk
það erflða hlutskipti að verma
neðsta sætið. Hann tefldi mun bet-
ur en vinningatalan sýnir og verður
örugglega sterkustu skákmönnum
erfiður andstæðingur þegar hann
hefur öðlast meiri reynslu.
Mótshald var Gmndfírðingum til
mikils sóma og þökkuðu keppendur
fyrir góðan aðbúnað með óvenju
fjömgri og skemmtilegri tafl-
mennsku.
7. umferð:
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Móttekið drottningarbragð
1. d4 - d5, 2. c4 - e6, 3. Rf3 -
dxc4, 4. Rc3 — c5, 5. d5 — exd5,
6. Dxd5 - Dc7?
Afgerandi afleikur í 5. leik!
Svartur varð að fara í drottninga-
kaup, en eðlilegt framhald er 6. —
Dxd5, 7. Rxd5 — Bd6, 8. e4 —
Rc6, 9. Bxc4 — Rge7, 10. 0-0 með
örlítið betra tafli fyrir hvítan.
7. Rg5!
Bindur svörtu drottninguna við
að valda f7-reitinn og hótar 8. Rb5
o.s.frv.
7. - a6, 8. De4+ - Re7
Ekki gengur 8. — De7 vegna 9.
Rd5 og svartur ræður ekki við
margvíslegar hótanir hvítu riddar-
anna.
9. Bf4 - Dc6, 10. 0-0-0 - be6
Óvenjuleg byijun hafði kostað
keppendur mikinn tíma, þegar hér
var komið. Þeir höfðu notað lV2klst.
hvor eða meira en helming þess
umhugsunartíma, sem þeim var
ætlaður á 40 leiki. Síðasti leikur
svarts leiðir til tapaðs endatafls, en
erfitt er að benda á betri leik.
Hvítur hefur svo mikið forskot í lið-
skipan, að umframpeð svarts hefur
ekkert að segja.
11. g3 - Dxe4, 12. Rcxe4 - Rf5,
13. Rxe6 - fxe6, 14. g4 - Rh6
Þvingaður leikur, þótt ljótur sé.
Ekki gengur 14. — Rd4, 15. e3 —
Rdc6, 16. Bxc4 o.s.frv. eða 14. —
Rh4, 15. Bg5 - Rg6, 16. Hd8+ -
Kf7, 17. Bf4 o.s.frv. eða 14. -
Re7, 15. Rd6+ o.s.frv.
15. Rg5 - Rc6, 16. Rxe6 - Kf7,
17. Rg5+ - Ke8,18. Bh3 - Hd8
Leiki svartur 18. — Rd4 er því
lfklega best svarað með 19. e3 —
Re2+, 20. Kc2 - Be7, 21. Hhel -
Rxf4, 22. exf4 og svartur er hjálp-
arvana.
19. Re6 - Rd4!?
Hannes reynir að mgla andstæð-
inginn í ríminu með skiptamuns-
fóm.
20. Rxd8 - Rxe2+, 21. Kc2 -
Rxf4, 22. Hhel+ - be7, 23. Bfl
- hf8, 24. Bxc4 - b5?, 25. Rc6
- Rg€
og Hannes gafst upp áður en
Margeiri vannst tími til að leika 26.
Hd8 mát.
Með sigri á Guðmundi Sigurjóns-
sjmi í 9. umferð gulltryggði Margeir
fyrsta sætið.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Guðmundur Siguijónsson
Hollensk vörn
1. d4 - e6, 2. c4 - f5, 3. Rf3 -
Rf6, 4. g3 - d5
Gijótgarðs-afbrigðið, en önnur
leið er 4. %- Be7 ásamt 5. — d6, —
0-0 o.s.frv.
5. Bg2 - c6, 6. 0-0 - Bd6, 7. b3
- De7
8. Rbd2 - Rbd7, 9. Bb2 - b6
Önnur áætlun svarts í þessari
stöðu er 9. — Bd7 ásamt B-e8-h5
o.s.frv.
10. Re5 — Bb7x, 11. cxd5 — exd5
Til greina kom 11. — cxd5, 12.
Rxd7 - Dxd7, 13. Rf3 - 0-0 með
Margeir Pétursson, skákmeist-
ari Islands 1986.
örlítið betri stöðu fyrir hvítan.
12. Rdf3 - Hc8, 13. Dd3 - Re4,
14. Rxd7 - Dxd7,15. Re5 - Bxe5
Svartur má engan tíma missa,
því annars leikur hvítur 16. f3
og 17. e4 og opnar sér sóknarlin-
ur á kóng svarts á miðborðinu.
16. dxe5 - 0-0. 17. Hadl - De7,
18. e3 - Rc5
Svarti riddarinn er á leiðinni til
e6, þar sem hann skorðar hvíta
fnpeðið á e5.
19. Dd4 - Re6, 20. Da4 - Dc7
Hvítur hótaði bæði 21. Ba3 og
21. Dxa7. Nú gengur 21. Dxa7
ekki vegna 21. — Ha8 og hvíta
drottningin fellur.
21. Ba3 - b5, 22. Dh4 - hf7
Ekki 22. - c5 vegna 23. Bxd5
o.s.frv.
23. Bd6 - Db6, 24. a4 - a5, 25.
axb5 — Dxb5, 26. Da4 — Ba6, 27.
Hfel - Hb7, 28. Dxb5 - Hxb5,
29. Hal - Hxb3,30. Hxa5 - Bb7
Hvítur hefur greinilega náð und-
irtökunum, en spumingin er, hvort
honum tekst að opna stöðuna fyrir
biskupana.
31. Heal - g5, 32. Ha7 - Kf7,
33. Bfl - Rd8
hvítur hótaði 34. Ba6, en betra
var að leika 33. — Kg6 við þeirri
hótun.
34. Be2 - Ke6
Nú gengur 34. — Kg6 ekki vegna
34. g4 og ef svartur drepur ekki
kemur 36. Bdl — Hb2, 37. Ba3 —
Hd2, 38. Bb4 - Hb2, 39. Bc3 -
Hb5, 40. Bc2 og hvítur vinnur.
35. e4! -
Með þessum skemmtilega leik
gerir Margeir út um skákina.
35. - Hb2
Svartur má ekki drepa á e4: 35.
— fxe4, 36. Bg4+ eða 35. — dxe4,
36. Bc4+.
36. exf5+ - Kxf5, 37. Bd3+ -
Ke6, 38. f4!
Hvítur eyðir ekki tíma í að drepa
peðið á h7, því tvö samstæð frípeð
á e- og f-línu studd af biskupapar-
inu vinna skákina fljótt og vel.
38. - gxf4, 39. gxf4 - d4, 40.
Be4 - Kf7
og í þessari stöðu lék Margeir
SOVÉSKIR DAGAR 1986:
FYRIRLESTUR
Dr. Einar I. Siggeirsson flytur erindi í húsakynnum MÍR
að Vatnsstíg 10 /' kvöld, fimmtud. 9. okt. kl. 20.30. Erind-
ið nefnir hann: „Vísindaleg og atvinnuleg áhrif, ættuð frá
Úzbekistan, á íslenskar framfarir".
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
MÍR
# SOVÉSKIR DAGAR 1986:
Tónteikar og dans
í Hlégarði
Söng- og dansflokkurinn „Lazgí“ frá Sovótlýðveldinu Úzbekistan
heldur kveðjutónleika og danssýningu í félagsheimilinu Hlégarði
í Mosfellssveit föstudagskvöldið 10. okt. kl. 20.30. Fjölbreytt efnis-
skrá. Missið ekki af sérstæðri skemmtun. MÍR
Samstarfsnefnd íslenskra friðarhreyfinga:
Heldur friðarstund á
Lækjartorgi annað kvöld
SAMSTARFSNEFND íslenskra
friðarhreyfinga efnir til friðar-
stundar á Lækjartorgi annað
kvöld, föstudagskvöld, milli kl.
21.00 og 22.00 til að fagna leið-
togafundinum í Reykjavík.
Mótettukórinn syngur bæði við
upphaf friðarstundarinnar og eins
við lok hennar, biskup íslands, Pét-
ur Sigurgeirsson talar, Helga
Backman leikari flytur ávarp fyrir
hönd íslenskra friðarhópa og Guðr-
ún Ásmundsdóttir og Valdimar
Flygenring leikarar lesa ljóð.
Það eru níu íslenskir friðarhópar,
sem standa að friðarstundinni:
Samtök lækna gegn kjamorkuvá,
Samtök íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjamorkuvá, íslenska friðar-
nefndin, Samtök um kjamorku-
vopnalaust ísland, Samtök
herstöðvaandstæðinga, Friðar-
hreyfíng íslenskra kvenna, Friðar-
hópur fóstra, Friðarsamtök
listamanna og Ménningar- og frið-
arsamtök íslenskra kvenna.
Tómas. Jónsson, myndlistarmað-
ur, hefur hannað sérstakt merki í
tilefni íeiðtogafundarins og verða
þau seld um helgina. Einnig verða
vaxkindlar til sölu á Lækjartorgi
annað kvöld og eru landsmenn allir
hvattir til að tendra ljós í gluggum
sínum bæði á föstudags- og laugar-
dagskvöld til að láta í ljós von sína
um árangurríkan fund íeiðtoganna.
Þá eru stjómmálaflokkar og félaga-
samtök hvött sérstaklega til að taka
þátt í friðarstundinni og styðja
þetta framtak, enda hefur bæði
fengist leyfi frá stjómvöldum og
borgaryfírvöldum fyrir uppákom-
unni á Lækjartorgi.
Fulltrúar samstarfsnefndarinnar
sögðust hafa valið föstudagskvöldið
sérstaklega vegna þess að þá væru
báðir leiðtogamir komnir til lands-
ins og fundur þeirra ekki byijaður.
Hugmyndin væri að bjóða þá Reag-
an og Gorbachev velkomna með
þessari klukkustundar langri friðar-
stund og vonast fulltrúar nefndar-
innar til að öll íslenska þjóðin taki
þátt í að bera fram óskir okkar um
frið á þennan annars myndræna
hátt. Einnig vonast samtökin til
þess að andblærinn frá fundinum
berist út um heim allan.
Á Akranesi verður einnig haldin
friðarstund á sama tíma annað
kvöld og með sama yfírbragði og á
Lækjartorgi og jafnvel víðar á
landinu.
Þessar níu friðarhreyfíngar hófu
að starfa saman í byijun þessa árs
og er þetta þriðja uppákoman sem
þær standa saman ,að. Fyrst stóðu
þær sameiginlega að friðarpáskum
og á Hirosima-daginn í ágúst sl.
stóðu þær fyrir kertafleitingu á
tjöminni í Reykjavík.
Fulltrúar hinna niu friðarhreyfinga, sem standa að friðarstundinni
á Lækjartorgi annað kvöld. Frá vinstri: J6n Samsonarson, Svavar
Sigmundsson, Guðrún Helgadóttir, Jóhanna Bogadóttir, Margrét
Hákonardóttir, Sigurhanna Siguijónsdóttir, Steinunn Harðardóttir,
Hólmfríður Árnadóttir, Tómas Jónsson og Tómas Jóhannesson