Morgunblaðið - 09.10.1986, Page 73

Morgunblaðið - 09.10.1986, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 73 Nemendur lögreg’lu- skólans í búnínga 500-600 manns K við löggæslustörf 1 um helgina LÖGREGLAN í Reykjavík fær til liðs við sig um 100 iögreglu- menn frá nágrannabæjunum og”*— 250—300 björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu vegna leiðtogaf undarins. Auk þess verða þeir nemendur Lögreglu- skólans sem vanir eru Iöggæslu- störfum drifnir í búninga fyrir helgina. Alls verða því 500—600 manns við löggæslustörf í höfuð- borginni á meðan á fundi leið- toga stórveldanna stendur. Að sögn Bjarka Elíassonar yfir- lögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík átti Lögregluskólinn að hefjast í byrjun vikunnar, en setn- ingu hans hefði verið frestað fram vfir næstu helgi vegna fundarins. I skólanum verða um 80 nemendur og verður um helmingur þeirra við störf um helgina. Lögreglan fær liðsauka frá Sel- fossi, Keflavík, Keflavíkurflugvelli, Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri og Rannsóknarlögreglu ríkisins. Alls eru þetta um 100 manns. Síðdegis í gær fóru foringjar samtaka björgunar- og hjálpar- sveita landsins á fund yfírmanna lögreglunnar til fá upplýsingar um hlutverk sveitanna í löggæslunni. Fram kom að þeim verður falið að sjá um gæslu í kring um fundar- * staðinn, Höfða, í samvinnu við lögregluna, jafnt að degi sem nóttu alla helgina. Einnig verða þeim fal- in ýmis gæslustörf, svo sem við höfnina og ( sambandi við flugið. Jóhannes Briem deildarstjóri björg- unardeildar Slysavamarfélags íslands sagði i gærkvöldi að allt tiltækt lið sveitanna á höfuðborgar- svæðinu og nágrenni yrði kallað út og vonaðist hann til að 250—300 manns kæmu til starfa um helgina. Davfð Oddsson borgarstjóri ávarpar gesti að Kjarvalsstöðum í gær. Morgunblaðið/Ámi Sæberg. Móttaka fyrir fjölmiðla að Kjarvalsstöðum: Margir vildu ná tali af borgarstjóra DAVÍÐ ODDSSON borgarstjóri Reykjavíkur tók síðdegis í gær á móti fulltrum þeirra fjölmiðla sem hér eru staddir vegna leið- togafundar þeirra Reagans og Gorbachev nú um helgina. Var borgarstjroinn léttur í máli, er hann ávarpaði fuiltrúa fjölmiðl- anna, og var þröngt á þingi er þeir reyndu hver á fætur öðrum að ná borgarstjóranum í smáviðtal. Borgamtjóri sagði m.a. að hann treysti íslendingum fullkomlega fyrir skipulagningu þess fundar sem nú stendur fyrir dyrum, og lét að því liggja í máli sínu, að hann kynni ekki að meta blaðaum- (jallanir erlendis, þar sem væri látið að því liggja, að mikil fé- græðgi hefði hlaupið í menn. Kvaðst hann einnig ósáttur við blaðalýsingar á borð við það að hér ríkti algjör ringulreið - sagðist reyndar alls ekki verða var við neitt ófremdarástand. Davíð sagði að hingað til lands kæmu með 10 daga fyrirvara um 4000 manns, og vakti athygli á því að ef sambærilegt hlutfall kæmi til Lundúna með sama skamma fyrirvaranum, þá yrðu Lundúnabúar að búa sig undir að taka á móti 400 þúsund manns. Davíð sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkveldi að Hann myndi taka á móti þeim Reagan og Gorbachev þegar þeir kæmu í Höfða. „Ég mun hitta þá inni í Höfða, bjóða þá velkomna, af- henda þeim húsið og óska eftir því að þeir riti nöfn sín í gestabók sem ég hef látið útbúa af þessu tilefni og því næst taka þeir við sjálfír," sagði Davfð. Davíð sagði að borgarstjóm hefði af umhverfísástæðum ákveð- ið að láta jafna út þann uppgröft sem er við sjávarsíðuna, fyrir aftan Höfða. „Við ákváðum þetta af umhverfisástæðum," sagði Davíð. Hann sagði að jarðvegurinn yrði grafínn upp á nýjan leik, eftir að fundum leiðtoganna lyki. Davíð var spurður hvað þessar fram- kvæmdir myndu kosta: „Þetta kostar svona tvær og hálfa til þijár milljónir króna," sagði Davíð, „en við eigum von á því að ríkið muni endurgreiða okkur þann kostnað." Morgunblaðið/Arni Sæberg FuUtrúar erlendu pressunnar settu sig ekki úr færi við að ná tali af Davíð Oddsyni borgar- stjóra í móttöku þeirri sem hann stóð fyrir fyrir erlenda blaða- menn í gær. Borgarstjóri kvaðst afar ánægður með það að Reykjavíkur- borg fengi að lána Höfða undir þennan fund leiðtoganna, „mér fínnst það raunar alveg dásam- legt,“ sagði Davíð. Time með 5 tonn af ljósmyndabúnaði Bandaríska vikutimaritið Time leigði sérstaka flutninga- vél á Bretlandi til að flytja litmyndatækjabúnað hingað til landsins út af leiðtogafundin- um. Tækjabúnaðurinn gerir blaðinu kleift að senda litmynd- ir, sem verða teknar hér á laugardag, til Bandaríkjanna i góðan tima áður en blaðið fer í prentun á sunnudag. Búnaður- inn vegur 4 til 5 tonn og kostar „mörg hundruð þúsund doll- ara“ að sögn starfsmanns Time. Hann sagði að það væri ótrú- legt hversu vel hefur gengið að koma tækjunum upp. „Við höfum yfirleitt miklu lengri tíma til að skipuleggja starfsemi okkar en við höfum nú. Við vorum til dæm- is með svona tæki á Asíuleikunum í Seoul í haust og höfðum heilt ár til að undirbúa það. En ég vona að þetta gangi vel hér. ís- lendingar hafa verið mjög hjálps- amir. Eg óttast bara að það verði of mikið álag á símalínunum þeg- ar við förum að senda myndimar." Tækjabúnaðurinn verður send- ur héðan með flutningaskipi. Þau verða væntanlega notuð til að senda sex til átta litmyndir frá íslandi til Bandarikjanna. Vélin sem Time leigði til að flytja litmyndatækjabúnað sinn hingað til lands. Helst mætti lialda að hún væri af bresku flugutinjasafni. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Tækjabúnaðurinn í kössum á 1. hæð Morgunblaðshússins, en Time hefur litmyndaaðstöðu hjá Myndamót á efstu hæð hússins. j,lr‘.. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.