Morgunblaðið - 17.10.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986
Forseti íslands á alþjóða matvæla-
degi FAO:
Ég er afar stolt af
fiskimönnum okkar
EINS og allir íslendingar, þá er ég afar stolt af fiskimönnum okk-
ar og þá þeim mun frekar vegna þess að ég er ekki bara íslendingur
heldur íslenzk kona. Ástæðan fyrir þessu er sú, að fiskimenn hafa
alltaf verið raunsærri og treyst
starfsgreinar.
Þetta kom m. a. fram hjá frú
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, er hún flutti aðalræðuna
í gær á sjötta alþjóða matvæladegi
Matvæla- og Landbúnaðarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í
Róm. Yfirskrift matvæladagsins
var að þessu sinni „Fiskimenn og
fískveiðisamfélög."
Forseti íslands ræddi um þá
baráttu, sem íslendingar hefðu
orðið að heyja fyrir umráðarétti
sínum yfir hafínu umhverfís landið
og að á þessu ári væri þess minnst,
að 10 ár væru liðin, síðan svo-
nefndu „þorskastríði" við Bretland
lauk. Því bæri að fagna, að allur
heimurinn hefði nú fallizt á 200
meir á konur en flestar aðrar
mílna fískveiðilögsögu.
í lok ræðu sinnar ræddi forseti
íslands um þær hættur, sem stafa
af mengun hafsins. Á næstu árum
yrði mannkynið að finna lausn á
þessum vanda, sem gæti haft í för
með sér stórfellda ógnun fyrir allt
líf, jafnt á láði sem legi.
En ef horft væri til framtíðar,
þá gæfí fískirækt jafnt í sjó sem
í landi þó ástæðu til bjartsýni. Á
síðustu árum hefði fískirækt vaxið
ótrúlega hratt og stæði nú undir
12% af allri fískframleiðslu. Þar
gæti ísland gegnt miklu hlutverki,
þar sem landið réði yfír gnægð af
jarðhita.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, flytur ræðu á alþjóða matvæladegi FAO í Róm i gær.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gaer: Viö austurströnd landsins er dálítill hæöar-
hryggur sem þokast austur en allmikil 970 millibara djúp lægð,
skammt suðaustur af Hvarfi, hreyfist norðaustur.
SPÁ: Suðvestlæg átt verður ríkjandi um allt land, stinningskaldi (6
vindstig) með hvössum slydduéljum um vestanvert landið en hæg-
ari og léttir smá saman til um landið austanvert. Hiti á bilinu 2 tij
8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR: Sunnan- og suðaustanátt og fremur hlýtt í veðri.
Skúrir á sunnanverðu landinu en að mestu þurrt fyrir norðan.
SUNNUDAGUR: Gengur í norðanátt um allt land og kólnar í veð’ri.
Slydda eða kalsarigning á norðanverðu landinu en lóttir smá sam-
an til fyrir sunnan.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
•á Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * #
* * * * Snjókoma
* * *
1Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—L Skafrenningur
["^ Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavlk
Bergen
Helsinki
Jan Mayen
Kaupmannah.
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshðfn
Algarve
Amsterdam
Aþena
Barcetona
Beriín
Chicago
Glasgow
Feneyjar
Frankfurt
Hamborg
Las Palmas
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
Mlaml
Montreal
Nlce
NewYork
Paris
Róm
Vín
Washington
Wlnnipeg
veður
skýjað
skýjað
rigning
Þokumóða
snjóél
þokumóða
snjóól
skýjað
léttskýjað
léttskýjað
skúr
MtUkýjað
skýjað
rigning
mlstur
helðsklrt
alskýjað
skýjað
helðsklrt
mistur
þoka
skýjað
•kýjað
þokumóða
þokumóða
alskýjað
hátfskýjað
súhl
þokumóða
alskýjað
þokumóða
skýjað
rignlng
þokumóða
halðsklrt
léttskýjað
þoka
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
/ DAG kl. 12.00:
Tveir nýir prófastar
TVEIR nýir prófastar hafi verið
kjörnir samkvæmt heimildum
frá Biskupsstofu.
Prestar Ámesprófastsdæmis
hafa kjörið sr. Tómas Guðmundsson
í Hveragerði sem prófast sinn, en
sr. Sveinbjöm Sveinbjömsson í
Hmna lætur af því embætti innan
tíðar. Sr. Öm Friðriksson á Skútu-
stöðum hefur verið kjörinn prófast-
ur Þingeyinga í stað sr. Sigurðar
Guðmundssonar vígslubiskups sem
flutt hefur að Hólum og skipaður
til prestsþjónustu þar.
Hrunaprestakall:
Halldór Reynisson
varð hlutskarpastur
HALLDÓR REYNISSON fékk
flest atkvæði i prestskosning-
um i Hrunaprestakalli i
Arnesprófastsdæmi, kosning
fór fram s.l. sunnudag og
voru atkvæði talin á Biskups-
stofu í gær.
Umsækjendur vom fjórir, auk
Halldórs þeir sr. Haraldur M.
Kristjánsson sem hlaut 119 at-
kvæði, sr. Önundur Bjömsson er
hlaut 63 atkvæði og Jón ísleifsson
cand. theol er hlaut tvö atkvæði.
Einn seðill var auður.
Á kjörskrá vom 383 en atkvæði
greiddu 310.
Halldór Reynisson
Umfangsmikið ávísana-
misferli á Akureyri
RANN SÓKNARLÖGREGL-
AN á Akureyri hefur upplýst
Leiðrétting
MEINLEG prentvilla varð í
kynningu á Esther Guðmunds-
dóttur, sem birtist með grein
hennar á bls. 25 í Morgunblað-
inu í gær. Þar átti að standa:
„Höfundur er markaðsstjóri
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis og þátttakandi í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík." í stað orðsins þátt-
takandi stóð „þrettándi". Skýr-
ingin er sú, að þessi texti var
handskrifaður á handritablað.
Þetta leiðréttist hér með. Morg-
unblaðið biður Esther Guð-
mundsdóttur velvirðingar á
þessum mistökum.
all umfangsmikið ávisanamis-
ferli. Fjórir Akureyringar
hafa viðurkennt við yfir-
heyrslur að hafa fengið
tékkhefti í þeim tilgangi að
svikja út fé. Ekki er alveg ljóst
hve mikið þeir hafa svikið út
en þó er vitað að upphæðin
nemur nokkrum hundruðum
þúsunda.
Fólk það sem hér á í hlut hefúr
áður komið við sögu lögreglunnar,
við ávísanamisferli og fleira.
Þess má geta að fjórmenning-
amir fengu tékkheftin í banka-
útibúum í Reykjavík og skrifuðu
út úr þeim í Reykjavik, Akranesi
og Borgamesi auk Akureyrar. Þeir
höfðu skrifað 75 innistæðulausar
ávísanar, 3 hefti.
Málið hefur verið í rannsókn í
2-3 vikur.