Morgunblaðið - 17.10.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986
9
Á
KANÍNUKJÖT
395 kr. kg.
Algjört lostæti.
KJÖTMIÐSTÖÐIN Sími 686511
SÉRTILBOÐ
RF 570 Kæliskápur
Verð aðeins kr. 13.990,- stgr
Eiðistogi 11. Sími 622200
BREYTINGAR
Á OPNUNARTÍMA
AFGREIÐSLU
LÁNASJÓDS ÍSL.
NÁMSMANNA
Afgreiðslutími
Þar sem fyrsta áfanga haustúthlutunar námslána er nú lokið verða
eftirfarandi breytingar á opnunartíma afgreiðslu Lánasjóðsins. Af-
greiðslan verður lokuð á mánudögum og föstudögum en opnunar-
tíminn lengdur á fimmtudögum. Opnunartími afgreiðslunnar veröur
því sem hér segir:
Mánudaga Lokað
Þriðjudaga 9.15—16.00
Miðvikudaga 9.15—16.00
Fimmtudaga 8.00— 18.00
Föstudaga Lokað
Námsmenn geta, jafnt þá daga sem afgreiöslan er lokuð og aðra
daga, komiö í afgreiðsluna og náð í eyðublöð, skilað fylgiskjölum
og skuldabréfum og fengið almennar upplýsingar á upplýsingatöflu
Lánasjóðsins.
Ekki verða breytingar á viðtalstímum og síma-
þjónustu.
Námsmenn og umboðsmenn geta farið í viðtöl alla virka daga frá
12.00-15.30.
Námsmönnum er bent á hina ágætu símaþjónustu þar sem flestir
geta fengið úrlausn. Daglegri'símaþjónustu Lánasjóðsins er háttað
sem hér segir;
Kl. 9.15—12.30 er hægt að ná sambandi við alla ráðgjafa LÍN sem
svara sérhæfðum fyrirspurnum um útreikning, lánshæfni náms er-
lendis, kröfur um námsframvindu o.fl.
Kl. 12.30—16.00 er svarað almennum fyrirspurnum um afgreiöslu-
tima lána, tekjumörk, lánshæfni skóla á íslandi o.fl.
Lánasjóður ísl. námsmanna,
Laugavegl 77, sími 25011,
101 Reykjavík.
Tungunni ertamast...
„Tungunni er tamast það sem hjartanu er kærast", segir gam-
all íslenzkur málsháttur. Tungufoss Þjóðviljans flytur þessa
dagana fátt annað en fréttir af Sjálfstæðisflokknum, einkum
prófkjörsmálum flokksins í Reykjavík. í forystugrein blaðsins í
gær er og fjallað um „framsóknarflóttann" úr strjálbýlinu. Blað-
ið finnur hinsvegar hreint ekkert fréttnæmt í eigin herbúðum.
Þar gerist ekki neitt, ef marka má Þjóðviljann.
Þrengsla-
vegnr
Þjóðviljinn, „málgagn
sósíalisma, þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar“,
eins og hann kallar sjálf-
an sig, hefur eht megin-
hlutverk: að leggja
þrengslaveg íslands til
sósíalismans. Þjóðir, sem
hafa farið slikan veg,
hafa flestar ratað í raun-
ir. Það eru að visu ekki
„prófkjörsraunir", en á
slíkuni raunum hefur
Þjóðviljinn mestan áhuga
um þessar mundir, held-
ur mun alvarlegri
lifsreynsla. Þrengslaveg-
ur ríkja í A-Evrópu, Asíu
og Afríku til sósíalismans
hefur ekki reynzt góð
auglýsing.
Það hafa ekki margir
verið á ferð, utan Al-
þýðubandalagið, á
þrengslavegi íslands til
sósíalismans. Og þvi mið-
ar hægt, enda fer orka
þess öll í innbyrðis átök.
Af þeim átökum segir
fátt i Þjóðviljanum þessa
dagana. Blaðið er i þagn-
arbindindi, hvað Alþýðu-
bandalagið varðar, sem
er skiljanlegt. Flokknum
þeim er máske siginn
svefn á brár.
Að telja dálk-
sentimetra
Athygli Þjóðviljans
þessa dagana er bókstaf-
lega limd utan á Sjálf-
stæðisflokkinn, einkum
prófkjör hans. Þar sem
eitthvað er að gerast þar
á athygli fjölmiðla að
vera. Og Þjóðviljinn læt-
ur ekki að sér hæða i
fréttamennskunni, eins
og kunnugt er.
Prófkjör þjónuðu
gildu hlutverki þá upp
vóru tekin. Framvindan
hefur hinsvegar leitt
ýmsa annmarka i Ijós.
Að þvi hlýtur að koma,
fyr en siðar, að þetta
fyrirkomulag verði end-
urskoðað, jafvel stokkað
upp - i ljósi reynslunnar.
Áhugi Þjóðviljans á próf-
kjörsfyrirkomulagi sjálf-
stæðisfólks stafar þó
máske fyrst og fremst
af þvi að „málgagnið"
telur allt annað betra og
skemmtilegra umræðu-
efni en heimavettvang-
inn, þrengslaveginn. Það
er kórrétt mat.
Og nú hefur Þjóðvi^j-
inn fundið sér verðugt
verkefni til fréttadund-
urs, sum sé, að telja
dálksentimetrana í próf-
kjörsauglýsingum sjálf-
stæðismanna. Rannsókn-
arblaðamennskan
stendur fyrir sínu.
Strjálbýlis-
flóttínn
I forystugrein Þjóð-
viljans í gær segir ni.a.:
„Flóttafólk af lands-
byggðinni hefur nú
eignast nýjan forustu-
mann til að leiða flótt-
ann. Formaður
Framsóknarflokksins,
Steingrimur Hermanns-
son forsætisráðherra,
hefur staðið upp af föð-
urleifð sinni, Vestfjarða-
kjördæmi, og flutt sig
nær kjötkötlum þéttbýlis-
ins. Steingrímur hefur
tilkynnt að hann gefi
kost á sér í Reykjanes-
kjördæmi í næstu kosn-
ingum."
Síðar í greininni segir:
„Fólk sér að Fram-
sóknarflokkurinn býður
ekki upp á hugsjónir og
stefnumið, sem gætu
höfðað til kjósenda. Enda
virðast flestar hugsjónir
flokksins hafa týnst ein-
hversstaðar i kapphlaup-
inu um ráðherrastóla."
Var einhver að tala um
ráðherrasósíalisma?
„Sér’ann ekki sina menn,
svo’ann ber þá líka.“
Vestfirðir og
Reykjanes
Tíminn segir í forystu-
grein í gær.
„Framsóknarflokkur-
inn er staðráðinn í þvi
að margfalda fylgi sitt i
Reykjaneskjördæmi og
stefnir ótrauður að því
markmiði að ná þar inn
tveimur þingmönnum.
Raunar er sömu sögu að
segja um land allt.,.“
Hvað ætlar Framsókn-
arflokkurinn að fá
marga menn kjöma á
Vestfjörðum?
Færri á atvinnuleysisskrá
ATVINNUÁSTANDIÐ í landinu
var betra i september sl. en í
nokkrum öðrum mánuði ársins
til þessa segir í frétt frá Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins. Mestu munar um
skráða atvinnuleysisdaga á höf-
uðborgarsvæðinu, þar sem
fækkunin nam 1900 dögum eða
36% en var 43% í ágústmánuði.
í septembermánuði voru skráðir
6700 atvinnuleysisdagar á öllu
landinu, sem er 3400 dögum færri
en í mánuðinum á undan og þriðj-
ungi færri en í sama mánuði í fyrra.
Þá kemur fram að skráðir atvinnu-
leysisdagar í september jafngilda
að 300 manns hafí verið á atvinnu-
leysisskrá allan mánuðinn en það
svarar til 0,3% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar.
Þessi þróun er í samræmi við
niðurstöðu könnunar á atvinnuhorf-
um, sem Þjóðhagsstofnun og
Vinnumálaskrifstofan gengust fyrir
sl. vor, en í henni kom fram að
töluverðar eftirspumar eftir vinnu-
afli mjmdi gæta á höfuðborgar-
svæðinu. Þess skal að lokum getið
að nú stendur yfír könnun sömu
aðila á atvinnuhorfum í vetur og
fyrri hluta næsta árs og eru þeir,
sem ekki hafa þegar skilað útfylltu
eyðublaði hvattir til að gera það
nú þegar.
Loðnu-
skip
bíða
löndunar