Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.11.1986, Qupperneq 1
56 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 255. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986 Prentsmíðja Morgunblaðsins Franskir gíslar látnir lausir í Líbanon Slmamynd/AP Tveimur Frökkum sem haldið hafði verið mánuðum saman í gíslingu í Libanon var sleppt í gær og voru þeir fluttir til Damaskus í Sýrlandi. Síðdegis í gær héldu mennirnir tveir síðan til Frakk- lands. Sýrlendingar höfðu milligöngu um frelsun þeirra og var mynd þessi tekin í Damaskus í gær er gíslarnir voru formlega afhentir frönskum yfirvöldum. Lengst til vinstri er Marcel Coudari en við hlið hans stendur Camille Sontag, sem er 85 ára gamall. Honum var rænt í maimánuði en hann hefur búið í LSbanon i 40 ár. Til hægri á myndinni er Farouk Al-Sharaa, utanríkisráðherra Sýrlands. Svíþjóð: Ferðir sovéskra kafbáta staðfestar Stokkhólmi, Reuter. BROR STEFENSON, yfirmaður sænsku herstjórnarinnar, kvaðst í gær hafa óyggjandi sannanir fyrir því að sovéskir kafbátar hefðu tvívegis á undanförnum árum siglt innan sketjagarðsins í nágrenni Stokkhólms. Sænska herstjómin birtir reglu- lega tilkynningar um ferðir óþekktra kafbáta innan land helginnar en þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1982 sem fullyrt er að kafbátamir hafi verið sovéskir. Stefenson lét þessi orð falla í viðtali við fréttamann sænska ríkisútvarpsins og kvað sænska sjó- liða hafa séð sovéska kafbáta á siglingu skammt frá Stokkhólmi árið 1980 og 1982. I októbermánuði árið 1981 stran- daði sovéskur kafbátur af Whisky- gerð skammt undan flotastöðinni við Karlskrona í suðurhluta lands- ins. Árið eftir tilkynnti sænska herstjómin að sovéskur kafbátur hefði sést á siglingu skammt frá Stokkhólmi og voru borin fram formleg mótmæli við Sovétstjómina af því tilefni. Noregur: Reiði vegna skemmdar- verka Shepherd-manna Munu Norðmenn endurskoða samskiptin við Alþjóðahvalveiðiráðið? Ósli, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. SKEMMDARVERKIN, sem unn- in voru á tveimur hvalbátum og í hvalstöðinni i Hvalfirði, hafa vakið mikla athygli og reiði i Noregi. Hafa þessir atburðir jafnframt vakið ótta manna við, að Sea Shepherd-samtökin muni næst láta til skarar skriða í Nor- egi. Embættismenn í norska sjávar- Eldur í far- þegaskipi 300 börnum bjargað Moskvu, AP, Reuter. TVEIR menn létu lífið þegar eldur kom upp í sovésku far- þegaskipi á Japanshafi i fyrrinótt að því er sovéska fréttastofan Tass sagði í gær- kvöldi. 300 skólaböm voru um borð og komust þau öll ómeidd í björgunarbáta. Þeim var bjarg- að um borð í nærliggjandi skip. Skipið var statt tæpa 100 kílómetra undan Nakhoda, sem er skammt frá Vladivostok. Eld- urinn kom upp í vélarrúmi skipsins og breiddist síðan út. Ákveðið var að flytja farþega frá borði en áhöfnin varð eftir og tókst henni loks að ráða nið- urlögum eldsins í gærmorgun. Skipið var dregið til hafnar. útvegsráðuneytinu fylgjast einnig vel með og sagði Trond Wold, tals- maður þess, að menn væru mjög reiðir vegna þess, sem gerst hefði á íslandi. Benti hann á, að Sea Shepherd-samtökin hefðu áheymar fulltrúa í Alþjóðahvalveiðiráðinu „og þess vegna verðum við að taka það til endurskoðunar hvort við höldum áfram að senda ráðinu ná- kvæmar upplýsingar um norsku hvalveiðibátana, hvar þeir eru og hveijir eiga þá. Þessar upplýsingar geta samtökin notað sér og ráðist á norsk skip,“ sagði Wold. Jacob Strand, fulltrúi hvalveiði- manna í norsku sendinefndinni hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu, gagmýndi í gær harkalega Noregsdeild Alþjóðanáttúmvemdarsjóðsins, Norska náttúruvemdarfélagið og félagið Náttúra og æska. Sagði hann, að innan þessara félaga mætti finna menn, sem líklegir væru til að leggja skemmdarverka- mönnum Sea Shepherd lið og einkum beindi hann spjótunum að Haraldi krónprinsi, sem er formað- ur Noregsdeildar Alþjóðanáttúm- vemdarsjóðsins. Finnst Strand óeðlilegt, að fulltrúi konungsfjöl- skyldunnar skuli vera í samtökum, sem beijast gegn hagsmunum norsku þjóðarinnar og opinberri stefnu stjórnarinnar. Strand vekur á því athygli, að íslenskum stjómvöldum hafí í júlí í fyrra borist bréf frá ýmsum um- hverfisverndarsamtökum og að meðal undirskriftanna megi finna nafn Peters Scott fyrir hönd Alþjóðanáttúruvemdarsjóðsins og Pauls Watson fyrir hönd Sea Shep- herd. Segir Strand, að þetta bendi til samstarfs með samtökunum enda séu hvor tveggja aðilar að bandarísku samtökunum Monitor. Haraldur krónprins hafði seint í gærkvöldi ekkert sagt um sameig- inlega aðild Alþjóðanáttúruvemdar- sjóðsins og Sea Shepherd að bréfínu né um starf sitt sem formanns Noregsdeildarinnar. Öll þijú norsku umhverfisvemdarsamtökin gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem þau fordæma skemmdarverk Sea Shep- herd á íslandi. Sjá viðtal við Steingrím Her- mannsson á bls. 4 og fréttir á bls. 22. Afganistan: Sovétmenn sagðir beita efnavopnum Islamabad, Pakistan, AP, Reuter. SOVÉSKI innrásarherinn í Afganistan beitti í siðasta mánuði efnavopnum gegn skæruliðum í bardögum nærri Kabúl, höfuðborg landsins, að sögn vestrænna stjómarer- indreka. Eiturefnunum var ýmist dreift úr lofti eða skotið með fallbyssum og lét ótilgreindur fyöldi afganskra skæruliða og óbreyttra borgara lífið. Sovéskir hermenn voru einnig sagðir hafa beitt efnavopnum í Paghman- héraði gegn skæruliðum og óbreyttum borgumm sem leitað höfðu skjóls í áveitugöngum. Embættismennimir kváðust jafnframt hafa traustar heimild- ir fyrir því að að sjö hermenn stjómarhersins hefðu látist þeg- ar eiturefnum var skotið að þeim í misgáningi. Ríkisstjómir ýmissa vest- rænna ríkja hafa ítrekað sakað Sovétmenn um að beita efna- vopnum í Afganistan. í síðasta mánuði greindi Baktar hin opin- bera fréttastofa Afganistan, hins vegar frá því að embættis- menn hefðu lagt fram sýnishom af efnavopnum, sem vestrænir aðilar hefðu látið skæruliðum í té. Vopnasala Bandaríkjastjórnar til íran: Stefnan gagnvart hryðju- verkamönnum er óbreytt - segir talsmaður Bandaríkjaforseta Washington, AP, Reuter. LARRY SPEAKES, talsmaður Reagans Bandaríkjaforseta, sagði í gær að Bandaríkjastjórn hefði hvorki brotið gildandi lög né gert samninga við hryðju- verkamenn til að fá gisla leysta úr haldi. Bandaríkjastjórn hefur enn ekkert látið uppi um hvort Irönum hafi verið seld vopn. Speakes sagði stefnu stjórnar- innar gagnvart vopnasölu til hryðju- verkamanna óbreytta. Hann kvað Bandaríkjaforseta hafa farið þess á leit við ráðgjafa sína og aðra hátt- setta embættismenn að þeir létu ekkert hafa eftir sér um málið þar sem „líf bandarískra gísla væm í hættu." Undanfama daga hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki um að Bandaríkjastjórn hafi selt írönum vopn, í trássi við gildandi lög, í skiptum fyrir bandaríska gísla í Líbanon. Shamir, forsætisráðherra ísraels, bar í gær til baka fréttir þess efnis að Israelar hefðu haft milligöngu um vopnaviðskiptin.Um síðustu helgi lýstu ýmsir máls- metandi bandarískir þingmenn því yfir að þeir myndu beita sér fyrir rannsókn á því hvort vopnasala til íran hefði farið fram í gegnum bandaríska Öryggisráðið í þeim til- gangi að sniðganga vamarmála- ráðuneytið , utanríkisráðuneytið og Bandaríkjaþing. í kjölfar þessa kall- aði Ronald Reagan háttsetta embættismenn á sinn fund og bað þá um að tjá sig ekki um málið á opinberum vettvangi. Bandaríska dagblaðið The Washington Post hafði í gær eftir ónefndum heimildarmönnum að John Pointdexter, öryggismálaráð- gjafi,. hefði sagt bandarískum þingmönnum að Bandaríkjastjóm hefði „gert þau mistök að treysta ákveðnum aðilum í íran sem ekki reyndust traustsins verðir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.