Morgunblaðið - 12.11.1986, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1986
Þrjár sprengjur
springa í Pans
París, Antwerpen, AP, Reuter.
SPRENGJUR sprungfu i gær-
morgun við þijár skrifstofu-
byggingar í París og er það haft
eftir lögreglunni, að hryðju-
verkasamtökin „Bein aðgerð“
hafi gengist við þeim. Þá varð
einnig sprenging um svipað leyti
við eitt af bænahúsum gyðinga
í Antwerpen í Belgiu.
Sprengjumar í París spmngu við
höfuðstöðvar Peugeot-fyrirtækis-
ins, við byggingu Total-olíufyrir-
tækisins og við Tour Manhattan en
SKÆRULIÐAR Rauðu Khme-
ranna í Kambódiu sögðust i gær
hafa ráðist á nýjan flugvöll í
Mið-Kambódíu, valdið þar veru-
legum skemmdum, fellt 12
víetnamska hermenn og sært 10.
Skýrt var frá árásinni í leyni-
legri útvarpsstöð er skæruliðamir
reka og sagt að þeir hefðu náð á
sitt vald töluverðu magni vopna er
tilheyrt hafí víetnamska hemum.
í þeirri byggingu hafa mörg trygg-
ingafyrirtæki skrifstofur sínar. Slys
urðu ekki á mönnum en allmiklar
skemmdir á húsunum.
Franska ríkisútvarpið hafði það
eftir lögreglunni, að hryðjuverka-
samtökin „Bein aðgerð" hefði lýst
ábyrgðinni á hendur sér og þættust
þau með sprengingunum vera að
mótmæla komu P. W. Botha, for-
seta Suður-Afríku, til Frakklands.
Botha opnaði í gær í Longueval í
Norður-Frakklandi safn til minn-
Er Víetnamamir hafi sent liðsauka
til hjálpar, hafi skæmliðamir gert
þeim fyrirsát.
Rauðu Khmeramir eru ein
þriggja skæruliðahreyfinga er beij-
ast við Víetnama er lögðu undir sig
Kambódíu árið 1978. Vestrænir
sérfræðingar hafa á undanfömum
ámm oft haldið því fram að frá-
sagnir skæmliða af átökum væm
ýktar, en segja margt benda til
þess að átök fari nú harðnandi.
ingar um þá suður-afríska her-
menn, sem féllu í heimsstyrjöldun-
um báðum. Fyrirtækin fyrmefndu
hafa öll einhver viðskipti við Suður-
Afríku.
Sprengja sprakk í gærmorgun
við eitt helsta bænahús gyðinga í
Antwerpen í Belgíu. Steindir
gluggar í húsinu eyðilögðust en
manntjón varð ekkert. Er um að
ræða þriðja sprengjutilræðið í
Belgíu á þessu ári en það fyrsta í
nokkur ár, sem beint er gegn gyð-
ingum. Ekki er vitað hveijir komu
sprengjunni fyrir.
Tólf
larfalákar
fyrir rétt
Belgrad. Reuter.
TOLF serbiskir ólátabelgir, sem
eru ákræðir fyrir að hafa ráðizt
á hóp manna af albönskum ætt-
um, á knattspyrnuleik, verða
leiddir fyrir rétt í næstu viku.
Júgóslavneska fréttastofan hefur
farið hörðum orðum um framferði
mannanna, kallar þá larfaláka, sem
hafí reynt að kynda undir úlfúð, sem
er gmnnt á, milli Júgóslava og
manna af albönskum ættum, sem
búa í landinu. Aftur á móti segir
einnig, að þúsundir serba, sem búa
í héraðinu Kosovo.en þar em Alban-
imir fjölmennastir, neyðist til að
flytja í brottu, vegna ofsókna Al-
bananna.
Indland:
Dómstólar af-
létta barnaþrælkun
Kambódía:
Rauðu Khmer-
arnir í víöfahuef
Bankok.AP. * V—J
Karl, Bretaprins, og Diana. Þessi mynd var tekin skömmu eftir
3 þau opinberuðu.
Karl og Díana í Óman
Muscat, Oman. AP. Reuter.
KARL Bretaprins og kona hans, komu í opinbera heimsókn til
Omans, þriðjudag og fagnaði súltaninn, Bin Quaboos þeim, er
þau gengu frá borði konungssnekkjunnar Britannicu. Þar með
er hafin tíu daga ferð þeirra um ríkin við Persaflóa.
Karli og Díönu var vel tekið og hrifning manna á Díönu leyndi
sér ekki, segir í fréttum.„Hún er eins og álfaprinsessa," sagði Sabr-
ah Riyami, eina konan sem vinnur á fréttastofu omanska sjónvarpsins.
Bretar og Omanir hafa haft tengsl sín í millum í rösk tvö hundr-
uð ár, og talið er að um tíu þúsund Bretar séu búsettir í Oman.
Vegna legu sinnar við Persaflóa þykir mikilvægi Omans hafa aukizt
mjög, ekki sízt með tilliti til stríðsins milli Iraks og Iran. I næsta
mánuði hyggja Bretar og Omanir á sameiginlegar heræfíngar.
Frá Oman fara þau hjónin til Quatars.Bahrein og Saudi-Arabíu.
Nýju Dcli, AP.
HÆSTIRÉTTUR á Indlandi
leysti í gær 319 böm úr þræla-
haldi. Börain höfðu verið
ánauðugir verkamenn hjá teppa-
verksmiðjum. Indversk samtök,
sem berjast gegn þrælkun, fengu
þessu framgengt eftir tveggja
ára baráttu fyrir dómstólum.
„Þetta eru góð tíðindi," sagði
Jose Verghese lögfræðingur, sem
sótti málið. „Við vonum að Indveij-
um sé nú öllum nóg boðið og þeir
leggist á eitt gegn þessum ósóma.“
Dómstólar fyrirskipuðu einnig að
rannsakað yrði hvað varð af 318
börnum, sem rannsóknamefnd
hafði sagt að væm í ánauð. Þessi
böm em nú horfín.
Verðhækk-
unum frest-
að í Svíþjóð
Stokkhólmur, Reuter.AP
SÆNSKIR bændur sam-
þykktu í gær að fresta
verðhækkunum á framleiðslu-
vörum sínum til næsta árs, til
þess að aðstoða ríkisstjóm
landsins við að ná markmiðum
sinum varðandi verðbólgu fyr-
ir árið 1986.
Talsmaður Landssamtaka
bænda í Svíþjóð tjáði fréttamönn-
um að samtökin hefðu fallist á
beiðni um að verðhækkunum, er
þegar höfðu verið leyfðar, yrði
frestað þangað tii í janúar á næsta
ári. Kjell-Olof Feldt, Qármálaráð-
herra, hafði haft samband við
bændur og tjáð þeim að verð-
hækkanimar gætu valdið því að
verðbólga færi yfir 3,2% og yrði
þá að hefja á ný samninga við
launamenn er starfa hjá einkafyr-
irtækjum og samið var við sl. vor.
Allt þetta myndi leiða til þess að
verðbólga ykist.
Ný stjórn mynd-
uð í Egyptalandi
Kairó, AP. V
Bamaþrælkun er bönnuð á Ind-
landi. Þetta bann hefur aftur á
móti verið virt að vettugi og við-
gengst til dæmis að foreldrar fái
lán gegn því að selja böm sín í
ánauð.
„Böm frá aldrinum sjö til tíu ára
voru neydd til þrælkunarvinnu. Þau
voru pyntuð til undirgefni. Hópur
bama reyndi að flýja. Bömin voru
elt uppi og handsömuð. Fætur
þeirra vom bundnir saman og böm-
in hengd upp í tré. Flóttabömin
vom brennimerkt með glóandi
jámi,“ sagði í skjali, sem lagt var
fyrir réttinn.
Mannréttindasamtök á Indlandi
segja að fímm milljónir Indveija séu
ánauðugir verkamenn. Stjómvöld
viðurkenna ekki þrælahald í
landinu.
HOSNI Mubarak, forseti Egypta-
lands, fól í gær hagfræðingnum
Atef Sedki að mynda nýja ríkis-
stjórn, eftir að fráfarandi
forsætisráðherra, Aly Lutfy,
hafði sagt af sér ásamt stjóra
sinni. Talið er, að deilur um efna-
hagsstefnu stjórnarinnar hafi
leitt til afsagnar þess síðar-
nefnda.
Enda þótt Lutfy hafi sagt af sér
af sjálfsdáðum, er talið vist, að
hann hafi látið af embætti sam-
kvæmt tilmælum Mubaraks.
Aðalverkefni Lutfys sem forsætis-
ráðherra var að reyna að fínna
lausn á efnahagserfíðleikum
Egypta, en þeir hafa aukizt mjög
á undanförnu ári í kjölfar lækkandi
olíuverðs.
Haft var eftir hinum nýja forsæt-
isráðherra í gær, að stjóm hans
myndi ekki draga úr niðurgreiðslum
í þágu láglaunastéttanna í landinu
og haldið yrði fast við stefnu fráfar-
andi stjómar í utanríkismálum.
Margaret Thatcher:
Hætta af hefðbundnum
herafla Sovétmanna
London, Reutcr.
MARGARET Thatcher, foraæt-
isráðherra Bretlands, mun um
næstu helgi eiga viðræður við
Reagan Bandarikjaforaeta í
Camp David, sveitasetri foraet-
ans. Talið er, að þar muni hún
láta í Ijós áhyggjur yfir því, að
mikill samdráttur í kjarnorku-
vopnum, kunni að skapa hættur
fyrir Vestur-Evrópu vegna
yfirburða Sovétríkjanna á sviði
hefðbundinna vopna.
í þeim tillögum, sem ræddar
voru á leiðtogafundinum í
Reykjavík, var gert ráð fyrir stór-
felldum samdráetti eða útrýmingu
kjamorkuvopna. Þetta myndi
hafa áhrif á fælnismátt kjam-
orkuherafla Breta sjálfra, þar sem
Polaris-eldflaugar em uppistaðan.
Þær eru hins vegar komnar til
ára sinna og því er gert ráð fyrir,
að í stað þeirra fái Bretar nýjar
eldflaugar af Trident-gerð árið
1991. Bretar og Frakkar eru einu
þjóðimar í Vestur-Evrópu, sem
ráða yfír eigin kjamorkuherafla.
í ræðu, sem Thatcher flutti á
fundi með fjármálamönnum í
fyrrakvöld, sagði hún, að Vestur-
Evrópu stafaði meiri hætta en
Bandaríkjunum af hefðbundnum
vopnum og efnavopnum Sov-
étríkjanna. Thatcher rifjaði upp
aðvömn Winstons Churchills til
Bandaríkjamanna um að falla
ekki frá kjamorkuvopnum fyrr en
þeir hefðu önnur tæki til að varð-
veita friðinn og sagði síðan:
„Önnur tæki em ekki enn til stað-
ar og því gemm við rétt með því
að taka tillit til þessa vísdóms
hans.“
Talið er, að þau Thatcher og
Reagan muni einnig ræða önnur
málefni eins og ástandið í Suður-
Afríku og sameiginlegar aðgerðir
gegn hryðjuverkamönnum. Má
búast við því að Thatcher krefji
Reagan um upplýsingar um, hvort
sannar séu uppljóstranir þess efn-
is, að Bandaríkjastjóm hafí látið
írani hafa vopn gegn því, að
gíslum yrði sleppt í Beirút.
Brezka stjómin hefur sem
kunnugt er tekið upp afar harða
afstöu gegn hryðjuverkamönnum.